Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2014
30.4.2014 | 12:17
ÖNNUR LYKT/UN AUTRE PARFUM opnar í Verksmiðjunni á Hjalteyri
ÖNNUR LYKT/UN AUTRE PARFUM
KARÓĹNA BALDVINSDÓTTIR / FREYJA REYNISDÓTTIR / HEIÐD́S HÓLM GUÐMUNDSDÓTTIR / JÓNINA BJÖRG HELGADÓTTIR / LAZARE BARBAGE / ANOUK BERTHELOT / EFRATH BOUANA / SOPHIE CAUDEBEC / FELIX CHEVRY / ALINE CHOBLET / CELIA COEÌTT / MANON DELARUE / NICOLAS DELMAS / ADELAIDE DE SAINT MARC / HELENE DONY / BRICE DUPONT / MARIE GALLIMARDET / LAURA GARCIA KARRAS / DOMINIQUE GAUTHIER / GUSTAV GEIR BOLLASON / VALENTIN HALIE CADOL / ROMARIC HARDY / JULIEN LALLOUETTE / LAURIE LEPINE / JEAN LOISEL / ETIENNE KAZINETZ / ELOIÌSE KELSO / NICOLA KOÌCH / CECILE MARIE / FRANÇOIS MARK / MARION MERISSE / SEBASTIEN MONTERO / THEODORE PARIZET / ROMAIN PETIT / ARTHUR POISSON / LEA RIVERA / SIMON THIBERT / LAURA TILLIER / ARMAND VAN MASTRIGT / CLEMENTINE VIALLON / DAVID WAIS
Verksmiðjan á Hjalteyri / 05.05 20.05.2014 / Neðst á Hjalteyri við Eyjafjörð / 601 Akureyri http://www.verksmidjan.blogspot.com
Opnun mánudaginn 5. maí kl. 17:00 / Opið til 20. maí um helgar eingöngu kl. 14:00 -17:00, á öðrum dögum eftir samkomulagi.
Umsjónarmenn : Nicolas Koch, Gústav Geir Bollason, Sebastien Montero, Dominique Gauthier
Mánudaginn 5. maí kl. 17:00 opnar sýningin Önnur lykt/Un autre Parfum í Verksmiðjunni á Hjalteyri.
Sýningin er afrakstur vikulangrar starfsdvalar í Verkamiðjunni en jafnframt mikilvægur áfangi listasmiðjunnar Delta Total sem hófst í Le Havre í október 2013 og mun taka enda með hringferð um París og úthverfi í júlí 2014
Þátttakendur í smiðjunni eru nemendur og kennarar listaskólanna : LÉcole Supérieure dArt et Design Le Havre Rouen, LÉcole Supérieure dArt de lAgglomération dAnnecy, LÉcole Nationale Supérieure des Beaux-Arts de Paris, Myndlistarskólans á Akureyri,
www.beauxartsparis.com
www.agglo-annecy-fr/france/.../page/L-École-d-art.htm/
www.eshadhar.fr/ http://lhi.is/ http://myndak.is/
http://basse-normandie.france3.fr/2013/01/17/la-manche-pedalo-la-bonne-blague-de-nicolas-koch-182983.html http://www.nicolaskoch.fr/nicolas_koch/Restrospective_anthume.html
www.dominiquegauthier.net
http://sebastienmontero.blogspot.fr/
http://sm-terrepromise.blogspot.com/
Þau fást við vídeólist, innsetningar, teikningar og málverk svo að fátt eitt sé nefnt.
ÖNNUR LYKT/UN AUTRE PARFUM
Æfin kann ekki að endast til
þess að fanga Landslagið umhverfis
list rýmið en við höfum viku til þess
að finna okkar stað á svæðinu
Það virðist hvorki styttra, né síður
spennandi
---------------
A lifetime may not be enough to
seize the landscape around the art
space but we have a week to
find our spot in this area
It seems neither less short, nor
Less exciting.
DELTA TOTAL - ICELAND 2014
LEHAVREANNECYPARISAKUREYRIREYKJAVIKHJALTEYRI
http://www.deltatotal.net/
Sýningin verður opnuð mánudaginn 5. maí 2014, kl. 17:00 í Verksmiðjunni á Hjalteyri.
Koma nemendanna og sýningin eru styrkt af, Menningarráði Eyþings, Byko, Litaland og skólunum : ESADHaR/ L'ESAAA/L'ENSBA.
Bakhjarlar Verksmiðjunnar á Hjalteyri eru CCPgames, Bústólpi og Hörgársveit.
Nánari upplýsingar veitir Gústav Geir Bollason veroready@gmail.com verksmidjan.hjalteyri@gmail.com og í síma: 4611450 / 6927450
Verksmiðjan á Hjalteyri
Neðst á Hjalteyri við Eyjafjörð
http://www.verksmidjan.blogspot.com
https://www.facebook.com/verksmidjan.hjalteyri
Menning og listir | Breytt 2.5.2014 kl. 13:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.4.2014 | 15:17
Lilý Adamsdóttir opnar sýningu í Deiglunni
Lilý Adamsdóttir - SAMTVINNAÐ - Opnun 3. maí kl. 15 - 17
Lilý er fædd árið 1985. Hún útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands árið 2011 með BA gráðu í myndlist. Um þessar mundir leggur hún lokahönd á diplómanám við Textíldeild Myndlistaskólans í Reykjavík og stefnir í haust til Svíþjóðar þar sem hún mun hefja mastersnám í listrænum textíl. Hún hefur tekið þátt í sýningum og verkefnum, hér á landi og erlendis. Í verkum sínum nýtir hún sér margskonar miðla, m.a. gjörninga, vídeó, teikningar, textíl og innsetningar.
Lilý heldur nú sína fyrstu einkasýningu í Deiglunni. Í verkum sýningarinnar hefur Lilý beint augum sínum að hinum smæstu ullarhárum og fíngerðustu hreyfingum þeirra. Hún ferðast inn í þráðinn þar sem augnablikið læðist inn í hann og veldur fíngerðri bjögun á formi með rísandi spennu, sem hnígur þegar toppnum er náð. Á sýningunni vinnur hún með vef endurtekninga í textíl þar sem hún skoðar skynjun á hreyfingu þráðarins, ljóðræna teikningu hans og frásögn. Með íslenskan ullarþráð í hönd hefur hún hugleitt fyrirbæri eins og upphaf og endi, efni og afurð, orsök og afleiðingu, tækifæri og fegurð. Niðurstaða hugleiðinga hennar birtist okkur í prjónuðum verkum sem bjóða áhorfandanum upp á sjónrænt samtal. Samhengið gefur tóninn og takturinn er áberandi þar sem tíminn og tengingar áhorfandans við það sem hann sér spila saman í leit að niðurstöðu.
Deiglan - Sjónlistamiðstöðin á Akureyri. Grófargili.
https://www.facebook.com/events/643577375696439/
28.4.2014 | 17:45
Arna Guðný Valsdóttir sýnir í Kompunni, Alþýðuhúsinu á Siglufirði
Arna Guðný Valsdóttir opnar sýningu í Kompunni, Alþýðuhúsinu á Siglufirði laugardaginn 3. maí kl. 14.00.
Verkið nefnist "Mahú Blassdjús - Raddteikning"
og byggir á 26 ára gömlu hljóðverki sem Arna vann á skólaárum sínum í Hollandi. Verkið skilgreinir Arna sem raddteikningu og útskýrir nánar: Verkið vann ég í upptökustúdíói á 16 rása upptökutæki. Ég var ein í studióinu og vann verkið á þann hátt að ég gerði fyrst upptöku á eina rás þar sem ég spann með röddinni eða teiknaði línu sem mótaði form í loftið. Línan varð til í augnablikinu á sama hátt og þegar við rissum á blað án fyrirframgefinnar hugmyndar. Ég stillti síðan á næstu rás, hlustaði á þá fyrri í heyrnartólum og vann næstu línu. Ekkert var undirbúið heldur lét ég augnablikið ráða hvernig næsta rödd svaraði þeirri fyrri. Ég hlustaði á þær raddir sem fyrir voru og byggði jafnóðum ofan á þær. Í raddteikningunum vinn ég út frá lögmálum myndlistar. Ég vinn með myndbyggingu, liti, línu og form í hljóðrænu formi eða myndlist án sjónrænnar birtingar. Ég vann eingöngu eina upptöku af hverri rödd og lét fyrstu tilraun standa.
Sýningin stendur til 25. maí og er opin eftir samkomulagi eða þegar skilti er úti kl. 14.00-17.00.
Allar nánari upplýsingar gefur Aðalheiður í síma 865-5091
arnavals.net
25.4.2014 | 15:27
OPIÐ HÚS + Fyrirlestrar um list (Listhús í Fjallabyggð)
Listhús í Fjallabyggð, Ólafsfjörður, Iceland.
Sunnudaginn 26. apríl 2014 | kl.14:30-17:00
Listamennirnir:
Ksenia SIC (Frakkland) | Saoirse Higgins (Írland)
Fyrirlestrar um list | kl. 15:00-16:00
Saoirse Higgins + samstarfs listakonan Lili Chin (US).
For this talk Saoirse will present some of her past work and the project that she is exploring at the residency. Her collaborator on this project, artist Lili Chin, will Skype in from New York for this talk. Saoirse and Lili are developing a project looking at mans relationship with nature, both good and bad. In particular, how man mediates nature, using technology.
Saoirse (see-er-ssha) is an artist from Dublin, Ireland living in Manchester. She is interested in revealing some of the connections between our vision of the world we live in, our expectations for the future and the technology we use to help us with this. She explores the contested spaces of man-machine, man-nature, micro-macro. Her work is process-driven and has a scientifically influenced, playful approach. Saoirse has shown work at the Thessaloniki Biennale, Science gallery, Dublin; Montreal Film and New media festival; Transmediale, Berlin; Siggraph, New Orleans; Exit Art and Location One gallery, New York. She has held residences at Swatch Peace Art Hotel, Shanghai, e-Mobilart Lab, Disonancias in Spain, Location1 gallery in New York and the Banff Centre for the Arts. She is a member of the international artist group The Grafting Parlour.
project blog: http://fieldnotesiceland.tumblr.com/
artists links:
http://lilichin.org/home.html
http://saoirsehiggins.tumblr.com/
http://alumni.media.mit.edu/~saoirse/
Ksenia SIC: http://kseniasic.jimdo.com/
24.4.2014 | 23:37
Mekkín Ragnarsdóttir í Geimdósinni
TÍtú Tútí
Ég fann TÍgrisdýr á Túngötunni!
í hversdagslegri hrúgu
úr laufblöðum og ryki
Við TÚngötuna
lá TÍgrisdýrið
Ég setti það í vasann
gekk með það heim
og fann því svo góðan stað
uppi á hillu
Það var til að muna
að tígrarnir leynast víða
jafnvel í hversdagslegum hrúgum
úr laufblöðum og ryki
by hekla björt helgadóttir
Dósin er komin á flug á ný og lækkar flugið ekki hót þetta sumarið. Það er opnun... það er aftur opnun!
Að þessu sinni gerist Mekkín Ragnarsdóttir geimfari Dósarinnar og fékk ljóðið TÍtú TÚtí eftir Heklu Björt, til að vinna með.
Mekkín fer skemmtilega leið með nálgun sinni á ljóðinu, því auk þess að hafa fengist mikið við málverkið í list sinni, hefur hún töluverða reynslu af leikhúsi og leikmyndahönnun. Árið 2006 stofnaði hún leikfélagið Silfurtunglið ásamt fleirum og hefur hannað fjölmargar leikmyndir og búninga fyrir atvinnu- og áhugamannaleikhús. Má þá nefna Fool for Love, Lilja, Saknað, Hárið og fleiri. Hún hefur einnig unnið hjá ítalska leikstjóranum Firenzu Guidi í leikfélaginu ELAN og No Fit State Sircus sem physical performer.
Með þennan bakgrunn og reynslu ákvað Mekkín því að hanna smágerða leikmynd í kringum ljóðið og sviðsetja því textann sem þrívíða myndasögu!
Í raun er sjón sögu ríkari og Dósin býður alla velkomna á laugardagskvöldið næsta (26. apríl) klukkan 20:00 að staðartíma.
ást og friður, dós og kliður!
Geimdósin. Kaupvangsstræti 12. Listasafnshúsið, gengið inn úr portinu að ofan, baka til.
https://www.facebook.com/events/304396946383836
22.4.2014 | 11:17
Átján útskriftarnemar VMA sýna í sal Myndlistarfélagsins
Föstudaginn 25. apríl kl. 20 opnar sýning á lokaverkefnum átján listnema VMA í sal Myndlistarfélagsins, Boxinu, við Kaupvagnsstræti 10. Verkin verða auk þess til sýnis helgina 26.-27. apríl frá kl. 13-16. Sýningin ber titilinn Endhaf.
Við erum af bæði textíl- og myndlistarkjörsviði og því verður sýningin mjög fjölþætt þar verður að finna málverk, hljóðverk, skúlptúr, fatahönnun og textílhönnun, segir Harpa Ósk Lárusdóttir sem tilheyrir hópi tilvonandi útskriftarnema. Heiti sýningarinnar var ákveðið á hópfundi. Margar af þeim tillögum sem nemendur stungu upp á höfðu eitthvað með upphaf eða endi að gera. Það að klára framhaldsskóla táknar ákveðinn endi en mögulega byrjun á einhverju öðru líka. Þá kom upp sú hugmynd að splæsa þessum tveimur hugmyndum saman. Úr orðinu upphaf og endir varð til Endhaf, útskýrir Harpa.
22.4.2014 | 11:08
Mary Zompetti sýnir í Populus tremula
Laugardaginn 26. apríl kl. 14.00 opnar bandaríska listakonan Mary Zompetti, sem nú dvelur í Gestavinnustofu Gilfélagsins, sýninguna SEARCH/LIGHT í Populus tremula. Listakonan vinnur hér með íslenskt silfurberg og landslag. Hún notar ýmsa miðla, svo sem ljósmyndun, skanna, hreyfimyndir og myndvarpa í þessari margþættu innsetningu á verki í vinnslu.
Sýningin er einnig opin sunnudaginn 27. apríl frá 14.00-17.00. Aðeins þessi eina helgi.
Um sýninguna skrifar Mary eftirfarandi:
Used by the Vikings to navigate the Arctic seas, the Icelandic Spar is a stone that allows for expanded vision though the refraction of light. Artist Mary Zompetti explores this stone and the Icelandic landscape through photographs, scanner-generated images, video and projection in this multi-media installation of works in progress.
www.maryzompetti.com
www.theinternallandscape.com
22.4.2014 | 11:05
Mireya Samper sýnir í Gallerý Hvítspóa
Velkomin á sýningu mína - AGNIR Í VÍÐÁTTUNNI kl.16.00 laugardaginn 26. apríl í Gallerý Hvítspóa Akureyri. Tilefnið er opnun nýs Gallerýs-rýmis að Brekkugötu 2, í miðbæ Akureyrar. Sýningin stendur til 25. maí og er opin virka daga milli kl.13.00 -17.00 og eftir samkomulagi í síma 897 6064.
Mireya Samper
Welcome to my exhibition DETAIL OF THE VASTNESS opening Saturday 26th. April in north Iceland- Akureyri at 16.00 Hours.
The occasion is an opening of a new Gallery space, Gallery Hvítspói -centre Akureyri.
Exhibition will be open on weekdays between 13.oo and 17.oo Hours and by appointment by telephone 897 6064.
https://www.facebook.com/events/891087447603253/
21.4.2014 | 08:54
Klaus Pfeiffer opnar sýningu í Mjólkurbúðinni
Klaus Pfeiffer opnar sýningu sína The Fear of Flying í Mjólkurbúðinni í Listagilinu á Akureyri, laugardaginn 26.apríl kl. 14.
Á sýningunni verður Klaus Pfeiffer með myndbandsverk, vatnslitamyndir og skúlptúra.
Klaus Pfeiffer er heimsþekktur listamaður og einn af Flúxus hópnum. Hann hefur haldið yfir 100 einkasýningar og verið þátttakandi í fjölda samsýninga víða um veröld, í Evrópu, Ameríku, Afríku, Asíu og nú með sína fyrstu einkasýningu á Íslandi, í Mjólkurbúðinni í Listagilinu á Akureyri.
Klaus Pfeiffer er fæddur í Þýskalandi en uppúr 1965 fór hann að ferðast um Grikkland og settist þar að 1974 á grísku eyjunni Naxos.Listamaðurinn vinnur í hina ýmsu listmiðla. Hann málar, vinnur skúlptúra, semur ljóð, vinnur myndbönd og myndir, gjörninga, grafíkverk, bækur eða spilar á öll hljóðfærin eins og hann segir sjálfur frá.
Klaus Pfeiffer kynntist sjálfur áhættu flugs í Litháen 2001 þegar hann framkvæmdi flúxus gjörning The Flight. Þá meiddist hann á kálfa við gerð gjörningsins. Sá gjörningur var nefndur The first human powered flight in Lithuania, eða fyrsta flug með mannafli í sögu Litháen. Í kjölfar þeirrar sýningar kemur titillinn The Fear of Flying.
Ástæða fyrir heimsókn Klaus Pfeiffer til Íslands er þátttaka hans í tvígang í listahátíðinni Ferskir Vindar í Garðinum á Suðurnesjum. Framkvæmdarstjóri verkefnisins Mireya Samper tók síðan að sér sýningarstjórn f.h. Klaus Pfeiffer og verður fulltrúi hans á Akureyri í tengslum við sýninguna.
Sýningin í Mjólkurbúðinni stendur til 12.maí og eru allir velkomnir.
Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17 og eftir samkomulagi á öðrum tímum s. 8957173
Ólafur Sveinsson hefur opnað málverkasýningar í safnaðarheimilum Akureyrarkirkju og Glerárkirkju á Akureyri. Í Glerárkirkju stendur sýningin aðeins yfir páskahelgina en málverkin sem þar eru sýnd eru krossfestingarmyndir Ólafs. Í safnaðarheimili Akureyrarkirkju má hins vegar líta yfir 14 ára ágrip af hans ferli, en Ólafar fagnar um þessar mundir þrjátíu ára sýningarafmæli.