Bloggfćrslur mánađarins, ágúst 2008

Sigtryggur Bjarni Baldvinsson opnar í Jónas Viđar Gallery

eyjafjardara_me_bliki_654867.jpg

Laugardaginn 30. ágúst opnar sýning Sigtryggs Bjarna Baldvinssonar í
Jónas Viđar Gallery í Listagilinu á Akureyri.  Á sýningunni verđa ný
olíumálverk Sigtryggs af Eyjafjarđará.
Listamađurinn hefur á síđustu árum einbeitt sér ađ ţví ađ gera
straumvatni skil í verkum sínum í formi olíumálverka, vatnslitamynda,
lágmynda og innsetninga. Út frá verkum Sigtryggs má velta upp
spurningum varđandi samhliđa eđli málverksins og vatnsyfirborđs. Ţegar
horft er á vatnsflöt er ţađ ekki vatniđ sjálft sem sést heldur ţađ sem
speglast í vatninu og sést í gegn um ţađ. Fćra má rök fyrir ţví ađ
gildi listaverks felist einmitt í ţví sama.

Sýningin er 20. einkasýning Sigtryggs og opnar kl. 14.30.

______________________________________________

Jónas Viđar
sími: 8665021
Heimasíđa: http://www.jvs.is
Jónas Viđar Gallery: http://www.jvs.is/jvgallery.htm


Anna Gunnarsdóttir opnar sýningu í Ketilhúsinu

„Dulmögn djúpsins”
Velkomin á opnun sýningar minnar í Ketilhúsinu 30. ágúst kl. 16:00
Sýningin stendur til 22. september 2008
Léttar veitingar í bođi.

Anna Gunnarsdóttir

 

Taliđ er ađ upphaf lífsins hafi veriđ í sjónum. Botn hafsins hefur margt ađ geyma
ţar sem enginn hefur komiđ og ađeins ímyndunarafliđ rćđur för.
Líkt og í sál mannsins er ţar ýmislegt okkur duliđ.
Síđan ég var lítil stelpa ađ leika mér í fjörunni hefur mig alltaf langađ til ţess ađ
kanna dulda heima djúpsins og margbreytilegum formum hinna ýmsu dýra.
Ţetta er mín sýn á djúpi hafsins og dulmögnun ţess.


Anna Gunnarsdóttir lćrđi textíl hönnun í
Bandaríkjunum, Danmörku og á Íslandi. Hún hefur
ađallega fengist viđ vinnslu á ţćfđri ull og textíl. Hún
blandar saman nytjavöru, myndlist og fatahönnun međ
ţessum miđlum.
Hún hefur ađ baki fjölmargar sýningar, ţar á međal yfir
um 38 samsýningar og hefur hlotiđ fjölda verđlauna og
viđurkenningar fyrir verk sín.
Hún er annar eigandi gallerí “Svartfugl og Hvítspóa” í miđbć Akureyrar.
Anna var valin bćjarlistamađur Akureyrar áriđ 2008.


Sýningin Portraits of the north opnar klukkan 17 í Amtsbókasafninu á Akureyrarvöku


Ykkur er bođiđ ađ vera viđ opnun sýningarinnar Portraits of the north á laugardag klukkan 17 í Amtsbókasafninu en sýningin er hluti af dagskrá Akureyrarvöku. 
Um er ađ rćđa áhrifamiklar blýantsteikningar af fólki úr frumbyggjabyggđum Norđur-Kanada og hefur sýning fariđ víđa frá árinu 2006 . 
Myndirnar eru eftir listamanninn Gerald Kuehl og koma frá Listasafni Manitoba en sýningin er í bođi Manitobastjórnar.
Peter Bjornsson menntamálaráđherra Manitoba mun opna sýninguna en hann í opinberri heimsókn á Íslandi í bođi Ţorgerđar Katrínar Gunnarsdóttur menntamálaráđherra.
Álftagerđisbrćđur syngja viđ opnunina og léttar veitingar verđa í bođi.

Vert er ađ minnast á meiri menningu tengda Manitoba sem hćgt er ađ njóta á Akureyrarvöku.
Jaxon Haldane og Chris Saywell úr Bluegrass hljómsveitinni DRangers spila á föstudagskvöld í Lystigarđinum viđ setningu Akureyrarvöku, auk ţess sem ţeir félagar eru hluti af lokaatriđi Akureyrarvöku á laugardagskvöldiđ
Freya Olafson listakona sýnir video-danslistaverkiđ New Icelander klukkan 20.30 í Húsinu í Rósenborg og verđur einnig ţátttakandi í lokaatriđi Akureyrarvöku.

Ađ síđustu er ţađ ţing Ţjóđrćknisfélags Íslendinga sem haldiđ verđur í Safnađarheimili Akureyrarkirkju á morgun frá klukkan 13 - 16.  Á dagskrá ţingsins verđa ávörp ráđherra, bćjarstjórans á Akureyri og ađalrćđismanns Íslands í Winnipeg. Flutt verđur minni Árna Bjarnarsonar og fjallađ um Sigríđi móđur Nonna auk ţess sem sýning henni tileinkuđ verđur sett upp á fundarstađ. Sagt verđur frá starfi Vesturfarasetursins á Hofsósi og greint frá 10 ára öflugu starfi Snorraverkefnisins. Ţađ verkefni hefur blásiđ nýju lífi í samskiptin milli afkomenda íslenskra landnema í Vesturheimi og Íslands og tengt starfiđ enn betur viđ byggđir landsins einum á norđur- og austurlandi. Hópur úr Snorri Plus verkefninu verđur á Akureyri viđ ţetta tćkifćri. 

Ţađ eru allir hjartanlega velkomnir á ţingiđ.

(Lára Stefánsdóttir tók myndina af Amtsbókasafninu)


Grálist út um allan bć á Akureyrarvöku

syning_i_deiglunni

Grálist-engin smálist

Út um allan bć eins og gráir kettir á Akureyrarvöku! Án titils.

Setur einhver heimsmet á Akureyrarvöku? Er Mosfell í miđbć? Verđur ţú úr fókus? Sjáđu, er fylgst međ ţér?  Hć hó jibbí jei, er ísbjörn á ferli rétt einu sinni enn? Ég fíla hrossaflugur, Stefnumót viđ Mikines, Fegurđ fjalla, Tálsýn, Umhyggju, Naflaskođun og  Samtal viđ mig sjálfan.

Grálist-engin smálist myndlistasýning í Deiglunni, Kaupvangsstrćti  og um allt á Akureyrarvöku. Sýningin stendur til 31.ágúst.

Artgroup Grálist

www.gralist.wordpress.com

Samsýningin GRÁLIST engin smá list inniheldur verk eftir listamennina Stein Kristjánsson, Karenar Dúu Kristjánsdóttir, Guđrúnu Vöku, Dögg Stefánsdóttur, Sveinbjörgu Ásgeirsdóttur, Ingu Björk Harđardóttur, Herthu Richardt, Margeir Dire Sigurđsson, Sigurlín M. Grétarsdóttur, Kristínu Guđmundsdóttur, Unni Óttarsdóttur, Steinunni Ástu Eiríksdóttur, Ásu Ólafsdóttur og Dagrúnu Matthíasdóttur


SJÓNLIST 2008 opnar í Listasafninu á Akureyri á laugardag

sjonlist.jpg

LAUGARDAGINN 30. ÁGÚST KL. 15 er yđur bođiđ á opnun sýningar á verkum ţeirra listamanna sem tilnefndir eru til Íslensku sjónlistaverđlaunanna 2008.

FÖSTUDAGINN 19. SEPTEMBER KL. 10. Spjallađ viđ tilnefnda listamenn um verk ţeirra á sýningu Sjónlistar í Listasafninu á Akureyri.

FÖSTUDAGINN 19. SEPTEMBER KL. 13, Brekkuskóli Málţing Sjónlistar: (Un)Making of Public Space / (Af)myndun almenningsrýmis

Ađalfyrirlesari er bandaríski rithöfundurinn Jeff Byles, en einnig taka til máls heimspekingurinn Haukur Már Helgason og myndlistarkona Berglind Jóna Hlynsdóttir.

Stjórnandi málţings er Páll Björnsson sagnfrćđingur. Málţingiđ fer fram á ensku og er öllum opiđ.

FÖSTUDAGINN 19. SEPTEMBER KL. 19.40 verđur bein útsending undir stjórn Ţorsteins J. í Ríkissjónvarpinu frá afhendingu Sjónlistarorđunnar 2008 í Flugsafni Íslands á Akureyri.

LAUGARDAGINN 20. SEPTEMBER Spjallađ viđ tilnefnda listamenn í Listasafninu kl. 14. Opnanir í galleríum bćjarins og nýtt gallerí á Glerártorgi tekur til starfa. Verkstćđi gullsmiđa verđa eining opin og óvćntar uppákomur víđsvegar um bćinn. Helginni lýkur međ glaum og gleđi á veitinga- og skemmtistöđum bćjarins ţar sem grímubúningar, náttföt og ýmiskonar furđufatnađur verđur í hávegum hafđur.


Tvćr sýningar opna í GalleríBOXi laugardaginn 30. ágúst klukkan 14:30


Siggi Eggertsson: Bíttar ekki máli

Raquel Mendes: Generosa

30.08. - 14.09.2008

Opnun laugardaginn 30. ágúst klukkan 14:30


GalleríBox
Kaupvangsstrćti 10
600 Akureyri
 

Raquel Mendes og Siggi Eggertsson opna sýningarnar "Generosa" og "Bíttar ekki máli" í GalleríBOXi laugardaginn 30. ágúst kl.14:30. GalleríBox sem er viđ Kaupvangsstrćti 10 á Akureyri er opiđ föstudaga, laugardaga og sunnudaga frá 14:00 til 17:00. Sýningarnar standa til og međ 14. september 2008.

 
Siggi Eggertsson stundađi nám í grafískri hönnun viđ Listaháskóla Íslands árin 2003 til 2006 og útskrifađist ţađan međ B.A gráđu, áriđ 2005 stundađi hann einnig nám viđ Kunsthochschule Berlin – Weissensee. Hann hlaut viđurkenningu Print's New Visual Artists 2006, hlaut tilnefningu til menningarverđlauna DV 2008 og er nú tilnefndur til Íslensku Sjónlistarverđlaunanna í flokki hönnunar.

Sýningin  „Bíttar ekki máli"  er ađ jöfnu hlutfalli listsýning og safnarasýning. Nýtt verk sem Siggi hefur framkvćmt á stađnum er nokkuđ óhefđbundin mósaík, búin til úr safni körfuboltamynda frá ćskuárunum.

 

Raquel Mendes útskrifađist úr skúlptúrdeild  listaháskólans í Lissabon áriđ 2002 og lauk Mastersgráđu frá listaháskólanum í Glasgow 2007.

Athuganir á ađlögunarhćfni manneskjunnar og getu hennar til ţess ađ bregđast viđ óvćntum ađstćđum eru megin uppspretta verka Raquel Mendes. Raquel fćst viđ skúlptúr, innsetningar og nú upp á síđkastiđ ljósmyndun og videoverk.

Verkefniđ "Generosa" var grundvallađ á athugunum og skráningu (ljósmyndir/video) ástands og hátternis, sem leiddu í ljós merki um andlega og líkamlega hnignun ömmu hennar. Andspćnis slíkum ađstćđum var nauđsyn á köldu auga myndavélarinnar til ţess ađ ađskilja sorgarferliđ, einnig ţörf á fegrandi lýsingu sem gerir áorkanina yfirskilvitlegri og ţar af leiđandi bćrilegri en líka, án efa, ţrungna merkingu.  

Nánari upplýsingar: http://www.galleribox.blogspot.com
Siggi Eggertsson: http://www.vanillusaft.com
Raquel Mendes: http://artnews.org/artist.php?i=3044

 


Guđmundur Thoroddsen sýnir: Ísbjörn, farđu heim! á VeggVerk

isbjorn.jpg

Laugardaginn 30. ágúst 2008 opnar Guđmundur Thoroddsen sýninguna: Ísbjörn, farđu heim!

Guđmundur Thoroddsen er fćddur í Reykjavík 1980. Hann lauk BA-gráđu í myndlist frá Listaháskóla Íslands áriđ 2003 og hefur unniđ ađ myndlist síđan. Guđmundur hefur tekiđ ţátt í fjölda samsýninga hérlendis og erlendis s.s. í Svíţjóđ, Finnlandi, Berlín og Salzburg og á einnig tvćr einkasýningar ađ baki, Rjómaísland í 101 gallerí áriđ 2007 og Neđangarđs í Íbíza Bunker nú í sumar.

Ţetta verđur í ţriđja skipti sem Guđmundur vinnur ađ stórri veggmynd en einhverjir gćtu munađ eftir pixlađri mynd af kind á vegg viđ Kolaportiđ sem hann vann í samstarfi viđ kollega sinn áriđ 2003.

www.veggverk.org

 
VeggVerk er heiti á sýningarrými sem er á vesturhliđ Strandgötu 17 á Akureyri. Vegfarendum er velkomiđ ađ fylgjast međ listafólkinu viđ iđju sýna.                                        

VeggVerk er opiđ allan sólarhringinn og er ađgangur ókeypis.

    kveđja
    Jóna Hlíf Halldórsdóttir
    www.jonahlif.com
    sími 6630545


Bryndís Kondrup sýnir í Populus tremula

poptrem-akureyrarvaka08-web.jpg

Populus kynnir: Nýtt starfsár, 2008-2009, hefst á Akureyrarvöku.

Myndlistarsýning og miđnćturtónleikar


BRYNDÍS KONDRUP

myndlistarsýning

TIL VERA

Bryndís Kondrup opnar sýninguna TIL VERA í Populus tremula 30. ágúst kl. 14:00. Ţar sýnir hún myndbandsverk og myndverk á striga. Bryndís hefur unniđ viđ myndlist og myndlistarkennslu, ásamt öđrum myndlistartengdum störfum, undanfarin 20 ár. TIL VERA er tíunda einkasýning Bryndísar og er hugleiđing um tilvist og ferđalag í eiginlegri og óeiginlegri merkingu. Viđ opnun sýningarinnar tekur Ţórarinn Hjartarson lagiđ.

Einnig opiđ sunnudaginn 31.8. kl. 14:00 - 17:00.

Ađeins ţessi eina helgi.

 


DEAN FERRELL: miđnćturtónleikar

Á miđnćtti laugardagsins 30. ágúst heldur kontrabassa leikarinn Dean Ferrell tónleika í Populus tremula.

Dean er Akureyringum ađ góđu kunnur enda hefur hann haldiđ nokkra tónleika í Populus tremula undanfarin ár. Dean hefur getiđ sér orđ víđa um lönd fyrir óvenjulega og bráđskemmtilega tónleika/ kvöldskemmtanir ţar sem hann nálgast sígilda tónlist og bókmenntir međ afar sérstćđum og oft bráđfyndnum hćtti án ţess ađ slá nokkurn tíma af listrćnum kröfum. Hugsanlegt er ađ leynigestur láti sjá sig...

Húsiđ verđur opnađ kl. 23:45

Ađgangur ókeypis – malpokar leyfđir.


Kristjana Samper og Baltasar Samper sýna í DaLí Gallery

_hrimthursi.jpg

Listamennirnir Kristjana Samper og Baltasar Samper opna samsýningu í DaLí
Gallery laugardaginn 30. ágúst kl. 17 á Akureyrarvöku, afmćlishátíđ Akureyrar.

Á sýningunni verđa sýnd málverk eftir Baltasar sem unnin eru upp úr gođafrćđi, sérstaklega Eddukvćđum og skúlptúrar eftir Kristjönu sem vísa til fornrar trúar.


Kristjana Samper vinnur einkum í ţrívídd, í stein, járn, tré, leir og steinsteypu.

Í grafík, litógrafíu og koparstungu og myndverk međ blandađri tćkni.

Baltasar vinnur međ blandađa tćkni í  myndverkum sínum og síđasta áratug hefur hann ađallega unniđ međ encaustic tćkni ( innbrennt vax). Baltasar stundar grafík ađallega ćtingu og litógrafíu. Ađal viđfangsefni hans á u.ţ.b. tuttugu og fimm ára tímabili hefur veriđ hin norrćna gođafćrđi auk ţess ađ mála portrait og vinna myndir úr heimi hestsins sem hefur veriđ honum ákaflega hugleikinn og táknrćnn. Baltasar var valinn heiđurslistamađur Kópavogs 2007.
 
Sýningin stendur til 14. september og eru allir velkomnir.

 
Kćr kveđja
Dagrún og Lína í DaLí Gallery
Dagrún Matthíasdóttir 8957173
Sigurín M. Grétarsdóttir 8697872
Brekkugata 9, 600 Akureyri
dagrunm@snerpa.is
http://daligallery.blogspot.com
opiđ lau-sun kl.14-17


Tilraunastofa flugdreka og fljúgandi furđuhluta

fugl.gif

Experimental workshop with Kites and other Flying Objects

Sunday the 31/8 from 12-16hrs an Experimental workshop with Kites and other Flying Objects will be held at Alda, Eyjafjarđarsveit. Open for all ages.

Participants will get a change to:

-          build their own kite

-          make ordinary objects fly

-          make a rocket

-          try out a variety of single and double line kites with instruction

The results will be shown and tried out near the old airfield at Melgerđismelar. For more information and registration phone +354 892 6804

http://fugl.blog.is

George, Steini & Dísa


Nćsta síđa »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband