Færsluflokkur: Ferðalög

Staðfugl - Farfugl: opnar í Eyjarfjarðarsveit á laugardag

Víðavangssýningin „Staðfugl – Farfugl“  verður opnuð við hátíðlega athöfn þann 31. maí  kl. 14:00 við Hrafnagilsskóla.
Á sýningunni verða um 40 verk eftir innlenda og erlenda listamenn og eru verkin staðsett víðsvegar við Eyjafjarðarbraut eystri og vestri. Sýningin stendur til 15. september 2008 og er gert ráð fyrir því að á sýningartímabilinu verði fjölbreytt dagskrá með opnun nýrra verka eftir framandi fugla, námskeiðahald, gjörningar og aðrir viðburðir sem verða auglýstir sérstaklega.

Dagskrá 31. maí
Ávarp  krúnk krúnk 
Anna Richards,   furðufugl
Kvæðamannafélagið Gefjun    bí bí bí
200 friðardúfum sleppt                                    
Léttar veitingar í boði    gagalagú     

Nánar á www.fugl.blog.is

plakat_532985

Sýningin  „Staðfugl ­ Farfugl” er staðsett úti á víðavangi í Eyjafjarðarsveit og stendur frá 31. maí til 15. september 2008. Hugmyndin að sýningunni er hugleiðing um þær breytingar sem verða meðfram þjóðveginum þegar vorar. Fuglar birtast frá fjarlægum löndum eftir langa vetrardvöl. Bílar þeysa eftir malbikinu til þess eins ­ að því er stundum virðist ­ að bæta upp tímann sem tapast hefur í vetrarfærðinni. Mest ber á tengslum milli farþega og náttúru þegar vorfugl skýst yfir veginn og rétt sleppur undan bílnum...eða ekki.  Í nokkur ár hefur mig langað að vekja athygli á þessum hugleiðingum með því að búa til úrval af fugla-innsetningum sem yrðu staðsettar víðsvegar meðfram veginum í Eyjafjarðarsveit.


Er farfugl ferðamaður, erlent vinnuafl eða innflytjandi? Er heimamaður þá staðfugl? Hvað eru heimalönd, útlönd og landmæri? Ertu næturgali, heiðlóa, monthani, mörgæs eða bara furðufugl? Til  að sýningin gæti orðið að veruleika og um leið til þess að auka fjölbreytni hennar bað ég nokkra vini að taka þátt í henni með mér. Áður en ég vissi af var kominn fjöldi þátttakenda og leitaði þá eftir samstarfi við Steina & Dísu í Gallerí Við8tta601. Þetta egg byrjaði að klekjast út um áramótin 2007 og er nú orðið að fugli sem hefur sig til flugs... Njóttu vel.

George, Steini & Dísa


Sérstakir þakkir:
Hestamannafélagið Funi, Landflutningar, Hulda í Stíl, Kvæðamannafélagið Gefjun, Vegagerðin, Ívar, Viktor & Hugi, Skógrækt Ríkisins, Fallorka, Hrafnagilsskóli, Bjartur Baltazar, Gunna í Smámunasafninu, Skrifstofa Eyjafjarðarsveitar, Vegagerðin, ábúendur í Hvammi, Torfum, Rifkelsstöðum, Klauf, Sandhólum, Leifsstöðum, Möðruvöllum, Eyrarlandi, Öngulsstöðum og allir hinir sem við gleymdum.

Það eru vinsamleg tilmæli til gesta og gangandi að ganga vel um svæðin, sýna tillitssemi við þau mannvirki sem við höfum til afnota og virða verkin sem eru til sýnis.
Sýningarstjórnin.


Viðburðir:
Sýningar sem opna á næsta leyti eru eftir Gunn Morstoel (Noregur) og Helen
Molin (Svíþjóð).


Þátttakendur:
Aðalsteinn Þórsson
Anna Sigríður Sigurjóns
Arna Vals
Art group Grálist:
Dagrún Matthíasdóttir
Ása Ólafsdóttir
Inga Björk Harðardóttir
Karen Dúa Kristjánsdóttir
Kristín Guðmundsdóttir
Linda Björk Óladóttir
Steinunn Ásta Eiríksdóttir
Steinn Kristjánsson
Lína
Gvaka
Sveinbjörg Ásgeirsdóttir

Áslaug Thorlacius
Beate Stormo
Claudia Losi
Franz P.V. Knudsen
George Hollanders
Guðrún Vaka
Guðrún Hadda Bjarnadóttir
Gunn Morstoel
Helen Molin
Helgi Þórsson
Hlynur Hallsson
Hrafnagilsskóli
Hrefna Harðardóttir
Joris Rademaker
Katja Hennig
Kees Verbeek
Kristján Pétur Sigurðsson
Margret Schopka
Pálína Guðmundsdóttir
Iðavöllur
Krummakot
Roel Knappstein
Lína
Þorsteinn “Steini” Gíslason
Sæunn Þorsteinsdóttir
Kristján Ingimarsson
Anna Richards
Buzby Birchall
Daniele Signaroldi
George Hollanders
Hilma Stefánsdóttir
Jacqueline Fitz Gibbon
Ragnheiður Ólafsdóttir
Tonny Hollanders

Sæunn Þorsteinsdóttir
Valgerður H. Bjarnadóttir
Valdís Viðarsdóttir
Katrín Jónsdóttir
Hrefna Harðardóttir
Guðfinna Nývarðsdóttir
Anna Richards

Sveinbjörg Ásgeirsdottir
Charlotta Þorgils


Ingileif Thorlacius og Áslaug Thorlacius sýna í Jónas Viðar Gallery

aslaug.jpgingileif.jpg

Myndir

Laugardaginn 17. maí kl 13.00 opna systurnar Ingileif og Áslaug Thorlacius sýningu í Jónas Viðar Gallery í Listagilinu á Akureyri.
Ingileif sýnir syrpu af vatnslitamyndum, Áslaug sýnir Esjumyndir unnar með vatnslit á pappír og með tempera á tré.

Sýningin stendur frá 17. maí til 6 júní og er opin föstudaga og laugardaga frá kl 13.00 til 18.00

______________________________________________

Jónas Viðar
sími: 8665021
Jónas Viðar Gallery: http://www.jvs.is/jvgallery.htm

syning_aslaug.jpg


Sýningin HLASS opnar í Öxnadal 20. júní 2008

hlass.jpg

H L A S S

Opnun 20.06.2008
18:00-20:00
21.06 - 21.07 2008

Hlynur Hallsson // Huginn Arason // Jóna Hlíf Halldórsdóttir // Karlotta Blöndal // Karen Dúa Kristjánsdóttir // Níels Hafstein // Unnar Örn Jónsson Auðarson

www.hlass.blogspot.com

Hugmyndin á bak við sýninguna er að setja óvenjulegan bæjarviðburð í hversdagslegt sveitaumhverfi. Hvetja fólk til þess að koma að Hálsi, njóta náttúrudýrðarinnar, ganga upp að Hraunsvatni, minnast ljóða Jónasar Hallgrímssonar og fá sér góðan mat á Halastjörnunni. Hlaðan stendur í dag að miklu leyti ónýtt en með því að halda þar sýningu er hægt að sýna möguleikana sem felast í þessum ónýttu rýmum til sýningarhalds eða annarra viðburða, en þannig er farið með fleiri hlöður á landinu en að Hálsi. Þannig er hægt að glæða þær lífi og skapa úr þeim nýtt umhverfi, og koma þannig lífi í þessar undirstöður sveita landsins. Það er þekkt fyrirbæri að menningarviðburðir á fáförnum slóðum dregur fólk að, og sáir skapandi frjókornum í huga þeirra sem þangað koma. Þannig ganga gömul rými oft í endurnýjun lífdaga og fá á endanum nýtt hlutverk eftir að listamenn hafa bent á möguleikana sem í því felast.

Verkefnastjóri er Jóna Hlíf Halldórsdóttir
sími 6630545

fyrirblogsiduna


Inga Björk Harðardóttir opnar í Dalí Gallery föstudaginn 16. maí

ingabjork.jpg

Inga Björk Harðardóttir opnar myndlistasýninguna Brýr í DaLí Gallery föstudaginn 16. maí kl. 17-19. Inga sýnir stórar landslagsmyndir málaðar með olíulitum. Myndirnar eru hluti af útskriftaverki Ingu Bjarkar frá Myndlistaskólanum á Akureyri, en útskrift hennar fór fram í gærkvöldi. Sýningin stendur til 31. maí

Inga Björk um verk sín:

Brýr eru táknrænar og á lífsleiðinni förum við yfir margar slíkar. Frá bernsku til fullorðinsára verða á vegi okkar hindranir og erfiðleikar sem við verðum að yfirstíga - þær brýr eins og hinar raunverulegu eru mislangar og misgreiðar yfirferðar.

Mér þykja gamlar brýr sérstaklega fallegar. Bogalínur og fallegar steinhleðslur skapa skemmtilegt samspil ljóss og skugga, svo eru gömlu brýrnar smám saman að hverfa, þær molna og gróðurinn flæðir yfir.

Inga Björk Harðardóttir s.8621094

Dagrún og Lína í DaLí Gallery
http://daligallery.blogspot.com


Facing China í Listasafninu á Akureyri

china

Laugardaginn 17. maí kl. 13 verður sýningin Facing China ( Augliti til auglitis við Kína ) opnuð í Listasafninu á Akureyri. Heiti sýningarinnar endurspeglar meginstef hennar, manninn og andlitið, sem sjá má í málverkum og skúlptúrum eftir níu kínverska samtímalistamenn sem vakið hafa alþjóðlega athygli og sett hvert sölumetið á fætur öðru í uppboðshúsum heimsins. Listamennirnir sem verk eiga á sýningunni eru Chen Qing Qing, Fang Lijun, Liu Ye, Tang Zhigang, Wei Dong, Yang Shaobin, Yue Minjun, Zhang Xiaogang og Zhao Nengzhi.

Öll verkin á sýningunni koma úr fórum hollenska listaverkasafnarans Fu Ruide. Hann hefur reynst Listasafninu á Akureyri mikill haukur í horni við mótun og undirbúning sýningarinnar og bætti við mörgum nýjum verkum í safn sitt til að gera hana sem best úr garði. Af þessu tilefni hefur verið gefin út glæsileg 270 síðna bók í hörðu bandi á ensku og kínversku sem í rita, auk forstöðumanns Listasafnsins og eiganda verkanna, Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti Íslands, hinn þekkti bandaríski listfræðingur Robert C. Morgan og virtasti gagnrýnandi kínverskrar myndlistar, Li Xianting, sem stundum er kallaður guðfaðir samtímalistarinnar þar í landi. Þá hefur Listasafnið gefið út dagblað sem hefur að geyma valda texta á íslensku og myndir í áðurnefndri bók. Sýningin er sett upp í tengslum við Listahátíð í Reykjavík, sem árið 2008 er að miklu leyti helguð alþjóðlegri myndlist. Frá Akureyri ferðast sýningin víða um lönd og verður hún meðal annars sett upp í söfnum í Austurríki, Þýskalandi, Noregi, Finnlandi og Svíþjóð. „Skandinavíuför“ hennar lýkur árið 2010, en þetta er í fyrsta sinn sem íslenskt listasafn á frumkvæðið að skipulagningu alþjóðlegrar farandsýningar af þessari stærðargráðu. Sýningarstjóri er Hannes Sigurðsson forstöðumaður Listasafnsins á Akureyri.

Verkin úr safni Fu Ruide voru ekki einvörðungu valin vegna verðleika sinna, heldur einnig til að þau væru í samræmi við stef sýningarinnar, sem er manneskjan, fas hennar og fés, og þar af sprettur heitið, Facing China . En þótt líta megi á sýninguna harla bókstaflega í þessu tilliti, er heitið einnig margrætt með ráðnum hug, jafnvel eilítið ógnvænlegt, þar eð það að standa „augliti til auglitis við eitthvað“ þýðir að takast á við veruleikann. Sýningin býður því birginn að mögulega kvikni einhverjar væntingar til kínverskrar listar um að hún sé annaðhvort sprottin af eintómri pólitík eða seiðandi „exótísk“ og öðrum hefðbundnum grillum. Málverkin og skúlptúrarnir á sýningunni eru ekki til marks um „Kínverjaskap“ þessara listamanna. Þess í stað afhjúpa þau stereótýpur, beina sjónum okkar frá hinu dálítið kunnuglega að djúpri sjálfshygli þegar við leiðum augun um andlitin og líkamana sem bregður fyrir í verkunum. Þau afhjúpa persónulegar og andlegar sneiðmyndir af fólkinu sem þau sýna, og mannlega eiginleika sem eru almennari en áhorfandinn kann að gera sér í hugarlund við fyrstu sýn.

Nánari upplýsingar sýninguna er að finna á vefsíðu Listasafnsins: www.listasafn.akureyri.is. Einnig er hægt að hafa samband við Hannes Sigurðsson í síma 899-3386 (netfang: hannes@art.is). Aðalstyrktaraðili sýningarinnar er Samskip sem veitti aðstoð við flutning á verkunum til landsins. Sýningunni lýkur 29. júní og er safnið opið alla daga nema mánudaga frá kl. 12 – 17.   


mbl.is Tilraunastofa lista og vísinda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Anna Líndal, Bjarki Bragason og Hildigunnur Birgisdóttir í Safnasafninu

Laugardaginn 17. maí kl. 14.00 verður opnuð sýningin Greinasafn í Safnasafninu á Svalbarðsströnd, samstarfsverkefni Önnu Líndal, Bjarka Bragasonar og Hildigunnar Birgisdóttur, byggt á heimildum, 
umhverfisskoðun, ljósmyndum og rannsóknum í nágrenni safnsins og innan veggja þess. Sýningin er í Norðursölum og stendur yfir til 8. júlí 2008.


Bragginn í Öxarfirði: sýning númer 5

bragginn5.jpg

BRAGGINN Í ÖXARFIRÐI

Braggasýning númer 5: "Teikning" hefst kl. 11 laugardaginn 28.júní og stendur fyrstu 2 vikurnar í júlí.

Ingunn St. Svavarsdóttir
Yst

Bragginn, Vin, Öxarfirði, 671 um Kópasker


Þorsteinn Gíslason sýnir „Andans flug“ í Gallerí Víð8ttu601

Gallerí Víð8tta601 opnar sýninguna „Andans flug“ í Leirutjörn á Akureyri laugardaginn 10.maí kl.14:00.

Þorsteinn Gíslason (Steini) sýnir þar skúlptúr/innsetningu í nyrðri hólmanum í tjörninni. Verkið samanstendur af bókum sem þátttakendur skrifuðu hugsanir sínar í á 14 daga tímabili, listamaðurinn mótar bækurnar  og festir á misháar stangir í hólmanum þannig að frá landi séð verða bækurnar eins og fuglahópur sem er að hefja sig til flugs. Hugmyndin að baki verkinu er sú að fá að láni hugsanir ólíkra einstaklinga á fjórtán daga skeiði í ævi þeirra,  fanga þær á einn stað í ákveðinn tíma og láta þær endurtaka sig aftur og aftur.

Þátttakendur í sýningunni eru:

Jón Ásgeir Kalmansson siðfræðingur

Ingibjörg María Gísladóttir guðfræðingur

Hólmfríður María Þorsteinsdóttir grunnskólanemi

Guðný Ketilsdóttir verslunarstjóri

George Hollanders leikfangasmiður

Silja Aðalsteinsdóttir rithöfundur

Olov Tällström myndlistamaður

Helgi Þórsson hljómlistamaður

Dagrún Matthíasdóttir myndlistamaður

Aníta Jónsdóttir námsráðgjafi

Bjartur Hollanders leikskólanemi

Baldvin Ringsted myndlistamaður

Hlynur Hallsson myndlistamaður

Þórhildur Þorsteinsdóttir bóndi

 

Andans flug er styrkt af Menningarráði Eyþings og RARIK.


Steinn Kristjánsson með Innilega útilegu í Populus tremula

steinn-10_5.jpg

Populus Kynnir:

INNILEGA-ÚTILEGA

STEINN KRISTJÁNSSON

Laugardaginn 10. maí kl. 14:00 opnar sjónlistamaðurinn Steinn Kristjánsson sjónlistasýninguna Innilega útilegu í Populus tremula. Þar verður sumarfríinu þjófstartað og hver veit nema tekin verði nokkur gömul og góð útilegulög og jafnframt frumflutt ný innilegulög. Þarna er um að ræða tilraun um mörk innra og ytra rýmis í formi hinnar einu sönnu íslensku útilegustemmingar.

Einnig opið sunnudaginn 11. maí kl. 14:00-17:00.

http://poptrem.blogspot.com


Þjónustumiðstöðin Marína

image001

Fyrirhugað er að opna þjónustumiðstöð við skemmtiferðaskip þau er eiga viðdvöl á Akureyri undir heitinu Marína.  Áhersla verður lögð á að mæta þörf á miðstöð fyrir gesti og áhafnir skemmtiferðaskipa sem heimsækja Akureyri.  Markmið þjónustumiðstöðvarinnar er að kynna íslenska matarmenningu og menningararfleifð þá er leynist í handverki Íslendinga.  Mikill metnaður verður lagður í vel framsetta minjagripaverslun sem skal skarta handgerðum íslenskum munum eins og frekastur er kostur.  Sjá nánar um verkefnið www.marina.is

Opnun miðstöðvarinnar verður í lok maímánaðar.  Skipulagning er í fullum gangi og verður leitast við að skapa eins þjóðlegan anda í vöruvali og kostur er.

Nú auglýsi ég eftir aðilum með vandaðar vörur í þjóðlegum anda sem gætu passað í vöruúrvalið.

Áhugasamir hafi samband sem fyrst, ábendingar vel þegnar.
Með kveðju
Dóróthea Jónsdóttir
s. 864-3633
marina(hjá)marina.is


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband