4.3.2012 | 10:28
Sýningarlok og spjall Guðrúnar Þórsdóttur í Flóru, Listagili
Guðrún Þórsdóttir - spjall í Flóru
þriðjudaginn 13. mars 2012 kl. 20
Sýning Guðrúnar Þórsdóttur Ekkert hlutverk hefur staðið í Flóru frá því í janúar og hefur nú verið framlengd til og með laugardagsins 17. mars. Nú fer hver að verða síðastur að sjá sýninguna, en gott tækifæri gefst einmitt til þess þriðjudaginn 13. mars en þá er hægt að hitta á Guðrúnu og ræða um verk hennar og pælingar í góðu tómi.
Guðrún hefur verið að skoða heimildaljósmyndun í vetur í Myndlistaskólanum á Akureyri þar sem hún mun ljúka námi úr fagurlistadeild í vor. Hún stefnir á meira nám í myndlist áður en langt um líður. Guðrún hefur unnið við ýmislegt um tíðina og þá aðallega í menningar- og mannúðarmálum og fer það vel með myndlistinni.
Guðrún segir um sýninguna: "Mikið er um fordóma hér á landi og sérstaklega gagnvart asískum eiginkonum. Ég var svo lánsöm að finna fjölskyldu sem var til í að láta mynda sig. Að vera fluga á vegg hjá fjölskyldu sem ég þekki ekkert, að ná tengslum og trausti er gerlegt með gagnkvæmri virðingu."
Flóra, Listagilinu á Akureyri, Kaupvangsstræti 23,
600 Akureyri, s. 6610168 www.floraflora.is
www.facebook.com/flora.akureyri
1.3.2012 | 23:39
Helga Jóseps vöruhönnuður með fyrirlestur í Ketilhúsinu
Fyrirlestur Helgu Jósepsdóttur sem ber yfirskriftina Lífið í Kastalanum, verður föstudaginn 2. mars kl. 15 í Ketilhúsi á vegum VMA og Sjónlistamiðstöðvarinnar
Helga Jóseps er vöruhönnuður og starfar sem yfirmaður Domaine de Boisbuchet, sumarnámskeiða fyrir hönnuði og arkitekta á vegum Vitra Design Museum, í Frakklandi.
Hún mun fræða okkur um sín verk, sitt líf í hringiðu hönnunarheimsins og líf og störf í Boisbuchet, sem í sumar mun bjóða upp á ótrúlegt úrval af námskeiðun stýrðum af heimsþekktum hönnuðum og arkitektum frá öllum heimshornum.
Sumarnámskeið Boisbuchet eru opin fyrir alla áhugasama um hönnun.
28.2.2012 | 13:35
Guðrún Pálína opnar myndlistarsýningu á Bókasafni Háskólans á Akureyri
Fimmtudaginn 1. mars kl. 16.00 18.00 mun Guðrún Pálína opna myndlistarsýningu á Bókasafni Háskólans á Akureyri.
Sýning Guðrúnar Pálínu er opin mánudaga og miðvikudaga frá kl. 8.00 16.00, þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 8.00 18.00 og stendur til 30. mars.
Sýningin er sú fjórða og síðasta í ættfræði-seríu sem Guðrún Pálína hefur unnið að síðustu árin og sýnt á Akureyri. Sýningin í Bókasafni Háskólans á Akureyri ber nafnið Maður fram af manni og fjallar um ættir móðurafa Guðrúnar Pálínu, Höskuldar Tryggvasonar frá Víðikeri í Bárðardal. Sýningin samanstendur af 8 litríkum málverkum á tréplötum sem hvíla á gólfi og hallast að veggjunum. Það er von Guðrúnar Pálínu að sýningin veki áhuga áhorfandans á eigin ættarsögu. Bak við hvern einstakling er líf og erfðaefni margra forfeðra og formæðra sem hafa áhrif á hver við erum og hvað við gerum.
Guðrún Pálína stundaði listnám í Hollandi og sótti námskeið í grafískri hönnun í eitt ár við Myndlistarskólann á Akureyri. Hún hefur haldið einkasýningar og tekið þátt í samsýningum, bæði á Íslandi og erlendis. Guðrún Pálína rekur ásamt eiginmanni sínum, Joris Rademaker, listgalleríið Gallerí+ á Akureyri.
Allir eru velkomnir.
Menning og listir | Breytt 29.2.2012 kl. 21:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.2.2012 | 21:07
Habby Osk sýnir í GalleríBoxi
Laugardaginn 3. mars kl. 14:00 opnar Habby Osk sýninguna Nothing Sticks - A drifters story í GalleríBoxi. Sýningin samanstendur af ljósmyndum úr hluta af ljósmyndaseríunni Nothing Sticks - A drifters story og mun bók koma út seinna á árinu með allri seríunni.
Nokkrum mánuðum eftir að Habby Osk útskrifaðist úr meistaranámi sínu í myndlist frá The School of Visual Arts í New York árið 2009, þá pakkaði hún ofan í ferðatösku og hefur síðan lifað sem eins konar drifter. Á þessum tíma hefur hún tekið fjöldann allan af ljósmyndum á ferðalögum sínum, sem spanna allt frá stórborgum yfir á fáfarnar slóðir.
Verk Habby Osk hafa verið sýnd víðsvegar um Evrópu og Bandaríkin. Nú síðast á The 8th Berlin International Directors Lounge Film and Video Festival og Re:Rotterdam Art Fair.
Sýningin stendur til 11. mars. Opnunartími um helgar 14:00-17:00 og á skrifstofutíma á virkum dögum. GalleríBOX, Kaupvangsstræti 10, 600 Akureyri.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 21:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.2.2012 | 22:09
Menningarsjóður Akureyrar og starfslaun listamanna
Auglýst hefur verið eftir umsóknum um styrki úr Menningarsjóði Akureyrarbæjar og umsóknum listamanna um starfslaun frá 1. júní 2012 til 31. maí 2013.
Stjórn Akureyrarstofu úthlutar styrkjum úr Menningarsjóði og er hlutverk sjóðsins að styrkja liststarfsemi og aðra menningarstarfsemi á Akureyri. Í ár verður sérstaklega horft til verkefna sem tengjast 150 ára afmæli Akureyrar.
Umsóknum skal skilað í þjónustuanddyri Ráðhússins, Geislagötu 9 og er hægt að nálgast þar eyðublöð eða hér á heimasíðu Akureyrarbæjar. Þess skal vandlega gætt að allar umbeðnar upplýsingar komi fram. Umsóknarfrestur er til 2. mars 2012.
Stjórn Akureyrarstofu auglýsir einnig eftir umsóknum listamanna um starfslaun fyrir tímabilið 1. júní 2012 til 31. maí 2013. Starfslaununum verður úthlutað til eins listamanns og hlýtur viðkomandi sex mánaða laun. Eyþór Ingi Jónsson, tónlistarmaður og organisti við Akureyrarkirkju, naut starfslaunanna 2011-2012.
Markmiðið með starfslaununum er að sá sem þau hlýtur geti helgað sig betur listsköpun sinni eða einstökum verkefnum á vettvangi hennar á tímabilinu. Einungis listamenn sem eiga lögheimili á Akureyri koma til greina.
Umsækjendur skulu skila, ásamt umsókn, upplýsingum um listferil sinn og greinargóðum upplýsingum um hvernig starfslaunatíminn skuli notaður. Umsóknum skal skila í Þjónustuanddyri ráðhússins að Geislagötu 9. Umsóknarfrestur er til og með 2. mars 2012.
Nánari upplýsingar um Menningarsjóðinn og starfslaun listamanna veitir Hulda Sif Hermannsdóttir verkefnastjóri hjá Akureyrarstofu en hún er með netfangið huldasif@akureyri.is.
23.2.2012 | 11:42
Henrjeta Mece sýnir í Populus Tremula
DIALOGUES ON UNCERTAINITY II
Henrjeta Mece
24.-25. febrúar 2012
Laugardaginn 24. febrúar kl. 14.00 mun kanadíska listakonan Henrjeta Mece opna myndlistarsýningu í Populus Tremula.
Henrjeta, sem hefur hlotið fjölda viðurkenninga og sýnt víða í Norður-Ameríku og Evrópu, dvelur um þessar mundir í gestavinnustofu Gilfélagsins á Akureyri.
Á sýningunni verður röð teikninga þar sem listakonan veltir fyrir sér ljóðrænu þess að komast af í nútímasamfélagi.
Einnig opið sunnudaginn 25. febrúar kl. 14.00-17.00. Aðeins þessi eina helgi.
21.2.2012 | 16:17
Sólveig Thoroddsen sýnir í Mjólkurbúðinni í Listagili
Sólveig Thoroddsen opnar sýninguna NORÐUR í Mjólkurbúðinni Listagili,
föstudaginn 24. febrúar kl. 17 og eru allir velkomnir.
Sólveig Thoroddsen um sýninguna Norður:
Sýning "Norður" byggir á dvöl minni á Svalbarða í nóvember síðastliðnum. Í
verkum mínum túlka ég áhrif náttúru, samfélags og umhverfis. Sérstaklega er
mér hugleikið sambandið milli manns og náttúru, aðlögun beggja afla hvort að
öðru og spennuna sem ríkir oft milli þessa ólíku en þó náskyldu afla, því
maðurinn er, þegar allt kemur til alls, hluti af náttúrunni.
Sólveig Thoroddsen útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands vorið 2010 og er
þetta fyrsta einkasýning hennar. Sólveig hefur tekið virkan þátt í
samsýningum og má þar nefna m.a. þátttöku Sólveigar í myndlistasýningunni
Nýjir Þjóðhættir á vegum Úti Á Túni Menningarfélags á Húsavík á mærudögum
2011 og í samsýningu Dieter Roth Akademíunnar í Verksmiðjunni á Hjalteyri
2010.
Sýningin NORÐUR stendur aðeins þessa einu helgi 24.-26.febrúar og er opið:
Föstudag kl.17-20
Laugardag og sunnudag kl.14-17.
ALLIR VELKOMNIR
Heimasíða Sólveigar Thoroddsen
s.8624896
solveigthoroddsen@gmail.com
Mjólkurbúðin á facebook
s.8957173
16.2.2012 | 22:40
Jolien Kramer sýnir í Sal Myndlistarfélagsins
Laugardaginn 18. febrúar 2012, klukkan 3 opnar í Sal okkar sýning Jolien Kramer. Hún er ung listakona frá Hollandi sem hefur dvalið undanfarið í Herhúsinu á Siglufirði. Hún vinnur mest með teikningar þar sem hún leggur áherslu á smáatriði og viðfangsefnið er fólk sem umbreytist í landslag ásamt vídeoverkum. Sýningin mun standa 3 helgar.
GalleríBOX
Salur Myndlistarfélagsins
Kaupvangsstræti 10
600 Akureyri
16.2.2012 | 14:23
Gestavinnustofur í Dale í Noregi lausar til umsóknar
NORDIC ARTISTS' CENTRE DALE | NORDISK KUNSTNARSENTER DALE is an Artist-in-Residence center funded by Norwegian Ministry Of Culture. The A-I-R program encourages international contacts for artists and focuses on visual arts including design, architecture and locally rooted practice. Nordic Artists' Centre Dale is situated in the village of Dale, the administrative center of the Fjaler municipality on the West Coast of Norway.
---
OPEN CALL: ARTIST-IN-RESIDENCE 2013
APPLICATION DEADLINE Thursday, March 15, 2012
8.2.2012 | 22:21
MÓBERGUR, RAFSTEINN OG SÆMUNKUR Í KETILHÚSINU
Laugardaginn 11. febrúar kl. 15 opnar ný sýning í Ketilhúsinu. Um er að ræða fyrstu sýningu á vegum Sjónlistamiðstöðvarinnar í þessum sal. Sýningin kallast Móbergur Rafsteinn Sæmunkur en það eru gamlar persónulegar nafngiftir sem listamennirnir Árni Valur Axfjörð, Hafsteinn Michael Guðmundsson og Jón Sæmundur Auðarson hafa dustað rykið af í tilefni sýningarinnar.
Listamennirnir þrír eiga það sameiginlegt að sækja innblástur til annars veruleika, hugar og sálar mannsins, andlegra heima, fornra leyndardóma og trúarbragða. Hver um sig hefur skapað sinn eigin hugmyndaheim sem fullur er af táknum og vísunum sem sótt eru til hinna fjölbreytilegustu hugmynda úr liðinni tíð en byggður er upp í sköpun og kyngimögnuðu andrúmslofti fortíðar, nútíðar og framtíðar.
Árni Valur Axfjörð Mórbergur er fæddur á Akureyri 14. maí 1970. Hann er sjálfmenntaður listamaður sem hefur þróað með sér sérstakan stíl allt frá því hann byrjaði fyrst að mála olíu á striga þegar hann var búsettur í Hollandi árið 1999. Næstu ár einbeitti hann sér að því að þróa þá leið sem hann vildi fara í listinni, læra á mismunandi miðla og tækni ásamt miklum lestri á heimspeki og andlegum fræðum. Á meðan þjóðir heimsins keppast við að tortíma sjálfum sér, og jörðinni, finnst mér ég knúinn til þess að veita fólki innsýn inn í þann veruleika sem við mér blasir. Sú hugsun að endir sé byrjun er allsráðandi. Þegar þessarri jarðvist lýkur vaknar maður upp af draumi og byrjar hið raunverulega líf, útskýrir Árni Valur, sem hélt sýna fyrstu sýningu í Dauða galleríinu sumarið 2010.
Hafsteinn Michael Guðmundsson Rafsteinn er fæddur í Reykjavík 17. nóvember 1976. Hann útskrifaðist úr grafíkdeild Myndlista- og handíðaskólans árið 1999. Lífið er Hafsteini hugleikið og dregur hann fram firrta eftirmynd af okkar heimi, Dystópíu með allri sinni undirliggjandi ógn og valdboði, skreyttan ljóðrænni grafík. Persónur myndverka Hafsteins eru erkitýpur sem hafa fengið að þróast í gegnum árin og ganga stundum aftur eða breyta um ham, þannig vísar ein mynd oft í aðra svo bæði verkin öðlast nýja merkingu. Hafsteinn hefur haldið níu einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga.
Jón Sæmundur Auðarson Sæmunkur er fæddur í Reykjavík 16. júní 1968. Hann útskrifaðist úr fjöltæknideild Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1999 og öðlaðist svo meistaragráðu í myndlist úr Glasgow School of Art árið 2001. Jón Sæmundur hefur unnið aðallega við innsetningar þar sem blönduð tækni málverk, skúlptúr, myndbandsverk og tónlist skapa ákveðið mynstur hugmyndalistar. Líf og dauði er mikilvægt viðfangsefni í list Jóns en hann greindist jákvæður af HIV smiti árið 1994. Á þeim tímapunkti upplifði hann kröfuna um að yfirstíga ótta sinn við dauðann. Þessi hugmynd varð upphafið að Dead sem er marglaga konsept en þar vinnur hann með myndlist, tónlist, netsjónvarp og fatnað undir merkinu Dead.
Sýningin stendur til 11. mars og er opin alla daga nema mánudaga frá kl. 12-17.
Aðgangur er ókeypis í boði Akureyrarbæjar
Sjónlistamiðstöðin - Ketilhús
www.sjonlist.is
S: 461 2610
sjonlist@sjonlist.is
1.2.2012 | 19:31
Jónas Viðar opnar 50 ára afmælissýningu í Hofi
1.2.2012 | 10:50
Björg Eiríksdóttir opnar sýningu í Artóteki
Næsta laugardag, 4. febrúar kl. 15 opnar sýning á verkum Bjargar Eiríksdóttur myndlistarmanns, í Artóteki á 1. hæð Borgarbókasafns Reykjavíkur.
Sýningin í Artótekinu er sjötta einkasýning Bjargar og þar sýnir hún málverk, myndband, textíl og svífandi skúlptúr. Flest verkanna hefur Björg sýnt áður á Akureyri en nú teflir hún saman nokkrum verkum þar sem hún eltir innsæið. Öll verkin fela í sér langan tíma og í þeim er talað um að horfa á sig, hringiðu, munstur, mat og óbærilegan léttleika.
Björg Eiríksdóttir lauk myndlistarnámi frá Fagurlistadeild Myndlistaskólans á Akureyri árið 2003. Hún hefur einnig lært hugmyndasögu og siðfræði við Háskólann á Akureyri og stundar nú almennt meistaranám við sama skóla og tengir það myndlistarkennslu. Björg lauk B.Ed. prófi frá Kennaraháskóla Íslands árið 1991.
Björg hefur unnið við myndlist frá því að hún lauk námi í faginu árið 2003.
Hún hefur einnig kennt til margra ára og síðustu átta ár myndlistagreinar við Verkmenntaskólann á Akureyri. Sjálf telur hún þær greinar sem hún lagði stund á í Kennaraháskóla Íslands, líffræði og kristin fræði, hafa áhrif á myndlist sína. Má glögglega sjá þessi áhrif í verkum Bjargar þar sem skynjun og nánd eru orð sem koma upp í hugann þegar verk hennar eru skoðuð.
Hún veltir fyrir sér manneskjunni sem lífveru, líkama hennar og hinu innra lífi.
Björg hefur einnig verið sýningarstjóri og hafði umsjón með gestavinnustofu Gilfélagsins 2006-2007. Árið 2009-2010 hlaut Björg styrk frá Eyþingi vegna samstarfsverkefnis og frá Akureyrarbæ vegna sýningar 2005. Björg er félagsmaður í Sambandi íslenskra myndlistarmanna og í Myndlistarfélaginu.
Artótekið leigir út og selur íslenska myndlist til einstaklinga og fyrirtækja. Hægt er að skoða verkin á staðnum eða á vefsíðunni www.artotek.is.
Sýningin stendur til 11. mars.Opið er mánudaga fimmtudaga kl. 10-19, föstudaga kl. 11-18 og um helgar kl. 13-17
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 10:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.1.2012 | 23:07
Kristinn G. Jóhannsson opnar sýningu í Mjólkurbúðinni
Kristinn G. Jóhannsson opnar málverkasýninguna "MANNABYGGÐ MEÐ STRÖNDUM" í
Mjólkurbúðinni Listagili laugardaginn 4. febrúar kl. 14
Kristinn G. Jóhannsson um sýninguna:
,,Ég hefi einatt leitað yrkisefna í nánasta umhverfi mínu. Undanfarin ár
hefi ég gengið til litgrasa heima á Akureyri , ort um brekkurnar í bænum
með flúri og fagurgala. Vorbrekkur, vetrarbrekkur, haustbrekkur og hvað nú
allt hét. Hér kveður við allt annan tón þegar hugurinn hvarflar til fyrri
heimkynna undir bröttum hlíðum við sjó. Vatneyri undir Brellum og
Ólafsfjarðarhorn undir Tindaöxl. Þessi verk eru þó uppspuni eins og vera
ber en sækja þræði þangað sem búseta fólks er með ströndum fram. Í þeirri
mannabyggð var gott að vera".
Kristinn G. Jóhannsson (1936) stundaði listnám á Akureyri, í Reykjavík og
Edinburgh College of Art, Skotlandi.
Hann efndi til fyrstu sýningar sinnar á Akureyri 1954 en sýndi fyrst í
Reykjavík , Bogasal Þjóðminjasafnsins, 1962 og sama ár tók hann fyrsta
sinni þátt í Haustsýningu Fím (Félagi íslenskra myndlistarmanna) í
Listamannaskálanum. Hann hefur síðan verið virkur á sýningarvettvangi .
Af einkasýningum má nefna sýningu í Háhól Akureyri 1980, Kjarvalsstaðir
1988 , Fím Reykjavík 1989,1990 og 1991, Listasafnið Akureyri 2001, Hús
málaranna , Rvík, 2002 og 2003.
Kristinn hefur tekið þátt í fjölda samsýninga t.d. hjá Fím 1962, 1985,
1987, Norðan 7, Kjarvalsstöðum, 1982, Exsept 84 ,Listasafni ASÍ ,
Samstaða Listaskálanum Hveragerði 1999, Akureyri í myndlist, Listasafninu
Akureyri 2001 og Vorsýning í Húsi málaranna , Rvík 2002. Síðast sýndi hann
með Guðmundi Ármann grafíkverk hjá Íslenskri grafík og í Hofi á s.l. ári
og nú á dögunum héldu þeir sýningu í boði Listasalar Mosfellsbæjar.
Kristinn hefur gert teikningar og vatnslitamyndir í fjölda bóka og má
nefna nýjar útgáfur af bókum Nonna , Jóns Sveinssonar, auk mynda í
þjóðsögur s.s. Búkollu og Gilitrutt.
Málverkasýning Kristins G. Jóhannsonar stendur til 19.febrúar og eru allir
velkomnir.
Mjólkurbúðin er opin laugardaga og sunnudaga milli kl.14-17 og eftir
frekara samkomulagi.
31.1.2012 | 10:35
Gestavinnustofa á Álandseyjum
Sprid gärna ut informationen till konst- och kulturutövare.
Ålands kulturdelegation erbjuder
vistelsestipendier till Källskärs gästbostad
och Eckerö Post- & tullhus gästbostad
Ålands landskapsregering tillhandahåller en gästbostad/
Artist in Residence belägen i Eckerö Post- och tullhus
cirka 35 km från Mariehamn. Gästbostaden består av
2 rum, totalt ca 50 m2. Gästbostaden upplåtes under tiden
maj-september åt utövande konstnärer inom samtliga
konstområden från Norden och närområdena.
Gästbostaden på Källskär upplåtes till skapande kulturarbetare
och kulturjournalister från sista veckan i maj till
och med september 2012.
Ansökan görs på förtryckt blankett som fås från kulturbyrån
eller kan hämtas på www.kultur.ax. Till ansökan
bifogas arbetsplan samt CV.
Ansökan riktas till Ålands kulturdelegation, PB 1060, AX-
22 111 MARIEHAMN och skall vara kulturdelegationen
tillhanda senast den 29 februari 2012 kl. 16.15.
För närmare information se www.kultur.ax eller kontakta
kulturbyrån, tel. 25 000, e-post: staffan.beijar[at]
regeringen.ax
__________________________________________________________________
Staffan Beijar
vik. kulturkonsulent / Adviser, Cultural Affairs
Ålands landskapsregering
Pb 1060
Ax 22111 Mariehamn
tel. +358 18-25 512
e-post: staffan.beijar(a)regeringen.ax
29.1.2012 | 22:10
Jón Laxdal, Guðný Kristmanns, Gústav Geir Bollason og fleiri sýna hjá Luise Ross Gallery í NY
Luise Ross Gallery
511 West 25 Street #307
New York, NY 10001-5582
212 343 - 2161
212 343 - 2468 fax
www.luiserossgallery.com
25.1.2012 | 13:22
Sýningin "Uppáhald" opnar í Sal Myndlistarfélagsins
Myndlistarfélagið opnar samsýningu félagsmanna í sal þess, laugardaginn 28. janúar kl. 14.00. Heiti sýningarinnar er; Uppáhald, og velja félagsmenn uppáhaldsverk eftir sjálfa sig sem þeir sýna.
Einnig verður haldið upp á fjögurra ára starfsemi Myndlistarfélagsins auk þess að starfsmaður hefur hafið störf hjá félaginu. Sýningarstjóri er Joris Rademaker.
Sýningarsalurinn sem áður hét Box, gengur nú undir nafninu Salurinn. Hann er staðsettur í Kaupvangsstræti 10 í Listagilinu á Akureyri.
Sýningin er opin í þrjár helgar og lýkur 12. febrúar. Salurinn er opin um helgar frá kl. 13-17 og aðra daga þegar skrifstofan er opin.
Menning og listir | Breytt 26.1.2012 kl. 21:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.1.2012 | 09:43
ÞRÁNDUR ÞÓRARINSSON sýnir í Populus tremula
Laugardaginn 28. janúar kl. 14.00 mun Þrándur Þórarinsson opna málverkasýningu í Populus Tremula.
Á sýningunni verða ný olíumálverk. Þrándur, sem m.a. stundaði nám hjá Odd Nerdrum, sækir viðfangsefni verka sinna meðal annars í íslenska sögu, þjóðsögurnar og Íslendingasögurnar undir áhrifum þjóðernisrómantíkur, barokks og endurreisnar.
Þetta er sjötta einkasýning Þrándar, sem vakið hefur verðskuldaða athygli fyrir verk sín.
Einnig opið sunnudaginn 29. janúar kl. 14.00-17.00. Aðeins þessi eina helgi.
19.1.2012 | 14:12
Aðalheiður S. Eysteinsdóttir sýnir í Listasafni Reykjanesbæjar
CLOSE HORIZONS
ÞÓRA SÓLVEIG BERGSTEINSDÓTTIR OG ERWIN VAN DER WERVE
Laugardaginn 21. janúar kl. 14.00 munu listamennirnir Þóra Sólveig Bergsteinsdóttir og Erwin van der Werve opna sýninguna CLOSE HORIZONS í Populus Tremula.
Á sýningunni verða vídeó og teikningar eftir listamennina, sem dvelja nú í gestavinnustofu Gilfélagsins.
Sjá nánar: www.solla.org www.erwinvanderwerve.nl
Einnig opið sunnudaginn 22. janúar kl. 14.00-17.00.
Aðeins þessi eina helgi.
12.1.2012 | 10:24
Æringur á Rifi 2012 – Opið fyrir umsóknir
Nú í ár mun Æringur koma sér fyrir í Frystiklefanum norðanmeginn við Snæfellsnes í sjávarþorpinu Rifi.
Frystiklefinn er leikhús í uppbyggingu sem eitt sinn þjónaði afurðum hafsins en hefur nú fengið upplyftingu og bíður öllum leikhópum og listamönnum velkomin til starfa. Rýmið er stórt og býður upp á marga möguleika og hvetjum við því myndlistarmenn í öllum miðlum sem og leik og danshópa að sækja um.
Eins og áður er hátíðin staðbundin og munu listamennirnir dvelja um 10 daga á staðnum við vinnslu á verkum sínum: Verða fyrir áhrifum, anda að sér söltu sjávarloftinu og upplifa einstaka náttúru sem Snæfellsnes hefur upp á að bjóða.
Opnun hátíðarinnar verður Laugardaginn 7. júlí.
Fyrir áhugasama sendið tölvupóst á aeringur@gmail.com nafn, CV og 5-8 myndir af fyrri verkum.
Fleiri upplýsingar er hægt að finna á http://aeringur.com Hátíðin er einnig með facebook síðu.
Umsóknafrestur er til 15. Febrúar 2012.
Open call for ÆRINGUR 2012, in Rif, Snæfellsnes, Iceland.
Application deadline 15th February
Send your application to aeringur@gmail.com
Application should include:
Artist CV
Short statement
5-8 images of previous work.
About the project:
Æringur in Rifis the third of an annual art exhibition held in the beginning of July every year. The festival is held in a different location each time and focuses on the smaller communities dotting the Icelandic coastline. Last year Æringur was held in Bolungarvík on the west coast of Iceland, with 17 artists from Iceland, Denmark, Sweden and Norway.
Æringur allows young and promising artists to experience the atmosphere outside the capital region and invites them into a space that was not necessarily intended for art exhibitions. It is conceived as a site-specific project that deals with the society and the environment it is held in. Therefore we encourage the artists to stay and work on their projects for at least 10 days before the opening. The artists are invited to arrive to Riffrom the 23th of June to get acquainted with the town and its surroundings.
The exhibition opens on the 7nd of July and will be on display until the end of the month.
For further information please visit; http://aeringur.com/ or contact aeringur@gmail.com