Sýningin Verkfærið opnar í Verksmiðjunni á Hjalteyri

verkfaeri_mynd.jpg

 

Verksmiðjan á Hjalteyri 

Verkfærið

Elísabet Brynhildardóttir 

Guðrún Benónýsdóttir 

Selma Hreggviðsdóttir

5.- 28. júlí 2013

Sýningin opnar 5. júlí kl. 17

Opið alla daga kl. 14-17

Það fer varla framhjá neinum sem kemur á Hjalteyri hversu þung og yfirgnæfandi Verksmiðjan er líkt og kastali eða virki.

Síldarverksmiðjan á Hjalteyri er þó ekki einungis bygging, heldur verkfæri. 

Ekki bara hús með fjórum útveggjum heldur er öll byggingin hugsuð með ákveðið hlutverk í huga. Hver veggur, súla, lúga og op hefur einhvern ákveðinn tilgang, eitthvert ákveðið notagildi.

Innsetning okkar í rými verksmiðjunnar er monument um sköpunarsögu þessa hús, ferlið og  framkvæmdirnar sem beitt var við verkið. Kastalinn sem rís í myrkrinu stendur sem minnisvarði ákveðins þensluástands sem myndast við framkvæmdir stórra drauma. Allir leggja sitt  að mörkum, strúktúrinn rís, verkfærið er gangsett, margir taka höndum saman og vinna að settu markmiði. Við sjáum draumakastalann í hyllingum og um stundarsakir er okkur borgið meðan reykurinn liðast úr verksmiðjureykháfunum.

En reykur kólnar eins og gamlir draumar og beinagrind skýjaborganna býr til skuggamyndir í landslaginu.

Það liggur þó ákveðin fegurð í tómum byggingum með horfið hlutverk. Þær birtast sem öfugir pýramídar þar sem töfrarnir liggja í anda uppbyggingarinnar og í krafti möguleikanna. 

Sköpunin er í andstæðunum og upp úr rústunum rís nýtt afl. 

Sýningin Verkfærið í Verksmiðjunni á Hjalteyri stendur til sunnudagsins 29. júlí. Sýningin er opin alla daga kl. 14-17 og aðgangur er ókeypis.

Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri: Selma Hreggviðsdóttir, Elísabet Brynhildardóttir og Guðrún Benónýsdóttir.

Nánari upplýsingar gefur Elísabet Brynhildardóttir í s. 662 3183 og elisabetbryn@gmail.com

Menningarráð Eyþings, Hörgársveit, CCPgames, Bústólpi og Ásprent eru stuðningsaðilar Verksmiðjunnar á Hjalteyri.

Verksmiðjan á Hjalteyri 

Neðst á Hjalteyri við Eyjafjörð

http://www.verksmidjan.blogspot.com

https://www.facebook.com/verksmidjan.hjalteyri

https://www.facebook.com/events/544005785658285


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband