Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2017
31.7.2017 | 13:47
Verslunarmannahelgin í Alþýðuhúsinu á Siglufirði
Verslunarmannahelgin í Alþýðuhúsinu á Siglufirði verður eftirfarandi.
Föstudaginn 4. ágúst kl. 16.00 - 19.00 opnar Guðný Kristmannsdóttir sýningu í Kompunni
Föstudaginn 4. ágúst kl. 17.00 verður Paola Daniele með gjörning í Alþýðuhúsinu.
Laugardaginn 5. ágúst kl. 10.00 - 13.00 verður listasmiðja fyrir börn og aðstandendur við Alþýðuhúsið. ( vinsamlegast sendið börn ekki án umsjónar og komið með hamar ef tök er á )
Sunnudaginn 6. ágúst kl. 14.30 - 15.30 munu Arnar Steinn og Helena Stefánsdóttir ( í Ljósastöðinni) vera með erindi á Sunnudagskaffi með skapandi fólki.
Sýning Guðnýar er opin alla helgina kl. 14.00 - 17.00.
Frítt á alla viðburði. Verið velkomin.
Guðný Kristmannsdóttir og Paola Daniele hafa sýnt saman í
Frakklandi og Ítalíu með listamönnum í Hic est Sanguis Meus -The
blood of women. Nú sýna þær saman á Siglufirði, Paola verður með
gjörning en Guðný með teikningar og málverk.
Guðný Þórunn Kristmannsdóttir er fædd 1965 og er uppalin í
Reykjavík. Hún lauk stúdentsprófi af myndlistarbraut
Fjölbrautaskólans í Breiðholti 1988, stundaði síðan nám við
Myndlista- og handíðarskóla Íslands 1988-91 og brautskráðist þaðan
úr málaradeild. Skömmu síðar flutti hún til Akureyrar þar sem hún
hefur búið og starfað síðan. Guðný var valin Bæjarlistamaður
Akureyrar árið 2010.
Verk Guðnýjar eru að mestu stór olíu málverk unnin á striga og tré.
Einnig vinnur hún teikningar og notar blandaða tækni á pappír, tré
eða tau. Í verkum hennar skipa draumar stóran sess en þar fær innri
og ytri veruleiki oft að renna saman. Áherslan er á sjálfsprottnari
vinnuaðferðir þar sem unnið er án forteikningar þannig að sköpunin,
með öllum þeim efasemdum og bakþönkum sem henni fylgja, eiga
sér stað á myndfletinum. Í hinu ofurviðkvæma sköpunarferli er
nautnin höfð í aðalhlutverki. Hugmyndin um að sköpunin sé
frumstæður kraftur sem kvikni í líkamanum og sé líkamleg nautn
hefur haft mikil áhrif á verk hennar. Ath. heimasíðuna gudny.is
Paola Daniele, choreographer, dancer and performer, native to
southern Italy, she lives and works in Paris. Preciously preserves her
menstrual blood in the freezer for her performances. She has three
main obsessions: the wedding dresses, the anatomy of dolls and
womens blood that she questions through her artistic approach and
thanks to the collective Hic Est Sanguis Meus This is my blood, that
she initiated in 2014 in Paris. She interrogates the ambivalent status of
blood in our collective imagination.
Listasmiðja fyrir börn og aðstandendur fer fram á stéttinni sunnan við Alþýðuhúsið ef veður leyfir. Kl. 10.00 - 13.00 á laugardaginn. Unnið verður með timbur og er fólk því beðið um að koma með hamra ef kostur er. Ekki er ætlast til að börnin komi án tilsjónar.
Að uppgötva
Sagt er að við fæðumst öll með sköpunargáfu og þurfum ekki annað en aðstöðu og smá hvatningu til að virkja hana.
Hugmyndaflug barna er sístarfandi, opið fyrir nýjungum og gagnrýnislaust.
Hjá barni er ekki markmiðið að fullkomna myndverk, heldur sjálf athöfnin að skapa.
Sagt er að fyrir fimm ára aldur séum við búin að uppgötva allt það helsta í tilverunni, hita, kulda, ást, hræðslu, hungur, vellíðan, sköpun, fegurð og svo framvegis.
Hvernig getum við þá viðhaldið þeim eiginleika að uppgötva?
Með listsköpun komumst við skrefi nær því marki að uppgötva algerlega á okkar eigin forsendum. Þar eru engar fyrirfram gefnar staðreyndir sem heft geta hugarflug einstaklinga.
Uppgötvun barna tengist ekki endilega raunveruleikanum, heldur alskyns undarlegum hlutum og hugmyndum. Hver kannast ekki við það að sjá óskiljanlega mynd sem barn hefur teiknað, en í huga barnsins er teikningin heilt ævintýri.
Ef umsjónarmenn barna sjá til þess að alltaf sé til hráefni til listsköpunar á heimilinu og í skólanum, blómstrar uppgötvunarhæfileiki barnanna.
Sunnudagskaffi með skapandi fólki fer fram á sunnudaginn kl. 14.30 - 15.30. Þar munu Arnar Steinn og Helena Stefánsdóttir sem eiga gömlu Ljósastöðina á Siglufirði segja frá Því sem þau eru að gera.
Sunnudagskaffið eru viðburðir sem fara fram í alrými Alþýðuhússins og miðast við að benda á allt það skapandi starf sem fram fer í samfélaginu. Að erindi loknu eru kaffiveitingar.
Uppbyggingarsjóður/Menningarráð Eyþings, Fjallabyggð, Egilssíld, Eyrarrósin og Samfélagssjóður Siglufjarðar styrkja menningarstarf í Alþýðuhúsinu á Siglufirði.
30.7.2017 | 20:16
Hverfing / Shapeshifting í Verksmiðjunni á Hjalteyri
Verksmiðjan á Hjalteyri býður yður að vera við opnun sýningarinnar
HVERFING/
SHAPESHIFTING
3. ágúst kl. 17:00
-----------------------------------------------------------------------------
Verksmiðjan in Hjalteyri cordially invites you to the exhibition opening
SHAPESHIFTING/
HVERFING
3rd of August at 5 pm
Alex Czetwertynski, Anna Eyjólfsdóttir, Deborah Butterfield, Emma Ulen Klees, Gústav Geir Bollason, Hunter Buck, Jessica Stockholder, John Buck, Kristín Reynisdóttir, Mary Ellen Croteau, Pétur Thomsen, Ragnhildur Stefánsdóttir, Rúrí og Þórdís Alda Sigurðardóttir.
Verksmiðjan á Hjalteyri / 03.08 03.09 2017 / Neðst á Hjalteyri við Eyjafjörð / 601 Akureyri http://verksmidjanhjalteyri.com/verksmiðjan.html
Opnun fimmtudaginn 3. ágúst kl. 17 / Opið til og með 03.09. þri. - sun. 14 - 17
Sýningarstjóri/Curator: Pari Stave, listfræðingur og sýningarstjóri í Metropolitan listasafninu í New York.
Á sýningunni Hverfing/Shapeshifting í Verksmiðjunni á Hjalteyri mætast listamenn frá Íslandi og Bandaríkjunum til þess að skapa staðbundin innsetningarverk inn í rýmið. Verksmiðjan, saga hennar og nálægð við Norður Íshafið og náttúruna þjónar hlutverki bakgrunns en einnig ramma fyrir ný verk listamannanna, sem að tengja við stef menningarlegra og náttúrulegra gilda, en einnig yfirvofandi ógnvænlegar breytingar vegna hnattrænnar hlýnunar áhrif þeirra og ófyrirsjáanlegar afleiðingar á samfélög, umhverfi og náttúru.
Verksmiðjan á Hjalteyri hlaut viðurkenningu Eyrarrósarinnar 2016 og var nýlega nefnd sem einn af 10 áhugaverðurstu sýningarstöðum landsins í umfjöllun https://theculturetrip.com/europe/iceland/articles/10-of-icelands-best-art-galleries/. Hún var reist af miklum stórhug á fyrri hluta síðustu aldar. Í dag myndar hún svipmikinn bakgrunn við stórar og kraftmiklar innsetningar listamanna.
Hverfing / Shapeshifting
Curator/Sýningarstjóri: Pari Stave, Senior Administrator of the Department of Modern and Contemporary Art at the Metropolitan Museum of Art in New York
Represented artists:
Anna Eyjólfsdóttir, Ragnhildur Stefánsdóttir, Þórdís Alda Sigurðardóttir, Alex Czetwertynski, Deborah Butterfield, Gústav Geir Bollason, Hunter Buck, Emma Ulen-Klees, Jessica Stockholder, John Buck, Kristín Reynisdóttir, Mary Ellen Croteau, Pétur Thomsen, Rúrí.
The exhibition Hverfing/Shapeshifting brings together renowned artists from Iceland and the United States to create site-specific installations specifically for the interior spaces of the Verksmiðjan building, a former herring oil factory at the beautiful location of Hjalteyri in the north of Iceland. The factory, its history, and its proximity to the sea and nature serve as the reference for the newly created works by the artists, who address themes of cultural and natural values.
Koma listafólksins og sýningin eru styrkt af Uppbyggingarsjóði, Myndlistarsjóði, Hörgársveit, Náttúruverndarsjóði Pálma Jónssonar, Wow air, Listasjóði Dungals og Ásprenti.
Nánari upplýsingar veitir Gústav Geir Bollason í verksmidjan.hjalteyri@gmail.com og í síma 6927450
24.7.2017 | 14:03
Listsýningar í Flóru og Kaktus í tengslum við druslugönguna
Fimmtudaginn 27. júlí verður opnun á listsýningu í Flóru og Kaktus í tengslum við druslugönguna elsku fólk.
Opnun verður í Flóru klukkan 17.00 (Hafnarstræti 93) og eftir hana verður farið í Kaktus (Hafnarstræti 73)
Einnig verðum við með sýningu í glugga ART AK í Amaro húsinu.
- Listaverkin eru eftir norðlenskar kjarnakonur.
- Boðið verður uppá léttar og fínar veitingar.
- KOMIÐ OG NJÓTIÐ DRUZLULISTAR.
- DREIFUM BOÐSKAPNUM SAMAN ELSKU FÓLK.
DRUZLUÁST.
------ ------ ------ ------ ------ ------ ------
Thursday the 27th of july we have an opening of an art exhibition connected with our amazing Slut Walk.
The opening starts in Flóra (Hafnarstræti 93) at 17.00 after the opening we will walk to Kaktus (Hafnarstræti 73).
We will also have a small exhibition in the window of ART AK in the Amaro house (in the center).
- The art is made by nordic amazing powerful ladies.
- We will have some light refreshments.
- COME AND ENJOY SOME AMAZING SLUT ART.
- LETS SHARE THE MESSAGE TOGETHER.
LOVE.
https://www.facebook.com/events/1978202499128708
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 14:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.7.2017 | 13:48
Hendrikje Kühne / Beat Klein sýna í Deiglunni
Verið velkomin á opnun Temporary Environment í Deiglunni, föstudaginn 28. júní kl. 17 20. Léttar veitingar í boði.
Einnig opið laugardaginn 29. júní kl. 13 17.
Hendrikje Kühne / Beat Klein sýna sex lítil verk sem voru gerð við dvöl í Gestavinnustofu Gilfélagsins í Júlí 2017. Myndasýningin Car Stills sýnir breytilegt ástand bílastæðisins frá eldhúsglugganum, sem breytir því í litríkar abstrakt myndbyggingar. Staðlað landslag er viðfangsefni Contained Surroundings, myndröð máluð með hjartanu, svörtum og hvítum vatnslitum. Bæði Bake-a-View og Landscapes with a Sell-by Date leika sér með línuna á milli mikilfengleika málverksins og hversdagleika þess. The First and the Last of its Kind samanstendur af tugum klippimynda í fuglslíki búin til úr notuðum matarpakkningum. Pop-up Distraction fjallar um hið fullkomna landslag eins og er sýnt á póstkortum og bætir við ertingu.
Við erum partur af Listasumri.
#Listasumar
Gilfélagið er styrkt af Akureyrarstofu.
Viðburðurinn á Facebook: https://www.facebook.com/events/693843764119251
///
Temporary Environment
You are invited to the opening of Temporary Environment by Hendrikje Kühne / Beat Klein in Deiglan, Kaupvangsstræti 23 on Friday, june 28th at 5pm 8pm. Also open on Sat. At 1pm 5pm.
Hendrikje Kühne / Beat Klein present six small bodies of work created while on the residency at Gilfélagid in July 2017. The slide show "Car Stills" shows the changing parking situation as seen from the kitchen window, turning them into colourful abstract compositions. Archetypal landscapes are the subject matter of "Contained Surroundings", a series of painted by heart, black and white watercolours. The unusual presentation adds a special light. Both "Bake-a-View" and "Landscapes with a Sell-by Date" play on the connection between the sublimity of painting and its mundane ground. "The First and the Last of its Kind" consists of dozens of birdlike collages playfully created out of used food packages. Pop-up Distraction takes up the subject matter of ideal landscape as represented in picture postcards and adds a source of irritation.
18.7.2017 | 22:47
Joris Rademaker sýnir í Kaktus
Joris Rademaker
Titill mydlistarsýningarinnar: Generalprufa
Opnun föstudagskvöldið 21. júlí kl. 19.00
Joris Rademaker - Dansandi kartöflur:
https://youtu.be/52UfWphJpnw
Sýningin er opin laugar- og sunnudag (22. og 23. júlí) kl. 14-17
Joris útskrifaðist 1996 úr myndlistarskólanum AKI í Enschede í Hollandi. Hann hefur haldið yfir 40 einkasýningar og tekið þátt í fjölmörgum samsýningum.
Hann sýndi í Berín í janúar á þessu ári og verður með á samsýningu í Listasafni Reykjavíkur í október.
Joris sýnir nýja skúlptúra, frá síðustu tveimur árum. Efnisval Joris er mjög fjölbreytt. Í verkum hans notar hann annars vegar efni sem hann finnur í náttúrunni,
t.d. greinar, hvönn, bein, fjaðrir, rekavið, og hins vegar efni sem hann kaupir í verslunum t.d. tréskó, reipi, keramíkegg. o.fl.
Oft er efnið sjálft uppspretta hugmynda að listaverki.
Tengsl nútíma mannsins við náttúrulegt umhverfi er orðið ansi flókið. Það vantar oft virðingu fyrir náttúrunni í okkar neyslusamfélagi,
eins og frumbyggjarnir gerðu, notuðu bara það sem þeir þurftu, hvorki meira né minna. Þeir upplifðu sig hluta af náttúrunni en ekki aðskilin.
Í verkum Joris vakna oft spurningar hjá áhorfandanum um listfræði, heimspeki, einnig umhverfismál og samfélagsfræði.
Aðal viðfangsefni Joris er tilvist mannsins í tengslum við tíma, rými hreyfingu og efnið.
Kaktus
Hafnarstræti 73
Akureyri
https://www.facebook.com/events/463846173984732
13.7.2017 | 23:00
Skapandi sumarstörf sýna í Hvíta Kassanum í Kaktus
Skapandi sumarstörf sýna í Hvíta Kassanum í Kaktus
Opnun föstudaginn 14.07.2017 kl. 16:00 - 18:00
Opið á laugardaginn kl. 14:00 - 17:00
Sumarið 2017 hafa skapandi sumarstörf unnið undir leiðsögn Kjartans Sigtryggsonar að veggverki í listagilinu þar sem þau unnu með hugmyndina að ævintýri. Verkið var unnið á fimm vikna tímabili frá júní til júlí og er hluti af átaksverkefni Akureyrarbæjar og Ungmennahús-Rósenborgar fyrir ungt fólk á aldrinum 17-25 ára
Í Hvíta Kassanum í Kaktus verður hugmyndarvinnan að baki veggverksins til sýnis ásamt sjálfstæðum verkum sem þau unnu á tímabilinu.
Nöfn:
Snæbörn Máni Þorkelsson
Bjarney Anna Jóhannesdóttir
Kristján Breki Björnsson
Stefán Atli Arnarsson
Helena Ýr Pálsdóttir
https://www.facebook.com/events/122519105028232
12.7.2017 | 23:44
Auðar Ómarsdóttur opnar sýningu í nýju sýningarrými gallerý Hvítspóa
MAN I FEEL Like A WOMAN / einkasýning Auðar Ómarsdóttur
Verið velkomin á einkasýningu Auðar Ómarsdóttur, laugardaginn 15. júlí kl. 15:00 í gallerý Hvítspóa, Óseyri 2, Akureyri.
Auður er fyrst til að sýna í nýju sýningarrými gallerý Hvítspóa, en það er rekið af Önnu Gunnarsdóttur listakonu.
Á sýningunni má sjá verk sem bera keim af klassískri grísk-rómverskri listasögu en einnig karllægum heimi nútíma byggingariðnaðar. Verkin eru samsett af skúlptúrum sem eru að mestu leiti unnir úr fundnum hlutum og teikningum sem gerðar eru sem rannsókn á tíðnisviði viðfangsefnisins.
Með titlinum á sýningunni vísar Auður í lag eftir Shaniu Twain; 'Man I feel like a woman'.
Hér má lesa texta viðlagsins :
Oh, oh, oh, go totally crazy-forget I'm a lady
Men's shirts-short skirts
Oh, oh, oh, really go wild-yeah, doin' it in style
Oh, oh, oh, get in the action-feel the attraction
Color my hair-do what I dare
Oh, oh, oh, I wanna be free-yeah, to feel the way I feel
Man! I feel like a woman!
Auður útskrifaðist úr myndlistardeild Listaháskóla Íslands 2013 og hefur síðan unnið að list sinni og sýnt víðsvegar. Nýlega lauk einkasýningu hennar, Situations, í Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Einnig ber að nefna að verk eftir hana eru á sumarsýningu Listasafnsins á Akureyri, sem nú stendur yfir. Man I feel like a woman er sjötta einkasýning Auðar eftir útskrift.
Léttar veigar verða í boði á opnuninni, en sýningin stendur til 15. ágúst.
https://www.facebook.com/events/1985640898336608
10.7.2017 | 18:09
5. ára afmælisfagnaður Alþýðuhúsið á Siglufirði
5. ára afmælisfagnaður
Alþýðuhúsið á Siglufirði 14. 16. júlí 2017
Í desember 2011 keypti Aðalheiður S. Eysteinsdóttir Alþýðuhúsið á Siglufirði með það að markmiði að gera þar vinnustofu og leikvöll sköpunar af ýmsum toga. Hafist var handa við endurgerð hússins með hjálp vina og vandamanna, og var Alþýðuhúsið formlega tekið í notkun sem vinnustofa og heimili með menningarlegu ívafi 19. júlí 2012.
Síðan hafa 120 viðburðir verið settir upp í Alþýðuhúsinu á Siglufirði og 751 skapandi einstaklingar tekið þátt. Ekki eru til nákvæmar tölur um fjölda gesta sem sótt hafa viðburðina en þeir skipta þúsundum. Það er tími til að fagna og þakka öllu þessu frábæra fólki.
Aðalheiður hlaut Menningarverðlaun DV 2015 meðal annars fyrir starfið í Alþýðuhúsinu. Og Alþýðuhúsið valið af Eyrarrósinni 2017, eitt af þremur framúrskarandi menningarverkefnum á landsbyggðinni.
Í tilefni af árunum fimm verður efnt til þriggja daga menningarveislu með þéttri dagskrá alla dagana.
Dagskrá.
14. júlí.
Kl. 17.00 Ávarp - Aðalheiður S. Eysteinsdóttir
Skúlptúrgarður opnaður
Kl. 21.00 Raftónlist - Arnljótur Sigurðsson
kl. 22.00 Raftónlist - Áki Sebastian Frostason
Kl. 22.30 Vélarnar Þeytir skífum.
15.júlí
Kl. 14.00 Kompan sýningaropnun - Guðjón Ketilsson
Kl. 15.30 Húlladúllan sýning og námskeið á túninu við Alþýðuhúsið - Unnur María Bergsveinsdóttir
Kl. 16.30 REITIR Workshop Kynning - Arnar Ómarsson
Kl. 17. 30 Matargjörningur - Aðalheiður S. Eysteinsdóttir
Kl. 21.00 Djasshljómsveitin LAND - Óskar Guðjónsson, Matthías Hemstock , Eyþór Gunnarsson, hugsanlegir leynigestir
16. júlí
Kl. 14.00 Frásögn og spjall - Guðrún Pálína Guðmundsdóttir
Kl. 14.15 Ljóðadagskrá - Jón Laxdal, Hekla Björt Helgadóttir, Guðbrandur Siglaugsson, Páll Helgason, Margrét Guðbrandsdóttir
Kl. 16.00 Gjörningur - Andrea Elín Vilhjálmsdóttir, Lóa Björk Björnsdóttir
Kl. 17.00 Fjöllistasýning - Kyle Driggs, Andrea Murillo
Aðalheiður S. Eysteinsdóttir
Aðalheiður er listamaður og eigandi Alþýðuhússins á Siglufirði.
Aðalheiður mun í upphafi afmælisfagnaðarins fara létt yfir þau fimm ár sem liðin eru frá því hún keypti húsið og þakka öllum sem að hafa komið.
Undanfarið ár hefur Aðalheiður unnið skúlptúra sem staðsettir eru á flötinni sunnan við Alþýðuhúsið. Verkin marka upphafið af skúlptúrgarði sem þar mun vaxa á komandi árum. Aðalheiður mun opna garðinn formlega og segja frá verkunum.
Arnljótur Sigurðsson
Ljótur er listamannsnafn Arnljóts Sigurðssonar, sem hefur verið iðinn við
kolann í tónlistarsenu Reykjavíkur um árabil og hefur komið fram í ýmsum
formum. Hann er einn prímusmótorinn í hljómsveitinni Ojba Rasta auk þess
sem hann leggur öðrum tónlistarmönnum lið í öðrum verkefnum á ýmis
hljóðfæri (Sin Fang, Skúli Sverrisson, Teitur Magnússon, Samúel Jón
Samúelsson Big Band o.fl.). Á börum borgarinnar er hægt að finna hann í
plötuþeytingum sem hann gerir undir nafninu Krystal Carma.

Þegar hann byrjaði að stunda myndlist opnaðist samtímis gátt inn í heim
raftónlistarinnar. Undir sínu eigin nafni hefur hann gefið út plöturnar Listauki
(2008), Línur (2014), Til Einskis (2015) og Úð (2016). Ljótur maríneraði sig í
þýsku raftónlistarsenu áttunda áratugarins, Kraftwerk, Cluster, Tangerine
Dream og fleiru, en innanlands hefur hann sótt innblástur í Inferno 5 og Evil
Madness. Á þessum tónleikum mun Ljótur spila nýja raftónlist.
arnljotur.bandcamp.com

www.soundcloud.com/ljotu
Áki Sebastian Frostason
Áki mun spila efni af væntanlegri plötu sinni sem ber heitið 7. Um er að ræða raftónlist, sjö lög sungin á sjö tungumálum.
Arnar Ari Lúðvíksson
Vélarnar er listamannsnafn Arnars Ara þegar hann þeytir skífum á sinn einstaka máta og tekur viðstadda með sér í ferðalag. Hann mun standa vaktina í Alþýðuhúsinu á afmælisfagnaði.
Guðjón Ketilsson (f. 1956)
Býr og starfar í Reykjavík. Hann stundaði myndlistarnám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og Nova Scotia College of Art and Design í Kanada.Guðjón hefur frá upphafi unnið í margvíslegan efnivið jöfnum höndum með eigið handverk, málverk, teikningar, leir, keramik og fundna hluti sem oft hafa persónulega þýðingu fyrir hann - efnisval hverju sinni ræðst af inntaki verkanna.
Í verkum Guðjóns skipar fortíð efnisins iðulega stóran sess. Ólíkar vísanir í líf fólks og sögu. Það má segja að mörg verka hans vísi inn á við. Þau beina athygli okkar að efninu og hinu efnislega umhverfi. Hann vinnur oft með hluti sem hann tekur úr upprunalegu samhengi sínu og setur í nýtt. Úr fundnum hlutum má lesa ýmis skilaboð sem öðlast merkingu eftir samhengi þeirra.
Maðurinn og samband hans og samskipti við umhverfi sitt hefur verið lengi verið viðfangsefni Guðjóns. Einnig hefur mannslíkaminn oft verið í forgrunni í verkum Guðjóns, nærvera hans eða fjarvera.
Guðjón hefur haldið yfir þrjátíu einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga á Íslandi og í Evrópu, Bandaríkjunum, Kína og Ástralíu. Verk Guðjóns eru í eigu allra helstu listasafna á Íslandi, svo og nokkurra erlendis. Auk þess að vera boðið að vinna að list sinni á ýmsum alþjóðlegum vinnustofum, hefur hann verið valinn til þátttöku í samkeppnum um gerð listaverka í opinberu rými og má sjá verk hans í opinberu rými í Reykjavík og á Seyðisfirði.
Guðjón hefur hlotið ýmis verðlaun og viðurkenningar fyrir list sína, s.s. Menningarverðlaun DV árið 2000 og verðlaun Listasafns Einars Jónssonar árið 1998.
Unnur María Bergsveinsdóttir
Húlladúllan mætir á svæðið, slær upp stuttri húllasýningu þar sem hún sýnir hversu fjölbreytt og skemmtilegt húllahoppið er og býður viðstöddum í kjölfarið í húllafjör! Húllafjörið er húllasmiðja þar sem þáttakendum er mætt á getustigi hvers og eins. Þátttakendum er boðið að koma og prófa að húlla og Húlladúllan mun ganga á milli, gefa góð ráð og kenna skemmtileg trix. Engrar kunnáttu er þörf til þess að vera með og þátttakendur læra á sínum hraða. Húlladúllan verður með heila hrúgu af húllahringjum; litla krakkahringi, hringi fyrir fullorðna og nokkra risahringi. Húllahopp hentar bæði börnum og fullorðnum og er fyrirtaks leið fyrir fjölskylduna að skemmta sér saman. Markmið viðburðarins er að allir skemmti sér vel og gangi í burt stolt af því að hafa uppgötvað nýja hæfileika!
Arnar Ómarsson
REITIR workshop hefur á árunum 2012 til 2016 rekið árlega tveggja vikna smiðju í Alþýðuhúsinu á Siglufirði. Áherslan hefur verið á samstarf starfsgreina og almenningsrýmið, en frá upphafi hefur smiðjan verið ákveðið rannsóknaverkefni sem lauk með útgáfu yfirgripsmikillar bókar í lok 2016. Samtals hafa 92 aðilar tekið þátt frá 21 landi, en hvert ár hafa Arnar Ómarsson og Ari Marteinsson stofnendur smiðjunnar, valið þátttakendur úr hópi umsækjenda. Í þessari kynningu munu þeir skyggjast á bakvið tjöldin, og draga fram áhugaverðustu atvikin, mikilvægasta lærdóminn og horfa svo til framtíðar.
Aðalheiður S. Eysteinsdóttir
Aðalheiður hefur stundað gjörningalist meðfram annarri listsköpun síðastliðin 15 ár og matargerð verður æ umfangsmeiri með árunum. Á Réttardagssýningunum fór hún markvisst að blanda saman þessu tvennu og hefur síðan sett upp matargjörning á Gjörningalistahátíðinni A á Akureyri.
Í til efni af 5 ára afmælisfagnaði Alþýðuhússins á Siglufirði mun Aðalheiður flytja matargjörning ásamt völdum einstaklingum, og verður viðstöddum svo boðið að
snæða.
Eyþór Gunnarsson, Matthías Hemstock og Óskar Guðjónsson
Hljómsveitin LAND leggur undir fætur sína söngdans sem heilla til könnunnar. Hvert farið verður, kemur í ljós en hlustunarrætur þeirra Eyþórs Gunnarssonar, Matthíasar MD Hemstocks og Óskars Guðjónssonar liggja í Jazztónlist. Amerískar og hugsanlega íslensk sönglög verða fyrir valinu og ef allir slá í takt verða fumsamin lög einnig brúkuð sem stökkpallur í spuna.
Eyþór byrjaði snemma að spila á píanó. Eftir að hafa gælt við trompetinn um skeið eignaðist hann Yamaha-orgel og hóf fljótlega feril sinn sem hljómborðsleikari. Skólabróðir Eyþórs, gítarleikarinn Friðrik Karlsson, kynnti fyrir honum tónlist bræðingshljómsveita á borð við Return to Forever og Weather Report og í kjölfarið stofnuðu þeir félagar Mezzoforte ásamt bassaleikaranum Jóhanni Ásmundssyni og trommaranum Gunnlaugi Briem. Þegar lag Eyþórs Garden Party sló rækilega í gegn árið 1983 opnaðist heimurinn fyrir Mezzoforte og hljómsveitin hefur allar götur síðan ferðast um Evrópu og Asíu og haldið tónleika í yfir 40 löndum.
Á undanförnum árum hefur Eyþór snúið sér í meira mæli að órafmögnuðum píanóleik. Hann hefur leikið með flestum fremstu djassleikurum landsins og ber nafnbótina mest hljóðritaði tónlistarmaður í íslenskri djasssögu. Einnig hefur hann spilað með mörgum erlendum djassleikurum sem hafa sótt Ísland heim og má nefna Frank Lacy, Jens Winter, Mads Vinding, Doug Raney og Tommy Smith. Árið 1991 fór hann í tónleikaferðalag með hinni víðfrægu bandarísku söngkonu Randy Crawford.
Eyþór hefur ennfremur starfað sem upptökustjóri og útsetjari fyrir fjölda tónlistarmanna á Íslandi og erlendis. Hann hefur oftsinnis hlotið Íslensku tónlistarverðlaunin sem djassleikari og hljómborðsleikari ársins.
Óskar Guðjónsson saxófónleikari hefur starfað talsvert með bassaleikaranum Skúla Sverrissyni, og er einnig þekktur fyrir þátttöku sína í hljómsveitinni ADHD sem nýlega lauk upptökum á fimmtu breiðskífu sinni. Hann hefur tekið þátt í yfir 300 alþjóðlegum tónleikum í 40 löndum í 5 heimsálfum, með hljómsveitum á borð við Jim Black, ADHD, Mezzoforte, Óskar Guðjónsson og Skúli Sverrisson duo og Sören Dahl Jeppesen quartet.
Matthías Hemstock trommuleikari hefur á síðustu tuttugu og fimm árum spilað og hljóðritað tónlist með fjölda íslenskra tónlistarmanna og hljómsveita. Hann nam tónlistarleik í hinum virta háskóla Berkley college of Music í tvö ár, og gekk til liðs við jass- og rokkbraut Tónlistarskóla FÍH þegar hann kom heim árið 1991. Þar hefur hann smitað margan ungan tónlistarmanninn af djassbakteríunni.
Guðrún Pálína Guðmundsdóttir
Guðrún Pálína er listamaður og listunnandi. Hún hefur fylgst afar vel með því menningarstarfi sem Aðalheiður hefur staðið fyrir í gengum árin og mun í þessu spjalli tala um kynni sín af því.
Jón Laxdal, Hekla Björt Helgadóttir, Guðbrandur Siglaugsson, Páll Helgason, Margrét Guðbrandsdóttir.
Í tilefni af fimm ára afmælisfagnaði Alþýðuhússins býður Aðalheiður góðum vinum, sem jafnframt eru hennar uppáhalds ljóðskáld til samfundar. Þessi fimm munu lesa til jafns úr eigin verkum.
Jón Laxdal hefur gefið út þrjár ljóðabækur sem heita Myrkur á Hvítri örk - Stofuljóð og Kvöldstund í Populus Tremula.
Guðbrandur hefur gefið út 12 ljóðabækur.
Eitraður orðum, - Tækifærisvísur Kvæði Þvert á rennibrautina Drög að kvöldi Tvö skáld og gítar 8 ljóð, 12 á miðnætti Til athugunar síðar Rauð talnagrind - Höfuð drekans á vatninu og Þúfnatal.
Hekla Björt helgadóttir stefnir að útgáfu fyrstu ljóðabókar sinnar á þessu ári, en hún hefur komið fram opinberlega með upplestri og listsýningum þar sem ljóðin spila lykilatriði.
Páll Helgason hefur prentað þrjú kvæðakver í samstarfi við Örlyg Kristfinnsson, Hinrik K. Aðalsteinsson og Guðný Róbertsdóttur. Kverin heita Frá hafi til hófsemdar Frá einsemd til upphefðar og Frá getnaði til grafar.
Margrét Guðbrandsdóttir hlaut verðlaun ungskálda 2015 og hefur vakið þó nokkra athygli fyrir ljóðin sín.
Andrea Elín Vilhjálmsdóttir og Lóa Björk Björnsdóttir
Sónað út/Space out Gjörningur með Andreu Elínu Vilhjálmsdóttur og Lóu
Björk Björnsdóttur, Þær viðra sviðslist í sinni einföldustu mynd. Mynda
mótspyrnu við kapítalisma og nýfrjálshyggju og öllu sem fyllir upp í tímanna
safn. Þær koma saman og sóna út sem hreyfiafl. Hið persónulega verður
pólitískt með póstískri stóik. Komdu og vertu með!
Andrea Elín Vilhjálmsdóttir og Lóa Björk Björnsdóttir eru performance listamenn og hafa þær unnið saman síðan 2015 að ýmsum verkum. Í verkum sínum viðra þær pólitískar og persónulegar afstöður sínar sem manneskjur í efnislegum mannmiðjuðum heimi. Þær hafa sett upp verk sem eru allt frá því að vera heimilissýning fyrir plöntur eða einstaklings þátttökuverk á kaffihúsi til níu klukkustunda langrar femínískrar sviðslistasýningar. Þær eru einnig hluti af Sviðslistahópnum M sem samanstendur af dönsurum, leikkonum og sviðshöfundum. Báðar hafa þær lagt stund á nám við Sviðshöfundabraut Listaháskóla Íslands en auk þess eru þær miklar áhugakonur um gróðurrækt, samfélagsmiðla, Grafarvoginn og póst-húmanisma.
Kyle Driggs, Andrea Murillo
"Same Picture, Different Poses" er saga byggð á okkar eigin sambandi og upplifunum sem dregur upp mynd af einstakri nánd. Með samband okkar sem viðfangsefni höfum við skapað þessi viðkvæmu augnablik einingar og aðskilnaðar. Í gegnum þetta verk vörpum við ljósi á önnur sjálf undirmeðvitundarinnar sem þrífast í sambandi okkar tveggja og fjöllum þannig um tvíþættingu veruleika og ímyndunar. Umgjörð verksins er stofa, og þar ígrundar par innviði samvistar sinnar í gegnum myndrænar hreyfingar. Fínleg augnablik óræðra upplifana koma fram þegar sagan skýrist. Töfrar og veruleiki flæða saman á þann hátt að parið verður heltekið af sínu ofurnáttúrulega öðru sjálfi. Þegar persónurnar leita lausnar komast þau aftur heim í stofu -og átta sig á að þau fóru aldrei raunverulega þaðan.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 18:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.7.2017 | 18:00
Guðjón Ketilsson opnar sýningu í Kompunni, Alþýðuhúsinu á Siglufirði
Laugardaginn 15. júlí kl. 14.00 opnar Guðjón Ketilsson sýningu í Kompunni, Alþýðuhúsinu á Siglufirði. Sýningin er hluti af 5 ára afmælisfagnaði Alþýðuhússins sem haldin er helgina 14. - 16. júlí.
Sýning Guðjóns stendur til 30. júlí og er opin daglega kl. 14.00 - 17.00 þegar skilti er úti.
Guðjón Ketilsson (f. 1956)
Býr og starfar í Reykjavík. Hann stundaði myndlistarnám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og Nova Scotia College of Art and Design í Kanada.Guðjón hefur frá upphafi unnið í margvíslegan efnivið jöfnum höndum með eigið handverk, málverk, teikningar, leir, keramik og fundna hluti sem oft hafa persónulega þýðingu fyrir hann - efnisval hverju sinni ræðst af inntaki verkanna.
Í verkum Guðjóns skipar fortíð efnisins iðulega stóran sess. Ólíkar vísanir í líf fólks og sögu. Það má segja að mörg verka hans vísi inn á við. Þau beina athygli okkar að efninu og hinu efnislega umhverfi. Hann vinnur oft með hluti sem hann tekur úr upprunalegu samhengi sínu og setur í nýtt. Úr fundnum hlutum má lesa ýmis skilaboð sem öðlast merkingu eftir samhengi þeirra.
Maðurinn og samband hans og samskipti við umhverfi sitt hefur verið lengi verið viðfangsefni Guðjóns. Einnig hefur mannslíkaminn oft verið í forgrunni í verkum Guðjóns, nærvera hans eða fjarvera.
Guðjón hefur haldið yfir þrjátíu einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga á Íslandi og í Evrópu, Bandaríkjunum, Kína og Ástralíu. Verk Guðjóns eru í eigu allra helstu listasafna á Íslandi, svo og nokkurra erlendis. Auk þess að vera boðið að vinna að list sinni á ýmsum alþjóðlegum vinnustofum, hefur hann verið valinn til þátttöku í samkeppnum um gerð listaverka í opinberu rými og má sjá verk hans í opinberu rými í Reykjavík og á Seyðisfirði.
Guðjón hefur hlotið ýmis verðlaun og viðurkenningar fyrir list sína, s.s. Menningarverðlaun DV árið 2000 og verðlaun Listasafns Einars Jónssonar árið 1998.
Fjallabyggð, Uppbyggingarsjóður/Menningarráð Eyþings, Egilssíld, Aðalbakarí, Menningarsjóður Siglufjarðar og Fiskkompaníið styrkja menningarstarf í Alþýðuhúsinu á Siglufirði.
https://www.facebook.com/events/68572270828964
4.7.2017 | 09:30
Catherine Bay sýnir ROAD MOVIE í Verksmiðjunni á Hjalteyri
Verksmiðjan á Hjalteyri býður yður að vera við opnun sýningarinnar
ROAD MOVIE
8. júlí kl. 14:00 og þiggja veitingar.
-----------------------------------------------------------------------------
Verksmiðjan in Hjalteyri cordially invites you to the exhibition opening
ROAD MOVIE
8th of July at 2 pm, drinks served
Catherine Bay
Verksmiðjan á Hjalteyri / 08.07. - 23.07.2017 / Neðst á Hjalteyri við Eyjafjörð / 601 Akureyri http://verksmidjanhjalteyri.com/verksmiðjan.html
Opnun laugardaginn 8. júlí kl. 14 / Opið til og með 23.07. þri. - sun. kl. 14-17.
Kvikmyndin Road Movie fyllir flokk gjörninga og dansverka um karakterinn Mjallhvíti sem að Catherine og samstarfsfólk hennar hafa unnið að síðan 2002.
Listakonan skerpir og fágar listræna nálgun sína að heimi þar sem að karakter Mjallhvítar hefur sloppið frá táknmynd sinni og tekur aftur yfir hugarheim okkar.
Catherine Bay býr og starfar í París, hún lærði dans og síðar leiklist við Jacques Lecoq skólann.
Hún stendur fyrir gjörningi í Verksmiðjunni 23. júlí, sem að verður auglýstur nánar síðar.
Road Movie: deserting their function of everyday consumption, a handful of Blanche Neige pace the countryside.
Where do they come from?
Why are they there?
This film follows a dance and performance work started since 2002 by artist Catherine Bay and her team around the character of Snow White.
Through this new medium, the artist refines and perpetuates his plastic approach to a world where the character of BN freed from his status as an icon, reconquering our imaginary.
A 15-year performance show has already seen the days between Paris (Cartier Foundation), Berlin (Podewil), Milan (festival uovo), moscou (festival kliazma), lausanne (Arsenic) centre georges pompidou paris , new york ,Tokyo ....... Nationality, thus creating a genuine network in the world.
Catherine Bay lives and works in Paris, after a classical dance training she studied theater at the school Jacques lecoq. At the same time, she attended the Ethology courses of Jean Rouch.
Koma listamannsins og sýningin eru styrkt af Uppbyggingarsjóði, Myndlistarsjóði, Hörgársveit og Ásprenti.
Nánari upplýsingar veitir Gústav Geir Bollason í verksmidjan.hjalteyri@gmail.com og í síma 6927450
Verksmiðjan á Hjalteyri
Neðst á Hjalteyri við Eyjafjörð
http://verksmidjanhjalteyri.com/verksmiðjan.html
https://www.facebook.com/pages/Verksmiðjan-á-Hjalteyri/92671772828