20.1.2019 | 21:32
Bók og málþing: Örn Ingi, lífið er LEIKfimi í Listasafninu
Sýningin Örn Ingi Gíslason: Lífið er LEIK-fimi hefur verið skipulagður gjörningur síðastliðna þrjá mánuði um það hvernig bók verður til um listamanninn. Nú hefur dagurinn runnið upp!
Fræðistarfið sem hófst 3. nóvember á því að taka myndverkin upp úr kössum, skrásetja þau og efnistök, hlusta á frásagnir samferðamanna, skoða og setja í samhengi, ljósmynda og endurskoða, hefur nú myndað nýja sprota. Einn þeirra er bókin Örn Ingi Gíslason: Lífið er LEIK-fim. Í dag verður hún kynnt og býður hún gestum að líta til sín á sýningartjaldið, óþreyjufull að komast á blað á blað sögunnar.
Þeir sem taka þátt í málþinginu um listamanninn og samfélagið eru:
Hlynur Hallsson, safnstjóri Listasafnsins á Akureyri
Jón Proppé, listfræðingur
Guðmundur Ármann Sigurjónsson myndlistarmaður
Marta Nordal leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar
Rúrí myndlistarmaður
Halldóra Arnardóttir listfræðingur og sýningarstjóri
Aðgangur er ókeypis og málþingið öllum opið.
Gestum og öðrum áhugasömum er boðið að skrá sig á tabula gratulatoria og panta bókverkið sem kemur út á vordögum.
https://www.facebook.com/events/230695141194064
Flokkur: Menning og listir | Breytt s.d. kl. 21:35 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.