Færsluflokkur: Menning og listir
6.3.2013 | 15:01
Hlynur Hallsson sýnir í Populus tremula
Hlynur Hallsson
Rennandi vatn og fleiri ný verk
09.03. - 10.03. 2013
Populus Tremula, Kaupvangsstræti 12, 600 Akureyri
Hlynur Hallsson opnar sýninguna Rennandi vatn og fleiri ný verk í Populus tremula laugardaginn 9. mars kl. 14. Hann sýnir hér eins og nafnið gefur til kynna nokkur ný verk sem ekki hafa verið sýnd áður. Þetta er myndband, ljósmynd og spreyjaðir textar.
Hlynur Hallsson er fæddur á Akureyri 1968. Hann stundaði myndlistarnám á Akureyri, í Reykjavík, Hannover, Hamborg og í Düsseldorf. Hann hefur verið nokkuð iðinn við að setja upp sýningar og á síðasta ári tók hann þátt í sýningunni Lókal - Glóbal í Listasafninu á Akureyri sem Hlynur Helgason stýrði í tilefni af 150 ára afmæli Akureyrarbæjar og einnig sýningunni Sjálfstætt fólk ásamt Jónu Hlíf Halldórsdóttur á Listahátíð í Reykjavík í Hafnarhúsi Listasafns Reykjavíkur undir stjórn Jonatans Habib Engqvist. Hlynur gaf út bókina MYNDIR - BILDER - PICTURES árið 2011 með 33 ljósmynda- textaverkum. Hann hefur einnig verið sýningarstjóri fjölda sýninga eins og TEXT sem sett var upp hjá Kuckei+Kuckei í Berlín haustið 2011. Hann var einnig meðal stofnenda Verksmiðjunnar á Hjalteyri þar sem settar hafa verið upp sýningar síðustu ár. Hlynur er listrænn ráðgjafi hjá Flóru á Akureyri.
Hlynur hlaut verðlaun Kunstverein Hannover 1997, verðlaun ungra myndlistarmanna í Neðra-Saxlandi 2001 og verðlaun Sparda Bank árið 2006. Hann hefur nokkrum sinnum hlotið starfslaun myndlistarmanna og var bæjarlistarmaður Akureyrar árið 2005. Hlynur vinnur með aðstæður, texta, innsetningar, ljósmyndir, gjörninga og hvað eina, allt eftir því sem hentar í hverju tilfelli. Hversdagslegir atburðir eins og sundferðir, fjallganga eða verslunarleiðangur geta verið efniviður í verkum hans en einnig landmæri, samskipti fólks og viðhorf okkar. Nánari upplýsingar um Hlyn og verk hans er að finna á heimsíðunni hallsson.de og einnig á bloggsíðunni hlynur.is
Populus Tremula hefur verið starfrækt í Listagilinu á Akureyri frá árinu 2004 og hefur staðið fyrir fjölmörgum menningarviðburðum svo sem sýningum, upplestrum og tónleikum í gegnum árin. Nánari upplýsingar um Populus tremula er að finna á poptrem.blogspot.com
Sýningin verður einnig opin sunnudaginn 10. mars frá kl. 14.00-17.00. Aðeins þessi eina helgi.
Menningarráð Eyþings og Ásprent eru styrktaraðilar Populus Temula.
6.3.2013 | 14:45
Guðrún Einarsdóttir og Ragna Róbertsdóttir í Listasafninu á Akureyri
Laugardaginn 9. mars kl. 15 verður opnuð í Listasafninu á Akureyri sýning á verkum þeirra Guðrúnar Einarsdóttur og Rögnu Róbertsdóttur en þessar listakonur eiga það sameiginlegt að vinna með efni sem tíminn hefur fengið að móta. Guðrún vinnur með olíuliti og bindiefni sem hún blandar saman af þekkingu málarans. Hún lætur tímann vinna á litablöndum, sem skildar eru eftir á strigafleti mánuðum saman, eða þangað til olíuliturinn hefur tekið á sig ákveðna mynd. Útkoman eru málverk sem byggja á hreinni efnafræði, með sterka skírskotun til náttúrunnar og náttúrlegra ferla. Ragna Róbertsdóttir vinnur með náttúrleg efni, eins og hraun, skeljar og sjávarsalt, sem orðið hafa til úti í náttúrunni. Þessi náttúrlegu efni hafa gengist undir breytingar á löngum tíma, þar sem ágangur veðurs og sjávar hefur brotið þau niður og þau tekið á sig nýjar myndir við efnahvörf. Ragna grípur inn í þetta náttúrlega ferli með því að taka efnin og móta í listræn form, sem eiga sér hverfulan líftíma í listinni.
Sýningin stendur til 21. apríl og er opið alla daga nema mánudaga og þriðjudaga kl. 13-17. Aðgangur er ókeypis.
Meginstyrktaraðilar Sjónlistamiðstöðvarinnar eru Flugfélag Íslands og Flytjandi.
6.3.2013 | 13:29
Jonna (Jónborg Sigurðardóttir) opnar sýningu í Mjólkurbúðinni
Jonna (Jónborg Sigurðardóttir) opnar sýninguna Lollipop í Mjólkurbúðinni í Listagilinu á Akureyri, laugardaginn 9.mars kl.14.
Á sýningunni sýnir Jonna drauminn um Lollipop og örsögur Jonnu.
Jonna um sýninguna:
Einu sinni var stelpa með klamydíu í hjartanu. Hún leitað í óhefðbundnar lækningar og gat skrifað meinið út.
Jonna (Jónborg Sigurðardóttir) er fædd 1966 og útskrifaðist úr málunardeild Myndlistarskólans á Akureyri vorið 1995 og lærði fatahönnun í Mode og Disign skolen í kaupmannahöfn og útskrifaðist þaðan um vetur 2011. Jonna hefur tekið þátt í fjölda samsýninga og haldið nokkrar einkasýningar.
Sýningin Lollipop stendur til 17.mars og eru allir velkomnir.
Mjólkurbúðin er opin laugardaga og sunnudaga kl.14-18 á meðan sýningin prýðir salinn.
Jónborg Sigurðardóttir jonborg@simnet.is s.8488490
Mjólkurbúðin dagrunmatt@hotmail.com s.8957173
Mjólkurbúðin Listagili er á facebook - Vertu vinur
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 19:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.3.2013 | 00:09
Opnar vinnustofur í miðbæ Akureyrar

Við ætlum að opna vinnustofur okkar fyrir gestum og gangandi fimmtudaginn 7. mars 2013, kl. 16-20. Fyrir einum mánuði vorum við með opnar vinnustofur og það tókst afar vel og mæltist svo vel fyrir að við stefnum á að gera þetta að mánaðarlegum viðburði. Nú þegar hafa nokkrar vinnustofur og einstaklingar bæst í hópinn.
Kaupvangsstræti 12. Listasafnshúsið / gengið inn úr portinu fyrir ofan, baka til:
Ólafur Sveinsson myndlistarmaður
G. Rúnar Guðnason myndlistarmaður og Hallgrímur Ingólfsson myndlistarmaður
Freyja Reynisdóttir myndlistarnemi, Gunnhildur Helgadóttir myndlistarnemi og Karólína Baldvinsdóttir myndlistarnemi
Flóra, Hafnarstræti 90
Sigurjón Már og Marta Kusinska áhugaljósmyndarar
Kristín Þóra Kjartansdóttir félagsfræðingur og framkvæmdastýra Flóru
Hlynur Hallsson myndlistarmaður
Elín Hulda - recycled by elinhulda
Auður Helena - Kaí merking
Inga Björk - gullsmíði og myndlist
Ráðhústorg 7
Fótografía, Guðrún Hrönn ljósmyndari.
María Ósk, listamaður
Blek hönnunarstofa
Herdís Björk vinnustofa | Bimbi
Mublur Húsgagnaviðgerðir, Brekkugötu 13
Berglind Júdith Jónasdóttir Húsa- og húsgagnasmiður, Guðrún Björg Eyjólfsdóttir húsgagnasmíðanemi og Ingibjörg Björnsdóttir húsgagnasmíðanemi
Hvítspói, Brekkugötu 3a
Anna Gunnarsdóttir textílhönnun og myndlist
Allir eru velkomnir og fólk getur gengið á milli og kíkt í heimsókn á vinnustofur og skoðað það sem verið er að framleiða og bjóða uppá í miðbænum.
Viðburðurinn á fésbók: https://www.facebook.com/events/224831890990560/
Bautinn styrkir viðburðinn og er með tilboð í gangi og opið fram eftir kvöldi.
Nánari upplýsingar veitir Elín Hulda Einarsdóttir í síma 868 5955, elinhulda@gmail.com
27.2.2013 | 15:03
Sýningin Víxlverkun opnar í Deiglunni
VÍXLVERKUN
Laugardaginn 2. mars kl. 15 verður opnuð í Deiglunni, sýningin Víxlverkun þar sem gefur að líta verk listakvennanna D. Írisar Sigmundsdóttur og Herthu Maríu Richardt Úlfarsdóttur.
Blíðlyndi, leikgleði, húmor, skelfing, ofsi, togstreita, húmor og ádeila eru nokkur orð sem lýsa myndverkum þeirra Írisar og Herthu. Í teikningum sínum leika þær sér að þeirri mynd sem samfélagið dregur upp af kvenmönnum og kvenmannslíkamanum; þeim kröfum, þankagangi, sársauka og fegurð sem er ítrekað otað að einstaklingum samfélagsins. Þetta eru þeir sameiginlegu þræðir sem binda annars ólík myndverk þessara tveggja myndlistamanna.
D.Íris Sigmundsdóttir (fædd 1976) útskrifaðist sem grafískur hönnuður frá Myndlistaskólanum á Akureyri vorið 2011. Verk hennar eru collage verk eða klippimyndaverk sem unnin eru með blandaðri tækni þar sem blaðaúrklippum, gouache litum, penna og blýantsteikningum, ýmiskonar efni og öðru tilfallandi er blandað saman til að skapa heildarmyndina. Hertha M.R Úlfarsdóttir (fædd 1983) leggur stund á kynjafræði við Háskóla Íslands ásamt því að vera starfandi myndlistamaður og skáld. Helstu miðlar eru innsetningar og teikningar með bleki, vatnslitum og blýanti.
Sýningin stendur til 31. mars og er opin laugardaga og sunnudaga kl. 14-16.
Aðgangur er ókeypis.
27.2.2013 | 14:59
Móttökustöð fyrir mannsandann opnar í Ketilhúsinu
Laugardaginn 2. mars kl. 15 opnar í Ketilhúsinu á Akureyri sýning á verkum alþýðulistamannsins og völundarins Guðmundar Viborg Jónatanssonar (1853-1936). Myndir hans eru markverð viðbót við það stóra safn myndverka eftir sjálflærða listamenn sem smám saman hefur komið fram á sjónarsviðið á Íslandi á undanförnum áratugum. Viðfangsefnið er óútreiknanlegur margbreytileiki lífsins, tjáður af hreinskilni og leikgleði.
Guðmundur starfaði lengi við sjómennsku og vélstjórn m.a. á gufuskipum Norðmanna og á gufubátnum Hvítá og er í vélstjóratali talinn vera fyrsti starfandi vélstjóri hérlendra manna. Eftir 1910 stundaði hann gullsmíði í Reykjavík til dauðadags, enda völundur bæði á tré og járn, og raunar hvaða efni sem hann tók sér í hendur. Fyrir utan myndirnar, liggja margir fagrir skrautgripir, skart, borðbúnaður, drykkjarhorn og silfurskildir eftir Guðmund Viborg sem var undarleg blanda af praktískum handverksmanni og örgeðja sveimhuga, upptendraður af hugmyndum þjóðernisrómantískrar sjálfstæðisbaráttu 19. aldar. Myndir hans eru ekki einasta heimildir um viðhorf 19. aldar fjölhaga, heldur áhrifamikil myndgerving þeirra viðhorfa.
Sýningin stendur til 31. mars og er opið alla daga nema mánudaga og þriðjudaga kl. 13-17
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 15:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.2.2013 | 13:09
Um sýningu Finns Arnars og Þórarins Blöndal, Samhengi hlutanna
Um sýningu Finns Arnars og Þórarins Blöndal,
Samhengi hlutanna
Eftir G. Pálínu Guðmundsdóttur fræðslufulltrúa Sjónlistamiðstöðvarinnar
Sýningin Samhengi hlutanna stendur nú yfir í Sjónlistamiðstöðinni á Akureyri, en að henni standa myndlistamennirnir Finnur Arnar Arnarson og Þórarinn Blöndal. Þeir eru Akureyringum góðkunnir og hafa sýnt þar með reglulegu millibili. Sýningin opnaði 15. janúar og stendur til og með 3. mars. Jóhann S. Bogason, heimspekingur og þýðandi, hefur skrifað fróðlegan pistil um hugðarefni félaganna sem lesa má í heild á heimasíðu Sjónlistamiðstöðvarinnar: www.sjonlist.is. Myndlistarmennirnir hafa báðir unnið lengi að myndlist auk þess sem þeir hafa margoft starfað við leikmyndagerð. Þeir hafa einnig séð um hönnun og sett upp safneignir fyrir Safnahúsið á Húsavík og Smámunasafnið í Eyjafirði.
Afstæði tímans
Sköpunin er sameiginlegur þráður hjá báðum í Samhengi hlutanna. Finnur Arnar vinnur með spurningar er varða líf og dauða og kemur auk þess inn á hugmyndir um hve tíminn er afstæður út frá viðmiðum hverju sinni. Vídeóverk hans og ljósmyndir mynda áhugaverða heild. Videomyndir af höndum virðast sem ljósmyndir en við nánari eftirgrennslan hreyfast þær örlítið. Að sögn listamannsins tákna þær upphaf og enda lífsins, þær bæði gefa líf og taka líf. Í fornri speki segir að við höfum líflínu í lófunum sem á að geta sagt eitthvað til um lengd lífs okkar. Hugmyndin um tímann og að öllu er afmörkuð stund, eins og segir í Biblíunni, kemur fram í videoverki Finns þar sem annars vegar eru sýndir berir fætur gangandi manns sem dregur með sér vopn til veiða og hins vegar fjöll sem hálfhulin eru í þoku og ógreinilegir fuglar fljúga í björgum. Hugsanlega á þetta að minna okkur á að skerpa athyglina og gefa okkur tíma til að njóta listarinnar.
Tími hverrar mannveru er stuttur miðað við tíma fjallanna en hann er líka stuttur í samanburði við sólkerfið. Biblían, frægasta bók okkar siðmenningar fjallar um sköpun heimsins; hér sjást 7 ljósmyndir af mismunandi þurrkuðum plöntum sem settar hafa verið inn í hana til geymslu. Með því að þurrka blóm getum við reynt að lengja tíma þeirra og notið þeirra lengur. Taka má þessa hugsun lengra og ímynda sér að manneskjan taki upp plönturnar með höndunum úr fjallshlíðunum og þær rotna svo og verða að mold aftur og úr henni koma ný blóm sem mannshöndin getur kippt upp o.s. frv. Endalaus hringrás.
Allt helst í hendur
Á sýningu Finns Arnars eru einnig tvær nokkuð stórar ljósmyndir af listamanninum teknum með sólarhrings millibili, þær eru staðsettar hvor á móti annarri og er líkt og þær horfist í augu. Fyrri myndin er tekin áður en listamaðurinn undirgekkst ófrjósemisaðgerð og sú seinni sólarhring síðar sem aftur veltir upp hugmyndum um sköpun og eyðileggingu. Áhorfandinn hefur á sýningunni möguleika á að skoða hluta af hringrás lífs og dauða, frjósemi og sköpunar og getur velt því fyrir sér hvernig eitt leiðir af öðru og í hvaða samhengi hlutirnir birtast okkur, eins og titill sýningarinnar gefur til kynna.
Aðspurður um hvaða listamenn honum finnst að hann tengist mest nefnir Finnur frönsku myndlistarkonuna Luise Bourgoise vegna þess að hún notar lífshlaup sitt og tilfinningar sem grunn að eigin verkum. Í þessu liggur sérstaða Finns Arnars í íslenskri myndlist, alla vega meðal karlkyns myndlistarmanna. Samvinna hans og eiginkonu hans Áslaugar Thorlacius og barna þeirra er alveg einstök á Íslandi en þau stóðu fyrir eftirminnilegri sýningu í Listasafni ASÍ, 2010.
Skúlptúrar margra sjónarhorna
Þórarinn Blöndal sýnir þrjá stóra skúlptúra, en einn þeirra var hluti af samsýningu Sjónlistamiðstöðvarinnar Allt+ sumarið 2012, sem sett var upp í tengslum við 150 ára afmæli Akureyrarbæjar. Verkið heitir Förumaður og átti að vera staðsett fyrir utan tískuvöruverslun í miðbæ Akureyrar en endaði framan við Ketilhúsið seinna um sumarið. Verkið vann Þórarinn um það leyti sem hann flutti búferlum frá Akureyri til Reykjavíkur. Í innkaupakerrunni (sem er hluti af verkinu) er mismunandi munum og dóti komið haganlega fyrir en við nánari skoðun er ekki allt sem sýnist því í dótinu leynast skúmaskot og göt sem mynda mismunandi rými, leiksvið eða aðra heima.
Þórarinn notar spegla til að fá fram mismunandi sjónhverfingar, t.d. virðist eitt rýmið vera margir metrar á lengd, jafnvel óendanlegt, en er í raun bara um hálfur metri. Hér reynir á forvitni og hugkvæmni áhorfandans að finna rýmin, sum eru að vísu svo hátt uppi að erfitt er að sjá þau fyrir lávaxna nema þeir fari upp á stól eða stiga. Önnur eru staðsett svo neðarlega að menn þurfa að beygja sig og jafnvel að krjúpa. Allir ættu að geta séð eitthvað miðað við sínar forsendur, stærð, þroska og áhuga. Listaverkin gera vissa kröfu til áhorfandans um þátttöku með því að leita og uppgötva. Annað verk á sýningunni er af svipuðum toga. Þar er þjappað saman hlutum, verkfærum og mismunandi efnum sem allt er listamönnum kunnugt í einn skúlptúr.
Hugrænar sápukúlur
Þriðji skúlptúrinn er merkileg kúla þar sem Þórarinn hefur endurskapað vinnustofu listamanns. Inni í kúlunni er svo endurgerð af þessari endurgerð og hægt væri að hugsa sér að þarna væri að finna enn aðra endurgerð og svo koll af kolli eins og rússneskar matryoshka-dúkkur hver inni í annarri. Þórarinn minnir okkur á að sköpunin endar hvergi, hún er endalaus í báðar áttir kúlan getur minnkað niður í frumendir eða stækkað í það óendanlega. Kúla Þórarins er mynduð úr stálgrind sem gegnsætt plast er strengt yfir og fest í loftið þannig að hún svífur yfir gólfinu.
Þórarinn og verk hans eiga sér vart hliðstæðu í íslenskri myndlist. Vandvirkni, efnistilfinning og næmi fyrir smáatriðum, samhengi og jafnvægi hlutanna, færir áhorfandann inn í fjölbreyttan heim skynjunar, þar sem eðlisfræði, leikhús, sýningarrými og staða listamannsins nær að mynda kröftuga fagurfræðilega heild. Að mati Hannesar Sigurðssonar sjónlistastjóra er helst að sjá einhverskonar hliðstæður í verkum Ilya Kabakov, Joseph Cornell og Louise Nevelson. Verk þessara listamanna falla vel saman þó ólík séu á margan hátt að forminu til og mynda sterka heild sem vekur forvitni og umræður og ýtir undir fagurfræðilega upplifun.
18.2.2013 | 16:50
Gamli Elgur aka Helgi Þórsson sýnir í Populus tremula
FRÁ HÁLIÐAGRASI TIL KVENNAKÚGUNAR
GAMLI ELGUR
Laugardaginn 23. febrúar kl. 14.00 mun hinn lítt frægi Gamli Elgur (sem er myndlistarnafn Helga í Kristnesi (sem aldrei fær starfslaun listamanna (öfugt við nafna hans í Reykjavík))) opna sýningu á vatnslitamyndum í Populus tremula.
Bara nýjar myndir, sem sína allt frá háliðagrasi til klassískrar kvennakúgunar, auk stakra kyrralífs- og ævintýramynda.
Sýningin verður einnig opin sunnudaginn 24. febrúar frá kl. 14.00-17.00. Aðeins þessi eina helgi.
14.2.2013 | 13:52
Arnar Ómarsson með sýningarspjall í Kompunni, Alþýðuhúsinu
Arnar Ómarsson listamaður mun fjalla um sýninguna sína Tengsl á laugardaginn n.k. í Alþýðuhúsinu á Siglufirði klukkan 17:00. Það verður heitt á könnunni og allir velkomnir.
Arnar lauk listnámi sínu í University of the Arts, London sumarið 2011 og hefur haldið sýningar síðan víða um Evrópu. Arnar ásamt öðrum stendur einnig fyrir Reitum, skapandi samstarfsverkefni á Siglufirði, sem haldið var í fyrsta sinn í fyrra en um árlegt verkefni er að ræða. Hann notast við teikningar, innsetningar, myndbandsverk og ljósmyndun aðallega, en leggur einnig mikinn metnað í skipulagningu menningarviðburða. Frekari upplýsingar um listamanninn má finna á heimasíðunni www.arnaromarsson.com.