Bloggfærslur mánaðarins, júní 2014

"The Hjalteyri Scales" í Verksmiðjunni á Hjalteyri

Summers.2.port

The Hjalteyri Scales

Rod Summers (UK)

Verksmiðjan á Hjalteyri, / 05.07. – 27.07.2014 / Neðst á Hjalteyri við Eyjafjörð / 601 Akureyri
 http://www.verksmidjan.blogspot.com


Opnun laugardaginn 5. júlí kl. 15:00 / Opið alla daga til og með 27. júlí  kl. 14:00 - 17:00.
Umsjónarmaður Gústav Geir Bollason

The Hjalteyri Scales.
Listamaðurinn Rod Summers  bjó til  verkið  "The Hjalteyri Scales" sérstaklega með Verksmiðjuna á Hjalteyri í huga.  Þetta er lesinn texti og hljóðinnsetning. Um verkið segir hann:
“Casting the mesh into uncharted waters can result in an unexpected catch. When Loki broadcast his sperm into Angrboða we may be religiously sure he didn’t expect to net a ravenous wolf, a writhing serpent and sheer hell. These days scientists, bolstered by the support of paper reputations, willingly inform that mobility instigated global warming has caused fish shoal disappearance but I maintain (in this work at least) that the real cause of fishy absenteeism is the result of container ship noise pollution, the European common agriculture policy and speculative chocolate. The Hjalteyri Scales is a 4 channel audio work which seeks to bring a cubist balance into the remotest corners of places of abandoned employment."


Frumflutningurinn á verkinu þann 5. júli verður að nokkru leiti lifandi gjörningur eða audiodrama með leikendum.  Rod Summers mun líka sýna vídeó og prentuð verk í Verksmiðjunni .

Rod Summers er fæddur á Englandi en býr og starfar í Maastricht, Hollandi. Hann hefur talsvert unnið með íslenskum listamönnum og kemur oft til Íslands, hann dvelur þá gjarnan  á Ytra Lóni á Langanesi.
 
Sýningin verður opnuð laugardaginn 5. júlí 2014, kl. 15:00 með frumflutningi á verkinu The Hjalteyri Scales í Verksmiðjunni á Hjalteyri.

Koma listamannsins og sýningin eru styrkt af, Menningarráði Eyþings, Ásprenti og Myndlistarsjóði,  Bakhjarlar Verksmiðjunnar á Hjalteyri eru CCP­games, Bústólpi og Hörgársveit.

rodlj%C3%B3smfr%C3%A9ttatik2-768x1024


Viktoría Blöndal sýnir í Geimdósinni

10351161_477758138994174_6132139055114158396_n

Geimdósin kynnir opnun gestalistakonu sinnar Viktoríu Blöndal, sem hefur nú unnið í Geimdósinni að sýningu sinni 1 2 og NÚ(tíð).
Verkið er margþætt en byggir á einlægum vangaveltum um fortíð og nútíð. Hluti verksins er texti eftir Viktoríu og hér að neðan má lesa brot:

Mannskepnan tilheyrir þegar það rignir. Við tilheyrum
malbikinu. Á sama tíma og það rignir í hundraðogeinum Reykjavík er öskufall einhverstaðar annarstaðar og ég veit að þarna úti situr einhver kjélling í heiðbláum stígvélum, með skítugt hár og fulla tösku af pennum og lífrænu koníaki og hugsar um fortíðina, tíðarfarið, framtíðina og tíðarhringinn sinn. Hún gæti líka litið niður og séð að kjóllinn hennar er allur í götum og hugsað:
hver er þessi kjélling?
Texti: Viktoría Blöndal.

Auk þess verður einstaklingsverkefni Viktoríu frá sviðshöfundabraut í Listaháskóla Íslands til sýnis á opnuninni, en í vor kláraði hún annað ár sitt í skólanum með verki sínu I WHANNA I WHANNA I WHANNA.
Verkið verður sýnt á myndbandsformi og þar fjallar Viktoría um unglingsár sín á afdráttarlausan hátt.

Geimdósin býður alla hjartanlega velkomna á laugardaginn 28. júní klukkan 15:00 og minnir á að mikið verður um að vera í Gilinu þann daginn

1 2 og sjáumst!


Hekla Björt Helgadóttir opnar sýninguna KASTALAR í Mjólkurbúðinni

10461997_10152563235478707_2967711802906297749_n

Hekla Björt Helgadóttir opnar sýninguna KASTALAR í Mjólkurbúðinni, í listagilinu á Akureyri laugardaginn 28. júní kl. 15.

Listakonan og skáldið Hekla Björt starfar í listagilinu á Akureyri og er þar með vinnustofu og sýningarrýmið Geimdósina.

Hekla Björt um sýninguna:

Skáldið á margar mismunandi sögur í mörgum mismunandi skúffum.
Sumar eru af vængjum og ávöxtum, á meðan aðrar eru af skærum og stingandi fálmurum.
Það eru ótal leiðir til að segja þessar sögur. Það má mála þær á striga, teikna þær á blað, segja þær með nótum, segja þær með orðum, á sviði, á rituðu formi, í bundnu eða óbundnu máli... og svo mætti lengi telja.

En það eru líka sögur sem skáldið segir aldrei...
Það eru sögur skúffuskáldsins, sem skrifar og skapar fyrir endann nema hljóðar skúffur. Stundum er það vegna þess að sögur skáldsins eru einfaldlega ekki nógu góðar sögur. Skáldið vill gleyma þeim... fleygja lyklunum af skúffunum.

En skáldið gat samt ekki gleymt...
Það hugleiddi hvort vond saga gæti nokkurn tímann orðið góð saga. Það hugleiddi hvort hægt væri að endurskrifa sögur minninganna og gera þær ögn betri fyrir vikið.
Skáldið tók því allar sínar vondu sögur og endurskapaði þær sem mínimalískar allegóríur. Formið var þrívítt og skáldið gaf þeim leiksvið úr gömlum skúffum og fann þeim stað og stund til að láta ljós sitt skína.

Staðurinn er Mjólkurbúðin í Listagilinu á Akureyri
og stundin er laugardaginn 28.júní klukkan 15:00.

Allir eru hjartanlega velkomnir
Skúffuskáldið, Hekla Björt Helgadóttir heklingur@gmail.com
s.865 4096

Sýningin KASTALAR í Mjólkurbúðinni er aðeins opin þessa einu helgi.


Leiðsagnir í Sjónlistamiðstöðinni alla fimmdudaga kl. 12

Portrett_vefur_frett

Á morgun, fimmtudaginn 26. júní, kl. 12 býður Sjónlistamiðstöðin upp á leiðsögn um sumarsýningu Listasafnsins, Íslensk samtíðarportrett – mannlýsingar á 21. öld. Guðrún Pálína Guðmundsdóttir, fræðslufulltrúi, mun leiða gesti um sýninguna og fræða þá um verkin og tilurð þeirra.

Viku síðar eða fimmtudaginn 3. júlí verður leiðsögn um sumarsýningu Ketilhússins, Gísli B. – Fimm áratugir í grafískri hönnun. Um vikulegar leiðsagnir er að ræða sem verða til skiptis á hvorum stað á hverjum fimmtudegi kl. 12 og er aðgangur alltaf ókeypis.

Nánari upplýsingar um dagkrána í sumar má sjá hér að neðan:

