Fćrsluflokkur: Tónlist

Daníel Starrason sýnir í Hofi

1236352_10151705850763821_101989369_n.jpg

Föstudaginn 30. ágúst verđur opnun ljósmyndasýningarinnar Norđlenskt tónlistarfólk eftir Daníel Starrason í Hofi. Ţar verđa sýndar svarthvítar portrettmyndir af tónlistarfólki sem á rćtur ađ rekja norđur eđa starfar á svćđinu.

Opnunin er kl. 18:00 á föstudaginn í Hofi.

Allir velkomnir.

www.danielstarrason.com


The Fixed & The Volatile í Verksmiđjunni á Hjalteyri

Sensory-Alchemy-3-1024x576 

 

Verksmiđjan á Hjalteyri 

The Fixed & The Volatile

Richard Ashrowan

Pat Law

3. - 24. ágúst 2013


Sýningin opnar laugardaginn 3. ágúst kl. 15

Lifandi myndvörpunar gjörningur kl. 17.00

Opiđ alla daga kl. 14-17

Sýning Richard Ashrowan og Pat Law byggir á nýlegum verkum ţar sem ţau samţćtta videoinnsetningar, hjóđmyndir og salt teikningar. Kjarni sýningarinnar er ákveđin rannsókn á mörkum hreyfimyndar og kyrrmyndar eđa kyrrđar. Kanadíski gítarleikarinn og hljóđlistamađurinn Nick Kuepfer hefur unniđ hljóđverk fyrir sýninguna.

Richard Ashrowan mun sýna verk sem byggja á röđ hreyfimynda, ţar á međal kvikmyndin “Speculum” og er ţetta heims frumsýning. Myndin byggir á rannsókn á sambandi alkemíu, hreyfingar, ljóss og efnis. Á opnunardag mun Richard flytja verkiđ “Catoptrica” sem byggir á lifandi myndvörpun. Grunnur verksins/gjörningsins eru myndskeiđ sem tekin voru á Íslandi og á Svalbarđa, og felur í sér  “ritualistic” međferđ ljóss međ notkun spegla, glers og myndvörpunar. Einnig verđur frumsýnd 16mm kvikmynd í svart/hvítu frá nýlegum leiđangri lista-og vísindamanna til Svalbarđa 2012 “Artic Circle expedition” međ hljóđmynd eftir hljóđlistamanninn Nick Kuepfer (Canada).


Richard Ashrowan heimsótti Verksmiđjuna á Hjalteyri í maí áriđ 2011 en hann dvaldi ađ Hólum í Öxnadal um tíma. Hann varđ fyrir miklum áhrifum af rými Verksmiđjiunnar, kringumstćđum, sögu og andrúmslofti. Hann ferđađist einnig víđa um landiđ og myndađi, og kynnti sér í leiđinni mennigu og listir ţjóđarinnar. Ferđ hans til Íslands leiddi af sér hluta af ţeim videoverkum sem hann sýnir nú í Verksmiđjunni.


Richard Ashrowan hefur međal annars veriđ međ einkasýningar á Englandi, í Skotlandi, Póllandi, Rúmeníu og USA, fyrir utan fjölmargar sýningar í galleríum listamanna, á Kvikmyndahátíđum og samsýningum. Hann kennir um ţessar mundir viđ Edinburgh College of Art og er framkvćmdastjóri Alchemy Film and Moving Image Festival í Skotlandi.

http://www.alchemyfilmfestival.org.uk


Pat Law mun sýna ný verk frá Svalbarđa leiđangrinum 2012 ”Artic Circle expedition”. Hún vinnur innsetningarverk í Verksmiđjuna sem byggir á hreyfimyndum og salt teikningum. Í verkinu rannsakar hún bćđi stađbundna og yfirnáttúrlega frumţćtti vannýttra og yfirgefinna bygginga á Svalbarđa. steininn sem ţćr eru byggđar úr og andann sem tengir ţćr saman. Samhliđa sjónrćnu verkunum, mun á opnuninni verđa fluttur raddgjörningur ţar sem hin skoska Kirsty Law söngkona og Arna Valsdóttir međlimur í Verksmiđjunni flétta saman raddir sínar viđ hreyfimynd Pat Law. 


Pat Law er myndlistarmađur frá Skotlandi sem vinnur međ málun og hreyfimyndaform. Verk hennar byggja á rannsóknum á landslagi og hreyfanleika. Hún ferđast víđa vegna verka sinna og byggir ţau á ţessum ferđum oft í samvinnu viđ listamenn frá hverju stađ.


Á opnun flytur skoska söngkonan Kirsti Law www.kirstylaw.com

raddgjörning/ soundscape ásamt Örnu Valsdóttur međlim í Verksmiđjunni viđ hreyfimynd Pat Law.


Kirsty Law mun einnig flytja skosk ţjóđlög og eigin lög kl. 20:00 viđ borđhald sveitunga sem halda Sćludag í Sveitinni ţennan dag og er opnun sýningarinnar hluti af ţeirri hátíđ.

Í kjölfar sýningarinnar kl. 22:00 fer fram

Factory Experimental Music MiniFest međ hljómsveitunum:

 

 

R E P T I L I C U S

R E - P E T E A N D T H E W O L F M A C H I N E

R A F S T E I N N

D I C K V E G A S & T H E D I R T Y P A P A S

F R E N C H G I R A F F E 

 

 

https://www.facebook.com/events/285800291559829

 

 

Menningarráđ Eyţings, Hörgársveit, CCPgames, Bústólpi og Ásprent eru stuđningsađilar Verksmiđjunnar á Hjalteyri.


Verksmiđjan á Hjalteyri 

Neđst á Hjalteyri viđ Eyjafjörđ

http://www.verksmidjan.blogspot.com

https://www.facebook.com/verksmidjan.hjalteyri

https://www.facebook.com/events/533119400076124


Ásdís Arnardóttir sellóleikari međ fyrirlestur í VMA

fyrirlestur3.jpg
 
Velkomin á fyrirlestur á föstudaginn kl. 14:30 í stofu M01 í Verkmenntaskólanum á Akureyri. 

Ásdís Arnardóttir sellóleikari verđur međ fyrirlesturinn sem hún nefnir: Tćkifćri í tónlist - Sýn á möguleika. Hún ásamt gítarleikaranum Matti Saarinen hefja leikinn á ţví ađ spila ólík tóndćmi en síđan mun Ásdís tala um starf sitt sem hljóđfćraleikari, tónlistarstofnanir og styrkjaumhverfi.

Ţetta er ţriđji fyrirlesturinn á ţessari önn í röđ fyrirlestra sem listnámsbraut VMA og Sjónlistamiđstöđin standa fyrir og hafa gert í fjölda ára. Hann er öllum opinn og ókeypis.

Umfjöllun um Sinfóníu Málarans

akureyri-18-tbl.jpg

AKUREYRI VIKUBLAĐ:

HAUKUR ÁGÚSTSSON SKRIFAR UM TÓNLIST.

SINFÓNÍA MÁLARANS.


Tónleikar međ íslenskum einsöngslögum fyrir sópran og píanó og ljósmyndir

 ImageHandler

Tónleikar međ íslenskum einsöngslögum fyrir sópran og píanó í
Föstudagshádegi Listasumars í Ketilhúsinu, föstudaginn 22. júlí kl. 12.


Íslenska náttúran er sterkt afl sem er ekki einungis megnugt ađ stöđva
flugumferđ í heiminum heldur hefur í gegnum aldirnar veriđ ljóđ- og
tónskáldum innblástur og getiđ af sér óumrćđanlega dýrmćtar perlur.

Hvert lag á efnisskránni er tileinkađ ákveđnum hlut eđa fyrirbćri sem finnst
í eđa tengist íslenskri náttúru. Til ađ auka áhrif tónlistarinnar verđa
flytjendur umkringdir ljósmyndum af náttúru Íslands. Samspil orđa, tónlistar
og mynda munu skapa andrúmsloft sem verđur einstök upplifun fyrir
tónleikagestinn.   

Textar laganna samanstanda af nokkrum gömlum ţjóđvísum og ljóđum eftir mörg
af okkar ástsćlustu skáldum:  Einar Benediktsson, Tómas Guđmundsson, Jónas
Hallgrímsson, Huldu, Höllu Eyjólfsdóttur og Halldór Laxness og fleiri.
Lögin eru eftir Inga T. Lárusson Steingrím Thorsteinsson, Sigvalda
Kaldalóns, Sigurđ Ţórđarson, Jón Leifs, Atla Heimi Sveinsson, Jórunni Viđar,
Karl O. Runólfsson og fleiri. Miđaverđ 1500 kr. og 1000 fyrir eldri borgara.


Flytjendur:

Rannveig Káradóttir, sópransöngkona.

Birna Hallgrímsdóttir, píanóleikari.

Ljósmyndir eftir Michaël Pankar


Kristján Pétur međ tónleika og sýningarlok í Verksmiđjunni á Hjalteyri

verksmidjan_1099232.jpg kristjanpetur.jpg

Uppáhaldslög

Kristján Pétur Sigurđsson verđur međ tónleika í Verksmiđjunni á Hjalteyri laugardagskvöldiđ 23. júlí og hefjast ţeir kl. 20:30.
Flutt verđa nokkur uppáhaldslög eftir bćđi Kristján Pétur og ađra. Húsiđ mun sjá um hljóđmögnun. Sérlegir ađstođarmenn eru Guđmundur Egill Erlendsson og Birgir Sigurđsson. Ađgangur er ókeypis.
Hér er hćgt ađ skrá sig á viđburđinn á facebook: https://www.facebook.com/event.php?eid=222566907785635

Nánari upplýsingar veitir Kristján Pétur í síma 895 9546 og í strandkp(hjá)simnet.is



Síđustu forvöđ eru svo ađ sjá sýninguna Innsýn í Verksmiđjunni á Hjalteyri um helgina. Sýnendur eru Eygló Harđardóttir, Guđjón Ketilsson, Guđrún Pálína Guđmundsdóttir, Joris Rademaker og Jón Laxdal.
Joris Rademaker er sýningarstjóri og hann valdi fjóra listamenn međ sér til ađ vinna frjálslega međ hugmyndir sem tengjast ađ einhverju leiti starfsemi Verksmiđjunnar og rými hússins. Á sýningunni eru skúlptúrar, málverk, veggmálverk og innsetningar.
Verksmiđjan er styrkt af Eyţingi.

Sýningin er opin laugardaga og sunnudaga milli kl. 14.00 - 17.00 og einnig á međan tónleikar Kristjáns Péturs standa yfir.



Verksmiđjan á Hjalteyri
Neđst á Hjalteyri, 601 Akureyri, 4611450
http://www.verksmidjan.blogspot.com

https://www.facebook.com/pages/Verksmi%C3%B0jan-%C3%A1-Hjalteyri/92671772828

Margrét Buhl opnar sýningu á Cafe Karólínu

poster_correct_1.jpg

 

Margrét Buhl

 

04.09.10 - 01.10.10

 

Café Karólína // Kaupvangsstrćti 23 // IS 600 Akureyri // 4612755

---

Margrét Buhl opnar sýningu á Cafe Karólínu laugardaginn 4. september kl. 15:00. Sýningin stendur til 1. október og eru allir velkomnir.

 

Margrét útskrifađist af fagurlistadeild úr Myndlistaskólanum á Akureyri voriđ 2009 og er ţetta önnur einkasýning hennar. Margét vinnur mikiđ međ tónlist og tónlistarmenn í verkum sínum, ţar sem hún fjallar um ástríđu sína á tónlist og hvernig hún tengist henni á persónulegan hátt.

 

Sýning Margrétar samanstendur af ljósmyndum ţar sem hún túlkar látna tónlistarmenn, sem hafa haft sterk áhrif á hana í gegnum árin. Allir tónlistarmennirnir eru karlmenn, og túlkar hún ţá međ ţví ađ endurgera ljósmyndir af ţeim, ţar sem hún sjálf er viđfangsefniđ.

 

Nánari upplýsingar veitir Margrét í síma 869 3632 eđa tölvupósti: megbuhl(hjá)gmail.com

 

Café Karólína er opin frá kl. 17 og fram eftir nóttu alla daga nema laugardaga ţá er opiđ frá kl. 15.

 

Nćstu sýningar á Café Karólínu:

02.10.10 - 05.11.10                  Hrönn Einarsdóttir                 

06.11.10 - 03.12.10                  Guđrún Hadda Bjarnadóttir

 

margret.jpg


Finnur, Keli og Kristján í Verksmiđjunni á Hjalteyri

finnur_keli_kristjan.jpg

 

Verksmiđjan á Hjalteyri

 

Finnur Keli Kristján ?

31. júlí – 5. september 2010

Opnun laugardaginn 31. júlí kl. 16

Opiđ um helgar frá kl. 14 - 17

verksmidjan.blogspot.com

facebook.com/pages/Verksmidjan-a-Hjalteyri/92671772828?ref=ts

 

 

Finnur Arnar, Kristján Steingrímur og Ţorkell Atlason

 

Laugardaginn 31. júlí verđur opnuđ sýningin "Finnur Keli Kristján ?" í Verksmiđjunni á Hjalteyri.

Sýningin er samvinnuverkefni myndlistarmannanna Finns Arnar, Kristjáns Steingríms og tónskáldsins Ţorkels Atlasonar.

Listamennirnir, sem eru búsettir á höfuđborgarsvćđinu, lögđu land undir fót á húsbíl norđur á Hjalteyri viku fyrir opnunina og settu upp sýninguna úr efnis- og hljóđheimi stađarins.

Á opnun verđur fluttur gjörningur.

Sýningin stendur frá 31. júlí til 5. september og verđur opin um helgar frá 14 - 17. Á virkum dögum er hćgt ađ hafa samband í síma 692 7450  til ađ skođa sýninguna.

Nánari upplýsingar veitir Finnur Arnar í síma 899 5590 og Kristján Steingrímur í kristjan@lhi.is

Menningarráđ Eyţings styrkir Verksmiđjuna á Hjalteyri.


Dansgjörningurinn “Sláturhús hjartans” í Verksmiđjunni á Hjalteyri

 anna_989515.jpg


 

Laugardaginn 15. maí n.k. verđur frumfluttur dansgjörningurinn “Sláturhús hjartans” í listrými Verksmiđjunnar á Hjalteyri viđ Eyjafjörđ. Sýningin hefst kl. 17:00.

Höfundar verksins eru Anna Richards dansgjörningalistakona og Sigurbjörg Eiđsdóttir myndlistakona.

Flytjandi verksins er Anna Richards en í verkinu koma fram, auk Önnu, Hallgrímur J. Ingvason tónlistamađur, Helga Rós Indriđadóttir sópransöngkona, Sigurđur Hólm Sćmundsson björgunarsveitamađur og Karlakór Dalvíkur undir stjórn Guđmundar Óla Gunnarssonar. Sviđsstýra og ljósmóđir verksins er Lene Zachariassen.

Í verkinu er fjallađ um ferđalag mannveru innan völundarhúss hjarta síns og ţau átök  sem ţar eiga sér stađ og leiđa hana í gegnum ferli ástríđna, uppgjafar, ótta, skilnings og umbreytinga.

Umgjörđ verksins er unnin inn í rými gömlu síldarbrćđslunnar á Hjalteyri og er áhorfendum frjálst ađ fćra sig til í rýminu á međan á flutningi verksins stendur ţví einnig er hćgt ađ fylgjast međ verkinu af annarri hćđ hússins.

Tónlist í verkinu er ađ hluta frumsamin og flutt sem spunaverk ţar sem dansari og tónlistarmenn spinna saman.

Rúta fer frá Listasafninu á Akureyri kl. 16:30

Enginn ađgangseyrir.

Kaffi Lísa á Hjalteyri er opiđ.

Verkiđ hlaut styrk frá Leiklistarráđi Íslands og Menntamálaráđuneyti 2010 og frá Menningarráđi Eyţings.

www.verksmidjan.blogspot.com

Nánari upplýsingar gefur Anna í síma 863 1696

http://www.facebook.com/pages/Verksmidjan-a-Hjalteyri/92671772828?ref=ts


Margrét Buhl og Jana María Guđmundsdóttir opna tvćr sýningar í DaLí Gallery

_margretbuhl.jpg

Tvćr sýningar opna í DaLí Gallery laugardaginn 9. Janúar 2010 kl.14-17.
Ţađ eru fyrstu sýningar ársins í DaLí Gallery, og eru ţar á ferđ
listakonurnar Margrét Buhl og Jana María Guđmundsdóttir.

Myndlistakonan Margrét Buhl opnar í DaLí Gallery og vinnur Margrét
innsetningu í salinn sem fjallar um minningar, tímabil og tónlistatengsl
međ persónulegri nálgun. Margrét er útskrifuđ frá Myndlistaskólanum á
Akureyri og er ţetta fyrsta einkasýning listakonunnar.

Jana María Guđmundsdóttir, söng og leikkona opnar sýningu í litla rýminu
KOM INN sem stađsett er á vinnustofu DaLí, einu af minnstu sýningarrýmum
landsins. Jana María verđur einnig međ innsetningu og í verki sínu leikur
hún sér međ upplifun skynfćranna og andlega nćringu. Jana María lauk
fornámi í Myndlistaskólanum í Reykjavík, burtfararprófi í einsöng í
Söngskóla Reykjavíkur og BA í leiklist viđ Konunglega Listaháskólann í
Skotlandi, Royal Schottish Academy of Music and Drama.

DaLí Gallery er opiđ laugardaga og sunnudaga kl. 14-17 međan á sýningunum
stendur - til 24.janúar.

Allir Velkomnir
DaLí Gallery Brekkugata 9, 600 Akureyri
www.daligallery.blogspot.com
dagrunm@snerpa.is / lina@nett.is
8957171 / 8697872


Nćsta síđa »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband