1.12.2016 | 15:16
Hömlulaus listsköpunarhátíð í Ungmennahúsinu Rósenborg
Hömlulaus 2016, 7. 11. desember, Ungmennahúsið Rósenberg, Akureyri.
Hömlulaus 2016 verður dagana 7. til 11. desember næstkomandi í Ungmennahúsinu Rósenborg á Akureyri og er Hömlulaus haldið í annað sinn. Um ræðir 5 daga listasmiðjur undir handleiðslu starfandi Akureyskra listamanna. Miðvikudagur - föstudags frá kl 16 20 og laugardagur 10 til 17.
Skapandi textíl/fatahönnunarsmiðja verður í höndum Anítu Hirlekar þar sem hún leiðir þátttakendur í gegnum ferlið við hönnun fatalínu og kennd helstu undirstöðuatriði hönnunarferilsins. Nemendur fá innsýn inní heim fatahönnunar, frá textílhönnun og skissuvinnu yfir í hönnun fatnaðar. Eins munu þátttakendur skoða endurnýtingu fatnaðar. Anita Hirlekar lærði fatahönnun í London og hefur unnið með nokkrum af helstu hönnunarfyrirtækjum í London sem og á Ítalíu.
Hömlulaust leiklistarnámskeið verður í höndum Birnu Pétursdóttur sem mun vinna með sögur úr eigin lífi og reynsluheimi þeirra er taka þátt, úr verður handrit og gert videó. Birna lærði leiklist í London og hefur frá útskrift unnið á sviði en einnig við þáttagerð fyrir sjónvarp.
Myndlistarsmiðjan verður í höndum Earl James, Cistam, hann lærði myndlist í Myndlistaskólanum á Akureyri. Hann mun leggja áherslu á tjáningu og almenna kunnáttu í listinni. Hann mun taka fyrir notkun og samspil milli forms og lita og leiða þátttakendur í gegnum ferlið frá hugmynd í fullbúið veggverk. Helsta markmið Cistam er að koma hugmyndaflugi þátttakenda af stað og skapa vettvang fyrir unga listamenn til að koma og spreyta sig í skapandi umhverfi.
Raftónlistarsmiðja verður í höndum Sigga Sigtryggssonar (Sadjei) þar sem hann mun kenna undirstöðuatriðin í Ableton Live forritinu, uppbyggingu trommutakta frá grunni, almenna notkun hljóðgerval og hvernig nota má hljóðbúta úr ýmsum áttum á skapandi hátt. Siggi er starfandi tónlistarmaður og upptökustjóri, lærði í London og hefur unnið með nokkrum af helstu plötufyrirtækjum heims.
Allar nánari upplýsingar veita þeir Kjartan Sigtryggsson, e. kjartan@akureyri.is, s. 8521255 og Jóhann Malmquist, johannm@akureyri.is í Ungmennahúsinu - Rósenborg s. 4601240 frá kl 08 til 22
https://www.facebook.com/events/1028540723942121
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.