Færsluflokkur: Menning og listir
10.7.2013 | 17:26
Sýningu Hlyns Hallssonar í Kartöflugeymslunni að ljúka

Hlynur Hallsson
Sýning - Ausstellung - Exhibition
08.06. - 12.07. 2013
Kartöflugeymslan, Kaupvangsstræti 29, 600 Akureyri
Nú líður að lokum sýningar Hlyns Hallssonar í Kartöflugeymslunni í Listagilinu á Akureyri. Síðasti sýningardagur er föstudagurinn 12. júlí og sýningin er opin daglega kl. 14-16. Á sýningunni gefur að líta verk frá síðustu 13 árum ásamt nýjum verkum. Þetta eru ljósmynda- textaverk, spreyverk, prent og eitt bókverk.
Hlynur vinnur gjanan með aðstæður, texta, innsetningar, ljósmyndir, gjörninga og hvað eina, allt eftir því sem hentar í hverju tilfelli. Hversdagslegir atburðir eins og sundferðir, fjallganga eða verslunarleiðangur geta verið efniviður í verkum hans en einnig landmæri, samskipti fólks og viðhorf okkar.
Nánari upplýsingar um Hlyn og verk hans er að finna á heimsíðunni hallsson.de og einnig á bloggsíðunni hlynur.is
Kartöflugeymslan er lítill sýningarsalur sem er rekin í húsnæði arkitektastofunnar Kollgátu kollgata.is
Sýningin verður opin alla virka daga til föstudagsins 12. júlí 2013, frá kl. 14-16.
Nánari upplýsingar um sýninguna veitir Hlynur í síma 659 4744.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 17:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.7.2013 | 22:02
Listumfjöllun um sýningar Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur
Listumfjöllun um sýningar Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur eftir G. Pálínu Guðmundsdóttur fræðslufulltrúa Sjónlistamiðstöðvarinnar
ALLA FYRIR ALLA
Sýningar Öllu, Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur, opnuðu laugardagskvöldið 22. júní s.l. og eru alls tíu, í sjö sýningarrýmum í Listagilinu á Akureyri og nágrenni þess. Alla vinnur sýningarnar með þátttöku 15 annarra lista- og leikmanna og listnema. Þetta er endapunktur verkefnisins Réttardagur 50 sýningaröð en það hófst á 45 ára afmæli hennar 23. júní 2008.
Á heimasíðu Sjónlistamiðstöðvarinnar (www.sjonlist.is) segir að Alla fjalli hér um íslensku sauðkindina og menningu henni tengdri þar sem markmiðið sé að byggja brú milli listsköpunar og raunveruleikans.
Á heimasíðu Myndlistarfélagsins (www.mynd.blog.is) er hægt að fræðast frekar um verkefnið og þá titla sem hver sýning ber. Í hverjum sýningarsal fyrir sig er titla einnig getið og samstarfsaðila.
Listin og raunveruleikinn
Sýningarnar hafa áður flakkað um landið, auk þess sem hún hefur sýnt víða erlendis. Má nefna sýninguna Að kvöldi réttardags sem var í Safnahúsinu á Húsavík fyrir tveimur árum, einnig sýninguna Á bóndadag í Listasafni Reykjanesbæjar þar sem hljómsveitin Hjálmar lék, við opnunina. Meðlimir hljómsveitarinnar umbreyttust svo líkt og hendi væri veifað í listaverk eftir Öllu og stóðu hljóðir, en sem lifandi, eftir á sviðinu. Í Ketilhúsinu er þessi sýning endurgerð og ómar tónlist Hjálma þar í síbylju til að auka á stemninguna og virkja bæði skynfæri sjónar og heyrnar.
Á opnuninni fékk bragðskynið einnig að njóta þess að smakka á sviðum úr trogi, hjá gestum á Þorrablótinu (stytturnar). Þetta er athyglisverð blanda þess hvernig raunveruleiki sýningargestanna blandast þeim raunveruleika sem list Öllu tjáir. Verða sýningargestirnir kannski sjálfir að list við að sitja við sama borð og stytturnar og neyta með þeim matvöru eða drykkja? Oft getur áhorfandinn ekki, í fljótu bragði, greint hvað er stytta og hvað er lifandi fólk. Sýningargestum gefst tækifæri til að upplifa það í Listasafninu þar sem í boði er kaffibrauð og kaffi.
Er raunveruleikinn list?
Alla minnir okkur á að listin er ekki raunveruleikinn. Við gleymum okkur við að horfa á kindurnar í réttinni og á ótrúlega lifandi styttur af bændum og aðkomufólki utan réttarinnar og bregður við þegar hljóðið sem er undir er hljóð frá trésmíðum listamannsins en ekki jarm kinda og mannsraddir eins og venjan er í réttum. Þetta eru sem sagt ekki ekta dýr, heldur eftirlíkingar, unnar úr afgangs-spýtum. Sumir pirrast og vilja frekar jarmið og raunveruleg hljóð frá réttum sem leyfir þeim að halda ótruflað í tilfinninguna fyrir sveitasælu og að trékindurnar séu alvöru dýr. Aðrir breyta einfaldlega meðvitað eða ómeðvitað þeim hljóðum sem þeir heyra í þau hljóð sem þeir telja sig hafa heyrt eða vilja heyra og snúa þannig skynjun sinni í það sem hentar þeim best. Aðrir skilja bara ekki hvaða mistök hafa átt sér stað; ruglaðist nokkuð hljóðdiskurinn, tilheyrir hann kannski annarri sýningu? Átti jarmið að vera þarna til að gera listina sem líkasta raunveruleikanum, eftirlíkingu og láta okkur gleyma því að þetta er listsýning en ekki raunveruleiki.
Listin hreyfir við skynfærunum
Svipuð tilfinning grípur einhverja gesti þegar þeir koma í vestursal Listasafnsins og sjá kindur á færibandi á leið til slátrunar. Við enda færibandsins er timbursög sem minnir áhorfendann á að þetta eru timburkindur en ekki lifandi dýr á leið til alvöru slátrunar. Slátrarinn stendur eins og lifandi maður með hvíta svuntu, með blóðslettu á. Á veggnum er kindahausum haganlega komið fyrir og getur áhorfandinn fundið ýmislegt út úr því t.d. styttur, sem list heima á vegg, dýrahausar sem eru að verða að sviðum á Þorrablóti, listaverk sem haganlega er komið fyrir á listsýningu o. fl. o. fl. Skynfæri okkar og líkami bregðast mismunandi við eftir því hver afstaða okkar er sem áhorfenda. Ef við hugsum um hausana sem svið/mat sem okkur líkar, fáum við vatn í munninn og finnum til svengdar. Ef við hugsum um hausana sem listaverk sem okkur langar til að eignast förum við að telja peningana okkar í huganum, fáum ekki vatn í munninn en hugsanlega ívið hærri púls og aukið adrenalínflæði. Þannig mætti lengi telja þau áhrif eða þær hugsanir sem áhorfandinn skynjar á hverri sýningu. Á sýningunni Sauðburður í Mjólkurbúðinni er jarm sem tekið er upp á sauðburði og þar geta skynfærin aftur ímyndað sér sveitailminn og náttúrutenginguna og gleymt því eitt andartak að um listsýningu er að ræða gerða úr afgangs-spýtum sem aðrir hafa litið á sem ónothæft drasl og viljað henda. Leikur Öllu að frummyndum og eftirlíkingum er spennandi og gefur áhorfandanum tækifæri til að staldra við og hugsa.
Sauðkindin heldur velli
Í sýningarskrá sem Alla hefur gefið út og er til sölu í sýningarsölunum segir hún: Merkilegt hvað fjárbúskapurinn á sér sterkar rætur í þjóðarsál Íslendinga. Innan um alla nýsköpun heldur sauðkindin velli. Í skránni er fjallað um tildrög sýninganna og þar eru upplýsingar um alla þá 15 sem tóku þátt í verkefninu með henni og of langt mál er að telja upp hér. Nöfn þeirra eru sem fyrr segir í öllum sýningarsölunum eftir því sem við á. Þar skrifar einnig Jan Voss myndlistarmaður og dregur upp glögga mynd af Öllu. Hann segir að margt af því sem hún taki sér fyrir hendur kalli á þátttöku annarra. Einnig nefnir hann hennar næma auga fyrir hlutföllum og að hún nýti sér það í list sinni. Hann rekur frásögn sína af fyrsta spýtukubbaskúlptúrnum, eins og hann kallar það, sem hann sá. Það var stytta af Dieter Roth sitjandi við borð að skrifa. Hrökk Jan við því honum fannst hann þarna sjá Dieter sem raunverulegan en hann var þá löngu látinn. Þess skal getið að Alla hitti Dieter aldrei í lifanda lífi. Næmt auga hennar og listfengi getur þannig blekkt áhorfandann.
Í sýningaskrá sem gefin var út af Listasafni Reykjanesbæjar vegna sýningaraðarinnar 2012 skrifar Aðalsteinn Ingólfsson: Í myndverkum Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur á sér stað óvenjulegra stefnumót íslenskra og erlendra myndlistarhefða en við höfum áður séð. Annars vegar eru verk hennar íslenskara en allt sem íslenskt er, sprottin beinustu leið upp úr margra alda gamalli tálgunar- og tréskurðarhefð meðal þjóðarinnar, í bland við alþýðlega sagnalist af kynlegum kvistum eins og þeim sem birtast ljóslifandi í skáldsögum Jóns Thoroddsen. Á hinn bóginn sækir Aðalheiður vinnubrögð sín til myndlistarmanna beggja vegna Atlantsála sem meðvitað og ómeðvitað ögruðu hámenningarlegum viðhorfum neysluþjóðfélagsins með endurvinnslu úrgangs af ýmsu tagi. Hann telur svo upp nokkra listamenn en hægt er að sjá þennan texta í heild sinni á heimasíðu Öllu www.freyjulundur.is
Alla slær aðsóknarmet
Á sýningum Öllu eru aðsóknarmet iðulega slegin. Þegar þessi texti er skrifaður, 3. júlí, er rúm vika liðin frá opnun sýninganna og skráðir eru á annað þúsund gestir í skráningarkerfi Listasafnsins og þá er ekki talið margmennið á opnunarkvöldinu. Mannfjöldinn í Listagilinu, á opnuninni, minnti helst á hátíðir eins og Akureyrarvöku.
Öll þessi mikla vinna Öllu er launalaus því Sjónlistamiðstöðin og flest önnur söfn hafa ekki tekið upp þann sið, sem tíðkast víða erlendis, að greiða listamönnum laun fyrir sýningarhald að undanskildu Listasafni Reykjavíkur. Leikarar, tónlistarmenn og dansarar fá greidd laun fyrir þá vinnu sem þeir framkvæma í opinberum stofnunum, en ekki myndlistarmenn. Ekki þótti úthlutunarnefnd listamannalauna heldur ástæða til að veita Öllu styrk í þetta stórfenglega verkefni sem sýnir það yfirlæti sem viðgengst gagnvart landsbyggðinni og þeim listamönnum sem þar starfa. Ekki nokkur listamaður hefur nokkru sinni, í sögu landsins, opnað jafn viðamikla sýningu á jafn mörgum stöðum og boðið til annarrar eins veislu. Íslendingar vilja að miklu leiti byggja afkomu sína á ferðamennsku. Það sem erlendir ferðamenn vilja helst sjá fyrir utan landslagið og náttúruna er menning og listir landsins. Listir þrífast ekki í endalausri sjálfboðavinnu og hjáverkum, ekki á þann hátt sem er samkeppnishæft við þær þjóðir sem við viljum helst bera okkur saman við, Norðurlöndin og lönd í vestur Evrópu. Þær þjóðir eyða margfalt hærri prósentu í framlög til lista en hér er gert enda byggir t.d. Holland upp ferðamannaiðnað sinn mestmegnis á listum Rembrandts og Van Gogh. Styðja verður við listir og vernda alveg eins og aðra atvinnuvegi ef á að gera út á þær til framtíðar. Því er umræða dagsins um niðurfellingu listamannalauna tímaskekkja. Ólafur Elíasson hefur margoft þakkað það danska styrkjakerfinu hvað honum tókst að koma sér vel áfram í listinni, fyrst í París, svo allri Evrópu, Ameríku og öðrum heimshlutum.
Ókeypis aðgangur og leiðsögn
Sýningar Öllu standa mislengi eftir sýningarrýmum en sú í Listasafninu stendur til 11. ágúst. Reglulega er boðið upp á leiðsögn um sýningarnar sem er gagnlegt fyrir þá sem vilja frekari fræðslu og upplýsingar. Það nýtist til að dýpka skilning, skerpa sýn sína og hugsanlega sjá sýninguna og umhverfið með öðrum augum. Það þarf þjálfun í að njóta menningar og lista og fræðsla um sýningar er ein leið til þess. Leiðsögnin er ókeypis sem og aðgangur í Sjónlistamiðstöðina. Allir ættu að hafa gagn og gaman af því að sjá sýningarnar sem eru áhugaverður samsetningur þess þjóðlega og þess alþjóðlega sem á sér stað í listum í dag. Sýningarnar eru uppspretta margskonar tilfinninga og vangaveltna. Fólk á öllum aldri, óháð menntun eða þjóðfélagsstöðu, ætti að geta notið hennar hver á sinn hátt. Á sýningunni getur áhorfandinn séð í styttunum einstaklinga sem hann telur sig þekkja eða kannast við úr sínu daglega lífi eða fjölmiðlum, jafnvel séð sjálfan sig í einhverjum þeirra. Mjög gott er að skoða sýningarnar oftar en einu sinni því menn upplifa og sjá sífellt eitthvað nýtt og hlutirnir breytast við áhorf.
Fyrir þá sem meira vilja vita um sýningarnar og list Öllu má benda á viðtal við Hlyn Hallsson myndlistarmann í Víðsjá, RÚV, mánudaginn 24. júní s.l. Hann telur samstarf vera það sem mest er einkennandi fyrir Öllu og hennar list; samstarf sem hún á við aðra einstaklinga eða hópa að það sé áhugaverður grunnur að því sem hún gerir og nefnir hann þar mörg dæmi. Einnig tengir Hlynur hana sterkt við Dieter Roth og Fluxus-hreyfinguna.
Flestir fjölmiðlar landsins hafa undanfarið fjallað um þær sýningar Öllu sem nú standa yfir á Akureyri enda er um stórviðburð að ræða.
Menning og listir | Breytt 11.7.2013 kl. 18:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.7.2013 | 13:56
Reitir á Siglufirði
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 21:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.7.2013 | 23:00
Sýningin Verkfærið opnar í Verksmiðjunni á Hjalteyri
Verksmiðjan á Hjalteyri
Verkfærið
Elísabet Brynhildardóttir
Guðrún Benónýsdóttir
Selma Hreggviðsdóttir
5.- 28. júlí 2013
Sýningin opnar 5. júlí kl. 17
Opið alla daga kl. 14-17
Það fer varla framhjá neinum sem kemur á Hjalteyri hversu þung og yfirgnæfandi Verksmiðjan er líkt og kastali eða virki.
Síldarverksmiðjan á Hjalteyri er þó ekki einungis bygging, heldur verkfæri.
Ekki bara hús með fjórum útveggjum heldur er öll byggingin hugsuð með ákveðið hlutverk í huga. Hver veggur, súla, lúga og op hefur einhvern ákveðinn tilgang, eitthvert ákveðið notagildi.
Innsetning okkar í rými verksmiðjunnar er monument um sköpunarsögu þessa hús, ferlið og framkvæmdirnar sem beitt var við verkið. Kastalinn sem rís í myrkrinu stendur sem minnisvarði ákveðins þensluástands sem myndast við framkvæmdir stórra drauma. Allir leggja sitt að mörkum, strúktúrinn rís, verkfærið er gangsett, margir taka höndum saman og vinna að settu markmiði. Við sjáum draumakastalann í hyllingum og um stundarsakir er okkur borgið meðan reykurinn liðast úr verksmiðjureykháfunum.
En reykur kólnar eins og gamlir draumar og beinagrind skýjaborganna býr til skuggamyndir í landslaginu.
Það liggur þó ákveðin fegurð í tómum byggingum með horfið hlutverk. Þær birtast sem öfugir pýramídar þar sem töfrarnir liggja í anda uppbyggingarinnar og í krafti möguleikanna.
Sköpunin er í andstæðunum og upp úr rústunum rís nýtt afl.
Sýningin Verkfærið í Verksmiðjunni á Hjalteyri stendur til sunnudagsins 29. júlí. Sýningin er opin alla daga kl. 14-17 og aðgangur er ókeypis.
Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri: Selma Hreggviðsdóttir, Elísabet Brynhildardóttir og Guðrún Benónýsdóttir.
Nánari upplýsingar gefur Elísabet Brynhildardóttir í s. 662 3183 og elisabetbryn@gmail.com
Menningarráð Eyþings, Hörgársveit, CCPgames, Bústólpi og Ásprent eru stuðningsaðilar Verksmiðjunnar á Hjalteyri.
Verksmiðjan á Hjalteyri
Neðst á Hjalteyri við Eyjafjörð
http://www.verksmidjan.blogspot.com
https://www.facebook.com/verksmidjan.hjalteyri
https://www.facebook.com/events/544005785658285
30.6.2013 | 23:23
ÁLFkonur opna ljósmyndasýningu í Lystigarðinum á Akureyri
27.6.2013 | 22:08
Arnar Ómarsson sýnir í Gallerí Ískáp
Arnar Ómarsson opnar í Gallerí Ískáp laugardaginn 29 júní klukkan 14:00
Verkið snertir á hugmyndum um breytingar og væntingar um betri tíð. Það er vottur af örvæntingu og jafnvel vonleysi í endurtekningu hljóðverksins Sumarið er komið, sumarið er fokking komið, í bland við bjartsýnina sem skín í gegnum myndverkið. Innsetningin er partur af verkseríunni Post-Apocalyptic Dream.
Arnar Ómarsson útskrifaðist frá University of the Arts, London 2011 og hefur síðan búið og starfað í Danmörku og Íslandi. Arnar vinnur aðalega með ljósmyndir, teikningar og innsetningar.
www.arnaromarsson.com
Gallerí Ískápur / Gallery Fridge
Kaupvangstræti 12. (gengið inn að aftan)
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 23:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.6.2013 | 11:42
Progression, sýning í Listhúsi, Ólafsfirði
Progression | |
Föstudag | 28. júní 2013 | kl.16~20 | |
Listamenn | Pier-Yves Larouche (Kanada) Thomas Hurter (Sviss) |
It's a show created by two men in contradiction style. Pier shows his smart and brisk by using collage technique. Thomas advocates mystery with dignified and details style. In the exhibition, they will show you the new works of art created in their stay in Listhus. Thomas Hurter: Allir velkomnir.
|
24.6.2013 | 13:13
Debora Alanna sýnir í Populus tremula
Föstudaginn 28. júní kl. 19.00 opnar kanadíska listakonan Debora Alanna sýninguna Hybrid: Lava & Light í Populus tremula.
