Færsluflokkur: Menning og listir
4.3.2015 | 13:39
Listnámsbraut VMA í Listasalnum Braga
Nemendur á listnámsbraut VMA hafa unnið hörðum höndum síðustu daga að skemmtilegum innsetningum, málverkum, gjörningum og fleira. Hér hefur áherslan verið lögð á hugmyndavinnu, skissur, ókláruð verk og lifandi vinnustofu. Ferlið í fyrsta sæti!
Endilega kíkið við fimmtudaginn 5. mars 2015 frá kl 16:00 - 18:00 og sjáið framtíðar listafólk norðursins að störfum.
https://www.facebook.com/events/1067642716595836
Listasalurinn Bragi, Rósenborg, 3. hæð, Skólastígur 2, 600 Akureyri
4.3.2015 | 13:15
KAKTUS opnar í Listagilinu á Akureyri
Í tilefni fyrstu opnunnar KAKTUS, laugardaginn 7. mars,
bjóðum við alla hjartanlega velkomna á listasýningu stofnenda rýmisins
kl. 15:00 - 17:00.
//////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////
Síðar um kvöldið verða TÓNLEIKAR
Húsið opnar kl. 20:00.
FRAM KOMA:
> PITENZ (http://pitenz.bandcamp.com/)
> KÆLAN MIKLA (https://soundcloud.com/kaelan-mikla)
/////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////
www.kaktusdidsomeart.com
www.facebook.com/kaktusdidsomeart
event: https://www.facebook.com/events/949610095051387
Kaktus er lista og menningarrými sem stendur fyrir fjölbreyttri lista-, menningar- og fræðslustarfssemi. Kaktus er staðsettur í miðju listagilinu þar sem Populus Tremula starfaði áður. Stjórnendur Kaktus eru sex talsins (Anne Balanant, Áki Sebastian Frostason, Brák Jónsdóttir, Freyja Reynisdóttir, Hekla Björt Helgadóttir og Jónína Björg Helgadóttir) og saman vinna þau að því að göfga akureyskt menningarlíf. Kaktus býður upprennandi lista- og hugsjónafólki að nýta rýmið á margskonar máta og á dagskrá eru listasýningar, tónlistarviðburðir, ljóðakvöld, bíódagsskrá, örnámskeið, hefðbundnir fyrirlestrar og frumlegri viðburðir, svo fáeitt sé nefnt.
Til viðbótar við opinberu dagsskána nota stjórnendur Kaktus rýmið fyrir eigin listavinnustofur og starfa þar við eigin listiðju flesta daga vikunnar en athugið að opnunartímar eru háðir viðveru stjórnenda.
//kaktus is a exhibition / performance venue and artist workspace in listagilid, the art street, in akureyri, iceland. kaktus arranges shows, events and educational events related to arts and culture.
Þriðjudaginn 3. mars kl. 17 heldur Elísabet Ásgrímsdóttir fyrirlestur í Listasafninu, Ketilhúsi undir yfirskriftinni Listakonan í Fjörunni.
Á fyrirlestrinum skoðar Elísabet feril ömmu sinnar og nöfnu Elísabetar Geirmundsdóttur sem var fjölhæf alþýðulistakona. Hún er ef til vill þekktust fyrir höggmyndir sínar þó hún gerði einnig málverk, teikningar, myndskreytti bækur, hannaði hús og merki og samdi ljóð og lög. Yfirlitssýning á verkum Elísabetar Geirmundsdóttur hefur staðið í Listasafninu síðan 10. janúar en henni lýkur næstkomandi sunnudag, 8. mars.
Elísabet Ásgrímsdóttir hefur fengist við myndlist til fjölda ára og útskrifast í vor frá fagurlistadeild Myndlistaskólans á Akureyri.
Þetta er sjöundi Þriðjudagsfyrirlestur ársins og sem fyrr fara þeir fram í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi á hverjum þriðjudegi kl. 17. Aðgangur er ókeypis.
Fyrirlestraröðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Verkmenntaskólans á Akureyri, Háskólans á Akureyri og Myndlistaskólans á Akureyri. Aðrir fyrirlesarar vetrarins eru Katrín Erna Gunnarsdóttir, María Rut Dýrfjörð, Jón Páll Eyjólfsson og Hildur Friðriksdóttir.
27.2.2015 | 12:21
ÞRIÐJA OPNUN SALT VATN SKÆRI
Á föstudagskvöld verður þriðja opnun bókverksins og samstarfsins SALT VATN SKÆRI. Annar hluti bókarinnar heitir VATN og á föstudagskvöldinu gefst gestum kostur á að vera viðstaddir frumsýningu á nýu verki, aðeins sýnt þessa einu helgi.
Samstarfið er í raun yfirstandandi 14 vikna gjörningur sem felur í sér að lifa sig í gegnum og að túlka texta nóvellunnar í myndlistarverkum en verkefnið snýr fyrst og fremst að listrænni túlkun og þróun sögunnar.
Samstarfið hefur hingað til reynst mjög krefjandi og persónulegt viðfangsefni en Freyja og Hekla vinna meðal annars að því að kynnast og komast inn í hugarheim hvor annarrar þar sem mörkin milli þeirra eigin hversdagsleika og söguheims bókarinnar eru óskýr.
Það er á þessum mörkum sem verk þessara sýninga verða til. Öll okkar samskipti eru hluti af og mynda frumsýnt verk, annan hvern föstudag.
Að verkefninu standa Freyja Reynisdóttir og Hekla Björt Helgadóttir, en þær búa og starfa saman að SALT VATN SKÆRI í Kaupvangsstræti 23 í Listagilinu á Akureyri.
Föstudagskvöldið 27. febrúar.
Húsið opnar klukkan 20:00 og verður opið til 23:30.
Allir eru hjartanlega velkomnir!
Facebook event: https://www.facebook.com/events/654185244686255
www.salt-water-scissors.com
http://salt-water-scissors.com/freyja
http://salt-water-scissors.com/hekla
25.2.2015 | 11:41
Arnar Ómarsson opnar í vestursal Listasafnsins á Akureyri
Laugardaginn 28. febrúar kl. 15 verður opnuð í vestursal Listasafnsins á Akureyri sýning Arnars Ómarssonar, MSSS.
MSSS (Mega Space Super Station) er upplifunarinnsetning þar sem listamaðurinn leikur sér á mörkum skáldskapar og vísinda. Á sýningunni fjallar Arnar um samskipti tölvunnar við menn og horfir sérstaklega til mennskrar hliðar tölvunnar. Sú iðja kveikti áhuga hans á framtíðarspám og tengslunum milli vísindaskáldskapar og geimvísinda. Þar liggur mikil og heillandi óvissa um framtíðina. Hvernig hefur vísindaskáldskapur breytt viðhorfi okkar til vísinda? Eru vísindaframfarir að einhverju leyti byggðar á vísindaskáldskap? Þetta viðfangsefni er stútfullt af myndlíkingum, fallegu myndmáli og byggir á ríkri spádómsmenningu sem teygir sig árhundruð aftur í tímann.
Arnar Ómarsson hefur starfað sem listamaður í Danmörku og á Íslandi frá því hann lauk námi í London 2011. Hann notar eðli mannsins sem viðfangsefni og vinnur með samband hans við umhverfið í ýmsum myndum. Hann er annar skipuleggjenda Reita á Siglufirði og rekur gestavinnustofu í Danmörku.
MSSS lýkur 8. mars og er síðasta sýningin í röð 8 vikulangra sýninga í vestursal Listasafnsins sem hófst 10. janúar síðastliðinn. Habby Osk, Brenton Alexander Smith, Jóna Hlíf Halldórsdóttir, Kristján Pétur Sigurðsson, Thora Karlsdottir og Joris Rademaker hafa þegar sýnt og nú stendur yfir sýning Lárusar H. List, Álfareiðin. Lokunarteiti MSSS fer fram laugardaginn 7. mars kl. 15.
https://www.facebook.com/events/1574949969418806
Þriðjudaginn 24. febrúar kl. 17 heldur heimspekingurinn Guðmundur Heiðar Frímannsson fyrirlestur í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi undir yfirskriftinni Á dauðans tími að vera óviss?
Á fyrirlestrinum skoðar Guðmundur Heiðar stöðu líknardráps og reynir að svara því hvort við eigum að geta ráðið dauðastund okkar sjálf. Hvaða rök hníga til þess og hvað mælir gegn því? Reynt verður að rökstyðja þá skoðun að við vissar kringumstæður kunni það að vera siðferðilega réttlætanlegt að stytta líf sitt og fá aðstoð til þess.
Guðmundur Heiðar Frímannsson er prófessor í heimspeki við Háskólann á Akureyri. Hann lauk doktorsprófi í siðfræði frá Háskólanum í St. Andrews í Skotlandi.
Þetta er sjötti Þriðjudagsfyrirlestur ársins og sem fyrr fara þeir fram í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi á hverjum þriðjudegi kl. 17. Aðgangur er ókeypis.
Fyrirlestraröðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Verkmenntaskólans á Akureyri, Háskólans á Akureyri og Myndlistaskólans á Akureyri. Aðrir fyrirlesarar vetrarins eru Elísabet Ásgrímsdóttir, Katrín Erna Gunnarsdóttir, María Rut Dýrfjörð, Jón Páll Eyjólfsson og Hildur Friðriksdóttir.
https://www.facebook.com/events/414270212068620
19.2.2015 | 09:14
Pi Bartholdy opnar ljósmyndasýningu í Deiglunni
Pi Bartholdy opnar ljósmyndasýningu í Deiglunni í Listagilinu á Akureyri laugardaginn 21. febrúar kl. 14:00. Sýningin ber titilinn "Harbinger".
Pi er gestalistamaður febrúarmánaðar í gestavinnustofu Gilfélagsins.
Sýningin verður opin laugardaginn 21. febrúar og sunnudaginn 22. febrúar frá 14-17.
Hún segir sjálf:
"On Gilfelag residency I started a new photographic project with the theme being the big nature seen and felt from the perspective of the human. Working with images where the great nature is overwhelming and everything can be heard in the silence between the small towns. Digging into a mysterious universe where something can be hiding in shadows and corners.
Using the melancholy that it brings, the surrealism and the darkness. The feeling of standing alone in it and being a part of it."
https://www.facebook.com/events/879203205488705
18.2.2015 | 22:22
Jonna opnar sýninguna "Strange fruit" í Flóru
Jónborg (Jonna) Sigurðardóttir
Strange fruit
21. febrúar - 13. mars 2015
Opnun laugardaginn 21. febrúar kl. 14
Flóra, Hafnarstræti 90, 600 Akureyri, s. 6610168
http://floraflora.is
https://www.facebook.com/flora.akureyri
https://www.facebook.com/events/625705467559801
Laugardaginn 21. febrúar kl. 14 opnar Jonna, Jónborg Sigurðardóttir sýninguna Strange fruit í Flóru á Akureyri.
Jonna er fædd árið 1966 og útskrifaðist úr málunardeild Myndlistarskólans á Akureyri vorið 1995. Myndlist Jonnu spanar vítt svið frá málverki til innsetninga.
Í ár eru 100 ár frá því að konur á Íslandi fengu kosningarétt, og er Strange fruit tilvitnun í það óréttlæti og vanvirðingu sem konur máttu þola. Víða um heim eru konur enn réttindalausar og búa við ofríki karla.
Ég þakka fyrir að vera kona á Íslandi. Til hamingju með 100 ára réttlæti.
Strange fruit eru hekluð verk máluð með akrýllitum hengd á viskastykkjatré með útsaumi.
Sýningin er öllum opin á opnunartíma Flóru fimmtudaga kl. 11-18, föstudaga kl. 11-16 og laugardaga kl. 11-14. Sýningin stendur til föstudagsins 13. mars 2015.
Nánari upplýsingar veitir Kristín Þóra Kjartansdóttir í síma 661 0168 og Jónborg Sigurðardóttir í síma 848 8490.
Flóra er verslun og viðburðastaður með vinnustofum sem Kristín Þóra Kjartansdóttur félagsfræðingur rekur. Áherslan er á nýtingu, endurnýtingu, náttúrutengsl og verkmenningu. Menningardagskrá Flóru hlaut styrk úr Menningarsjóði Akureyrar.
18.2.2015 | 17:59
Úlfhildur Dagsdóttir með fyrirlestur í Alþýðuhúsinu á Siglufirði
Laugardaginn 21. feb. kl. 20.00 verður Úlfhildur Dagsdóttir með fyrirlestur í Alþýðuhúsinu á Siglufirði undir yfirskriftinni
Vampýrur: kjaftur og klær
Í næstum því tvær aldir hefur vampýran notið ódauðlegra vinsælda í skáldskap og kvikmyndum. Ímynd hennar hefur þó tekið miklum breytingum, svo og hugmyndir okkar um vampýrur. Lengi vel var greifinn Drakúla þekktasta vampýran, en skáldsagan um hann kom fyrst út árið 1897. Ég ætla að leggja áherslu á Drakúla og fjalla sérstaklega um hvernig hann hefur birst í kvikmyndum. Sýnd verða brot úr nokkrum þekktum Drakúla-myndum, með áherslu á Nosferatu (1922), Dracula (1931) og Bram Stokers Dracula (1992).
mailto:varulfur@centrum.is
garmur.is/varulfur
Fólk er hvatt til að draga fram Vampýruna í sér og mæta í búningi.
Enginn aðgangseyrir, en tekið á móti frjálsum framlögum. Allir velkomnir.
Fjallabyggð, Menningarráð Eyþings og Fiskbúð Siglufjarðar eru stuðningsaðilar Alþýðuhússins.
Nánari upplýsingar hjá Aðalheiði í síma 865-5091
18.2.2015 | 15:14
Lárus H. List sýnir í vestursal Listasafnsins á Akureyri
Laugardaginn 21. febrúar kl. 15 verður opnuð í vestursal Listasafnsins á Akureyri sýning Lárusar H. List, Álfareiðin. Samskipti manna við álfa og huldufólk eru listamanninum hugleikin á sýningunni. Huldufólk býr í klettum eða steinum og iðkar búskap sinn líkt og mennirnir. Háskalegt er jafnan að styggja álfa en sé þeim gerður greiði eru ríkuleg laun vís.
Sýningin verður opin sunnudag, þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag kl. 12-17. Henni lýkur formlega fimmtudaginn 26. febrúar kl. 15 með lokunarteiti.
Lárus H. List hefur haldið yfir 20 einkasýningar og tekið þátt í fjölmörgum samsýningum á Íslandi og erlendis. Lárus vinnur aðallega með olíu og akríl á striga en einnig í önnur form eins og ljósmyndir, ritlist, videolist og hljóðlist. Hann hefur einnig samið klassískar tónsmíðar og gefið út skáldsögur.
Sýningin er hluti af röð 8 vikulangra sýninga sem hófst 10. janúar og mun standa til 8. mars. Habby Osk, Brenton Alexander Smith, Jóna Hlíf Halldórsdóttir, Kristján Pétur Sigurðsson og Thora Karlsdottir hafa þegar sýnt og nú stendur yfir sýning Jorisar Rademaker, Hreyfing. Sýningaröðinni lýkur með sýningu Arnars Ómarssonar MSSS sem opnar laugardaginn 28. febrúar kl. 15.
https://www.facebook.com/events/775353242531431
https://www.facebook.com/listasafnid.akureyri
https://twitter.com/AkureyriArt
http://instagram.com/listak.is