28.8.2012 | 22:34
Joris Rademaker sýnir í Populus tremula
Laugardaginn 1. september kl. 14.00 mun Joris Rademaker opna myndlistar-sýninguna Framhald í Populus Tremula. Joris sýnir að þessu sinni ný kartöflumálverk. Titill sýningarinnar vísar í að þetta er sú síðasta af röð þriggja sýninga í sumar.
Sýningin er opin frá kl. 14-22 á laugardaginn 1. september og frá kl. 14-17 sunnudaginn 2. september.
Aðeins þessi eina helgi.
Síðustu fjögur árin eða frá haustinu 2008 hefur Joris málað með kartöfluna sem helsta innblástur. Hann hefur notað kartöfluformin sem mót eða einhverskonar legokubba til að byggja málverkin. Eiginlega eru þetta lágmyndir á ómálaðan striga þar sem hvíti liturinn dregur formin fram og svarti liturinn hverfur inn í bakgrunninn. Með því að raða kartöflunum alltaf á mismunandi hátt, engar tvær kartöflur eru heldur nákvæmlega eins, verða til einhverskonar hreyfimyndir í rými málverksins. Í þessari seríu er Joris að tefla saman andstæðum, annars vegar geometrisk form (svörtum ferhyrningi Malevich) og hins vegar kartöflunni sem náttúrulegu formi.
Menning og listir | Breytt 31.8.2012 kl. 00:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.8.2012 | 22:14
Kjötkveðjuhátíð í Listagilinu
Smiðshöggið á glæsilega sumardagskrá Sjónlistamiðstöðvarinnar verður rekið á afmælisvökunni um næstu helgi þegar Kjötkveðjuhátíð Sjónlistamiðstöðvarinnar gengur í garð, en hún hefst á elektrónískum tónleikum; Exodus 2012, sem hefjast kl. 20.45 föstudaginn 31. ágúst og endar með dýrindis veislu í Listagilinu daginn eftir, sem stendur frá kl. 15-18. Þetta eru stærstu teknótónleikar sem haldnir hafa verið á Akureyri og verða þeir í umsjón Reyk Veek; grúppu sem varð til í kjölfar hrunsins og vildi leggja sitt af mörkum til að græða og byggja upp þjóðarsálina. Tónleikarnir höfða ekki síður til augna en eyrna því mikið ljósasjó verður í gangi og er fólk hvatt til þess að dilla sér og sleppa fram af sér beislinu. Sett verður upp lítið danssvið á miðri götunni fyrir þá sem þora að stíga á stokk til að sýna hvað í þeim býr. Marmiðið með tónleikunum er að kveikja hlýhug, samhygð og von í brjóstum allra sem byggja móður jörð og senda sterka og jákvæða strauma út í óravíddir alheimsins. Hægt verður fylgjast með tónleikunum í beinni útsendingu á netinu með því að fara inn á slóðina: facebook.com/sjonlist
Daginn eftir stendur Sjónlistamiðstöðin í samvinnu við Klúbb matreiðslumeistara á Norðurlandi og fjölda handverks- og myndlistarfólks fyrir skemmtilegri uppákomu í Listagilinu sem fengið hefur heitið List með lyst. Listamenn kynna sköpunarverk sín, bæjarins færustu kokkar munu bjóða gestum og gangandi að bragða á öllum kúnstarinnar réttum úr íslensku hráefni og fjörugir dansarar verða á ferð upp og niður gilið. Listafólk og listakokkar leiða þannig hesta sína saman undir merkjum fögnuðar og samvista í góðra vina hópi og ilmandi matarlykt svífur yfir vötnum. Þarna verður gleðin við völd þar sem seiðandi danssveifla, sala á listaverkum og gómsætir matarbitar mynda sannkallaða hátíðarstemningu með sjónrænum tilþrifum. Jesú og lærisveinarnir sitja við háborð og láta fara vel um sig, enda höfðu þeir félagar ekkert í líkingu við þessa meistarakokka til að stjana við hér áður fyrr. Þetta verður því ekki síðasta kvöldmáltíðin heldur sú fyrstu slík verður upplifun bragðlaukanna.
Fyrir þá sem ekki hafa fengið nægju sína ber að nefna að sunnudaginn 2. september kl. 13-15 verður gestum og gangandi boðið að bragða á réttum frá 20 löndum, frá London til Jemen, í Listasafninu á Akureyri þar sem núna fer fram sýningin Lókal-Glóbal. Í dag búa á Akureyri innflytjendur frá 57 þjóðríkjum sem sýnir og sannar hversu ríkt þetta litla samfélag okkar lengst norður í ballarhafi er á heimsvísu.
25.8.2012 | 11:07
Opin vinnustofa í Listagilinu
Listamaður ágústmánaðar í gestavinnustofu Gilfélagsins er Þóra Karlsdóttir. Hún verður með opna vinnustofu laugardaginn 25. ágúst kl. 14:00-18:00.
Þóra sýnir nýleg verk sem unnin eru með ljósmyndum sem faðir hennar Karl Hjaltason tók.
Þóra er fædd og uppalin á Akureyri en fluttist á brott fyrir 30 árum síðan. Hún hefur búið víða erlendis síðastliðin tuttugu ár. Þóra býr nú í Lúxemburg þar sem hún er með vinnustofu í gamalli lestarstöð ásamt fleiri listamönnum. Þóra stundar myndlistanám í Evrópsku listaakademíunni í Trier og mun útskrifast næsta vor. Hún hefur áður sýnt verk sín í Lúxemburg, Þýskalandi og Austurríki.
www.karlsdottir.com
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 11:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.8.2012 | 11:04
Sýningarlok í Verksmiðjunni á Hjalteyri um helgina

COLLABORATION_5
SAMSTARF_5
ANTON BOSNJAK / BEATE ENGL / LEONIE FELLE / SANDRA FILIC /
MAXIMILIAN GEUTER / ELIAS HASSOS / ALEXANDER STEIG / THOMAS THIEDE
Verksmiðjan á Hjalteyri / 04.08. - 26.08.2012 / Neðst á Hjalteyri við Eyjafjörð / 601 Akureyri http://www.verksmidjan.blogspot.com
Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17
Sýningunni COLLABORATION_5 / SAMSTARF_5 í Verksmiðjunni lýkur nú um helgina.
Sýningin hefur fengið afar lofsamlega dóma og til að mynda skrifar Þóroddur Bjarnason í gagnrýni í Fréttablaðinu: Styrkur sýningarinnar liggur í samtímis notkun tveggja mjög ólíkra sýningarrýma og góðu hlutfalli af áhugaverðum verkum, þar sem hversdagsleg viðfangsefni eru sett fram á látlausan hátt.
Verkefnið COLLABORATION_ (SAMSTARF_) www.collaboration-project.de var sett saman árið 2008 af listamönnum frá München í Þýskalandi undir stjórn Thomasar Thiede. Það byggir á því að kynna listamenn frá München á alþjóðlegum vettvangi og koma á samstarfi við aðra listamenn víðsvegar um heim. Sýningarnar COLLABORATION_5 / SAMSTARF_5 voru settar upp í GalleríBOXi / Sal Myndlistarfélagsins og í Verksmiðjunni á Hjalteyri. Á þessum sýningum gefur að líta verk sem sérstaklega eru gerð fyrir þessa ólíku sýningarstaði með aðstoð íslenskra listamanna. Samstarf og samvinna eru mikilvægir þættir í vinnu listamannanna.
Sýningarstjórar: Hlynur Hallsson, Beate Engl, Thomas Thiede og Alexander Steig
Sýningunni í GalleríBOXi / Sal Myndlistarfélagsins lauk um síðustu helgi en sýningunni í Verksmiðjunni á Hjalteyri lýkur sunnudaginn 26. ágúst og er opið laugardag og sunnudag kl. 14-17.
Sýningin er styrkt af Sendiráði Þýskalands í Reykjavík, Menningarráði Eyþings, Stiftung Federkiel, Landeshauptstadt München Kulturreferat, Hörgárbyggð, Ásprent og Procar.
Verksmiðjan á Hjalteyri
Neðst á Hjalteyri við Eyjafjörð
http://www.verksmidjan.blogspot.com
https://www.facebook.com/pages/Verksmi%C3%B0jan-%C3%A1-Hjalteyri/92671772828
24.8.2012 | 10:51
Arsborealis - Mannlíf og menning Norðurslóða í Ketilhúsinu
Opnun í Ketilhúsi
miðvikudaginn 29. ágúst kl. 15.
Arsborealis Mannlíf og menning Norðurslóða
Þann 29. ágúst kl. 15. mun sýningin Arsborealis Mannlíf og menning Norðurslóða opna í Sjónlistamiðstöðinni Ketilhúsi og er sýningin liður í hátíðahöldum vegna 150 ára afmælis Akureyrarbæjar. Á sýningunni eru munir og efni frá Grænlandi, Íslandi, Færeyjum, Noregi og Norðvesturhéruðum Kanada.
Megintilgangur Arsborealis sýningarinnar er að kynna sögu, menningu og list þess fólks sem býr á Norðurslóðum og mannlíf sem lengst af var einangrað og í stöðugri baráttu við óblíð náttúruöfl. Sýndir verða þjóðbúningar landanna, handverk sem byggir á þjóðlegri hefð og kvikmyndir frá síðustu öld sem sýna vel þær ótrúlegu breytingar sem orðið hafa á þjóðum Norðurslóða en flestar hafa þær breyst úr veiðimannasamfélögum í nútíma, tæknivædd samfélög. Sérstök áhersla verður lögð á að kynna sýninguna fyrir börnum og unglingum því til að varðveita menningu Norðurslóða er mikilvægt að kynna hana fyrir æskunni sem þar býr.
Frá Grænlandi kemur kajaksmiðurinn Johnson Maligiaq Padilla en hann lærði veiðar og kajaksmíðar af afa sínum og er einn fárra sem enn kunna að smíða kajaka með fornri aðferð Inúíta. Maligiaq mun smíða kajak á fyrstu tveimur vikum sýningarinnar, útskýra hvernig þeir eru byggðir og bera saman hinar ýmsu gerðir kajaka á Norðurslóðum en um það efni er hann sérfróður. Einnig verða sýndir grænlenskir skutlar, felubúnaður sem notaður var við veiðar úti á ísnum, útskurður úr sápusteini, horni og beini og klæði frá Uummannaq múmíunum sem eru frá 15. öld en fundust árið 1972.
Íslendingar leggja m.a. til fatnað úr ull sem gerður er með sömu aðferðum og notaðar voru fyrir 300 árum. Þetta er klæðnaður konu og barns sem er eins og hann tíðkaðist hjá efnameira fólki á 18. öld. Þá verða einnig sýnd leikföng úr dýrabeinum og skeljum eins og þau tíðkuðust fyrr á öldum og jólatré úr viði en jólatré þeirrar gerðar voru smíðuð víðsvegar um Norðurslóðir og þau síðan skreytt með lyngi og mosa.
Framlag Færeyja tengist grindadrápi en fyrir því er löng hefð í eyjunum og fastar reglur um hvernig á að fara með þessi hlunningi byggðanna og skiptingu kjötsins. Öll löndin leggja til þjóðbúninga, flíkur og muni sem eru úr hráefnum sem eru einkennandi fyrir landsvæðin og byggja á þjóðlegri hefð. Þá verða sýndar ljósmyndir Ragnars Axelssonar sem teknar eru á Norðurslóðum og ferðaþjónusta á Norðurslóðum verður kynnt á sýningunni.
Björn G. Björnsson hannaði sýninguna, Aðalsteinn Ingólfsson var listrænn ráðunautur en verkefnisstjóri er Reynir Adólfsson. Sjónlistamiðstöðin er opin alla daga vikunnar nema mánudaga og þriðjudaga frá 13 til 17 og aðgangur er ókeypis í boði Akureyrarbæjar en sýningunni lýkur 7. nóvember. Sýningin Arsborealis Mannlíf og menning Norðurslóða nýtur stuðnings frá Norræna menningarsjóðnum og NATA, ferðamálasamstarfi Íslands, Færeyja og Grænlands.
Sýningin stendur til 7. okt.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 10:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.8.2012 | 12:02
Sköpun bernskunnar opnar í Sal Myndlistarfélagsins
Í Sal Myndlistarfélagsins verður opnuð sýningin "Sköpun bernskunnar" laugardaginn 25. ágúst kl. 14-17. þetta er samstarfsverkefni á milli Myndlistarfélagsins, Myndlistarskólans og Leikfangasafnsins sem er í eigu Guðbjargar Ringsted og staðsett er í Friðbjarnarhúsi. Á sýningunni verða sýnd leikföng úr safninu, myndverk sem börn hafa unnið á myndlistarnámskeiðum hjá Rannveigu Helgadóttur í Myndlistarskólanum auk þess sýna Hlynur Hallsson, Hallmundur Kristinsson og Stefán Boulter verk sem öll tengjast æskunni á einn eða annan hátt. Þeir eru allir í Myndlistarfélaginu.
Laugardaginn 8. september verður dagskrá með fjórum fyrirlestrum tengdum sýningunni og sköpun barna.
Sýningin er opin til 9. september og er hún opin um helgar frá kl. 14-17 nema helgina 1. og 2. september þá er hún opin frá kl. 14-22 vegna 150 ára afmælishátíðar Akureyrar. Eyþing styrkti þetta verkefni. Sýningarstjóri er Guðrún Pálína Guðmundsdóttir.
22.8.2012 | 01:12
Uppskeruhátíð ræktunar og myndlistar sunnudaginn 26. ágúst
Uppskeruhátíð ræktunar og myndlistar
Frá því 23. júní hefur verið myndlistarsýning við matjurtargarða bæjabúa á Krókeyri og í gömlu gróðrarstöðinni þar. Þar koma saman myndlistarmenn, listnemar og leikmenn. Sýnendur eru:
Arna G. Valsdóttir
Hlynur Hallsson og Krístín Þóra Kjartansdóttir (sameiginlegt verk)
Joris Rademaker
Guðrún Pálína Guðmundsdóttir
Ívar Hollanders og Victor Hollanders (sameiginlegt verk)
Sigrún Á. Héðinsdóttir
Þórarinn Blöndal
Þetta er í annað sinn sem þetta verkefni er haldið og eru allir sömu myndlistarmenn og síðast auk nýrra þátttakenda. Verkefnið var valið fyrir Íslands hönd á norrænu menningarhátíðina Nord Match í Helsinki haustið 2011. Verkefnið miðar að því að tengja saman list, ræktun matvæla og fræðslu.
Viðburður með fræðslu og smökkun grænmetis verður sunnudaginn 26. ágúst kl. 15-17
við gömlu gróðrarstöðina á Krókeyri
Guðrún Pálína Guðmundsdóttir, myndlistarmaður.
Talar um verkefnið, tildrög þess og um listaverkin sem þar eru.
Listnemarnir Victor og Ívar Hollanders fremja listgjörning í tengslum við myndverk sem þeir eiga á sýningunni.
Sigfríður Inga Karlsdóttir, ljósmóðir og áhugamanneskja um ræktun.
Talar um garðyrkju í víðara samhengi.
Kristín Kolbeinsdóttir, kennari og eigandi Silva-hráfæði Syðra-Laugalandi efra.
Talar um ræktun og möguelika á að lifa af henni.
Jóhann Thorarensen, garðyrkjufræðingur hjá Akureyrarbæ.
Talar um hvað sameinar myndlist og matjurtir og um uppskeruna sem gestum er boðið að smakka.
Verkefnið er styrkt af Eyþingi og Afmælisnefnd Akureyrar vegna 150 ára afmælis bæjarins.
Verkefnisstjórar eru Guðrún Pálína Guðmundsdóttir, myndlistarmaður og Jóhann Thorarensen garðyrkjufræðingur hjá Akureyrarbæ.
21.8.2012 | 11:02
Jóna Hlíf Halldórsdóttir opnar sýningu í Flóru
Jóna Hlíf Halldórsdóttir
Info
25. ágúst - 11. september 2012
Opnun laugardaginn 25. ágúst kl. 14
Flóra, Hafnarstræti 90, 600 Akureyri, s. 6610168
http://floraflora.is
https://www.facebook.com/flora.akureyri
Laugardaginn 25. ágúst kl. 14 opnar Jóna Hlíf Halldórsdóttir myndlistarsýningu sem nefnist Info í nýju húsnæði Flóru í Hafnarstræti 90 á Akureyri.
Verkið sem Jóna Hlíf sýnir í Flóru er textaverk rammað inn í gömul auglýsingaskilti sem fylgdu húsinu Hafnarstræti 90 þegar Frúin í Hamborg keypti húsið á sínum tíma.
Sýningarnar í Flóru verða hluti af verslunar og vinnustofurýminu og blandast því saman við það sem fyrir er á staðnum.
Jóna Hlíf Halldórsdóttir er fædd í Reykjavík 1978 og hún býr og starfar þar. Hún stundaði nám við Myndlistarskólann á Akureyri á árunum 2002-2004. Hún útskrifaðist með MFA gráðu frá Glasgow School of Art 2007.
Verk Jónu Hlífar Halldórsdóttur hafa verið sýnd nokkuð víða, Kuckei+Kuckei í Berlín (2011), Listasafn Así (2010), Listasafn Reykjavíkur (2008), Listasafnið á Akureyri (2007), Kunstvlaai í Amsterdam(2006), í Tramway, Glasgow (2007, útskriftarsýning) og A Cabine do Amador í Lissabon (2007). Verk hennar eru um þessar mundir til sýnis í Listasafni Reykjavíkur, Listasafninu á Akureyri og í Gallerí Þoku og framundan er sýning í Kling og Bang.
Sýningin er öllum opin á opnunartíma Flóru mánudaga til föstudaga kl. 12-18 og laugardaga kl. 12-16 og stendur til þriðjudagsins 11. september 2012.
Heimasíða Jónu Hlífar: www.jonahlif.com
Nánari upplýsingar veitir Jóna Hlíf í síma 663 0545.
Flóra er verslun, vinnustofa og viðburðastaður Kristínar Þóru Kjartansdóttur félagsfræðings og garðyrkjukonu. Áherslan er á nýtingu, endurnýtingu, náttúrutengsl og verkmenningu. Listrænn ráðunautur staðarins er Hlynur Hallsson, myndlistarmaður.
17.8.2012 | 09:22
Gunn Nordheim Morstøl opnar myndlistasýningu í Mjólkurbúðinni
Gunn Nordheim Morstøl opnar myndlistasýningu í Mjólkurbúðinni í listagilinu á Akureyri laugardaginn 18.ágúst kl. 14.
Fyrir sýninguna Delicious vann Gunn sérstaklega myndaröð unna með ætingu og á sýningin að standa yfir 150 ára afmæli Akureyrarbæjar. Myndröðin fór með pósti þann 2.ágúst frá heimabæ Gunn, Åndalsnes og er enn ókomin til Akureyrar en var síðast skráð í Export Customs Clearance í Osló þann 8.
Gunn lætur það ekki slá sig út af laginu, kemur til Akureyrar og gerir aðrar ráðstafanir : ,, Þetta verður ok, ég er með málverk í vinnslu og ég tek þau með í flug og vona bara að upphenging nái fyrir auglýstan opnunartíma segir Gunn og hlær. En hún lendir í Keflavík aðfaranótt opnunardagsins og á bókað með fyrsta flugi til Akureyrar. Hún hefur meiri áhyggjur af listaverkum Dagrúnar Matthíasdóttur sem eiga að skila sér heim í sömu sendingu eftir sýningu í Noregi. Gunn er jákvæð þrátt fyrir óvissuna með listaverkin og vonar hún að pakkinn skili sér á meðan á dvöl hennar stendur svo enn er ekki útilokað að myndröðin hennar nái á veggi Mjólkurbúðarinnar meðan sýningin stendur yfir.
Um Gunn Nordheim Morstøl:
Gunn Nordheim Morstøl lærði myndlist í Gerlesborgsskolan i Bohuslän í Svíþjóð og starfar ásamt myndlistinni sem kennari í Åndalsnes Ungdomsskole. Hún heldur einnig utan um listviðburðinn Kunst I Natur sem er árlegur listahátíð (fjellfestival) í fjöllunum í kringum heimabæ Gunn, þar sem listamenn koma víða að og taka þátt. Gunn hefur verið öflug í sýningarhaldi í Noregi og einnig sýnt verk sín víða um heim, m.a. í New York, Ísrael, Japan, Rússlandi, Spáni, Englandi, Frakklandi og hér á Íslandi. Gunn hefur hlotið menningarverðlaun Rauma Kommunes kulturpris 2003 og hlaut einnig verðlaunin Jerusalemprint 2000, sem voru veitt í tengslum við alþjóðleg grafíklistasýningu í Ísrael 1998. Gunn hefur áður komið til Íslands og tók þá þátt í stórri samsýningu Staðfugl-Farfugl í Eyjarfirði 2008 þar sem útiskúlptúr var hennar framlag auk þess sem hún hélt námskeið fyrir börn og fyrirlestur ásamt sænsku listakonunni Helen Molin í Deiglunni á Akureyri.
Sýning Gunn Nordheim Morstøl stendur yfir Akureyrarvöku sem nú er 150 ára afmælishátíð Akureyrarbæjar og henni lýkur 2.september.
Opið laugardaga og sunnudaga kl.14-17 og eftir samkomulagi Allir velkomnir.
Gunn Nordheim Morstøl s.+4793264341
Mjólkurbúðin s.8957173 dagrunmatt@hotmail.com
17.8.2012 | 09:19
Hinn fullkomna lygi í Deiglunni
Opnun í Deiglunni
laugardaginn 18. ágúst kl. 21:00.
HIN FULLKOMNA LYGI
Við erum ungir áhugaljósmyndarar að halda okkar fyrstu sýningu. Við höfum
hvorki lært ljósmyndun né myndvinnslu og er þetta aðeins áhugamál okkar
beggja.
*"Sjálfsímynd kvenna er brotin niður þegar þær reyna að bera sig saman við
óraunverulegan fegurðarstuðul eins og hann birtist í tímaritum." Dr.?
Nicole Hawkins, sálfræðingur.*
Ákvörðunin um að halda sýningu kom í kjölfar þess að við fórum saman í
stúdíó að mynda, þar byrjaði vinkona Baldvins að tala um stelpur í
tískublöðun sem væru ekki með neina fæðingarbletti, með fullkomna húð og
þar fram eftir vegi. Þá fórum við að velta fyrir okkur hvernig farið er með
myndir í auglýsingabransanum og tímaritum.
Markmið okkar er að sýna hvernig er verið að ýkja og of vinna fallegar
myndir. Á sýningunni verða myndirnar óunnar eins og þær koma beint úr
myndavélinni og svo aftur eftir myndvinnslu. Meiri partur fólks veit hvað
photoshop er en ber sjálft sig þó saman við myndir af módelum sem eru
"fullkomin" í útliti.
Við, ólærðir og youtube menntaðir, gátum gert þetta, ímyndið ykkur hvað
atvinnumenn geta gert!
Við viljum þakka módelunum og öllum aðilum sem komu að sýningunni að gera
þetta mögulegt.
Sýningin stendur til 3. september
7.8.2012 | 17:55
Ingiríður Sigurðardóttir sýnir í Populus tremula
ÆFINGAR OG SKREYTINGAR
Málverk og frönsk endurreisnartónlist
Laugardaginn 11. ágúst kl. 14.00 mun Ingiríður Sigurðardóttir opna málverkasýningu í Populus tremula. Einnig opið sunnudaginn 12. ágúst kl. 14.00-17.00. Aðeins þessi eina helgi.
Laugardagskvöldið 11. ágúst kl. 21.00 munu svo Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir, söngur og pikkolóselló, Mathurin Matharel, fiðlubassi og Brice Sally, semball, halda tónleika með franskri endurreisnartónlist.
Aðgangur ókeypis | Malpokar leyfðir
2.8.2012 | 23:14
Benni Valsson opnar "PROMO-SHOTS" í Ketilhúsinu
Opnun í Ketilhúsi
laugardaginn 4. ágúst kl. 15.
Benni Valsson PROMO-SHOTS
Sjónlistamiðstöðin kynnir með stolti ljósmyndarann og Akureyringinn Bernharð Valsson - Benna Vals, sem mun leggja undir sig Ketilhús í byrjun ágústmánaðar. Heimsfræg andlit munu hanga uppi um alla veggi og gefur hér að líta úrval verka frá síðastliðnum árum sem eiga það sammerkt að birta okkur leiftursýn af listamönnum í kynningarherferð á kvikmyndum, hljómplötum, tónleikum, bókum og öðrum sköpunarverkum sínum og voru myndirnar oft teknar við nokkuð knappar aðstæður, ósjaldan á hótelherbergjum. Sem dæmi um andlit á sýningunni má nefna Robbie Williams í stódíói í London og Leonardo DiCaprio og Martin Scorsese í anddyri kvikmyndahúss í París.
Sýningin stendur til 26. ágúst

Sýning Guðrúnar Pálínu Guðmundsdóttur, Skólaskylda, opnar 3. ágúst kl. 14 í Uglunni, Gamla barnaskólanum, Skógum í Fnjóskadal.
Sýningin er röð andlitsmynda af börnum máluð með akryllitum á málaradúk. Öll eiga börnin það sameiginlegt að fyrr en síðar hefst þeirra skólaganga og mun hún væntanlega verða sumum þeirra til farsældar og gleði en öðrum erfið. Áhorfandinn getur sjálfur viðrað eigin tilfinningar gagnvart skólagöngu sinni og annarra við að skoða myndirnar og dvelja um leið í umhverfi sem var menntastofnun barna.
Vonandi vekur sýningin og umhverfið upp spurningar og hugmyndir tengdar skólaskyldu, fræðslu og þekkingaröflun annars vegar og hins vegar umhugsun um skammsýni, fáfræði og heimóttarhátt, sem vel getur verið til staðar hjá vel upplýstum og menntuðum þjóðum.
Þá koma upp ýmsar siðferðilegar spurningar tengdar menntun, þekkingu, völdum og þurfa Íslendingar ekki að fara nema til ársins 2008 til að rifja upp hvernig hámenntaðir og vinnusamir menn ráku efnahag landsins síns í þrot. Gætu kennsluhættir fyrri ára og viska Uglunnar orðið okkur innblástur til að finna leiðir sem gefa raunverulega menntun?
Myndlistarmaðurinn Guðrún Pálína Guðmundsdóttir er menntuð í myndlist frá Íslandi, Svíþjóð og Hollandi. Hún er búsett og starfandi á Akureyri og hefur haft fjölda sýninga síðustu tuttugu og fimm árin. Hún er einnig menntaður myndlistarkennari og hefur mest megnis fengist við slíka kennslu hérlendis og í Svíþjóð.
1.8.2012 | 20:58
Brynhildur Kristinsdóttir og Laufey Margrét Pálsdóttir opna sýningu í Mjólkurbúðinni
Listakonurnar Brynhildur Kristinsdóttir og Laufey Margrét Pálsdóttir opna sýningu sína ÉG VAR í Mjólkurbúðinni í Listagilinu á Akureyri 4. ágúst kl.15:00.
Sýning þeirra er innsetning og fjallar um það sem var og er:
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 21:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.7.2012 | 10:04
COLLABORATION_5 í GalleríBOXi og Verksmiðjunni á Hjalteyri
COLLABORATION_5
SAMSTARF_5
ANTON BOSNJAK / BEATE ENGL / LEONIE FELLE / SANDRA FILIC /
MAXIMILIAN GEUTER / ELIAS HASSOS / ALEXANDER STEIG / THOMAS THIEDE
GalleríBOX / Salur Myndlistarfélagsins / 04.08. - 19.08.2012 / Kaupvangsstræti 10 /
600 Akureyri http://www.galleribox.blogspot.com
Opnun laugardaginn 4. ágúst kl. 14 / Opið lau. - sun. 14-17
Verksmiðjan á Hjalteyri / 04.08. - 26.08.2012 / Neðst á Hjalteyri við Eyjafjörð / 601 Akureyri http://www.verksmidjan.blogspot.com
Opnun laugardaginn 4. ágúst kl. 17 / Opið til 12.08. alla daga 14-17 og eftir það lau. - sun. 14-17
Thomas Thiede vinnur verk í samstarfi við Húðflúrstofu Norðurlands: http://hudflur.net sem einnig sjá má hér http://www.skin-drawings.blogspot.com
Sýningarstjórar: Hlynur Hallsson, Beate Engl, Thomas Thiede og Alexander Steig
Verkefnið COLLABORATION_ (SAMSTARF_) www.collaboration-project.de var sett saman árið 2008 af listamönnum frá München í Þýskalandi undir stjórn Thomasar Thiede. Það byggir á því að kynna listamenn frá München á alþjóðlegum vettvangi og koma á samstarfi við aðra listamenn víðsvegar um heim. Sýningarnar COLLABORATION_5 / SAMSTARF_5 verða settar upp í GalleríBOXi / Sal Myndlistarfélagsins og í Verksmiðjunni á Hjalteyri. Á þessum sýningum gefur að líta verk sem eru sérstaklega eru gerð fyrir þessa ólíku sýningarstaði með aðstoð íslenskra listamanna. Samstarf og samvinna eru mikilvægir þættir í vinnu listamannanna.
Sýningarnar verða báðar opnaðar laugardaginn 4. ágúst 2012, kl. 14 í GalleríBOXi / Sal Myndlistarfélagsins í Listagilinu á Akureyri og kl. 17 í Verksmiðjunni á Hjalteyri.
Koma listamannanna og sýningarnar eru styrktar af Sendiráði Þýskalands í Reykjavík, Menningarráði Eyþings, Stiftung Federkiel, Landeshauptstadt München Kulturreferat, Hörgárbyggð, Ásprent og Procar.
Nánari upplýsingar veitir Hlynur Hallsson í hlynur(hjá)gmx.net og síma 659 4744.
GalleríBOX / Salur Myndlistarfélagsins
Kaupvangsstræti 10, 600 Akureyri
http://mynd.blog.is
http://www.galleribox.blogspot.com
https://www.facebook.com/salur.myndlistarfelagsins
Verksmiðjan á Hjalteyri
Neðst á Hjalteyri við Eyjafjörð
http://www.verksmidjan.blogspot.com
https://www.facebook.com/pages/Verksmi%C3%B0jan-%C3%A1-Hjalteyri/92671772828
KUL er þverfaglegt verkefni í listsköpun, í umsjón Nes listamiðstöðvar á Skagaströnd, sem haldið verður í september nk.. Verkefnið tengir saman íslenska og erlenda listamenn sem dvelja einn mánuð í listamiðstöðinni og því lýkur með hátíð, þar sem listamennirnir sýna hvernig Skagaströnd og nágrenni hefur áhrif á listsköpun þeirra.
KUL verkefnið fjallar um listsköpun og áhrif umhverfisins á hana. Markmið verkefnisins miðar að því að skapa afurð sem hægt er að vinna að á staðnum, afurð sem er hagnýt, afurð sem getur verið þverfagleg og sem örvar huga og hönd. KUL miðar að því að skapa tengsl milli listforma, þar sem við erum til staðar og virk. Verkefnið kannar samræðuna milli staðarins og tilverunnar, hvernig við erum mótuð af innri og ytri aðstæðum og hina síkviku og gagnvirku mótun umhverfis og sjálfsins.
Nes listamiðstöð auglýsir eftir tveimur íslenskum listamönnum, til að dvelja í listamiðstöðinni í september, sem eru tilbúnir til að taka þátt í KUL. Innifalin er frí dvöl í listamiðstöðinni og styrkur vegna efniskostnaðar, gegn framlagi listamannanna til verkefnisins.
Lokahátíð KUL verður á Skagaströnd 29. september, með listkynningum og matarviðburðum, listamannanna, matreiðslumanna á svæðinu og heimamanna.
Einn þáttur í KUL er matreiðsluverkefni sem Henry Fletcher, sérfræðingur í nýtingu vannýttra hráefna, stjórnar. Hann mun safna plöntum og sjávarfangi við strendur Skagastrandar og nágrennis og vinnur síðan með matreiðslumönnum á svæðinu að nýta hráefnin við að skapa nýjar mataruppskriftir og endurbæta gamlar. Þeir matreiðslumenn sem taka þátt í verkefninu eru Gunnar Sveinn Halldórsson í Kántrýbæ á Skagaströnd, Björn Þór Kristjánsson og Shijo Mathew í Pottinum Restaurant á Blönduósi og Jón Daníel Jónsson á Sauðárkróki.
KUL er hugmynd sem Tanja Geis, Henry Fletcher, Jacob Kasper og Andrea Cheatham Kasper áttu frumkvæði að. Verkefnið er í umsjón Melody Woodnut, framkvæmdastjóra Nes listamiðstöðvar.
Nes listamiðstöð er staðsett á Skagaströnd og í ár dvelja þar yfir 100 listamenn frá fjölmörgum þjóðlöndum. Vaxtarsamningur Norðurlands vestra styrkir KUL verkefnið.
Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðunni: http://neslist.is
Netfang: Melody Woodnutt: nes@neslist.is
Sími: Melody Woodnutt: 691 5554
Umsóknareyðublað: http://neslist.is/application/call-for-artists
27.7.2012 | 17:08
Nes listamiðstöð, Skagaströnd, auglýsir fría mánaðardvöl fyrir þrjá íslenska listamenn næsta vetur
Umsóknarfrestur er til 21. september. Svör berast í síðasta lagi 4. október.
Eitt af markmiðum Nes listamiðstöðvar er aukið samstarf íslenskra og erlendra listamanna í listamiðstöðinni. Meira en 100 listamenn munu dvelja í Nes listamiðstöð á þessu ári og listamiðstöðin styrkir dvöl þriggja íslenskra listamanna þar næsta vetur, með stuðningi frá Menningarráði Norðurlands vestra.
Íslenskum listamönnunum býðst ókeypis mánaðardvöl í listamiðstöðinni á tímabilinu nóvember 2012 apríl 2013. Innifalið er sérherbergi í íbúð með 2-3 öðrum erlendum listamönnum og vinnuaðstaða í listamiðstöðinni.
Þeir listamenn sem valdir verða þurfa að leggja fram tillögu sem miðar að þátttöku samfélagsins á Skagaströnd í listrænu eða menningarlegu verkefni. Í því geta falist margvísleg listaverkefni, samfélagsleg verkefni, rannsóknarvinna, spuni, námskeið, sýningar o.fl.
Nes listamiðstöð er þverfagleg listamiðstöð með sérstakan áhuga á nútímalistformum og nýsköpun í listum. Hvers konar skapandi listamenn eru því hvattir til að sækja um.
Upplýsingar um Nes listamiðstöð er að finna á vefsíðunni: http://neslist.is. Þar er einnig eyðublað fyrir umsóknir. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir til Melody Woodnutt, framkvæmdastjóra listamiðstöðvarinnar á netfangið nes@neslist.is eða hafa samband við Melody í síma 691 5554.
27.7.2012 | 17:04
"Í Björtu" opnar í Deiglunni laugardaginn 28. júlí
Hildur María gaf sköpunarþörfinni lausan tauminn, sem síðan þróaðist í myndræna framsetningu, en til að byrja með var viðfangsefnið bundið við heklaðar gólfmottur. Þegar frá leið urðu verkin meðvitaðri í lit og stærð. Hún notar oft nafnorð sem kveikjuna að hugmynd og þykir henni bómull og silki vera bestu efnin í verkin. Það getur tekið dálítinn tíma að finna réttu litina sem hæfa í hverju tilviki fyrir sig. Hildur hefur einnig notað laukhýði við litun á efnum ef þau eru ekki til taks. Verkferlið er hreinn litaspuni sem er í takti við fatamarkaði bæjarins, en markmiðið var að endurnýta fatnaðinn markvisst. Henni finnst dagsbirtan færa sér óskasamhljóm litanna. Stærsta verkið á sýningunni, Andalúsían, tók átta mánuði í vinnslu. Áhugaverðast og skemmtilegast finnst þó Hildi þegar verkið umbreytist í stóran myndflöt. Að sjá fyrir sér liti sem falla vel saman er í senn spennandi og heillandi nýtt upphaf.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 17:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.7.2012 | 16:56
"Ekki skamma mig séra Tumi" í Ketilhúsinu
"Ekki skamma mig séra Tumi"
Ketilhúsinu, Listagili sunnudaginn 29. júlí kl 16:00 - kr. 2500
Leik- og söngdagskrá um Jónas Hallgrímsson, rithöfund og ljóðskáld og vin hans Tómas Sæmundsson.
25.7.2012 | 13:41
Síðustu forvöð að sjá sýningu Hugsteypunnar í Flóru
Nú eru síðustu forvöð að sjá sýningu Hugsteypunnar sem nefnist Á þeim tíma í Flóru í Listagilinu á Akureyri. Sýningunni lýkur laugardaginn 28. júlí.
Hugsteypan er samstarfsverkefni Ingunnar Fjólu Ingþórsdóttur (f. 1976) og Þórdísar Jóhannesdóttur (f. 1979). Þær útskrifuðust báðar úr myndlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2007. Ingunn lauk einnig B.a. prófi í listasögu árið 2002, en Þórdís kennsluréttindanámi árið 2009. Hugsteypan varð til árið 2008 er þær Ingunn og Þórdís sýndu í fyrsta skipti samvinnuverk í Start Art Listamannahúsi. Síðan þá hefur Hugsteypan tekið þátt í fjölda sýninga t.a.m. í Hafnarborg, Kling & Bang Gallerí, Listasafni Árnesinga, og Listasal Mosfellsbæjar auk nokkurra samsýninga erlendis.
Verk Hugsteypunnar eru gjarnan margþættar innsetningar sem fjalla um mörk vísindalegra rannsókna og fagurfræðilegrar túlkunnar. Verkin bera þannig keim af rannsóknarferli þar sem þættir eins og listasaga, sjónmenning, framsetning og túlkun verka eru settir undir smásjá. Oft eru verkin unnin út frá kerfum og greiningarferlum, bæði þekktum og heimatilbúnum, sem Hugsteypan gefur sér listrænt frelsi til að nota að vild.
Á þeim tíma er innsetning unnin út frá sjálfu sýningarrýminu í Flóru. Rannsókn Hugsteypunnar að þessu sinni beinist að hráu kjallararýminu og ferðum um það. Flæði birtu og fólks um rýmið er fangað með myndavél sem skráir einstök augnablik, athafnir og tilfinningar sem þar eiga sér stað. Myndirnar eru svo bundnar saman í myndband sem varpast á ný inní rýmið og blandast veru og upplifun áhorfandans í rauntíma.
Nánari upplýsingar veita Ingunn í síma 693 5979 og Þórdís í pósti thordisj@gmail.com
Flóra er verslun, vinnustofa og viðburðastaður Kristínar Þóru Kjartansdóttur félagsfræðings og garðyrkjukonu. Áherslan er á nýtingu, endurnýtingu, náttúrutengsl og verkmenningu. Listrænn ráðunautur staðarins er Hlynur Hallsson, myndlistarmaður.
Þetta er jafnframt síðasta sýningin í Flóru í Gilinu því Flóra er að flytja í Hafnarstræti 90 (áður Frúin í Hamborg) og verður framhald á sýningarhaldi og fleiri viðburðum þar.
Hugsteypan
Á þeim tíma
14. - 28. júlí 2012
Flóra, Kaupvangsstræti 23, 600 Akureyri, s. 6610168
http://floraflora.is
https://www.facebook.com/flora.akureyri
https://www.facebook.com/events/164377697030586
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 13:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)