Færsluflokkur: Menning og listir
26.8.2014 | 19:43
Linda Óla sýnir málverk í Sal Myndlistarfélagsins
Verið velkomin á opnun í Sal Myndlistafélagsins, Listagilinu á Akureyri, laugardaginn 30. ágúst (Akureyrarvaka) kl. 14.00. Sýningin er opin til miðnættis þann dag.
Sýningin mun standa til 14. september, Opið 14.00-18.00 alla dagana.
https://www.facebook.com/events/356986744467695/364422527057450
26.8.2014 | 13:12
5 power 8 í Listhúsinu Ólafsfirði
5 power 8
sýning listamanna Listhúss í ágúst
28. ágúst | kl.18:00 ~ 21:00
Listhus gallery: Ægisgötu 10, 625 Ólafsfirði
soðin skata í boði listamanna:
David Lin Yen Fu (Kanada/Taiwan): http://artlin.net/
Julie Livsey (Skotland)
Kari Henriksen (Ástralía): http://www.karihenriksen.com
Laura Marconi (Ítalía/Bandaríkjunum): http://marconilaura.com/Welcome.html
Patti Lean (Skotland)
sækja veggspjald: http://listhus.com/download/exhibition/1408_5-8_is.pdf
An Exhibition by Listhus residency artists in August
28 Aug. 2014 | 18:00 ~ 21:00
Listhus gallery: Ægisgötu 10, 625 Ólafsfjordur, Iceland
Participant artists:
David Lin Yen Fu (Canada/Taiwan)
Kari Henriksen (Australia)
Laura Marconi (Italy/USA)
Julie Livsey (Scotland)
Patti Lean (Scotland)
https://www.facebook.com/events/1459284131010933
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 20:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.8.2014 | 12:00
Aðalsteinn Þórsson sýnir í Kompunni, Alþýðuhúsinu á Siglufirði
Föstudaginn 29. ágúst kl. 20.00 opnar Aðalsteinn Þórsson sýninguna "miðaldir mæta nútíma" í Kompunni Alþýðuhúsinu á Siglufirði.
Á opnuninni eða kl. 20.30 mun Aðalsteinn vera með hugleiðingu um "handverk, list og annað föndur"
"Um nokkurt skeið hefur Aðalsteinn Þórsson þóst vera miðaldamálari nokkra daga á sumri. Þá blandar hann eggtemperu og sýður sortulyng. Sullar hvorutveggja á spýtur eða skinn með mjög stjórnuðum hætti, eins og gert var fyrrum. Hann reynir jafnvel að teikna og mála "gömul viðfangsefni" nútíma maðurinn. Afganginn af árinu vinnur hann helst að Einkasafninu sínu, sem fellst aðallega í að búa ekki til neitt, en sýna hluti úr sínu persónulega safni.
Á þessari sýningu ætlar hann að blanda saman hvoru tveggja eggtemprunni og Einkasafninu. Hann sér þetta sem einkar áhættusaman gjörning ef ekki beinlínis glæfraspil."
Vefsíða Aðalsteins: steiniart.com
Allar upplýsingar hjá Aðalheiði í síma 865-5091
Menningarráð Eyþings, Fjallabyggð og Fiskbúð Siglufjarðar eru stuðningsaðilar Alþýðuhússins.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 12:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.8.2014 | 15:35
María Dýrfjörð opnar sýningu í Flóru á Akureyrarvöku
María Rut Dýrfjörð
Eitthvað fallegt
30. ágúst - 4. október 2014
Opnun á Akureyrarvöku, laugardaginn 30. ágúst kl. 14
Flóra, Hafnarstræti 90, 600 Akureyri, s. 6610168
http://floraflora.is
https://www.facebook.com/flora.akureyri
https://www.facebook.com/events/1489406471298785
Laugardaginn 30. ágúst kl. 14, á Akureyrarvöku opnar María Rut Dýrfjörð sýninguna Eitthvað fallegt í Flóru á Akureyri.
María er fædd árið 1983 á Akureyri og útskrifaðist sem grafískur hönnuður frá Myndlistaskólanum á Akureyri vorið 2013. Auk þess er hún með diplómapróf í alþjóðlegri markaðsfræði með áherslu á hönnun frá TEKO í Danmörku og stúdentspróf af félagsfræðibraut úr Menntaskólanum á Akureyri og af listhönnunarbraut með áherslu á textíl frá Fjölbrautarskólanum í Garðabæ. María rekur vinnustofu í Flóru á Akureyri þar sem hún starfar sem grafískur hönnuður ásamt því að sinna ýmsum persónulegum verkefnum.
Á þessari fyrstu einkasýningu Maríu, Eitthvað fallegt, sýnir hún textílverk sem unnin eru með blandaðri tækni, útsaum og vefnaði. Í verkunum endurspeglast vangaveltur Maríu um lífið og undrið sem náttúran er, hvernig allar baldursbrár virðast við fyrstu sýn eins, þegar hvert blóm er í raun einstakt. Um verkin segir María:
Ég hef alla tíð haft unun á symmetríu og endurtekningu. Það fylgir því hugarró að uppgötva reglu í endurtekningu, sjá út óvænt munstur og fylgja því til enda. Það er einmitt þannig sem náttúran er uppbyggð, í allskonar kerfum og endurtekningum. Og planta er ekki bara planta; með því að rýna í séreinkenni hverrar og einnar getum við greint á milli tegunda, flokkað og séð að plantan sem þú hefur í hendi er hundasúra en ekki túnsúra. Ég er eins og hver önnur manneskja með tvö augu, munn og nef, tvær hendur og fætur. Eitt af mínum einkennum er þörfin fyrir að skapa. Kannski hef ég það í genunum, mögulega á ég það að þakka uppeldinu. Skilgreinir þörfin mig frá öðrum, er þetta mitt séreinkenni? Með nál og þráð á lofti yfirfæri ég vangaveltur mínar í myndvef með endurteknum handtökum, útkoman er eitthvað fallegt sem ég skil eftir mig fyrir komandi kynslóðir.
Nánari upplýsingar um verk Maríu má finna á http://mariacreativestudio.com
Sýningin er öllum opin á opnunartíma Flóru á Akureyrarvöku kl. 10-18. Frá og með 1. september er opið mánudaga - laugardaga kl. 12-16. Sýningin stendur til laugardagsins 4. október 2014.
Flóra er verslun og viðburðastaður með vinnustofum sem Kristín Þóra Kjartansdóttur félagsfræðingur rekur. Áherslan er á nýtingu, endurnýtingu, náttúrutengsl og verkmenningu. Menningardagskrá Flóru hlaut styrk úr Menningarsjóði Akureyrar.
22.8.2014 | 21:17
Arna Valsdóttir - Staðreynd: opnar 30. ágúst í Listasafninu á Akureyri
Á Akureyrarvöku, laugardaginn 30. ágúst, kl. 15 opnar í Listasafninu á Akureyri sýning Örnu Valsdóttur Staðreynd Local Fact. Á sýningunni gefur að líta mörg eldri myndbandsverka Örnu ásamt nýju verki sem sérstaklega var unnið af þessu tilefni.
Á opnuninni flytur kammerkórinn Hymnodia gjörning og listamannaspjall verður með Örnu kl. 20. Listasafnið verður opið til kl. 22 vegna Akureyrarvöku.
Í tilefni sýningarinnar kemur út vönduð sýningarskrá hönnuð af Sigríði Snjólaugu Vernharðsdóttur með texta á íslensku og ensku eftir Dr. Hlyn Helgason: Hlutverk raddarinnar í Staðreyndum 14 er sérstakt og áberandi. Það er persónulegt og tengist Örnu sjálfri. Það er hennar rödd sem ómar í sýningarrýminu. Ómurinn er hennar leið til að skrá rýmið og tileinka sér það. Eins og fugl sem helgar sér svæði með kvaki sínu gerir Arna rýmið að sínu með því að raula í því. Í sýningarsalnum ómar lag sem listakonan velur út frá tengingum við liðna viðburði og upplifun sína af svæðinu.
Sýningin stendur til 12. október og er opin þriðjudaga til sunnudaga kl. 12-17. Leiðsögn um sýningarnar í Listasafninu / Ketilhúsinu er alla fimmtudaga kl. 12. Aðgangur er ókeypis.
https://www.facebook.com/events/771618509567420
22.8.2014 | 00:05
Íslenskir listamenn gera ekkert í Danmörku

Verkefnið Núll er samstarf tveggja íslenskra, en ólíkra listamanna í Árósum, Danmörku. Hugmyndin um tómarúmið og alheiminn, það sem er ekki og það sem er, dró þau Freyju Reynisdóttur og Arnar Ómarsson saman. Starandi útí himingeiminn var ákveðið að búa til ekkert. Verkefnið dregur upp mynd af óstjórnlegri skilgreiningaráráttu mannsins yfir fimm vikna tímabil sem inniheldur listasmiðjur, samstarf, bókverk og sýningu. Yfirlýst markmið er að búa til ekkert, sem kallar á grundvallar frumspekilega nálgun á hlutinn og orðið. Verkefnið fellir frá alla mótaða skilgreiningu og endurhugsar hugmyndina um hlutinn og orðið.
Fylgist með á whyissomethingratherthannothing.com
Verkefnið er styrkt af Reykjavíkurborg, SÍM, Myndstefi, D.A.K, Institut for (X) og Aarhus Billedkunstcenter, en unnið í samstarfi við Háskóla Árósa og Lodret hönnunarstofu.
Hafðu samband ef þú hefur áhuga á frekari upplýsingum hafðu samband með því að svara þessum pósti.
Bestu kveðjur,
Freyja og Arnar
20.8.2014 | 08:45
Dansflokkur Rebeccu Wong frá Hong Kong í Ketilhúsinu og í Alþýðuhúsinu
Dancing in the Gallery
Dansflokkur Rebeccu Wong frá Hong Kong
Fimmtudagur ágúst 21. Kl. 16:00-17:00 | Ketilhúsið, Akureyri
Laugardagur ágúst 23. Kl. 20:30-21:30 | Alþýðuhúsið, Siglufjörður
Verið velkomin
Trailer: http://youtu.be/_tOzw5SHbWc
Upplýsingar: www.listhus.com
Alice Liu
Listhús
+354 8449538
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 13:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.8.2014 | 14:39
ENDURHÖNNUN Á AMTSBÓKASAFNINU Á AKUREYRI
Þegar hlutir hafa lokið hlutverki sínu er hægt að skapa þeim nýjan tilgang með hugkvæmni og listfengi. Á Amtsbókasafninu Á AKUREYRI hefur verið sett upp sýning þar sem fimm konur sýna hvernig gamlir hlutir, gömul föt og jafnvel skyndibitaumbúðir geta breyst í listaverk eða nytjahluti. Hér er bæði endurunnið og endurhannað.
Þær sem sýna eru:
Eygló Antonsdóttir Draumafangarar og teiknimyndasögur
Halla Birgisdóttir Mósaík, kross og hjörtu
Helga Björg Jónasardóttir Barnaföt
Halldóra Björg Sævarsdóttir Kjólar
Jónborg Sigurðardóttir Blómapottar og slæðukjóll
Skilaboð þessara skapandi kvenna eru að við hættum að henda og reynum frekar að finna hlutum nýtt hlutverk.
Sýningin stendur til 31. ágúst og er opin á afgreiðslutíma safnsins.
14.8.2014 | 23:31
Allt er ömurlegt í Geimdósinni
Ég vil að allt snúist um mig og ég vil vera þátttakandi í þróuðum kapítalisma nútíma samfélagsins.
Útgáfu Allt er ömurlegt magasín 4 eftir Egil Loga Jónasson, verður fagnað í Geimdósinni laugardaginn 16. ágúst næstkomandi.
Tímaritið er gefið út í tíu tölusettum eintökum og kostar stykkið 1000 krónur.
Allt er ömurlegt magasín er gefið út af föndraranum Drengnum fengnum og inniheldur ást, tilfinningar og erótík.
Tölublað fjögur er unnið útfrá ljóðinu Glannreiðar eftir Heklu Björt Helgadóttur:
Glannreiðar
Nú bærist ei nafn kærleikans
í hjörtum ungra sveina sem kalla sig vilja merakónga
Mundandi beislin
innan brundbleyttra vara
nakinna útglenntra meyja
er þeir ríða á hlemmiskeiði
en hvað fela þeir undir því?
Síður bærist nafn kærleikans
í brjóstum ungra meyja
er kalla sig vilja gljátíkur
Ambáttir hvimleiðra þarfa
annara en þeirra sjálfra
en hvað fela þær undir því?
Sannmenntuð kona gleðinnar
drengur sem ákallar glannreiðar
útspýttu börnin gæfunnar þjökuð af samlífsstreitu
allt saman
hugnæm samvera
í gervingu
hamslausra samfara
Varla þarf að minna fólk á hve velkomið það er
og ef einhver vill afla sér frekari upplýsinga um Drenginn eru þær að finna hér:
https://www.facebook.com/drengurinn
http://www.drengurinn.portfoliobox.me/
ókei.
https://www.facebook.com/events/611196158998565
13.8.2014 | 22:54
Síðasta leiðsögn um Íslensk samtíðarportrett
Á morgun, fimmtudaginn 14. ágúst, kl. 12 verður síðasta leiðsögnin um sumarsýningu Listasafnsins, Íslensk samtíðarportrett mannlýsingar á 21. öld, en henni lýkur næstkomandi sunnudag, 17. ágúst. Guðrún Pálína, fræðslufulltrúi, mun fræða gesti um tilurð sýningarinnar og fjalla um einstök verk og er aðgangur ókeypis.
Á sýningunni gefur að líta hvernig 70 listamenn hafa glímt við hugmyndina um portrett frá síðustu aldamótum til dagsins í dag. Að einskorða sig við portrett er ein leið til að skoða á hvaða hátt íslenskir listamenn fjalla um samtíðina. Viðtökur hafa verið mjög góðar og aðsóknin mikil þar sem gestir telja nokkur þúsund.
Á meðal listamanna sem eiga verk á sýningunni má nefna Erró, Ragnar Kjartansson, Kristínu Gunnlaugsdóttur, Hallgrím Helgason, Steinunni Þórarinsdóttur, Hugleik Dagsson, Aðalheiði S. Eysteinsdóttur, Baltasar Samper og Ólöfu Nordal.