Ketilhúsið, fimmtudagur 3. júlí kl. 12.00: Leiðsögn um yfirlitssýningu Gísla B. Björnssonar, Fimm áratugir í grafískri hönnun.
Listasafnið á Akureyri, fimmtudagur 10. júlí, kl. 12.00: Leiðsögn um samsýninguna Íslensk samtíðarportrett – mannlýsingar á 21. öld.
Ketilhúsið, fimmtudagur 17. júlí kl. 12.00: Leiðsögn um yfirlitssýningu Gísla B. Björnssonar, Fimm áratugir í grafískri hönnun.
Listasafnið á Akureyri, fimmtudagur 24. júlí, kl. 12.00: Leiðsögn um samsýninguna Íslensk samtíðarportrett – mannlýsingar á 21. öld.
Ketilhúsið, fimmtudagur 24. júlí kl. 12.00: Leiðsögn um yfirlitssýningu Gísla B. Björnssonar, Fimm áratugir í grafískri hönnun.
Listasafnið á Akureyri, fimmtudagur 31. júlí, kl. 12.00: Leiðsögn um samsýninguna Íslensk samtíðarportrett – mannlýsingar á 21. öld.
Ketilhúsið, fimmtudagur 7. ágúst kl. 12.00: Síðasta leiðsögn um yfirlitssýningu Gísla B. Björnssonar, Fimm áratugir í grafískri hönnun.
Listasafnið á Akureyri, fimmtudagur 14. ágúst, kl. 12.00: Síðasta leiðsögn um samsýninguna Íslensk samtíðarportrett – mannlýsingar á 21. öld.
Ketilhúsið, fimmtudagur 21. ágúst kl. 12.00: Leiðsögn um sýningu Urtaislandica ehf., Skapandi greinar í átt að heilbrigðara efnahagskerfi.
Ketilhúsið, fimmtudagur 28. ágúst kl. 12.00: Leiðsögn um sýningu Urtaislandica ehf., Skapandi greinar í átt að heilbrigðara efnahagskerfi.


Georg Kiiu Olsen sýnir í Hvítspóa

10305414_262667023935779_1505843931784428347_n

Hjartanlega velkomin á opnun sýningarinnar  WORLD SLEEPING DILEMMA.

Grænlenski listamaðurinn Georg Kiiu Olsen opnar sýningu sýna  ´´WORLD SLEEPING DILEMMA´´  í  Hvítspóa art-studio – gallery laugardaginn 28. júni kl. 14.
Sýningin er opin til 28. júlí.


Anna Gunnarsdóttir
HVÍTSPÓI  ART-STUDIO – GALLERY
Brekkugata 3a
600 Akureyri
4662064  - 8976064


RÓT 2014 í Populus Tremula

10424311_10152556606623081_7860093319162975273_n

RÓT2014

Enginn veit hvað mun gerast í Populus Tremula helgina 28. - 29. júní. Opið frá kl. 14 - 17 laugardag og sunnudag. www.rot-project.com


Vikuna 23. - 29. júní fer fram listaviðburðurinn RÓT2014 í Gilinu á Akureyri. Verkefnið fer fram í fyrsta skipti í ár og er skipulagt af þrem ungum listakonum. Í heila viku mun fjölbreyttur hópur listamanna koma saman í Portinu fyrir aftan Listasafnið, og vinna að sameiginlegu verki, einu á dag. Afraksturinn verður svo sýndur á flötinni fyrir ofan Ketilhúsið og í enda viku, laugardaginn 28. og sunnudaginn 29. júní verður svo unnið í Populus Tremula í Kaupvangsstræti 10.
Þar sem þetta er fjölbreyttur hópur listamanna úr mismunandi geirum listalífsins verður niðurstaðan án efa spennandi og vel þess virði að kíkja við. Það verður líka hægt að fylgjast með á heimasíðu RÓTAR, www.rot-project.com, og finna 2014 RÓT á Facebook og Instagram.


Sykursætur veruleiki í Sal Myndlistarfélagsins

10473618_10203133597395291_6825436042228079986_n

Sykursætur veruleiki.  Myndlistarsýning María Isabel Vargas.
Sérstakur gjörningur verður á opnunarkvöldinu 28. júní kl. 18.00 með Maria Isabel Vargas og Sigrúnu Guðmundsdóttur.
Sýningin er frá 28. júní - 13. júlí 2014 í Sal Myndlistarfélagsins, Kaupvangstræti 10, 600 Akureyri.


Sumarsýning GÓMS í Deiglunni 2014 "Tvívirkni / Duality"

gomspenslar_vefur


Sýningin “Tvívirkni” er áframhald af samvinnu GÓMS (Georg Óskar & Margeir Dire Sigurðsson).

Í verkum GÓMS tvíeykisins má glögglega sjá að allar hugmyndir hafa ákveðið mikilvægi. Þær hlaðast saman á einum myndfleti sem endurspeglar andrúmsloft og undirliggjandi samhengi hlutanna. 

Útkoman er aðferðafræði sem kallast “Absorbism” eða “Óbeislað hugmyndaflæði”.

Tilgangur lífsins, Himalaya fjöllin, Pungbartar og Kúlusúkk eru til að mynda í þessum skilningi órjúfanleg heild í leit að ákveðinni tilfinningu og túlkun.

Á sýningunni “Tvívirkni” renna tveir hugarheimar í eitt og við skyggnumst djúpt inní hugarheim þessara dularfullu fígúru sem myndlistamaðurinn og hugmyndasmiðurinn GÓMS er.

Eðli hans er órannsakað og hvatir óþekktar, en eitt getum við gefið okkur, hann er klofinn skrauthundur sem svífst einskis þegar kemur að sköpun.

Við fyrstu kynni af GÓMS er ekki víst að fólk átti sig ekki á því hvað hann er að segja, enda liggur honum margt á hjarta og á það til að tala um það allt saman í einni belg og biðu. En það gerir hann að ásettu ráði, því það er svo margt sem ekki er hægt að koma fullkomlega í orð eða setningu og því bætir hann við leikrænum tilburðum.

Einnig má hann virðast annars hugar, hvatvís og í erfiðleikum með að halda aftur af sér, sem er í vissulega í ákveðnum skilningi rétt, en það er einmitt það sem gæðir verkunum þá dýpt sem þau búa yfir. Allt hleðst saman, ofan á og yfir hvort annað, Þangað til allt sem skiptir raunverulega máli helst hönd í hönd og segir allt sem segja þarf.

GÓMS þekkir sjálfan sig og umhverfið sem hann lifir í. Í hreinskilni sinni setur hann miðju fingurinn upp og segir "Gera meira, blaðra minna"

Þetta er í sjöunda sinn sem þeir félagar vinna saman undir nafninu GÓMS en fyrsta sýningin var árið 2009.
Nánari upplýsingar um GÓMS: http://www.gomsduo.com

https://www.facebook.com/events/682429545166434


RÓT2014 í Gilinu á Akureyri

10474250_1501116310107130_1033559215723041505_n

Vikuna 23. - 29. júní fer fram listaviðburðurinn RÓT2014 í Gilinu á Akureyri. Þetta er í fyrsta skipti sem þessi viðburður er haldinn og er hann skipulagður af þrem ungum listakonum. Í heila viku mun fjölbreyttur hópur listamanna koma saman í Portinu fyrir aftan Listasafnið, og vinna að sameiginlegu verki, einu á dag. Afraksturinn verður svo sýndur á flötinni fyrir ofan Ketilhúsið. Laugardaginn 28. og sunnudaginn 29. júní verður unnið í Populus Tremula í Kaupvangsstræti 10.

Verkefnið er styrkt af Menningarráði Eyþings.

http://rot-project.com

https://www.facebook.com/2014rot


Myndlistarsjóður, umsóknarfrestur er 11. ágúst 2014

Augl%C3%BDsing-j%C3%BAn%C3%AD2014-779x1024

Myndlistarsjóður

Opnað fyrir umsóknir í Myndlistarsjóð  22.júní

Veittir verða:

Undirbúningsstyrkir og styrkir til minni sýningar verkefna  allt að 500.000

Styrkir til stærri sýningarverkefna, útgáfu/rannsóknarstyrkir og  aðrir styrkir allt að 2.000.000

Umsóknarfrestur er 11.ágúst 2014

Upplýsingar um myndlistarsjóð, umsóknareyðublað, úthlutunarreglur og leiðbeiningar er að finna á vefsíðu myndlistarráðs www.myndlistarsjodur.is 

Úthlutað verður í september.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband