29.1.2008 | 10:52
Bráðið vatn - Smeltevand
Sýningin Smeltevand sem er samsýning 10 norrænna listakvenna heldur áfram ferð sinni og var hún (ný og endurbætt) sett upp í sýningarsölum Menningarmiðstöðvarinnar Portalen, í Greve í Danmörku.
Fimm íslenskar listakonur sem allar starfa að listsköpun á Akureyri eru þátttakendur: Ragnheiður Björk Þórsdóttir vefari, Hrefna Harðardóttir og Sigríður Ágústsdóttir leirlistarkonur, Anna Gunnarsdóttir textíl, Sveinbjörg Hallgrímsdóttir grafík og svo eru: Mette Strøm frá Noregi, Anette Andersen, Heidrun Sørensen, Else Marie Gert Nielsen, Inge-Lise Busacke frá Danmörku.
Listsýningin er haldin í tengslum við Alþjóðlegt heimskautaár sem nú stendur yfir í heiminum og reyna listakonurnar að túlka þeirra sýn á hlýnun jarðar, bráðnun jökla hækkandi sjávarstöðu m.a. í grafík, textíl- og leirverkum. Smeltevand var sett upp í Grænlandshúsinu í Kaupmannahöfn í september-nóvember s.l. og fékk bæði mjög góða blaðadóma og mikla aðsókn.
Sýningin stendur frá 12. janúar til 24. febrúar nk. og opnunartími er: kl. 14-17 þri-fös og kl. 13-17 lau. og kl. 11-15 sun.
Greve er í klukkustundar lestarferð fyrir utan Kaupmannahöfn, farið út við Hundige lestarstöðina.
Sýningin í Portalen mun standa í 5 vikur en heldur þá áfram ferðalaginu og kemur til Akureyrar í júní. Aðgangur er ókeypis.
Nánari upplýsingar :
skoða Gallerierne - Smeltevand
__________________________________________
Alþjóðlega heimskautaárið, International Polar Year, hófst 1. mars 2007 og lýkur í mars 2009. Heimskautaárið stendur því í raun í tvö ár. Þessi viðburður er hluti af sögulegri hefð, en 1/2 öld er liðin frá síðasta alþjóðlega heimskautaári. Á heimskautaári er lögð áhersla á stór rannsóknarverkefni á öllum sviðum heimskautamála þar sem vísindamenn af ýmsum þjóðernum leggja saman krafta sína.
Fyrir áhugasama er hér tengill á heimasíðu IPY http://www.ipy.org
Um og yfir 6.500 vísindamenn taka höndum saman frá 60 ríkjum og eru verkefnin um 200 talsins. Stóru áherslurnar eru helst á sviði loftslagsmála og veðurfarsbreytinga og þýðingu þeirra fyrir gróðurfar og dýralíf. Eitt af því sem hvað mest verður í brennidepli á heimskautaári eru frekari rannsóknir á Grænlandsjökli og viðbrögð hans við veðurfarssveiflum. Nú á að freista þess að leggja í afkomulíkan jökulsins, sem hlýtur að teljast vera risavaxið verkefni ekki síst þar sem lítið er um beinar mælingar á ákomu og leysingu þessa stærsta ísmassa norðurhvels.
Á fyrsta alþjóðlega heimskautaárinu 1882-1883 var megináherslan lögð á veðurathuganir og rannsóknir á norðurljósum.
Næst, eða 1932-1933 voru vísindamenn afar uppteknir af segulsviði jarðar og mælingum á hafinu.
1957-1958 gekk mikið á í margvíslegum rannsóknum jarðeðlisfræðinnar, en þá var árið reyndar kallað alþjóða jarðeðlisárið og sérstakt sjónarhorn á Suðurskautslandið.
Einar Sveinbjörnsson Veðurfræðingur
Meginflokkur: Menning og listir | Aukaflokkar: Ferðalög, Vefurinn, Vísindi og fræði | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.