Debora sýnir verk af ýmsum toga sem túlka út frá ólíkum sjónarhóli hvaða áhrif dvöl hennar á íslandi hefur haft á hana; pappírsverk, skúltúr, innsetningu og videoverk.
Debora, sem dvelur í Gestavinnustofu Gilfélagsins, leitast við að ögra viðteknum hugmyndum um efnisnotkun.
Nánari upplýsingar: www.deboraalanna.com
Einnig opið laugardaginn 29. júní kl. 14.00-16.00.
Athugið óhefðbundinn opnunartíma.
19.6.2013 | 23:18
Aðalheiður S. Eysteinsdóttir opnar 10 sýningar samtímis á Akureyri
RÉTTARDAGUR
50 sýninga röð
22. júní kl. 22.00 opnar Aðalheiður S. Eysteinsdóttir 10 sýningar samtímis í Listagilinu á Akureyri, þ.e. í öllum sýningarsölum Sjónlistamiðstöðvarinnar og sal Myndlistafélagsins, Populus Tremula, Flóru og Mjólkurbúðinni.
Um er að ræða lokin á verkefninu Réttardagur50 sýninga röð sem staðið hefur yfir síðan júní 2008.
Sýnd verða nokkur hundruð verk eftir Aðalheiði unnin á síðustu 5 árum auk verka 15 annarra listamanna sem eru gestalistamenn á sýningunum.
Á opnunarkvöldinu verða lesin upp ljóð, sungið, fluttir gjörningar og tónlist.
Aðalheiður hefur nú þegar sett upp 40 sýningar í verkefninu sem allar fjalla á einn eða annan hátt um íslensku sauðkindina og þá menningu sem henni tengist. Sýningarnar hafa ratað í flesta landshluta og til Danmerkur, Þýskalands, Bretlands og Hollands. Á hverjum stað fyrir sig hefur Aðalheiður kallað til skapandi fólk og aðra listamenn til þátttöku í sýningunum og tengt sýningarnar dagatali sauðkindarinnar svo sem sauðburði á vorin og slátrun á haustin.
Á þessum síðustu sýningum í verkefninu eru það listamenn tengdir Akureyri sem krydda sýningar Aðalheiðar:
Jón Laxdal Halldórsson
Guðbrandur Siglaugsson
Georg Óskar Giannakoudakis
Margeir Dire
Freyja Reynisdóttir
Gunnhildur Helgadóttir
Arnar Ómarsson
Jón Einar Björnsson
Miriam Blakkenhorst
Arndís Bergsdóttir
Níels Hafstein
Arna Valsdóttir
Þórarinn Blöndal
Hlynur Hallsson
Nikolaj Lonentz Mentze
Að kvöldi 22. júní opna í Listasafninu á Akureyri þrjár sýningar:
Réttarkaffi, þar sem sett er upp einskonar kaffihús með öllu tilheyrandi en allt smíðað og unnið úr margvíslegum efnum. Þar taka þátt í verkinu auk Aðalheiðar, Jón Einar Björnsson og Níels Hafstein. Á opnun verður Guðmundur Oddur Magnússon með gjörning.
Réttardagur sem er kindarétt með manni og mús; rúmlega 100 kindur, bændur, börn og bæjarfólk að horfa á. Þá sýningu vinnur Aðalheiður í samvinnu við Arnar Ómarsson. Á opnunarkvöldinu mun kór Myndlistaskólans á Akureyri flytja gjörning, Þórarinn Hjartarson og fl. munu syngja í réttinni og Aðalsteinn Þórsson verður með gjörning.
Slátrun er sýning unnin í samvinnu við Þórarinn Blöndal. Þar verður kindasláturvélafæriband sem gerir útaf við timburkindur. Á opnun verður gjörningur.
Í Ketilhúsinu er sett upp félagsheimili. Þar stendur yfir Þorrablót. Sú sýning er unnin í samvinnu við Jón Laxdal, Guðbrand Siglaugsson, Gunnhildi Helgadóttur, Arnar Ómarsson, hljómsveitina Hjálma og Nicolai Lorends. Á opnun verður Aðalheiður með gjörning, Guðbrandur Siglaugsson les upp ljóð og Þórey Ómarsdóttir syngur.
Á svölum Ketilhússins verður lágmyndasýning sem nefnist Bændur.
Í anddyri Ketilhúss verður standandi smiðja fyrir gesti.
Í Deiglunni verður sýningin Á fjalli sem er unnin í samvinnu við Georg Óskar, Margeir Sigurðsson og Freyju Reynisdóttur. Sýningin fjallar um kindur á fjalli, þoka læðist yfir og hugmyndir um huldufólk og álfa kvikna. Á opnun kveður Kristín Sigtryggsdóttir.
Mjólkurbúðin er gallerí sem hefur stóran glugga að götunni. Þar verður sauðburður, videoverk, hljóðverk og timburverk.
Populus Tremula sem er í kjallara Listasafnsins, hýsir sýninguna Fengitíma sem unnin er með Örnu Valsdóttur. Aðalheiður er þar með skúlptúra og Arna með verkið Kvika. Á opnun munu Norðanpiltar flytja vel valin lög og ljóð.
Í Boxi, sal Myndlistafélagsins verður sýning sem er að kvöldi réttardags. Sú sýning er unnin með Arnari Ómarssyni og fjallar um stemmninguna sem myndast þegar nokkrar kindur eru eftir í réttinni og bóndinn hugar að þeim að kvöldinu. Ríkisútvarpið hljómar úr litlum kofa og eina lýsingin inn á sýninguna eru bílljós. Á opnun les Jón Laxdal upp ljóð.
Flóra er verslun í Hafnarstræti 90. Þar verður sýning á bændum í bæjarferð og mun Hlynur Hallsson taka þátt í einu verkanna þar. Á opnun verður falið verk eftir Aðalheiði í versluninni Flóru, sem einn sýningagesta eignast.
Viðburðir á opnun:
Kl. 22.00 Aðalheiður S. Eysteinsdóttir, uppákoma neðst í Listagilinu.
Kl. 22.30 Norðanpiltar, tónlist í Populus Tremula.
Kl. 22.30 Guðmundur Oddur Magnússon, gjörningur á gangi um sýningarnar.
Kl. 22.45 Þórarinn Hjartarson og fl. réttarsöngur í Listasafninu.
Kl. 23.00 Nemendur Myndlistaskólans á Akureyri, gjörningur á Listasafninu.
Kl. 23.05. Kristín Sigtryggsdóttir kveður í Deiglunni.
Kl. 23.15 Guðbrandur Siglaugsson, upplestur í Ketilhúsinu.
Kl. 23.30 Jón Laxdal Halldórsson, upplestur í sal Myndlistafélagsins.
Kl. 23.45 Sá á fund sem finnur, gefins verk eftir Aðalheiði í Flóru.
Kl. 23.45 Aðalsteinn Þórsson, gjörningur á Listasafninu.
Kl. 00.00 Þórey Ómarsdóttir , söngur og upplestur í Ketilhúsinu.
Kl. 00.15 Aðalheiður S. Eysteinsdóttir, gjörningur í Ketilhúsinu.
Aðalheiður hvetur sýningargesti til að mæta í þjóðbúningum og lopapeysum.
19.6.2013 | 22:47
Jónsmessunótt - Film Shoot
Listhus artist, Magdalena Blom, welcomes everyone to - during this one faithful night - celebrate Jónsmessunótt by rolling down the avalanche ramp here in Olafsfjördur. According to the folklore, rolling (naked) in the grass, blessed with the dew gathered after the brightest days of the year- theres a spur of magic, giving health and luck to whoever rolls in it.
We will meet at midnight, the 23rd of June by the avalanche ramp and Magdalena Blom, artist and filmmaker will direct and film the magical event as a part of her residency in Listhus.
About Magdalena: www.magdalenablom.se
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 22:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)