Bloggfćrslur mánađarins, desember 2007

Opiđ hús í Freyjulundi á ţorláksmessu

haus

Ţađ verđur opiđ hús hjá Ađalheiđi og Jóni Laxdal í Freyjulundi á ţorláksmessu, ţar sem vinum og velunnurum gefst fćri á ađ setjast niđur og spjalla yfir jólaglöggi eđa reistarárvatni.


Sćunn Ţorsteinsdóttir sýnir málverk á Bókasafni Háskólans á Akureyri

saeunn_thorsteinsdottir_120 Sćunn Ţorsteinsdóttir opnađi málverkasýningu á Bókasafni Háskólans á Akureyri laugardaginn 15. desember. Sýningin mun standa til 19. janúar.

Sćunn er fćdd 15. mars 1967. Hún stundađi nám í pappírsgerđ og vinnu međ pappír sem listform viđ Penland school of arts í Bandaríkjunum árin 1987 og 1988 og sömu ár stundađi hún nám í módelteikningu viđ Myndlistaskólann í Reykjavík. 1988-1993 var Sćunn viđ nám í textíldeild Myndlista - og handíđaskóla Íslands. Kennaraprófi lauk hún frá Háskólanum á Akureyri áriđ 2005 og fór á námskeiđ í sýningarhönnun og safnagerđ á Háskólasetri Vestfjarđa áriđ 2006.

Sćunn hefur tekiđ ţátt í ýmsum samsýningum í Reykjavík og einnig textílsýningu í Bergen í Noregi.

Auk ţess ađ starfa viđ eigin listsköpun hefur hún m.a. kennt mynd- , hand- og tónmennt á Akureyri, Vogunum og í Bandaríkjunum, unniđ á Minjasafninu á Akureyri og rekiđ listmunagallerýiđ Gallerý Listakot í Reykjavík.

Á sýningu Sćunnar eru myndir málađar á árunum 2006 - 2007. Ţetta eru akrílmyndir málađar á striga og tré, svo og smámyndir unnar međ blandađri tćkni. Myndirnar eru unnar útfrá hringformum sem sjást gjarnan í gömlum útskurđi.

Bókasafn Háskólans á Akureyri er opiđ alla virka daga frá 8:00 - 18:00 og á laugardögum frá 12:00 - 15:00. Á milli jóla - og nýárs er safniđ opiđ frá kl. 8-16


Karen Dúa međ NÝTT SJÓNARHORN í VeggVerki

karennnnnBK

Karen Dúa Kristjánsdóttir sýnir um ţessar mundir verkiđ NÝTT SJÓNARHORN í VeggVerki á Akureyri. Hún segir um ţetta verk:

"Verkiđ er einfalt en krefst ţátttöku áhorfandans, ţađ ber ađeins ţann tilgang ađ fá vegfarandann til ađ staldra viđ og virđa fyrir sér nánasta umhverfi.

Kannski hefđum viđ öll gott af dálítilli sjálfsskođun af og til, ađ líta á hlutina frá öđru sjónarhorni en venjulega og jafnvel klifra upp á ţak og sjá hvernig okkar eigin garđur lítur út úr fjarlćgđ.

-Klifrađu upp, ekki vera smeykur ţví hćđin sýnist meiri en hún raunverulega er."

Hallur Gunnarsson setti Veggverk á fót fyrir rúmu ári síđan. Hallur býr í Vancouver, Kanada en starfar á Akureyri. Sýningarrýmiđ er á vesturhliđ Strandgötu 17 á Akureyri og Jóna Hlíf Halldórsdóttir er sýningarstjóri VeggVerks.org


Taktföst tortíming senn á enda

forsida5

Sýningarstjóri: Francis McKee
Listamenn: Baldvin Ringsted Vignisson, Will Duke, Erica Eyres, Jóna Hlíf Halldórsdóttir og Lorna Macintyre

Sunnudaginn 16. desember lýkur sýningunni Taktföst tortíming í Listasafninu á Akureyri. Ţessi síđasta sýningu ársins er í höndum kraftmikilla ungra listamanna, sem valdir voru af Francis McKee, safnstjóra Nýlistasafnsins í Glasgow, einum virtasta og framsćknasta sýningarstjóra Skotlands. Listamennirnir eru allir fćddir á áttunda áratugnum og hafa stundađ framhaldsnám viđ Glasgow School of Art en koma frá Kanada, Englandi, Skotlandi og Íslandi. Ţótt ţeir eigi sama nám ađ baki hefur hver og einn ţeirra markađ sér efnistök, áherslur og tćkni. Baldvin fćst viđ spennandi tilraunir á mörkum hljóđs og ljóss, en Will skapar ógnvekjandi stafrćnar hreyfimyndir. Húmor og sterk konsept einkenna margvísleg verk Jónu, Erica afmyndar fólk og kannar viđţoliđ gagnvart hinu ljóta á međan Lorna skapar merkingu eđa kerfi úr fundnum munum og óreiđu.

Veglegt blađ var gefiđ út vegna sýningarinnar og má ţar m.a. finna grein eftir sýningarstjórann ţar sem hann fjallar hann um rotnun, grotnun, eyđingu, tćringu, visnun, ryđ og elli, sem virđast ef til vill í fljótu bragđi koma ungum listamönnum lítiđ viđ. En McKee heldur ţví fram ađ eyđingin sé nauđsynlegur jarđvegur fyrir nýjar leiđir. Rómantíkin hefur veriđ nefnd sem mögulegt andsvar viđ síđpóstmódernisma og sem mögulegur lífsstíll á 21. öld. Draumsýn um endurvakningu hennar er hugmynd sem fleygt hefur veriđ fram undanfarna áratugi í fleiri en einu samhengi. Ţessir listamenn eru kannski sporgöngumenn rómantíkur en miklu líklegra er ađ ţeir svipti plástrinum af kaunum ţess samfélags sem virđist stađráđiđ í ađ tortíma sér.

Styrktarađilar sýningarinnar eru: British Council, AB búđin, Ásprent, Bílaleiga Akureyrar, Eymundsson, Flugfélag Íslands, Flügger litir, Flytjandi, Iss rćstingar, Karólína Restaurant, Kaupţing, KPMG, Securitas og Sjóvá.

Nánari upplýsingar veitir forstöđumađur Listasafnsins, Hannes Sigurđsson, í síma 899-3386, netfang: hannes(hjá)art.is

Listasafniđ á Akureyri er opiđ alla daga nema mánudaga frá kl. 12-17. Ađgangseyrir er kr. 400. Frítt á fimmtudögum.


Sveinbjörg Hallgrímsdóttir sýnir á Bláu könnunni

Listam_litil

Hringleikur á ađventu
Sveinbjörg Hallgrímsdóttir sýnir nýjar tréristur og sandblástursfilmur á Bláu könnunni í desember.

Meginţema verkanna er hringformiđ, sem er tákn óendanleikans. Margslungnar fléttur og ţrćđir spinnast saman og mynda hring, lokađ ferli án upphafs og endis. Verkin bera međ sér fyrirheit um uppskeru og nýja blómatíđ.

Sveinbjörg Hallgrímsdóttir er fćdd í Reykjavík 01.10.1957. Hún stundađi nám viđ Kennaradeild Myndlista- og handíđaskóla Íslands áriđ 1974 til 1978. Á árunum 1986 til 1990 stundađi hún nám viđ Myndlistaskóla Reykjavíkur og ţvínćst viđ málaradeild Myndlista- og handíđaskóla Íslands árin 1990 til 1992.

Frá árinu 1992 hefur Sveinbjörg veriđ međ eigin vinnustofu. Í dag starfrćkir hún vinnustofu sína og sýningarađstöđu, ásamt Önnu Gunnarsdóttur, Gallerí Svartfugl og Hvítspóa í miđbć Akureyrar.

Sveinbjörg er félagi í grafíkfélaginu Íslensk Grafík og Sambandi íslenskra myndlistarmanna (SÍM). Hún er einnig međlimur í dönsku grafíksamtökunum Fyns Grafiske Vćrksted í Óđinsvéum.

Sveinbjörg var bćjarlistamađur Akureyrar 2004 og valin listamađur ársins hjá Stíl 2007, en fyrirtćkiđ styrkir sýninguna. Hún á ađ baka margar einkasýningar og hefur tekiđ ţátt í fjölmörgum samsýningum heima og erlendis.

Vinnustofa / sýningarsalur, Gallerí Svartfugl og Hvítspói,
Brekkugötu 3a (bakhús viđ Ráđhústorg) -  600 Akureyri.
s: 4613449 - 8937661.
tölvupóstur: sveinbjorg(hjá)svartfugl.is - heimasíđa: www.svartfugl.is


Karine Séror sýnir í Populus Tremula

Karine-Seror-web

Ţrćddir Stígar, myndlistarsýning Karine Séror

Laugardaginn 15. desember kl. 14:00 verđur opnuđ myndlistarsýningin Ţrćddir stígar í Populus tremula í Listagilinu á Akureyri. Ţar sýnir franska myndlistarkonan og skáldkonan Karine Séror verk sem hún vann á ferđalagi um fyrrum Júgóslavíu. Ţegar líđa tók á ferđalagiđ dró Karine saumadót og ýmislegt fleira upp úr töskunni og skráđi ferđasöguna í myndmáli, ţrćddi stíga.

Búast má viđ óvćntri uppákomu á opnun sýningarinnar.

Einnig opiđ sunnudaginn 16. desember kl. 14:00 - 17:00. Ađeins ţessi eina helgi.

Kartöflugeymslan verđur listhúsiđ Festarklettur

olig7a

Óli G. Jóhannsson listmálari hefur fest kaup á gömlu kartöflugeymslunni efst í listagilinu á Akureyri af arkitektastofunni Kollgátu og fćr hann húsnćđiđ afhent í janúar. Hyggst hann opna ţar listhús sem hlotiđ hefur nafniđ Festarklettur. Ţetta kemur fram í frétt á mbl.is. Ţađ mun ţví enn fjölga galleríunum í Gilinu og myndlistin er farin ađ teygja sig upp ađ sundlaug. Fyrir eru GalleríBOX, Jónas Viđar Gallery, Populus Tremula, Deiglan, Ketilhúsiđ, Listasafniđ á Akureyri, Myndlistarskólinn á Akureyri og Kaffi Karólína. Auk ţess eru fjöldi listamanna međ vinnustofur í Gilinu, ţar á međal Óli G. Einnig búa margir myndlistarmenn í Listagilinu enda stutt ađ fara í vinnuna! 

Í fréttinni á mbl.is kemur einnig fram ađ Óli G. er ađ fara ađ opna einkasýningu í Opera Gallery í New York. Áfram svona Óli! Hér eru nokkrir tenglar:

Heimasíđa Óla G.

Óli G. í Listasafninu á Akureyri 

Opera gallery New York


mbl.is Sýnir í New York og kaupir kartöflugeymslu
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Umsóknir um styrki CIA til 10. des. 2007

Kćru myndlistarmenn
 
Síđasti dagur á árinu 2007 til ađ senda inn umsóknir til
Kynningarmiđstöđ íslenskrar myndlistar cia.is, vegna styrkja til verkefna međ skemmri fyrirvara er, nćstkomandi mánudagur, 10. desember.
 
Nánari upplýsingar má finna á vefsíđu miđstöđvarinnar:
 
http://cia.is/styrkir/index.htm
 
 
Kynningarmiđstöđ íslenskrar myndlistar
Hafnarstrćti 16
101 Reykjavík
tel: +354-562-7262
fax:+354-562-6656
info(hjá)cia.is
www.cia.is
www.artnews.is


JÓL - Norđlensk Hönnun í galleríBOXi

JÓL
Norđlensk Hönnun

galleríBOX
Kaupvangsstrćti 10
600 Akureyri.

Laugardaginn 8. desember klukkan 12:00 opnar markađur međ norđlenska Hönnun í BOXinu.
Enginn ćtti ađ láta ţetta fram hjá sér fara, ţarna verđur ţađ heitasta sem er ađ gerast hjá ungum og reyndum hönnuđum.
Međal ţeirra sem sýna eru Brynhildur Ţórđardóttir, Guđjón Sigurđur Tryggvason, Ađalheiđur S. Eystinesdóttir, Jón Laxdal, Frúin í Ham, Gitte Nielsen, Helgi ţórsson.......

Einnig stendur yfir sýningin Songs With Dirty Words eftir Niall og Ruth en ţau koma frá Glasgow.

Markađurinn stendur yfir alla laugardaga og sunnudaga fram ađ jólum. Opiđ frá 12:00-18:00

NOKKUR SÉRvalin KRISTNESK JÓLATRÉ OG GREINAR VERĐA TIL SÖLU 15.-16. desember & 22.-23. desember. Međan birgđir endast (skógur endist)

Heitt jólaglögg og piparkökur
Fjölbreyttar vörur í jólapakka

Allir Velkomnir

Jóna Hlíf Halldórsdóttir
6630545


"Grálist međ smálist" í DaLí Gallery á Akureyri

PC0500350

"Grálist međ smálist" er samsýning í DaLí Gallery á Akureyri í desember.
Grálista-hópurinn verđur međ smálistagjörning á myndbandi og ţekja veggi gallerísins međ smálist. Ekkert smáverk verđur stćrra en 20×20 cm og má ţar líta hluta af smámyndasafni Grálista-hópsins. Opnun verđur laugardaginn 8. desember og er opiđ kl. 14-17, og alla föstudaga og laugardaga kl.14-17 fram ađ jólum. http://daligallery.blogspot.com

Grálist er hópur ungra myndlistamanna sem hafa öll útskrifast frá fagurlistadeild Myndlistaskólans á Akureyri ađ undanskildum ţremur sem útskrifast nćsta vor.
Grálist er óháđur og fjölbreyttur hópur sem hefur ţađ ađ markmiđi ađ vera sýnileg út um allt eins og gráir kettir, ýmist saman í heild, í smćrri hópum og sem einstaklingar.
Frekari upplýsingar um Grálist má sjá hér: http://gralist.wordpress.com

Kveđja Dagrún og Lína í DaLí Gallery
8957173    8697872
Brekkugötu 9, Akureyri


Nćsta síđa »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband