Færsluflokkur: Menning og listir
20.2.2014 | 22:41
Hong Kong Independent Film Festival in North Iceland
Hong Kong Independent Film Festival in North Iceland
Laugardag 22. febrúar 2014
Program 3* | kl. 16:00 | Listhús Gallery
Program 2* | kl. 20:00 | Listhús Gallery
Laugardag 23. febrúar 2014
Program 5* | kl. 14:00 | Tjarnarborg

Program 2* | kl. 16:00 | Listhús Gallery

Program 1 | kl. 20:00 | Listhús Gallery
* leikstjórar verða viðstaddir
enskur texti Allir velkomnir
Upplýsingar: Alice Liu 8449538 eða listhus@listhus.com
18.2.2014 | 15:27
Helga Sigríður Valdemarsdóttir sýnir ný verk í Flóru
Helga Sigríður Valdemarsdóttir
Þræðir
22. febrúar - 10. maí 2014
Opnun laugardaginn 22. febrúar kl. 14
Flóra, Hafnarstræti 90, 600 Akureyri, s. 6610168
http://floraflora.is
https://www.facebook.com/flora.akureyri
https://www.facebook.com/events/433303576800182
Laugardaginn 22. febrúar kl. 14, opnar Helga Sigríður Valdemarsdóttir sýningu með nýjum verkum í Flóru á Akureyri. Sýningin nefnist Þræðir.
Helga Sigríður er fædd á Akureyri árið 1975. Hún útskrifaðist úr VMA af myndlista- og handíðabraut og er með diploma í myndlist frá Myndlistaskólanum á Akureyri. Helga hefur tekið þátt í samsýningum Myndlistarfélagsins og haldið nokkrar einkasýningar og þetta er hennar sjöunda einkasýning.
Nánari upplýsingar veitir Helga Sigríður í síma 660 3212 og í helgasigridur@internet.is
Sýningin er öllum opin á opnunartíma Flóru mánudaga til laugardaga kl. 12-16. Sýningin stendur til laugardagsins 10. maí 2014.
Nánari upplýsingar veitir Kristín í flora.akureyri@gmail.com og 6610168 og Hlynur í síma 6594744.
Flóra er verslun og viðburðastaður með vinnustofum sem Kristín Þóra Kjartansdóttur félagsfræðingur rekur. Áherslan er á nýtingu, endurnýtingu, náttúrutengsl og verkmenningu. Listrænn ráðunautur staðarins er Hlynur Hallsson, myndlistarmaður. Menningardagskrá Flóru hlaut styrk úr Menningarsjóði Akureyrar.
17.2.2014 | 22:49
Ólafur Sveinsson sýnir í Populus tremula
Laugardaginn 22. febrúar kl. 14.00 opnar Ólafur Sveinsson sýninguna Tímamót í Populus tremula. Heiti sýningarinnar vísar til þess að 30 ár eru nú liðin frá fyrstu sýningu listamannsins, sem jafnframt verður fimmtugur í næsta mánuði. Málverk, myndir og minningar.
Sýningin er einnig opin sunnudaginn 23. febrúar kl. 14.00-17.00. Aðeins þessi eina helgi.
Curver Thoroddsen
Verk að vinna/Paper Work
Síðasta sýningarvika
Komið er að síðustu sýningarviku raunveruleikagjörnings Curvers Thoroddsen, Verk að vinna/Paperwork, sem staðið hefur í Ketilhúsinu á Akureyri síðan um miðjan janúar. Þar hefur listamaðurinn lokað sig af frá umheiminum og farið allsnakinn í gegnum og grisjað tugi ára af uppsöfnuðum blöðum, pappír og bréfsefni. Þessi persónulega flokkun og endurskoðun helst í hendur við eldri verk Curvers.
Sýningin hefur verið afburða vel sótt og hlotið mikla og verðskuldaða athygli.
Gjörningnum lýkur sunnudaginn 16. febrúar og þá hefur listamaðurinn verið við iðju sína í 30 daga samfleytt. Árangurinn er sannarlega sýnilegur enda hafa safnast upp stórir haugar af pappírskurli.
Ketilhúsið er opið alla daga nema mánudaga kl. 12-17. Aðgangur er ókeypis.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 15:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.2.2014 | 19:16
Thora Karlsdóttir sýnir í Mjólkurbúðinni
Thora Karlsdóttir myndlistamaður opnar sýninguna Hver er lykillinn í Mjólkurbúðinni í Listagilinu á Akureyri, laugardaginn 15. febrúar kl. 15:00.
Sýningin er innsetning sem er sköpuð inn í rými Mjólkurbúðarinnar og fjallar um lífið sjálft og leitina að lífshamingjunni. Myndlistamaðurinn notar lykla í ýmsum formum og leikur sér með efni og ímyndir margræð tákn, bæði á huglægan og hlutlægan hátt.
Thora Karlsdóttir útskrifaðist frá Europaische Kunst Akademi of fine arts 2013. Lifandi Vinnustofa er í Listagilinu á Akureyri. Það er bæði vinnustofa, sýningarými og heimili Thoru. Þetta er önnur einkasýning Thoru á Íslandi en áður hefur hún sýnt víða erlendis. Þóra tekur þátt í tveim sýningum erlendis á þessu ári. Hin fyrri er 9. mars í Trier, Þýskalandi. Hin seinni verður 15. september í Chateau de Bourglingster í Luxembourg.
Sýning Thoru Karlsdóttur Hver er lykillinn stendur til 23. febrúar.
Thora Karlsdóttir s.6914839
thorakarlsdottir@gmail.com www.karlsdottir.com
Mjólkurbúðin Listagili er á facebook - Vertu vinur!
https://www.facebook.com/groups/289504904444621/
Menning og listir | Breytt 12.2.2014 kl. 15:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.2.2014 | 16:44
Ályktun stjórnar Myndlistarfélagsins: Stjórnvöld á Akureyri vilja höggva skarð í Listagilið á Akureyri.
Ályktun stjórnar Myndlistarfélagsins 7. febrúar 2014.
Stjórnvöld á Akureyri vilja höggva skarð í Listagilið á Akureyri.
Það er dapurlegt til þess að hugsa að stjórn Akureyrarstofu, sem fer með stjórn menningar-, ferða-, markaðs- og atvinnumála Akureyrarbæjar í umboði bæjarstjórnar, skuli hafa ákveðið að selja Deigluna og gestavinnustofuna. Gestavinnustofan er gluggi Akureyrar út í heim. Erlendir og innlendir listamenn koma til bæjarins og greiða leigu fyrir dvöl sína í Listagilinu. Af hverju á að loka fyrir þessi mikilvægu tengsl núna? Þrátt fyrir varnaðarorð stjórnar Myndlistarfélagsins kaus stjórn Akureyrarstofu að fela Fasteignum Akureyrar að selja húsnæðið í sparnaðarskyni.
Það var meiri reisn yfir forsvarsmönnum Akureyrarbæjar í byrjun tíunda áratugar síðustu aldar. Þá sameinuðust stjórnmálamenn, listafólk og áhugasamir listunnendur um að blása lífi í þau reisuleg og fögru hús í Grófargili, sem lokið höfðu hlutverki sínu þegar iðnaðarstarfsemi SÍS og KEA var færð í hentugra húsnæði í jaðri bæjarins. Þá hófst endurreisn Gilsins - Listagilið varð til; myndlistarskóli, listasafn, gestavinnustofa, fjölmörg gallerý og margvísleg rými mynduðu sterka heild. Öflug starfsemi sem auðgað hefur lista- og menningarlífið í bænum. Þessu megum við ekki glutra niður vegna skammsýni þeirra sem ráða ferðinni.
Akureyrarbær á fjórðungshlut í Kaupvangsstræti 23. Þann 24. mars 1992 var undirritaður samningur Akureyrabæjar og Gilfélagsins. Þá fékk félagið umráðarétt yfir eignarhlut bæjarins. Akureyrarbær og menntamálaráðuneytið veittu styrki til uppbyggingarinnar auk þess sem íslenskir listamenn sýndu hug sinn í verki með því að gefa listaverk sem seld voru til styrktar málefninu. Gilfélagar hófu uppbyggingu og endurgerð húsnæðisins. Hugmyndin var að nýta húsnæðið fyrir fjölþætta listastarfsemi og innrétta gestavinnustofu fyrir innlenda og erlenda listamenn til styttri dvalar. Frá upphafi var tilgreint í ársreikningi, framlag félagsmanna og sjálfboðavinna annars vegar og rekstrarstyrkur Akureyrarbæjar hins vegar.
Listamenn hafa lagt mikið að mörkum í gegnum tíðina. Starf þeirra í þágu samfélagsins í Listagilinu er því miður vanmetið og nú er svo komið að skilningsleysi yfirvalda hamlar eðlilegri þróun hér á Akureyri og þolinmæði margra á þrotum. Það er áhyggjuefni hversu óbilgjörn Akureyrarstofa er í afstöðu sinni varðandi Listagilið, sem er verðmætt vörumerki fyrir Akureyri. Það tjón sem eignasalan mun hafa í för með sér er óafturkræft.
Stjórn Myndlistafélagsins skorar á bæjaryfirvöld að falla frá fyrirhugaðri sölu og hvetur Íslendinga til að standa vörð um Listagilið.
Guðrún Harpa Örvarsdóttir, formaður
Myndlistarfélagið - Kaupvangsstræti 10 - Pósthólf 235 - 602 Akureyri - mynd.blog.is
4.2.2014 | 00:27
Georg Óskar sýnir í Reykjavík Art Gallery
Laugardagaginn 8. febrúar kl. 16:00 opnar Georg Óskar sýninguna "7 mánuðir í ágúst"
í Reykjavík Art Gallery.
Georg Óskar er skreytihundur með áherslu á málverkið,
hvert verk er sjónræn dagbók af björtum dögum og andvaka nóttum.
Verður þetta sjöunda einkasýning Georg Óskars en sú fyrsta sem hann opnar í Reykjavík.
Léttar veitingar verða á opnun og eru allir hjartanlega velkomnir.
Reykjavík Art Gallery
Skúlagata 30
101 Reykjavík
https://www.facebook.com/events/1453928404830420/
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 00:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.2.2014 | 08:31
LJÓSMYNDASÝNING Á BÓKASAFNI HÁSKÓLANS Á AKUREYRI, MARGRÉT ELFA JÓNSDÓTTIR "NÆRMYNDIR"
Margrét Elfa Jónsdóttir er fædd á Akureyri árið 1961.
Hún hef alltaf haft gaman að því að taka myndir, en byrjaði fyrir alvöru árið 2011 eftir að hafa eignaðist fyrstu EOS myndavélina.
Hún er meðlimur í ÁLFkonum og hefur það reynst mikil hvatning en hópurinn hittist vikulega og fara t.d. ljósmyndaferðir saman.
Macromyndataka hefur alltaf heillað Elfu og eru þannig myndir meginþemað á þessari sýningu, sem hún kallar Nærmyndir.
Þetta er fyrsta einkasýning Margrétar Elfu en hún hefur unnið til margra viðurkenninga á ýmsum vefmiðlum en einnig verið með í samsýningum bæði með ÁLFkonum og ÁLKA.
Opnunartími er: mán., mið. og fös.: kl. 8:00 - 16:00 og þri. og fim.: kl. 8:00 - 18:00. Lokað um helgar. Allir eru velkomnir!
https://www.facebook.com/events/576176105806155/?previousaction=join&source=1
Menning og listir | Breytt 3.2.2014 kl. 14:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.1.2014 | 00:25
You draw me crazy opnar í Árósum
You draw me crazy
Sýningin You draw me crazy sem opnar laugardaginn næst komandi í Danmörku, tekur saman verk tveggja Akureyskra listamanna, þeirra Arnars Ómarssonar og Heklu Bjartar Helgudóttur. Þau eru gestalistamenn á Godsbanen sem er miðstöð lista og menningar í Árósum.
Síðastliðnar þrjár vikur hafa þau unnið og búið saman á lítilli vinnustofu, en á þessu tímabili hafa þau unnið að einskonar greiningu á hvoru öðru, en Arnar er viðfangsefni Heklu og öfugt. Það tekur á taugarnar að vinna saman daglega frá morgni til kvölds í sama litla rýminu og er verkefnið á marga vegu athugun á hverskonar áhrifum og innblæstri þau verða fyrir í svona náinni sambúð. Skortur á einveru, þolmörk persónurýmis og berskjöldun einkennir verkin sem eru teikningar, myndbandsverk, textaverk og bókverk. Það er hægt að fylgjast með þeim á vefsíðunni www.youdrawmecrazy.com, en þar setja þau inn daglegar færslur.
Sýningin opnar laugardagskvöldið 1. febrúar klukkan átta á umræddri vinnustofu.
28.1.2014 | 14:37
Hong Kong kvikmyndahátíð á Akureyri og á Ólafsfirði
KvikYndi vekur athygli á fyrstu Hong Kong kvikmyndahátíð Norðurlands sem mun fara fram á Akureyri dagana 1.-2. febrúar og á Ólafsfirði 22.-23. febrúar. Allar myndirnar eru sýndar með enskum texta og er aðgangur ókeypis.
Hátíðina skipuleggur Listhúsið Fjallabyggð í samstarfi við Sjónlistamiðstöðina og Menningarhúsið Tjarnarborg.
Nálgast má nánari upplýsingar á síðu hátíðarinnar á facebook: https://www.facebook.com/events/1435467586682660/
Afrituð dagskrá fylgir svo hér með:
1. 2. 2014 | 20:00 | Deiglan, Akureyri | Program 3 (Drama Selection | 84 min)
2. 2. 2014 | 14:00 | Deiglan, Akureyri | Program 4 (The Life & Times of Wu Zhong Xian | 86 min)
2. 2. 2014 | 16:00 | Deiglan, Akureyri | Program 1 (Black Bird A Living Song (1984) | 85 min)
2. 2. 2014 | 20:00 | Deiglan, Akureyri | Program 2 (Documentary Selection | 52 min)*
22. 2. 2014 | 16:00 | Listhus, Olafsfjordur | Program 3 (Drama Selection | 84 min)
22. 2. 2014 | 20:00 | Listhus, Olafsfjordur | Program 2 (Documentary Selection | 52 min)*
23. 2. 2014 | 14:00 | Tjarnarborg, Olafsfjordur | Program 5 (We are in the water (The premiere) with animation and video selection Produced and edited by Alice Liu | 60min)*
23. 2. 2014 | 16:00 | Listhus, Olafsfjordur | Program 2 (Documentary Selection | 52 min)*
23. 2. 2014 | 20:00 | Listhus, Olafsfjordur | Program 1 (Black Bird A Living Song (1984) | 85 min)
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 14:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)