Síðustu forvöð að sækja um starfslaun listamanna á Akureyri

Stjórn Akureyrarstofu auglýsir eftir umsóknum listamanna um starfslaun fyrir tímabilið 1. júní 2008 til 31. maí 2009.  Starfslaunum verður úthlutað til tveggja listamanna og hlýtur hvor um sig sex mánaða laun.

Ætlast er til að viðkomandi listamaður helgi sig list sinni eða einstökum verkefnum á vettvangi hennar á starfslaunatímanum og einungis listamenn sem eiga lögheimili á Akureyri koma til greina.

Umsækjendur skili, ásamt umsókn, upplýsingum um listferil sinn og greinargóðum upplýsingum um hvernig starfslaunatíminn skal notaður.  Umsóknum skal skilað í þjónustuanddyri ráðhússins að Geislagötu 9.

Nánari upplýsingar veitir Hulda Sif Hermannsdóttir verkefnisstjóri viðburða- og menningarmála hjá Akureyrarstofu í netfanginu huldasif@akureyri.is eða í síma 460-1157. Umsóknarfrestur er til og með  2.apríl.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband