Fćrsluflokkur: Vefurinn

Ţórarinn Blöndal međ sýninguna Ský á VeggVerki

veggverk2008

Laugardaginn 15. mars opnar Ţórarinn Blöndal sýninguna Ský á VeggVerki.
 
Ein einfaldasta ađferđin sem notuđ er viđ veđurfrćđilegar rannsóknir er ađ spá í skýin. Skýin eru eins og svífandi veđurstöđvar sem gefa vísbendingar um ţađ sem kann ađ gerast í veđrinu nćstu klukkustundir og jafnvel nćstu daga. Frá fornu fari hafa menn notađ lögun skýja, breytingar á ţeim og hreyfingar á skýjum viđ veđurspár.
Sýningin stendur til 13 april 2008.
 
www.veggverk.org


Jónas Viđar opnar málverkasýningu á laugardag

jvs_paskar2_08

Laugardaginn 15. mars kl. 14.30 opnar Jónas Viđar málverkasýningu í Jónas Viđar Gallery í Listagilinu á Akureyri

Jónas Viđar nam myndlist viđ Myndlistaskólann á Akureyri 1983-1987 og Academia di belle arti di carrara í Carrara á ítalíu 1990-1994. Hann hefur haldiđ yfir 40 einkasýningar bćđi hér heima og erlendis ásamt ţví ađ reka gallerí og standa fyrir sýningum annara listamanna.

http://jvs.is


Ragnar Kjartansson opnar sýningu í Kunstraum Wohnraum á sunnudag

IMG_0042

Sunnudaginn 16. mars 2008 klukkan 11-13 opnar sýning Ragnars Kjartanssonar “Allt er gott ađ frétta af póesíunni” í Kunstraum Wohnraum á Akureyri.

Sýning Ragnars Kjartanssonar í Kunstraum Wohnraum byggist á ljósmyndum sem Ragnar tók á símann sinn í Parísarborg af ţremur listakonunum. Ţessi verk eru sönnunargögn fyrir ljóđrćnu tilverunnar. Ţrjú guđdómleg móment úr hversdagsleikanum. Ţetta eru heldur ekki hversdagslegar konur á myndunum.

Úr bréfi til vinar:
 "Jćja allt er gott ađ frétta af póesíunni...Í dag var ég eithvađ ađ skođa myndirnar sem ég tók á ferđalaginu, fann og prentađi út ţrjár myndir sem ég tók af Ásdísi, Heklu og Laufey um helgina.... ţú sagđir mér ađ vera duglegur ađ taka myndir á símann ...  er eithvađ ađ spá í ađ sýna ţćr hjá Hlyni Hallssyni und Familie (er međ sýningu ţar í mars)  Finnst ţér ţetta ekki elegant portrett af listakonum í parís... músurnar ţrjár   ... ein í monumental augnablikinu klćdd gulum sari í barrokkeyđimörkinni, önnur sofandi í módernismanum, ekki alveg ađ meika heiminn og sú ţriđja alveg kreisí í hvirfilvindinum.... allar eru ţćr ađ hugleiđa mismunandi krystalkúlur... eru í einhverju trans ástandi"

Ragnar Kjartansson

---

Kunstraum Wohnraum hefur veriđ starfrćkt frá árinu 1994, fyrst í Hannover og nú á Akureyri. Ţađ er til húsa á heimili Hlyns Hallssonar og Kristínar Kjartansdóttur í Ásabyggđ 2. Sýning Ragnars Kjartanssonar stendur til 22. júní 2008 og er opin eftir samkomulagi og hćgt er ađ hringja í síma 4623744.
Nánari upplýsingar um Ragnar Kjartansson er ađ finna á http://www.i8.is og http://this.is/rassi

Kunstraum Wohnraum er ađ finna á:  http://www.hallsson.de/projects/projects.html

 

RAGNAR KJARTANSSON 

ALLT ER GOTT AĐ FRÉTTA AF PÓESÍUNNI

16.03. - 22.06.2008 

 

Opnun sunnudaginn 16. mars 2008, klukkan 11-13 

Opiđ samkvćmt samkomulagi       

 

KUNSTRAUM WOHNRAUM             

Hlynur Hallsson • Kristín Kjartansdóttir     

Ásabyggđ 2 • IS-600 Akureyri •  +354 4623744 

hlynur(hjá)gmx.net • www.hallsson.de


Arnar Tryggvason opnar myndlistarsýningu í Populus tremula á laugardag

Arnar-Tryggvason-web

Populus Kynnir:

Stór laugardagur í Listagili

nýjar sýningar í hverju skoti

Populus tremula kl. 14:00

Arnar Tryggvason

Myndlist

Laugardaginn 15. mars kl. 14:00 opnar Arnar Tryggvason myndlistarsýningu í Populus tremula.

Ţetta er önnur einkasýning Arnars sem útskrifađist sem grafískur hönnuđur frá Myndlistaskólanum á Akureyri 1995.

Verkin á sýningunni eru tölvuunnar ljósmyndir, bleksprautuprentađar á striga.

Myndverk Arnars hafa vakiđ verđskuldađa athygli enda sýnir hann ljósmyndir af húsum, götum og landslagi sem er ekki til – ljósmyndir af hugarheimi.

Hvert verk er samsett úr aragrúa ljósmynda sem Arnar bútar niđur og rađar saman upp á nýtt – byggir ný hús og mótar nýtt landslag. Og ţrátt fyrir ađ myndefniđ hafi yfir sér framandlegan blć er áhorfandinn ţess jafnframt fullviss ađ hann ţekki myndefniđ, hafi gengiđ ţarna um, komiđ í ţessi hús.

Velkomin í ferđalag um framandi heimaslóđir.

http://poptrem.blogspot.com


Opiđ hús í nýrri vinnustofu í Brekkugötu 13 á Akureyri

Ný vinnustofa ,,Báshús” er komin í notkun í Brekkugötunni. Listakonurnar Sveinka, Bogga og Steinunn Ásta eru komnar međ vinnustofu í Brekkugötu 13 á fyrstu hćđ. Ţćr hafa opiđ gestum og gangandi laugardaginn 15. mars kl.17-19. Ţađ fjölgar ţví listhúsum í Brekkugötunni og verđur Báshús góđ viđbót viđ Svartfugl og Hvítspóa, DaLí Gallery, Amtiđ og Gallerí+. 
http://gralist.wordpress.com

Ţuríđur Sigurđardóttir opnar í DaLí Gallery á Akureyri á laugardag

dali7304
 
Ţuríđur Sigurđardóttir, Ţura, kynnir málverkaröđina “STÓĐ” í DaLí Gallery á Akureyri, laugardaginn 15. mars kl. 17-19.

Viđfangsefni á sýningunni er íslenski hesturinn og býđur listamađurinn áhorfandanum ađ taka ţátt í rannsókn sinni á tengslum manns og dýrs í gegnum upplifun lita og áferđar feldsins.

Međ ţví ađ höfđa til löngunarinnar ađ klappa mjúkum dýrum verđa málverkin nánast ómótstćđileg og um leiđ koma fram spurningar um málverkiđ sem miđil. Ţaulunnin og tímafrek kallast ţau á viđ listasöguna og vega salt milli hins fígúratífa og abstrakt.

Um leiđ og Ţura vinnur međ upplifun áhorfenda í sýningarrýminu skođar hún líka eigin upplifun úti í náttúrunni í hestamennsku.

"Ţetta er ekkert venjulegt stóđ sem ég kem međ norđur! Ef fólk á von á málverkum međ hestum, sem koma vađandi á móti áhorfandanum eđa settlegum töltara međ knapa á baki í fallegu landslagi, valiđ međ tilliti til ćttbókar hestsins verđa ţetta tóm vonbrigđi! Hesturinn hefur mjög sterka hefđ í myndlist og er gjarnan sýndur sem tákn um styrk. Hann birtist oft í íslenskum myndverkum sem ţarfasti ţjónninn, sem hluti af landslagi, tákn fyrir sveitasćlu og hinn frjálsa íslending. Mig langar hins vegar ađ fara ađra leiđ til ađ túlka ţessa dásamlegu skepnu sem hesturinn er og finnst ekki ástćđa til ađ leita í hefđina".

Ţura útskrifađist úr Listaháskóla Íslands 2001 og lagđi m.a. stund á íkonamálun og íkonafrćđi hjá rússneska prófessornum Yuri Bobrov. Hún hefur starfađ víđa ađ myndlist og á ađ auki glćstan tónlistaferil. Ţura hefur haldiđ fjölda einka- og samsýninga bćđi innanlands og utan og hefur unniđ ađ ýmsum verkefnum myndlistar. Hún er einn af stofnendum START ART listamannahúss á Laugarveginum, er einn hugmyndasmiđa og umsjónarmanna Opna Gallerísins sem sýndi víđa í 101 Reykjavík og kennir viđ Myndlistaskólann í Reykjavík og Mosfellsbć. Ţura situr í stjórn SÍM og hefur gegnt ţar varaformennsku.

Sýningin ,,Stóđ" stendur til 5. apríl í DaLí Gallery.

Ţuríđur Sigurđardóttir

http://thura.is

thura(hjá)thura.is

s. 8993689

 

DaLí Gallery

Brekkugata 9

600 Akureyri

dagrunm(hjá)snerpa.is

http://daligallery.blogspot.com

Dagrún s.8957173

Lína s.8697872

 

Opiđ: föstudaga og laugardaga kl.14-17 og eftir samkomulagi.

Um páska er opiđ á skírdag, föstudaginn langa og laugardag á sama tíma.
 

Óli G. Jóhannsson sýnir hjá Opera Gallery í New York

Invit Oli NewYork 05[1]_Page_1 Invit Oli NewYork 05[1]_Page_2

Opera Gallery has always been happy to share its discoveries with its collectors and friends from all over the world.


Following this philosophy, Gilles Dyan, Opera Gallery’s chairman, Eric Allouche, President of Opera Gallery USA and Jean David Malat, director of Opera Gallery London present the Oli G. JOHANNSSON’s, Icelandic
artist, solo exhibition, strictly held from the 1st to the 4th of May at Opera Gallery New York.


THE OPENING WILL BE HELD THE 1st of MAY, from 6pm at Opera Gallery New York.
The artist himself will be present during this evening.


The very best of Oli’s recent works, around 30 large scales pieces, have been selected directly from the artist studio in Akureyri, Iceland.


Opera Gallery discovered Oli G. JOHANNSSON in 2006 and first presents his works at Opera Gallery London in an exhibition supported by Sverrir Haukur GUNNLAUGSSON, the Icelandic ambassador in England. Success was such that the entire exhibition was sold during the few hours of the opening.

OperaGallery.com


Blýsólir í listhúsi Ófeigs

gunnar KrÁ laugardaginn 8. mars kl. 16.00- 18.00  mun sýningin "Blýsólir" opna í Listhúsi Ófeigs ađ Skólavörđustíg 5 Reykjavík.
Ţar er á ferđinni  Gunnar Kr. Jónasson myndlistarmađur sem býr og starfar á Akureyri. Hann vinnur jöfnum höndum ađ málverki, teikningum og gerđ ţrívíđra verka.
Gunnar Kr. hefur unniđ lengi ađ myndlist, framan af međfram öđrum störfum og atvinnurekstri, en síđan 2002 hefur hann helgađ sig listinni óskiptur. Gunnar Kr. hefur áđur haldiđ einkasýningar og tekiđ ţátt í samsýningum. Ađ ţessu sinni sýnir hann blýteikningar á pappír.
http://www.simnet.is/gkr
Sýningin stendur frá 8.mars – 9.apríl opiđ er frá  10-18 mánudaga- föstudaga ogg 11-16 laugardaga.  Lokađ á sunnudögum.


Joris Rademaker: listamannsspjall í Kunstraum Wohnraum á sunnudag

img_0099

JORIS RADEMAKER 

MANNLEG TILVIST 

06.01. - 09.03.2008 

Listamannaspjall sunnudaginn 9. mars 2008, klukkan 11:00
      

 

KUNSTRAUM WOHNRAUM             

Hlynur Hallsson • Kristín Kjartansdóttir

Ásabyggđ 2 • IS-600 Akureyri • +354 4623744

hlynur(hjá)gmx.net • www.hallsson.de

 

Sunnudaginn 9. mars 2008 klukkan 11:00 rćđir Joris Rademaker um verk sín á sýningunni “Mannleg tilvist” í Kunstraum Wohnraum í Ásabyggđ 2 á Akureyri. Joris er Hollendingur en hefur fengist viđ myndlist síđan 1983. Hann var útnefndur bćjarlistamađur Akureyrar áriđ 2006.

Joris Rademaker vinnur međ blandađa tćkni og oft međ mismunandi ţema í lengri tíma í senn. “Mannleg tilvist” er einskonar yfirlitssýning inni á heimili ţar sem verkin samrćmast alvöru og leik heimilisfólksins. Ţau eru unnin út frá pússluspilskubbi, og í mismunandi tćkni, vatnsliti, veggfóđur, sprey, ţrykk, málverk, ljósrit, klippimyndir og sem objekt eđa hluti.

Kunstraum Wohnraum hefur veriđ starfrćkt frá árinu 1994, fyrst í Hannover og nú á Akureyri. Ţađ er til húsa á heimili Hlyns Hallssonar og Kristínar Kjartansdóttur í Ásabyggđ 2. Sunnudagurinn 9. mars 2008 er lokadagur sýningar Jorisar Rademakers en ţann 16. mars opnar Ragnar Kjartansson nýja sýningu í Kunstraum Wohnraum.

Nánar hér 


Páskaćvintýri á Akureyri

Visithaus_vetur

Tilkynning frá Akureyrarstofu:

Nú endurtökum viđ leikinn frá ţví um síđustu páska međ ţví ađ kynna úrval hverskonar viđburđa og uppákoma undir heitinu Páskaćvintýri á Akureyri.  Má sem dćmi nefna tónleika, listviđburđi, leiksýningar og íţróttamót.  

Akureyri er mikill páskabćr og ţađ vill Akureyrarstofa undirstrika međ Páskaćvintýrinu sem er samheiti yfir viđburđi og uppákomur sem eiga sér stađ um páskana.  Markmiđiđ er ađ gera Páskaćvintýri ađ árlegum viđburđi, ţannig ađ úr verđi dagskrá sem geri Akureyringum, sem og gestum bćjarins kleift ađ nálgast á einum stađ upplýsingar um páskana á Akureyri.  

Kaupmenn, listamenn, íţróttafélög, áhugamannasamtök, skólar, söfn, gallerí, veitingahús, fyrirtćki, kórar, kirkju, kvenfélög og allir sem ćtla ađ gćđa bćinn lífi og gleđi um páskana eru hvattir til ađ senda upplýsingar á netfangiđ akureyrarstofa@akureyri.is og er ţátttakan er öllum ađ kostnađarlausu.

Páskaćvintýriđ hefst 14. mars og stendur til 24. mars og verđur auglýst víđa.

Dagskrá Páskaćvintýris verđur ađ finna í heild sinni á ferđamannavef Akureyrarbćjar visitakureyri.is  Ţeir sem vilja taka ţátt eru hvattir til ađ senda upplýsingar um viđburđinn sem fyrst eđa fyrir 4. mars, ţar sem fram kemur lýsing á viđburđi, stađ og stund.


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband