4.10.2012 | 12:57
Umsókn um sýningarrými í Deiglunni og samkeppni um forsíðumynd
Viltu sýna í Deiglunni 2013?
Sjónlistamiðstöðin á Akureyri hefur nú auglýst sýningarými í Deiglunni laust til umsókna fyrir sýningarhald 2013. Áhugasamir skulu senda umsóknir fyrir 29. október n.k. til Sjónlistamiðstöðvarinnar, Kaupvangsstræti 12-24, 600 Akureyri, merktar Deiglan 2013 eða á neftangið haraldur@sjonlist.is
Umsókninni skulu fylgja eftirfarandi gögn:
Persónulegar upplýsingar
Ferilskrá ( ath. ef feillinn er stuttur eða um 1. sýningu að ræða þarf einungis að greina frá því)
Lýsing á fyrirhugaðri sýningu
Verk eftir viðkomanda. ( myndir af 5-10 verkum)
Ath. Sjónlistamiðstöðin áskilur sér rétt til að velja eða hafna öllum umsóknum.
Einnig hefur Sjónlistamiðstöðin auglýst samkeppni um forsíðumynd á sumarbækling sinn fyrir 2013. Í verðlaun eru kr. 100.000 og verða bestu myndirnar sýndar opinberlega. Frestur til að senda inn myndir er til 15. desember n.k.
Forsíðumynd:
Brot bæklings. 14,5 x 24. Hægt er að nálgast bækling ársins í ár í Ketilhúsi
Engin takmörkun er á efni, aðferð, viðfangsefni myndar nema að hún verður að vera prenttæk.
Nánari upplýsingar á sjonlist.is og hjá Haraldi í síma 461-2609.
3.10.2012 | 16:36
Guðbjörg Ringsted opnar sýningu á Bókasafni Háskólans á Akureyri
Sýning Guðbjargar Ringsted, Hugarflug, opnar á Bókasafni Háskólans á Akureyri, fimmtudaginn 4. október kl. 16. Sýningin er opin mánudaga, miðvikudaga og föstudaga frá kl. 8.00 16.00, þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 8.00 18.00 og stendur til 31. október 2012. Allir eru velkomnir.
Guðbjörg Ringsted er fædd á Akureyri árið 1957 og varð stúdent frá MA árið 1977. Hún úrskrifaðist úr grafíkdeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands (nú Listaháskóli Íslands) árið 1982. Guðbjörg hefur unnið við kennslu og stundað myndlist síðan þá. Fyrst um sinn vann hún mest að grafíkverkum en undanfarin ár hefur hún unnið með málverkið og er viðfangsefnið íslenskt útsaumsmynstur sem eignast sitt eigið líf í meðförum Guðbjargar.
Saumuð blóm flögra um myndflötinn, ýmist kröftug og skýr eða dauf og draumkennd.
Sýningin á Bókasafni HA er 22. einkasýning Guðbjargar en hún hefur einnig tekið þátt í fjölmörgum samsýningum hér heima og erlendis.
2.10.2012 | 08:56
Málþing um list í dagsins önn í Alþýðuhúsinu á Siglufirði
Alþýðuhúsið á Siglufirði
Laugardaginn 6. okt. 2012 kl. 14.00 - 17.00
Málþing um list í dagsins önn, eiga listir erindi við þig?
Málþingið er ætlað almenningi og öllu áhugafólki um listir.
Kl. 14.00 Örligur Kristfinnsson myndlistamaður / forstöðumaður Síldarminjasafnsins á Siglufirði.
Kl. 14.15 Guðmundur Oddur Magnússon prófessor við Listaháskóla Íslands.
Hver er galdur listarinnar?
Kl. 14.45 Kristín Þóra Kjartansdóttir félagsfræðingur / framkvæmdastjóri.
Sambúð með myndlist.
Kl. 15.00 Kaffihlé
Kl. 15.15 Þórarinn Hannesson Tónlistamaður / forstöðumaður Ljóðaseturs Íslands.
Þorpið fer með þér alla leið
kl. 15.30 Þórgnýr Dýrfjörð heimspekingur / framkvæmdastjóri Akureyrarstofu.
Hver fann upp Björk?
kl. 15.45 Almennar umræður og fyrirspurnir.
Allar nánari upplýsingar hjá Aðalheiði í síma 865-5091
Aðgangur ókeypis
www.freyjulundur.is
Eyþing, Fiskbúð Siglufjarðar, Sparisjóður Siglufjarðar, Fjallabyggð eru styrktaraðilar.
27.9.2012 | 23:14
Aðalheiður Valgeirsdóttir með listamannaspjall í Mjólkurbúðinni
Myndlistakonan Aðalheiður Valgeirsdóttir býður í listamannaspjall, laugardaginn 29. sept. kl.15 í Mjólkurbúðinni Listagilinu á Akureyri í tengslum við sýningu Aðalheiðar Jarðsamband.
Sýning Aðalheiðar Jarðsamband opnaði 15. september og er nú komið að sýningarlokum hennar í Mjólkurbúðinni. Sýningin er opin laugardag og sunnudag kl. 14-17 og eru allir velkomnir.
Um sýninguna:
Málverkin vann Aðalheiður á vinnustofu sinni í Biskupstungum. Í nálægð við náttúruna og síbreytilega ásýnd hennar allan ársins hring vakna upp spurningar um tengsl manns og náttúru. Maður og jörð eru samofin og mynda þannig jarðsamband sem miðlar verkinu. Maðurinn sem áhorfandi og hluti af heild er upphafspunktur upplifunar sem hverfist um hann.
Verkin eru unnin í framhaldi af sýningu sem Aðalheiður hélt í sal Íslenskrar grafíkur í Reykjavík síðastliðið vor og nefndist Leitin að óskasteininum. Þar var hugmyndin um óskasteininn tilefni til samtals við náttúruna. Samkvæmt gamalli þjóðtrú hafði óskasteinninn töframátt og gat uppfyllt óskir manna og þrár. Enn er leitað að óskasteininum um leið og nánasta umhverfi er skoðað. Aðalheiður leitar eftir litum formum og efniskennd í moldinni, gróðrinum og steinunum. Þannig verða málverkin til vegna beinna hughrifa frá umhverfinu í sveitinni þar sem jörðin og allt umhverfið kallar á athygli svo úr verða birtingarmyndir samtals manns og máttúru.
Aðalheiður Valgeirsdóttir lauk námi frá Myndlista-og handíðaskóla Íslands 1978 og BA prófi í listfræði frá Háskóla Íslands 2011. Stundar nú MA nám í listfræði við Háskóla Íslands. Aðalheiður hefur haldið fjölda sýninga hér á landi og erlendis. Hún er félagi í Sambandi íslenskra myndlistamanna og félaginu Íslensk grafík.
Nánari upplýsingar um sýninguna
Aðalheiður Valgeirsdóttir s. 6981184 og 5621303
ava@mmedia.is
26.9.2012 | 20:49
Overdose & Underdose í Sal Myndlistarfélagsins
"Tveir mjög ólíkir myndlistarmenn sem hafa sömu hugmynd um hvað góð myndlist sé og hvernig hana skal skapa. Við málum ofan í hvorn annann þangað til fullkomið jafnvægi skapast og verkið er eins og eftir einn furðulegann einstakling"
Titillinn Overdose & Underdose fjallar um ferli verkana í gerð, stundum er "Overdose" á ákvöðnum svæðum sem þarf að róa niður og stundum er "underdose" sem þarf að hlaða. Hvert verk gengur í gegn um þetta ferli aftur og aftur þar til ákveðið jafnvægi hefur myndast með öfgum í allar áttir.
Overdose & Underdose fjallar á sama tíma um hvernig áhorfandinn meðtekur verkin og gefur rými fyrir þær blendnu tilfinningar sem hann kann að upplifa frá verkinu.
Þessi sýning er frammhald af samstarfi þeirra GÓMS félaga sem hófst í sameiginlegri vinnuaðstöðu "Stúdíó Tímavél" frá árinu 2007-2008. Þeir héldu nokkrar sýningar með afrakstrinum sem fékk eintómt lof áhorfenda. Nú mætast þeir aftur á striganum í myndrænni orgíu sem ætti ekki að skilja neinn eftir ófullnægðan.
http://www.facebook.com/events/150904025050679
Menning og listir | Breytt 2.10.2012 kl. 08:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.9.2012 | 09:35
Baniprosonno með listasmiðjur fyrir börn
Baniprosonno (1932) teiknar, málar og gerir skúlptúra og hluti. Hann hefur haldið meira en 100 einkasýningar á verkum sínum víða um og heim, m.a. í Kalkútta, Nýju Delhi, Mumbai, Kathmandu, París, London, Berlín, Amsterdam, Oslo, Stokkhólmi og Reykjavík.
Meðal stofnana sem hafa boðið honum að sýna má nefna Commonwealth Institute, London - Kulturhuset, Stokkhólmi - Sonjahenie Art abo Centre, Noregi - Nordjyllands Kunst Museum, Álaborg, Danmörku - Kulturamt, Kiel - A.O.F.A., Kalkútta - Jahangir Art Gallery, Mumbai Listamenn Gallerí, Reykjavik og Listasafn Árnesinga í Hveragerdi þar sem hann hélt nýlega stóra sýningu undir heitinu Ævintýraheimur Baniprosonno þar sem allt var gert úr pappír og ánafnaði hann listasafninu alla sýninguna.
Baniprosonno er einnig þekktur fyrir ævintýralega listasmiðjur sínar með börnum víða um heim. Hann hefur yndi af skapandi eldamennsku og hefur lagt drög að kokkabók með heitinu Að elda án kokkabókar. Hann skrifar líka ævintýri og bullrímur fyrir börn á öllum aldri og hafa nokkrar slíkar bækur verið gefnar út.
Baniprosonno býr ásamt eiginkonu sinni Putul í indversku borginni Shimla sem er í 2500 metra hæð í Himalaya fjöllunum.
Í ágúst sl. hélt Baniprosonno upp á áttræðisafmælið sitt á Íslandi sem er æskudraumalandið hans.
19.9.2012 | 10:28
Menningardagskrá í Alþýðuhúsinu á Siglufirði
Föstudaginn 21. sept. kl. 20.00 verður menningardagskrá í Alþýðuhúsinu á Siglufirði.
Henriette van Egten opnar sýningu í Kompunni, sem er lítið sýningarrými í miðju Alþýðuhúsinu. Myndirnar sem Henriette sýnir eru unnar á Hjalteyri undanfarinn mánuð og bera með sér ævintýrablæ eins og listakonunni er tamt. Litskrúðugar myndir unnar með blandaðri tækni.
Henrietta er Hollensk og ein af þremur eigendum bókverkabúðarinnar Boekie Woekie í Amsterdam. Hún hefur búið hluta úr ári á Hjalteyri síðastliðin 30 ár og sett upp sýningar á Íslandi í gegnum tíðina, nú síðast í Safnasafninu á Svalbarðsströnd.
Í tilefni sýningarinnar mun Jón Laxdal Halldórsson flytja kvæðadagskrá sem saman stendur af þýddum kvæðum Íslenskra öndvegisskálda ásamt fáeinum frumortum ljóðum.
Einnig mun Jan Voss lesa hina ljóðrænu ferðasögu sína Square One sem út kom 2008. Jan Voss er Þýskur listamaður, einn af þremur eigendum Boekie Woekie í Amsterdam. Hann hefur líka búið hluta úr ári á Hjalteyri undanfarin 30 ár og sýnt á Íslandi og lesið úr verkum sínum í gegnum tíðina, síðast í Safnasafninu á Svalbarðsströnd.
Alþýðuhúsið á Siglufirði fékk nýtt hlutverk 19. júlí í sumar þegar Aðalheiður S. Eysteinsdóttir opnaði húsið eftir gagngerar endurbætur. Nú hýsir það vinnustofu Aðalheiðar og fyrirhugað er að setja upp menningarviðburði á mánaðar fresti sem allmenningur hefur aðgang að.
Allar nánari upplýsingar veitir Aðalheiður í síma 865-5091 eða á www.freyjulundur.is
19.9.2012 | 10:13
Opið hús í Gestavinnustofu Gilfélagsins
Opin vinnustofa
Jens Reichert
Laugardaginn 22. september kl 14:00 - 21:00
Gestavinnustofan
Kaupvangsstraeti 23
Akureyri
Listamaður septembermánaðar í gestavinnustofu Gilfélagsins í Listagilinu er þýski myndlistarmaðurinn Jens Reichert.
Þetta er í þriðja sinn sem Jens heimsækir Ísland. Hann kom til Akureyrar frá Seyðisfirði þ.s. hann dvaldi í gestavinnustofu Skaftfells í einn mánuð.
Aðaláhersla Jens hefur verið á skúlptúra en auk þess vinnur hann einnig með listmálun, innsetningar, hljjóðverk, ljósmyndun og lýsingu.
Hann mun sýna verk sem hann hefur unnið að á undanförnum vikum og hljóðverkið: Trying to teach Icelandic while living in Germany, sem er verk um tengsl fólks við móðurmálið og um misræmi á milli hljóðs og merkingar tungumálsins.
Nánari upplýsingar: www.reichert-jens.de
Open Studio
Jens Reichert
Saturday the 22nd of September at 14:00 - 21:00
Gestavinnustofan
Kaupvangsstraeti 23
Akureyri
Jens Reichert (*1967) is a visual artist from Freiburg, Germany.
He has been in residence at the guest studio for September. It`s the third time he is visiting Iceland and before coming to Akureyri he stayed for one month as an artist in residence at Skaftfell Center for Visual Art in Seydisfjördur.
The base of his work is sculpture. Furthermore he also works in the fields of painting, installation, acoustics, photography and light.
He will show some works which he made during the last weeks and the audio work Trying to teach Icelandic while living in Germany. It`s a work about people`s relation to their mother tongue and about the discrepancy between sound and meaning of language.
more information: www.reichert-jens.de
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 20:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.9.2012 | 15:30
Sjónlistaverðlaunin 2012 afhent
Í gærkvöldi afhenti Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, Sjónlistaverðlaunin 2012 við hátíðlega athöfn í Hofi á Akureyri. Tilnefndir listamenn að þessu sinni voru Ásmundur Ásmundsson fyrir sýninguna Hola í Listasafni Reykjavíkur Hafnarhúsi sem haldin var árið 2009, Katrín Sigurðardóttir fyrir sýninguna Katrin Sigurdardottir at the Met sem haldin var á Metropolitan safninu í New York, 2010-2011 og Ragnar Kjartansson fyrir sýningarnar The End, sem var framlag Íslands á Feneyjartvíæringnum árið 2009, Bliss á Performa-hátíðinni í New York, 2011 og Song í Carnegie safninu í Pittsburgh árið 2011.
Einnig var Heiðurslistamaður Sjónlistar útnefndur og viðurkennning, Spíran, veitt ungum og upprennandi listamanni. Líkt og við fyrri verðlaunaafhendingar voru allar tilnefningar í höndum faglegrar og óháðar nefndar skipuð þremur forsvarsmönnum fyrir hönd félagasamtaka og stofnana. Ragnar Kjartansson hlaut Sjónlistarorðuna 2012, en Hildur Hákonardóttir var kjörin Heiðurslistamaður fyrir ævilangt framlag til íslenskrar myndlistar og Janette Castioni var útnefnd Spíran 2012. Hér fyrir neðan má lesa greinargerð dómnefndarinnar um þá listamenn til tilnefndir voru til Íslensku sjónlistaverðlaunanna í ár.
Sýning á verkum ofangreindra listamanna verður opnuð í Listasafninu á Akureyri laugardaginn 15. september kl. 15.
---------------------------------------------
Greinagerð dómnefndar fyrir Íslensku sjónlistaverðlaunin 2012
Það eru afar jákvæð tíðindi fyrir íslenskt myndlistarlíf að Íslensku sjónlistaverðlaunin skuli vera endurreist eftir fjögurra ára dvala. Starfi og verkefnum myndlistarmanna er nauðsynlegt að hampa og segja má að Sjónlistaverðlaunin hafi verið mikilvægur þáttur í því umhverfi þar sem litið er yfir farinn veg hvers árs fyrir sig.
Líkt og við fyrri verðlaunaafhendingar liggur að baki óháð nefnd skipuð þremur forsvarsmönnum fyrir hönd félagasamtaka og stofnana, Listaháskóla Íslands, Sambands íslenskra myndlistarmanna og Listfræðafélags Íslands. Sú nýbreytni hefur verið tekin upp að kalla eftir tillögum í viðhorfskönnun sem send var út á félaga Sambands íslenskra myndlistarmanna, Nýlistasafnsins, Listfræðafélags Íslands og Listaháskóla Íslands. Dómnefnd tók tillit til þess viðhorfs sem birtist meðal þátttakenda án þess að könnunin hafi haft mótandi áhrif á niðurstöðu nefndarinnar.
Starf dómnefndar fyrir Íslensku sjónlistaverðlaunin í ár var sérstaklega vandasamt því ólíkt fyrri verðlaunum var, við val á tilnefndum listamönnum, í þetta sinn litið til baka á sýningarsögu íslenskra myndlistarmanna síðastliðin fjögur ár. Við þá rannsóknarvinnu og skoðanaskipti sem fram fóru á fundum nefndarinnar kom skýrt í ljós hve metnaðarfullt og fjölbreytt sýningarhald íslenskra listamanna er, bæði hérlendis og á alþjóðlegum vettvangi. Afstaða var tekin til fjölda merkra sýninga sem staðið hafa yfir á tímabilinu. Eftir krefjandi en jafnframt gefandi umræðu meðal nefndarmanna var vel ígrunduð niðurstaða dómnefndar einróma með tilliti til þeirra margþættu forsenda sem liggja að baki valinu.
Dómnefndin tilnefnir eftirfarandi þrjá íslenska listamenn til Íslensku sjónlistaverðlaunanna árið 2012. Þau eru: Ásmundur Ásmundsson fyrir sýninguna Hola í Listasafni Reykjavíkur Hafnarhúsi sem haldin var árið 2009, Katrín Sigurðardóttir fyrir sýninguna Katrin Sigurdardottir at the Met sem haldin var á Metropolitan safninu í New York, 2010-2011 og Ragnar Kjartansson fyrir sýningarnar The End, framlagi Íslands á Feneyjartvíæringnum árið 2009; Bliss á Performa-hátíðinni í New York, 2011; og Song í Carnegie safninu í Pittsburgh árið 2011. Tekin var afstaða til þeirrar staðreyndar að tveir af þremur tilnefndum listamönnum í ár hafi áður verið tilnefndir til Sjónlistarverðlaunanna (Katrín Sigurðardóttir árið 2006 og Ragnar Kjartansson árið 2008). Telur dómnefnd mikilvægt að líta ekki framhjá markverðum sýningum og verkefnum listamanna sökum þess að þeir hafi áður hlotið viðurkenningu fyrir fyrri verk, enda ekki lagðar slíkar forsendur í vali dómnefndar hverju sinni.
Ásmundur Ásmundsson (f. 1971) er vel kunnur fyrir afdráttarlausa gagnrýni á samfélagið í verkum sínum. Hann hefur lagt skýrar línur með myndlistinni sem stendur sem hnífbeitt rödd til gagnrýnnar umræðu eða öllu heldur róttæks niðurrifs, þar sem jafnan eldfim málefni eru lögð til endurskoðunnar. Sýningin Hola þótti að mati dómnefndar draga þarfa mynd af því umhverfi sem íslenskt samfélag stóð andspænis árið 2009 en sýningin tilheyrði sýningarröð sem kallaði eftir því að tengja myndlistina út fyrir stofnunina. Margra tonna steypuklumpur mótaður úr holu sem ungir grunnskólanemendur grófu upp er táknrænn fyrir þá gildru sem lífshættir íslenskt samfélags hefur lagt fyrir komandi kynslóðir. Verk Ásmundar eru þó ávallt margræð þar sem fagurfræði og efnistök ávarpa einnig hugmyndafræðilegar og listsögulegar hefðir og samhengi. Í einfaldleika sínum er steypuklumpur Ásmundar einnig tilraun til afbyggingar á hugmyndafræði módernismans. Í hrárri steinsteypunni er að finna tvöfeldni sem grefur undan sjálfhverfri áherslu á listmiðilinn með því beina samtali sem listamaðurinn krefur áhorfandann til að horfast í augu við.
Sýning Katrínar Sigurðardóttur (f. 1967), Katrin Sigurdardottir at the Met vann í samræðu við safneign Metropolitan safnsins og samanstóð af tveim innsetningum sem báru yfirskriftina Boiseries. Katrín er þekkt fyrir endurgerð og túlkun á stöðum bæði raunverulegum og ímynduðum, en innsetningarnar voru endurgerðir í fullri stærð á tveimur frönskum herbergjum frá 18. öld sem varðveittar eru í safninu. Einu frá Hôtel de Crillon (1777-80) á Place de la Concorde í París og öðru frá Hôtel de Cabris (ca. 1774) frá Grasse í Provence. Alhvítt yfirbragð innsetninganna gefur þessum stöðum fágað og hlutlaust yfirbragð og rýnir þar um leið í sögulegan bakrunn hins upprunalega staðar sem flysjaður hefur verið af stoðum sínum og yfirfærður út fyrir samhengi sitt. Það er hin hugmyndfræðilegi undirtónn verksins sem felur því merkingu sína. Margslungin samsetning um stað og upplifun er höfuðeinkenni verka Katrínar en með innsetningunum má sjá djúpa heimspekilega samræðu kallast á við þau grunnþemu.
Ragnar Kjartansson (f. 1976) hefur nýtt sér sjónarspil og bakland leikhússins sem samtvinnast við efnistök gjörningalistarinnar. Gjarnan fær hann að láni efnivið úr safni klassískra verka, hvort sem um er að ræða bókmenntir, leikhúsverk eða jafnvel staðlaðar ímyndir hins rómantíska listamanns. Á undanförnum árum hefur hann fengist við svokallaða þolgæðisgjörninga sem tilheyrðu The End, sex mánaða gjörningi á Feneyjartvíæringnum árið 2009, Bliss sem var tólf klukkustunda óperuflutningur sem fluttur var á Performa-hátíðinni í New York og Song sem var þriggja vikna gjörningur fluttur af frænkum listamannsins á Carnegie safninu í Pittsburgh árið 2011. Með þessum verkefnum hefur Ragnar sýnt fram á að hafa náð fullu valdi á viðfangi sínu. Það er á mörkum þrautseigju og uppgjafar sem virkni eða pathos verka hans verður sýnilegt í samspili andstæðra tilfinninga sem spretta fram meðal áhorfandans.
Það er áhugavert að sjá að landfræðileg mörk þurfa ekki að hafa áhrif á störf listamanna í myndlist samtímans. Katrín Sigurðardóttir kann að starfa að mestu frá New York í Bandaríkjunum en hefur ávallt lagt upp úr því að halda sterkum tengslum við íslenskt myndlistarlíf með reglulegum sýningum og kennslu á Íslandi samfara störfum sínum á alþjóðlegum vettvangi. Ásmundur og Ragnar hafa aftur á móti starfað að mestu frá Íslandi og með því móti haft mótandi áhrif á íslenskt myndlistarumhverfi. Ásmundur hefur með verkum sínum og skrifum sérstaklega beint sjónum að íslensku samfélagi í beinum samræðum við pólitískt og menningarlegt ástand hverju sinni. En báðir listamenn hafa einnig teygt starfsemi sína út fyrir landsteinanna, eins og birtist með skýrum hætti í störfum Ragnars síðustu ár. Á þessu má sjá að gróskan í íslensku myndlistarlífi elur af sér framúrskarandi listamenn sem hafa vægi í alþjóðlegu samhengi listarinnar.
Líkt og fyrri ár er einnig veitt heiðursorða fyrir einstakt æviframlag til myndlistar á Íslandi. Í ár er það Hildur Hákonardóttir sem hlýtur heiðursorðu Íslensku sjónlistaverðlaunanna. Afstaða dómnefndar er bundin við þann virka þátt sem Hildur átti í myndlistarumhverfinu á Íslandi sem hefur haft mótandi áhrif á þær kynslóðir sem á eftir komu og það umhverfi sem við þeim blasir allt til dagsins í dag.
Hildur er fædd í Reykjavík árið 1938. Hún lauk námi frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1968 og stundaði framhaldsnám við Edinburgh College of Art frá 1968-69. Hún var meðlimur í SÚM hópnum og tók virkan þátt í kvennabaráttunni og þeim miklu þjóðfélagshræringum sem áttu sér stað á árunum eftir stúdentabyltinguna árið 1968. Í list sinni lagði Hildur einkum fyrir sig myndvefnað sem hafði sterkar skírskotanir til atburða eða ástands í samtímanum.
Auk listsköpunar sinnti hún margskonar störfum tengdum myndlist. Meðal annars kenndi hún við Myndlista- og handíðaskóla Íslands á árunum 1969 -1982 og var síðar skólastjóri hans frá 1975-1978 og stofnaði þá hina umdeildu Nýlistadeild og einnig málaradeild. Hún var forstöðumaður Byggða- og listasafns Árnessýslu 1982-1992 og síðar Listasafns Árnesinga til ársins 1996. Þó að ekki hafi mikið farið fyrir störfum Hildar í myndlist undanfarin ár hefur innkoma hennar t.a.m. með yfirlitssýningu í Listasafni ASÍ á síðasta ári og samsýningu í Sjónlistarmiðstöðinni á Akureyri fyrr á árinu, undirstrikað mikilvægi hennar í íslensku myndlistarumhverfi.
Nýr flokkur hefur verið tekinn upp til að heiðra, utan heiðurslistamanns , listamann af yngri kynslóð íslenskra listamanna, undir heitinu Spíran. Jeannette Castioni er kjörin Spíra Íslensku Sjónlistarverðlaunanna árið 2012. Hugmyndin um spíru í myndlist er afstæð og á Jeannette fremur ungan myndlistaraldur að baki sér þrátt fyrir að ferill hennar tengist störfum í myndlist til lengri tíma. Jeannette er fædd árið 1968 í Verona á Ítalíu og býr og starfar bæði þar og í Reykjavík. Hún nam forvörslu við The School of Conservations and Restoration í Flórens, Ítalíu (1990-93) og síðar málaralist við Academy of Arts, Bologna, Ítalíu (1998-2002). Hún útskrifaðist með BA- gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2006 ásamt framhaldsnámi í kennslufræðum, 2007. Árið 2008 lauk hún einnig námi í ítölskum bókmenntum og heimsspeki við University of Literature and Philosophy á Ítalíu. Verk Jeannette búa yfir ákveðinni dýpt þar sem hún nýtir sinn klassíska bakgrunn til rökræðna við samtímann sem gjarnan tengjast menningarlegum eða félagslegum efa. Hún hefur með fyrri verkum fundið sinn persónulega stíl og skýran listrænan vettvang og á að baki sér sýningarferil sem vert er að taka eftir.
Dómnefnd Íslensku sjónlistaverðlaunanna árið 2012 er bæði ánægja og heiður að tilkynna tilnefningar til verðlaunanna og er sannfærð um að valið hafi markast af bestu vitund og samvisku.
Fyrir hönd dómnefndar,
Kristín Dagmar Jóhannesdóttir, formaður.
DÓMNEFND
Hildur Bjarnadóttir, myndlistarmaður
Fyrir hönd Listaháskóla Íslands
Hlynur Hallsson, myndlistarmaður
Fyrir hönd Sambands íslenskra myndlistarmanna
Kristín Dagmar Jóhannesdóttir, listfræðingur
Fyrir hönd Listfræðafélags Íslands
13.9.2012 | 23:06
Lárus H List sýnir í Sal Myndlistafélagsins
Lárus H List
Myndlistasýninginn MAR
15/9-30/9 Kl 14 í Sal Myndlistafélagsins Listagilinu Akureyri
Sýningin „Mar“ Umfjöllunarefni sýningarinnar er hafið, strandlengjan og
lífið sem tengist því.Myndefnið núna er bátar og bryggjur, fiskur og
veiðar, fiskislátrun og blóð. Þarna er myndlistarmaðurinn með pælingar um
strandmenningu og sjávarlífið og mannlífið við hafnirnar. Myndlist Lárusar
H List er tengd oftast manni og náttúru. Skil á milli gamla tímans og þess
nýja þar sem skilinn fara í gegnum ævintýraheima manna og huldufólks.
Heimur hugmynda sem er óskýr dulur en þó kristalskýrar línur og litir sem
mætti kalla naumhyggju, en er þó vitni um sterkan stíl Lárusar sem vefur
myndformið á sinn hátt út frá hvítum fletinum.
-Magic- is the art of producing a desired effect or result through the use
of incantation or various other techniques that presumably assure human
control of supernatural agencies or the forces of nature. Art Magic by
Larus H List has been practiced in many experiencing and influencing the
world somewhat akin to those offered by nature, though it is sometimes
regarded as more focused Magic of Alfs or Hiden pepole.
Lárus H List lærði myndlist á Listasafninu á Akureyri í sex ár eða frá
1994-2000 undir stjórn og handleiðslu Haraldar Inga Haraldssonar
Listfræðings og fyrrum forstöðumans Listasafnsins og Hannesar Sigurssonar
Listfræðings og núverandi forstöðumans safnsins. Lárus H List sýndi
myndlistarstarfsemi safnsins mikinn áhuga og gerði sér far um að kynna sér
vel þær sýningar sem á boðstólum voru hverju sinni. Á safninu komst Lárus
H List einnig í persónuleg kynni við marga myndlistamenn, bæði innlenda og
erlenda sem höfðu mótandi áhrif á listferil hans sjálfs.
Hannes Sigurðsson, forstöðumaður Listasafnsins á Akureyri.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 23:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.9.2012 | 14:28
Ásmundur Ásmundsson les upp í Flóru
Ásmundur Ásmundsson les upp í Flóru
14. september 2012, kl. 17.00
Flóra, Hafnarstræti 90, 600 Akureyri, s. 6610168
http://floraflora.is
https://www.facebook.com/flora.akureyri
Myndlistarmaðurinn Ásmundur Ásmundsson mun lesa upp úr bók sinni Kæru vinir / Dear friends föstudaginn 14. september kl. 17.
Ásmundur er einn þriggja myndlistarmanna sem tilnefndur er til Sjónlistaverðlaunanna 2012. Árið 2011 kom út bókin Kæru vinir / Dear friends hjá Útúrdúr og hún inniheldur fjörbreyttar tækifærisræður sem Ásmundur hefur flutt við hin ýmsu tilefni. Ásmundur hefur gefið út nokkrar bækur og skrifað greinar í blöð og tímarit.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir og upplesturinn stendur frá kl. 17-17:30 eða þar um bil.
Flóra er verslun, vinnustofa og viðburðastaður Kristínar Þóru Kjartansdóttur félagsfræðings og garðyrkjukonu. Áherslan er á nýtingu, endurnýtingu, náttúrutengsl og verkmenningu. Listrænn ráðunautur staðarins er Hlynur Hallsson, myndlistarmaður.
13.9.2012 | 10:53
Aðalheiður Valgeirsdóttir sýnir í Mjólkurbúðinni í Listagilinu
Laugardaginn 15. september 2011 verður opnuð sýning á málverkum Aðalheiðar Valgeirsdóttur í Mjólkurbúðinni, Listagilinu á Akureyri. Sýningin ber yfirskriftina Jarðsamband sem vísar til tengsla mannsins við náttúruna.
Málverkin vann Aðalheiður á vinnustofu sinni í Biskupstungum. Í nálægð við náttúruna og síbreytilega ásýnd hennar allan ársins hring vakna upp spurningar um tengsl manns og náttúru. Maður og jörð eru samofin og mynda þannig jarðsamband sem miðlar verkinu. Maðurinn sem áhorfandi og hluti af heild er upphafspunktur upplifunar sem hverfist um hann.
Verkin eru unnin í framhaldi af sýningu sem Aðalheiður hélt í sal Íslenskrar grafíkur í Reykjavík síðastliðið vor og nefndist Leitin að óskasteininum. Þar var hugmyndin um óskasteininn tilefni til samtals við náttúruna. Samkvæmt gamalli þjóðtrú hafði óskasteinninn töframátt og gat uppfyllt óskir manna og þrár. Enn er leitað að óskasteininum um leið og nánasta umhverfi er skoðað. Aðalheiður leitar eftir litum formum og efniskennd í moldinni, gróðrinum og steinunum. Þannig verða málverkin til vegna beinna hughrifa frá umhverfinu í sveitinni þar sem jörðin og allt umhverfið kallar á athygli svo úr verða birtingarmyndir samtals manns og máttúru.
Aðalheiður Valgeirsdóttir lauk námi frá Myndlista-og handíðaskóla Íslands 1978 og BA prófi í listfræði frá Háskóla Íslands 2011. Stundar nú MA nám í listfræði við Háskóla Íslands. Aðalheiður hefur haldið fjölda sýninga hér á landi og erlendis. Hún er félagi í Sambandi íslenskra myndlistamanna og félaginu Íslensk grafík.
12.9.2012 | 13:01
Unnar Örn opnar sýningu í Flóru
Unnar Örn
Brotabrot úr afrekssögu óeirðar á Íslandi: Fyrsti hluti
Fragments From the Deeds of Unrest in Iceland: Part One
15. september - 20. október 2012
Opnun laugardaginn 15. september kl. 14
Flóra, Hafnarstræti 90, 600 Akureyri, s. 6610168
http://floraflora.is
https://www.facebook.com/flora.akureyri
Laugardaginn 15. september kl. 14 opnar Unnar Örn J. Auðarson myndlistarsýningu sem nefnist Brotabrot úr afrekssögu óeirðar á Íslandi: Fyrsti hluti í Flóru í Hafnarstræti 90 á Akureyri.
Á sýningunni í Flóru beinir Unnar Örn sjónum sínum að geymd upplýsinga tengdum viðspyrnu almennings og hvernig átök í sögu þjóðar er eytt úr sameiginlegu minni af ríkjandi valdhöfum.
Unnar Örn J. Auðarson stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og framhaldsnám við Listaakademíuna í Malmö. Unnar Örn vinnur í ólíka miðla en verk hans eru yfirleitt hlutar úr stærri innsetningum þar sem hann vinnur á gagnrýninn hátt með umhverfi sitt, samfélagið og hlutverk listamannnsins innan þess. Unnar hélt sýna fyrstu einkasýningu í verslunarmiðstöðinni Kringlunni sem hluti af Gallerí Gúlp árið 1996 og síðan þá hefur hann tekið þátt í yfir 50 einka- og samsýningum hérlendis og erlendis.
Sýningin er öllum opin á opnunartíma Flóru mánudaga til föstudaga kl. 12-18 og laugardaga kl. 12-16 og stendur til laugardagsins 20. október 2012.
Heimasíða Unnars Arnar: http://unnarorn.net
Nánari upplýsingar veitir Unnar í síma 699 5621.
Flóra er verslun, vinnustofa og viðburðastaður Kristínar Þóru Kjartansdóttur félagsfræðings og garðyrkjukonu. Áherslan er á nýtingu, endurnýtingu, náttúrutengsl og verkmenningu. Listrænn ráðunautur staðarins er Hlynur Hallsson, myndlistarmaður.
12.9.2012 | 12:54
Sjónlist 2012 í Hofi
ENDURREISN ÍSLENSKU SJÓNLISTAVERÐLAUNANNA
verðlaunaafhending í Hofi 13. september kl. 20
Þrír einstaklingar hafa verið tilnefndir til Sjónlistaverðlaunanna af sérstakri dómnefnd sem skipuð er þremur fulltrúum frá Listaháskóla Íslands, Sambandi íslenskra myndlistarmanna og Listfræðifélagi Íslands. Einnig verður heiðurslistamaður útnefndur sem og Spíran veitt ungum og upprennandi listamanni. Hátíðin var haldin árlega á árunum 2006-2008 en hefur legið niðri vegna fjárskorts þar til nú. Áður voru verðlaunin veitt bæði hönnuði og myndlistarmanni en í ár verður sjónum einungis beint að myndlistarmönnum og eru þrír tilnefndir til Sjónlistaverðlauna.
Hátíðardagskráin hefst í Hamraborg í Hofi kl. 20 fimmtudagskvöldið 13. september. Allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir og aðgangur ókeypis en nauðsynlegt er að tryggja sér miða í miðasölu Hofs eftir kl. 13 fimmtudaginn 13. september. Sýning á verkum ofangreindra listamanna verður opnuð í Listasafninu á Akureyri laugardaginn 15. september kl. 15.
10.9.2012 | 13:29
Sýningu Jónu Hlífar í Flóru að ljúka
Jóna Hlíf Halldórsdóttir
Info
25. ágúst - 11. september 2012
Flóra, Hafnarstræti 90, 600 Akureyri, s. 6610168
http://floraflora.is
https://www.facebook.com/flora.akureyri
Þriðjudaginn 11. september lýkur sýningu Jónu Hlífar Halldórsdóttur sem nefnist Info í Flóru í Hafnarstræti 90 á Akureyri.
Verkin sem Jóna Hlíf sýnir í Flóru eru textaverk römmuð inn í gömul auglýsingaskilti sem fylgdu húsinu Hafnarstræti 90 þegar Frúin í Hamborg fékk húsið á sínum tíma.
Jóna Hlíf Halldórsdóttir er fædd í Reykjavík 1978 og hún býr og starfar þar. Hún stundaði nám við Myndlistarskólann á Akureyri á árunum 2002-2004. Hún útskrifaðist með MFA gráðu frá Glasgow School of Art 2007.
Verk Jónu Hlífar Halldórsdóttur hafa verið sýnd nokkuð víða, Kuckei+Kuckei í Berlín (2011), Listasafn Así (2010), Listasafn Reykjavíkur (2008), Listasafnið á Akureyri (2007), Kunstvlaai í Amsterdam(2006), í Tramway, Glasgow (2007, útskriftarsýning) og A Cabine do Amador í Lissabon (2007).
Sýningin er öllum opin á opnunartíma Flóru mánudaga til föstudaga kl. 12-18 og laugardaga kl. 12-16.
Heimasíða Jónu Hlífar: www.jonahlif.com
Nánari upplýsingar veitir Jóna Hlíf í síma 663 0545.
Flóra er verslun, vinnustofa og viðburðastaður Kristínar Þóru Kjartansdóttur félagsfræðings og garðyrkjukonu. Áherslan er á nýtingu, endurnýtingu, náttúrutengsl og verkmenningu. Listrænn ráðunautur staðarins er Hlynur Hallsson, myndlistarmaður.
8.9.2012 | 10:06
Umfjöllun umsýninguna Glóbal - lókal í Listasafninu á Akureyri
Pálína Guðmundsdóttir fræðslufulltrúi Sjónlistamiðstöðvarinnar á Akureyri
Listumfjöllun
Glóbal - lókal í Listasafninu á Akureyri (Sjónlistamiðstöðin).
Í listasafninu stendur nú yfir samsýningin Glóbal-lókal í tilefni af 150 ára afmæli Akureyrarbæjar. Sýningarstjóri er Dr. Hlynur Helgason. Sex listamenn sem á einn eða annan hátt tengjast Akureyri deila með sér rými safnsins. Listamennirnir hafa allir einhver tengsl við erlendan listheim gegnum búsetu, nám eða sýningahald erlendis.
Hér er fjallað um sýninguna með augum fræðslufulltrúa Sjónlistamiðstöðvarinnar á Akureyri sem er í nánast daglegum tengslum við sýninguna og marga af gestum hennar. Fellur þessi umfjöllun frekar undir listfræðslu fyrir almenning frekar en að um hefðbundna listgagnrýni sé að ræða. Hér verður hvorki vitnað í ítarlegan texta Dr. Hlyns Helgasonar, sem finna má á heimasíðu Sjónlistamiðstöðarinnar, né í listgagnrýni Þóroddar Bjarnasonar, sem birtist í Fréttablaðinu. Hvorutveggja á að vera sýnilegt á www.sjonlistamidstodin.is auk Sjónpípunnar sem er miðill stofnunarinnar sjálfrar.
Samruni - jafnvægi
Eftir að hafa unnið í safninu í fleiri vikur með sýningunni Glóbal-lókal eru þau hugtök sem fyrst koma upp í hugann samruni og jafnvægi. Jafnvægi er helst fólgið í valinu á listamönnunum og samruni í því hvernig verkin falla saman og á stundum verða að einu verki. Þar ber helst að nefna tónverk Baldvins Ringsted og söngvídíóverk Örnu Valsdóttur sem verður sem eitt verk við innganginn í miðsalinn. Þess ber að geta að það er vægast sagt þreytandi að hlusta á hávaða frá listaverkum á sýningum fyrir þá sem sitja yfir í fjóra tíma samfellt á dag en í þessu tilviki sleppur það nokkuð vel vegna þess hve verkin eru vönduð og falla vel saman.
Blámi norðursins
Sjálf sýningin hefst raunar með tvíræðum texta Hlyns Hallssonar utan á safninu við brunastigann en þar hefur hann krotað NEYÐARINNGANGUR. Mjög skilja menn þetta misjafnlega eins og sennilega er ætlun listamannsins.
Við safnaleiðsögn er best að byrja við þennan umrædda inngang að innanverðu og horfa yfir Austursalinn og yfir í Miðsalinn. Blái liturinn er yfirgnæfandi í verkunum sem sýnileg eru frá þessu sjónarhorni og tengir hann þau saman í þétta heild og vísar kannski ómeðvitað í norðrið, áttina til Norðurpólsins.
Flugferð Örnu í videoverki hennar þar sem fingur hennar reyna að snerta skýin og himininn og blár veggur Hlyns með hvítu blöðunum sem öll vísa til staða í bænum sem áhorfandinn getur myndgert á sérstökum blöðum, tóna vel saman. Bláa litinn er einnig að finna í textaverki Jónu Hlífar Halldórsdóttur þar sem bláir stafir (texti þar sem stendur Þú siglir aldrei til sama lands) eru á svörtum fleti sem og bláu málverki Baldvins af kirkju bæjarins og einhverri paradísarströnd með pálmum. Öll þessi fjögur verk, ýta ennfremur undir tilfinningu fyrir útkjálka norðursins og þess sem er lokal eða staðbundið.
Í sama sal er textaverk Hlyns með þremur textum á mismunandi tungumálum og er enski hlutinn skrifaður með bláum lit neðst á veggnum. Hinir textarnir eru í grænu og rauðu (sjá nánari útskýringu á verkunum í texta Dr. Hlyns Helgasonar á heimasíðu). Málverk Baldvins er áhugavert, bæði formið; að saga Akureyrarkirkju út og bæta ofan á verkið og einnig innihaldslega; tregi og rómantísk sýn á heimabæinn og táknmynd hans. Þetta ætti að vera kunnuglegt flestum þeim er dvalið hafa langdvölum erlendis. Baldvin gefur þessu líka skoplegan blæ. Verkið virkaði í fyrstu sem nokkurskonar kitchmynd eða söluvarningur á túristastöðum en eftir margra vikna áhorf hefur styrkur hennar og fegurð magnast og má hún teljast góð táknmynd fyrir 150 ára afmæli Akureyrar.
Snautleg listaverkaeign bæjarins
Hér er ekki hægt annað en taka fram hve sorglegt það er að Akureyrarbær fjárfesti ekki í listaverkum og að ekkert sé keypt til minningar um þessi merku tímamót. Listaverkaeign bæjarins er ekki einungis tímaskekkja heldur til skammar. Ekki er hægt að gefa bænum listaverk ef einhver hefur áhuga á því, því hann tekur ekki við slíkum gjöfum þar sem þeim fylgja kvaðir. Það er alveg með ólíkindum að vilji sé ekki fyrir hendi á því að safna verkum eftir þá góðu listamenn sem tengjast bænum og líka yfir höfuð að safna nútímalist eftir fremstu listamenn þjóðarinnar. Þessi verk verða bara dýrari í innkaupum með tímanum og bestu verkin verða ekki einu sinni föl, þegar frammí sækir.
Verk Hlyns Hallssonar kallast vel á yfir salinn á stærstu veggjum þess og halda þau góðu jafnvægi hvert við annað eins og samstilltar vogarskálar. Krafturinn og fegurðin í verkum Hlyns nýtur sín vel hér auk þess sem hann ögrar áhorfandanum. Pappírsskúlptúr Jónu Hlífar nýtur sín líka einkar vel við gluggana sem kasta skuggum sínum inn í salinn í sólskini og hafa þeir sjónræn áhrif á listaverkið og umhverfi þess. Þessi skúlptúr er fagur og áhrifaríkur, þar sem lítið tré vex uppúr blaðabunka og leitar í birtuna frá gluggunum en ekki upp í loftið. Þetta litla tré krefst þess að starfsmennirnir hlúi vel að því með vatnsgjöfum og umhyggju. Á efsta blaðinu í pappírsbunkanum stendur Öll tré á Íslandi eru gróðursett. Verkið vísar á ljóðrænan hátt í hringrás náttúrunnar og iðnaðarins/menningarinnar. Pappír er gerður úr trjám og hér lætur hún pappírinn gera eða halda utanum tré í vexti. Hlutföll plöntunnar og pappírsins ýta undir styrk verksins og fagurfræði.
Nonni sem tákngervingur sýningarinnar
Annað verk eftir Jónu Hlíf er í litlu rými við Vestursal en þar sést vídeómynd af henni mála á sér nefið og í kringum munninn eins og trúðar gera en einnig koma upp í hugann myndir af pandabjörnum. Undir vídeóinu er lesin texti eftir Hjálmar Brynjólfsson af Garðari Thor Cortes en hann lék Nonna í kvikmynd um þá bræðurna Nonna og Manna, fyrir all löngu. Á kynningarplakati sýningarinnar kemur þessi tenging við Nonna aftur fram en þar spjallar hann sem gamall rithöfundur við japönsk börn. Akureyringurinn orðinn heimsmaður og víðförull að fræða ungviði heimsins um æsku sína á norðurhjara veraldar. Þetta verk, ekki síður en málverk Baldvins, vex við hvert áhorf. Ástæða er til þess að nefna mikilvægi þess að skoða sýningar oft og hve blekkjandi það er oft að dæma verk eftir fyrsta áhorf.
Verk Níelsar Hafstein eru öll í Vestursalnum auk textaverks Hlyns og vídeóverks af næturhimni vorsins á Akureyri eftir Örnu sem fellur snilldarlega inn í verk Níelsar af byggingargrind húss. Annað verk Níelsar á sýningunni er af mörgum sögum sem saga í stólpa úr tré og er hreyfing verksins slík að auðvelt er að hugsa sér sagarhljóðin og hreyfingu þeirra. Þetta verk magnast við hvert áhorf og verður í huganum að einhverskonar hreyfimynd. Lítið líkan af Effelturninum í París er þarna líka og mynd af því hvernig hægt er að gera líkan af Empire State byggingunni í New York. Gaman er því að labba frá táknmynd Parísar í gegnum húsgrindina sem táknar Akureyri og yfir til New York. Meira global og lokal getur það ekki verið en Akureyri er sem kunnugt einmitt staðsett mitt á milli þessara borga. Verk Níelsar mynda sterka heild í rýminu og tjá bæði gott skopskyn hans og næmi fyrir efninu.
Minningar uppvaxtarins
Í miðsalnum eru fleiri verk eftir Baldvin. Áhugaverðast er spegill sem sagaður hefur verið niður á kerfisbundinn hátt í tengslum við rytma í discolagi úr fortíð hans. Hlutarnir eru svo límdir saman aftur og ræmur af veggfóðri komið fyrir á veggnum neðan við spegilinn en þær vísa einnig í tísku uppvaxtarára hans. Verkið er hrífandi og langaði gesti safnsins frá Kaliforníu að eignast það en þar sem það rúmaðist ekki í handfarangri þeirra eins og þau sögðu keyptu þau minna verk á annarri sýningu og stungu í handfarangur sinn. Þau lofsömuðu þá list sem þau sáu á Akureyri og fannst snautlegt að geta flutt svo lítið magn með sér heim.
Verk Jóní Jónsdóttur af hinni sögufrægu ævintýrapersónu Gosa og vinkonu hans hér Gosastelpunni, að plata fólk er áhrifaríkt og formsterkt. Verkið er pínulítið á stórum vegg en styrkur þess er þannig að það virðist mun stærra. Gestir safnsins þurfa margir skýringu á því, hvað það þýði að Gosastelpan segist vera Akureyringur og nefið lengist. Skýringuna má lesa í texta Dr. Hlyns á heimasíðunni. Allir þeir aðkomumenn sem ekki aðlagast bænum auðveldlega geta samsamað sig þessu verki, einkum börn nærsveitanna sem flytja og byrja í nýjum skóla á Akureyri. Plakat af verkinu er til sölu í safninu. Verk Jóní er sterkt, eftirminnilegt og fallegt. Þetta verk er nokkuð eitt á báti og eins og örlítið aðskilið frá öllum hinum verkunum sem fléttast svo auðveldlega saman og mynda eins og eina heild. Þetta er þó á engan hátt truflandi, þvert á móti endurspeglar verkið að ekki allir eru Akureyringar þó svo það sé gefið í skyn. Hvað er það annars að vera Akureyringur?
Hve lengi á að búa hér til að verða Akureyringur? Eru menn það eftir einhvern vissan árafjölda af búsetu hér í æsku, jafnvel þó að þeir flytji í burtu? Margir hafa eitt uppvaxtarárunum á mörgum mismunandi stöðum, kannski er tímaskekkja að kenna sig einungis við einn stað.
Sami himinninn heima sem heiman
Það verk sem flestir gestir safnsins tjá sig um að hrífi þá og lýsa hrifningu sinni yfir er videóverk Örnu Valsdóttur en titill þess er eftir samnefndri kvikmynd Der himmel über Berlin eftir Wim Wenders og vill Arna vísa til þess að allt er þetta sami himininn hvort heldur hann er yfir Akureyri eða Berlin, lokal eða global. Verkið snertir augljóslega áhorfandann djúpt og hrífur söngurinn á eftirminnilegan hátt.
Sýningin hefur verið mjög vel sótt og stærsti hluti gestanna verið útlendingar.
Þetta er áhugaverð sýning í tilefni afmæli bæjarins og vekur upp margar spurningar og vangaveltur á viðfangsefninu sem erfitt er að gera skil í svo stuttum texta. Safngestirnir hafa margir ekki getað orða bundist af hrifningu yfir því að það skuli vera ókeypis inn á safnið og á allar sýningarnar í Listagilinu. Einhverjir verða fyrir vonbrigðum með að á safninu skuli ekki vera safneign til sýnis ásamt tilfallandi sýningum. Það er kannski tímabært að fara að safna myndlist og endurbyggja húsnæðið fyrir 200 ára afmæli bæjarins.
6.9.2012 | 12:43
Fræðsludagskrá í Sal Myndlistarfélagsins
4.9.2012 | 21:22
KEA auglýsir eftir umsóknum í Menningar- og viðurkenningasjóð
Menningar- og viðurkenningasjóður KEA auglýsir eftir styrkumsóknum og er umsóknarfrestur til 30. september 2012. Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér nánari útlistun á úthlutunarflokkum og reglugerð sjóðsins á heimasíðu KEA, www.kea.is. Nauðsynlegt er að fylla út umsóknareyðublað sem nálgast má á heimasíðunni eða á skrifstofu KEA, Glerárgötu 36.
Styrkúthlutun tekur til eftirfarandi flokka:
Til einstaklinga, félaga eða hópa sem vinna að mikilvægum menningarmálum á félagssvæðinu. Um getur verið að ræða málefni á sviði félagsmála, minja, lista og almennt þeirra málefna sem flokkast sem menning í víðtækri merkingu.
Til þátttökuverkefna á sviði menningarmála. Í þessum flokki er horft til stærri verkefna á sviði menningarmála á félagssvæði KEA.
Til ungra afreksmanna á sviði mennta, lista og íþrótta eða til viðurkenninga fyrir sérstök afrek s.s. á sviði björgunarmála. Í þessum flokki skulu umsækjendur vera yngri en 25 ára og búsettir á félagssvæði KEA.
Styrkir til íþróttamála. Markmiðið er að stuðla að því að sem flest börn og unglingar eigi kost á íþróttaiðkun og að íþróttamenn eða lið sem skara fram úr geti stundað markvissar æfingar og sótt mót við sitt hæfi. Einnig falla hér undir verkefni sem eru til þess fallin að stuðla að heilbrigðum lífstíl almennings eða snúa að uppbyggingu á aðstöðu til íþróttaiðkunar.
Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér reglugerð sjóðsins.
Nauðsynlegt er að fylla út umsóknareyðublöð sem nálgast má á heimasíðunni umsóknareyðublöð eða á skrifstofunni og skal þeim skilað rafrænt eða á skrifstofu KEA, Glerárgötu 36, á Akureyri fyrir 30. september 2012.
29.8.2012 | 17:27
TENGJA - myndverk eftir Hrefnu Harðardóttur í Uglunni
Myndverkið TENGJA er ljósmyndaverk af 12 flottum og virkum konum sem allar eru búsettar við Eyjafjörð. Myndirnar eru svart-hvítar og rammaðar inn með efnisvafningum sem tengjast litatilveru viðkomandi konu.
Konurnar völdu sér hlut sem tengist henni á einhvern hátt og fylgir þeirra útskýring á tengingunni. Myndirnar voru teknar sumarið 2010. Hægt er að kaupa bók með verkunum á sýningunni. Allir velkomnir.
Uglan café er rétt innan við þjóðveg eitt, og er rauða húsið sem stendur við gamla Vaðlaheiðarveginn Fnjóskadalsmegin.
31. ágúst - 9. september 2012.
Menning og listir | Breytt 31.8.2012 kl. 00:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.8.2012 | 16:07
Inga Björk sýnir á bókasafni Háskólans á Akureyri
Sýning Ingu Bjarkar Harðardóttur Draumeindir opnar á bókasafni Háskólans á Akureyri, sunnudaginn 2. september kl. 13.00. Sýning Ingu Bjarkar er opin mánudaga, miðvikudaga og föstudaga frá kl. 8.00 16.00, þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 8.00 18.00 og stendur til 28. september. Allir eru velkomnir.
Innblástur sinn sækir Inga Björk vanalega í íslenska náttúru og umhverfi en nú kveðjur við annan tón. Inga Björk tekst á við abstrakt í olíumálverkum þar sem listakonan leitar inn á við og er efniviður sýningarinnar tilfinningar. Barátta hamingju og gleði við depurð og angist flæðir um myndflötinn. Í tengslum við sýninguna setur listakonan fram ljóð móður sinnar, Önnu Maríu, í rýmið og endurspegla þau flæði tilfinninganna og kallast þau á við málverkin í túlkun og lit.
Inga Björk Harðardóttir er menntuð sem myndlistarmaður, gullsmiður og kennari auk þess að vera móðir þriggja barna og fjögurra stjúpsona.
Draumeindir er sjötta einkasýning Ingu Bjarkar.