Færsluflokkur: Menntun og skóli
2.4.2008 | 17:32
Síðustu forvöð að sækja um starfslaun listamanna á Akureyri
Ætlast er til að viðkomandi listamaður helgi sig list sinni eða einstökum verkefnum á vettvangi hennar á starfslaunatímanum og einungis listamenn sem eiga lögheimili á Akureyri koma til greina.
Umsækjendur skili, ásamt umsókn, upplýsingum um listferil sinn og greinargóðum upplýsingum um hvernig starfslaunatíminn skal notaður. Umsóknum skal skilað í þjónustuanddyri ráðhússins að Geislagötu 9.
Nánari upplýsingar veitir Hulda Sif Hermannsdóttir verkefnisstjóri viðburða- og menningarmála hjá Akureyrarstofu í netfanginu huldasif@akureyri.is eða í síma 460-1157. Umsóknarfrestur er til og með 2.apríl.
Menntun og skóli | Breytt s.d. kl. 17:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.3.2008 | 11:33
Konur í ljósmyndasögunni - Fyrirlestur í Ketilhúsinu

Anna Fjóla Gísladóttir ljósmyndari, mun flytja fyrirlestur um konur í ljósmyndasögunni í Ketilhúsinu í Listagili á Akureyri föstudaginn 28. mars, kl 14.50.
Dagskráin er hluti af Fyrirlestrum á vordögum, sem eru fjórir fyrirlestrar um efni sem tengjast listum og menningu. Þeir eru skipulagðir af kennurum á listnámsbraut Verkmenntaskólans á Akureyri í samvinnu við Listasafnið á Akureyri og Menningarmiðstöðina í Grófargili.
Anna Fjóla mun fjalla um og sýna myndir eftir u.þ.b. 10 konur allt frá 1850- 2007, m.a, Julia Margaret Cameron, Lee Miller, Mary Ellen Mark, Sally Man, og fleiri.
Dagskráin mun standa í um eina klukkustund.
Aðgangur er ókeypis.
Allir velkomnir
Listnámsbraut Verkmenntaskólans á Akureyri, Listasafnið á Akureyri og Menningarmiðstöðina í Grófargili.
26.3.2008 | 10:07
Listamiðstöðin Nes á Skagaströnd
Stofnfundur Ness listamiðstöðvar var haldinn á Skagaströnd fimmtudaginn 6. mars og voru stofnendur sveitarfélagið Skagaströnd og Byggðastofnun. Stofnunin leggur félaginu til fasteignina að Fjörubraut 8 á Skagaströnd, en þar var áður rekin fiskvinnsla. Þar verður nú rekin alþjóðleg listamiðstöð með gestavinnustofum fyrir innlenda og erlenda listamenn og fjölskyldur þeirra. Í samstarfi við þá listamenn sem dvelja tímabundið í Nesi sem og aðra verður í náinni framtíð sýningarhald og kynning á menningu og hvers konar listum. Jafnfram verður lögð áhersla á samvinnu við starfandi félög listamanna í landinu svo sem SÍM og BÍL, en allir liðsmenn þeirra samtaka geta sótt um dvöl í gestavinnustofunum.
Fyrsti umsóknarfrestur til dvalar í listavinnustofunni verður 15. apríl næstkomandi fyrir tímabilið frá júní 2008 til mars 2009. Umsóknir vera í fyrstu afgreiddar í samvinnu við SÍM Samband Íslenskra Myndlistarmanna og fyrsti umsóknarfrestur er 15.apríl n.k fyrir 1-6 mánaða tímabil. Seinni umsóknarfrestur ársins er 1. september 2008. Verð fyrir mánaðar dvöl er frá 40.000 - 65.000 krónum. Innifalið í verðinu er herbergi eða íbúð, með sameiginlegu eldhúsi og baði, ásamt vinnustofu. Í boði eru herbergi fyrir einstaklinga sem og íbúðir fyrir listamenn með fjölskyldur þeirra. Gestalistamenn sjá sjálfir um ferðir og uppihald.
Nes listamiðstöð verður vígð á sjómannadaginn 31. maí og eru allir melimir SÍM og BÍL velkomnir á opnunarhátíðina. Frá og með þeim degi koma jafnframt fyrstu listamennirnir til mánaðar dvalar eða lengur. Stjórn Ness mun því þurfa að láta hendur standa fram úr ermum næstu mánuði til að vel megi takast að taka á móti listamönnunum.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublað er að finna á www.neslist.is
26.3.2008 | 09:48
Norrænir menningarsjóðir
Næsti umsóknarfrestur Norræna menningarsjóðsins er 1. apríl.
Næsti umsóknarfrestur Dansk-íslenska samstarfssjóðsins er 15. apríl.
Athugið að umsóknarfrestur Menntaáætlunar Nordplus er framlengdur til 21. apríl. Sjá www.ask.hi.is
Nánari upplýsingar veitir:
María Jónsdóttir
Forstöðumaður Norrænu upplýsingaskrifstofunnar
Leder Nordisk informationkontor
Netfang/e-post: mariajons(hjá)akureyri.is
www.akmennt.is/nu
Norræna upplýsingaskrifstofan/Nordisk informationkontor
Kaupvangsstræti 23
600 Akureyri
Island.
Sími: 462 7000 Fax: 462 7007
25.3.2008 | 15:03
CIA.IS styrkir vegna stærri verkefna erlendis

Við viljum hvetja ykkur til að sækja um styrki vegna stærri verkefna erlendis.
Stærri styrkjunum fyrir verkefni á þessu ári og fyrri hluta ársins 2009 verður úthlutað í einni lotu nú í apríl. Fjárveiting til listamanna verður aukin á árinu og nemur hver styrkur nú 400 þúsund að hámarki.
Frestur til að sækja um stærri styrkina er til 18.apríl.
Nánari upplýsingar um styrkjakerfið er að finna á vefsíðunni http://cia.is/styrkir/index.htm
Styrkir vegna umfangsminni verkefna með skemmri fyrirvara eru veittir reglulega og er tekið við slíkum umsóknum a.m.k. 30 dögum áður en verkefni hefst.
Iceland Express styrkir listamenn vegna verkefna erlendis gegnum styrkjakerfi Kynningarmiðstöðvarinnar allan ársins hring.
Að þessu sinni veitir Iceland Express listamönnum einnig flugmiða samtals að andvirði 300 þúsund króna til stærri verkefna á áfangastöðum flugfélagsins.
Styrkveitingar verða kynntar með viðhöfn í byrjun maí.
Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar
Center for Icelandic Art - CIA.IS
Hafnarstræti 16
101 Reykjavík
tel: +354-562-7262
fax:+354-562-6656
www.cia.is
www.artnews.is
Menntun og skóli | Breytt s.d. kl. 15:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.2.2008 | 00:17
Georg Óskar sýnir Finnlandsverk í Deiglunni

Georg Óskar Manúelsson, 2. árs nemi við Myndlistarskólann á Akureyri, opnar sýningu þann 1. mars næstkomandi í Deiglunni. Sýnir hann verk sem hann gerði er hann dvaldist í Finnlandi. Þar stundaði hann skiptinám við Lahti University of Applied Sciences veturinn 2007. Einnig sýnir hann verk sem hann vann að lokinni dvölinni.
Sýningin verður opnuð klukkan 15 laugardaginn 1. mars og er aðeins opin þessa einu helgi.
19.2.2008 | 00:01
Sveinbjörg Ásgeirsdóttir sýnir á Gráa svæðinu
Sveinbjörg Ásgeirsdóttir sýnir á Gráa svæðinu - galleríi Þelamerkurskóla. Sýningin verður hún fram í miðjan mars. Hægt er að skoða sýninguna milli kl. 8.30 og 14.30 alla virka daga.
Sveinbjörg Ásgeirsdóttir - Sveinka útskrifaðist úr Myndlistaskólanum á Akureyri vorið 2007. Hún hefur tekið þátt í nokkrum samsýningum og er þetta önnur einkasýning hennar. Sveinka vinnur í því efni sem hentar hverju viðfangsefni, og við skúlptúr og málverk jöfnum höndum. Í þetta sinn sýnir hún bæði akríl- og olíumálverk þar sem hún reynir að fanga hreyfingu og karakter hrossa.
Sveinka er félagi í Grálist.
18.2.2008 | 09:24
Lára Stefánsdóttir með ljósmyndasýningu á Staðnum
Lára Stefánsdóttir fjarnemandi í meistaranámi í heimildaljósmyndun í Academy of Art University í San Fransisco opnaði ljósmyndasýningu á veitingastaðnum Staðurinn, Skipagötu 2, á Akureyri, laugardaginn 16. janúar kl. 16:00. Yfirskrift sýningarinnar eru "Mannsins merki við Glerá" og fjallar um samspil Glerár við umhverfi sitt.
29.1.2008 | 11:47
Ásdís Arnardóttir opnar sýningu á Bókasafni Háskólans á Akureyri
Ásdís Arnardóttir opnar myndlistasýningu á Bókasafni Háskólans á Akureyri laugardaginn 2. febrúar kl. 15:00. Sýningin mun standa til 1. mars.
Ásdís nam fyrst við Myndlistaskólann á Akureyri 1995-1996, síðan í Myndlista- og handíðaskóla Íslands og lauk prófi frá málunardeild árið 1999. Auk þess hefur hún tekið ýmis námskeið í steinhöggi m.a. við Accademia di Belle Arti, Bologna og hjá Einari Má Guðvarðarsyni, myndhöggvara.
Hún hefur m.a. starfað við Menningarmiðstöðina Gerðuberg og hjá Listasafni Kópavogs, Gerðarsafni. Að undanförnu hefur hún eingöngu unnið að eigin list.
Á sýningunni á bókasafninu eru myndir málaðar með vatnslitum á hríspappír. Myndefnið sækir Ásdís í ljósmyndir frá miðjum 8. áratug síðustu aldar, sem teknar voru á Kodak Instamatic myndavél af einfaldri gerð. Í verkunum kallast á innileiki ljósmyndarinnar og sú tilfinning sem myndast við samspil pappírs og litar. Um leið segir hver mynd örsögu úr nálægri fortíð.
Bókasafn Háskólans á Akureyri er opið alla virka daga frá 8:00 18:00 og á laugardögum frá 12:00 15:00.
Allir eru velkomnir
Menntun og skóli | Breytt s.d. kl. 11:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
16.1.2008 | 13:33
Guðrún Pálína Guðmundsdóttir opnar málverkasýninguna Andlit, í Jónas Viðar Gallerýi
Laugardaginn 19.janúar kl. 14.30 opnar Guðrún Pálína Guðmundsdóttir málverkasýninguna Andlit, í Jónas Viðar Gallerýi. Sýningin stendur til og með 9.febrúar. Galleríið er staðsett í Listagilinu á jarðhæð listasafnsins og er opið á föstu- og laugardögum frá kl. 13.-18 og aðra daga eftir samkomulagi.
Guðrún Pálína er fædd og búsett á Akureyri. Hún nam myndlist í Gautaborg og í Hollandi, og kláraði framhaldsnám frá Jan van Eyck Akademie 1987. Hún hefur sýnt reglulega síðan. Hún fæst mest við andlitsmyndagerð og vinnur innsetningar í rými byggð á persónulýsingum stjörnukorta viðkomandi einstaklinga. Hún starfrækir listagalleríið Gallerí +, í Brekkugötu 35 ásamt eiginmanni sínum Joris
Rademaker. Flest verkin á sýningunni eru unnin 2008.