Bloggfærslur mánaðarins, september 2013
30.9.2013 | 12:11
Margrét Nilsdóttir sýnir í Populus tremula
Laugardaginn 5. október kl. 14.00 opnar Margrét Nilsdóttir sýningu á nýjustu verkum sínum í Populus tremula.
Í þetta sinn sækir hún innblástur í hina fornu, japönsku fjötralist, kinbaku. Á sýningunni takast efnislegir fjötrar á við þá sálrænu og me því gerð tilraun til að vekja áhorfandann til umhugsunar um það sem heftir okkur.
Sýningin er einnig opin sunnudaginn 6. október kl. 14.00-17.00. Aðeins þessi eina helgi.
28.9.2013 | 15:58
Hrefna Harðardóttir opnar sýningu á Café LOKA
Hrefna Harðardóttir myndlistarkona, opnar sýninguna DÍSIR, myndverk um 13 nútímadísir,
á Café LOKA við Skólavörðuholt, þriðjudaginn 1.október 2013.
Dísir eiga langa sögu í heimi kvenmenningar, goðvera sem var ætíð nálæg og tengd frjósemi, barnsfæðingum, vernd ættarinnar, eða átökum í goðheimum. En myndirnar af þessum nútímakonum sýna styrk, friðsæld og fegurð.
Hrefna Harðardóttir stundaði nám á myndlistarbraut MA, leirlistardeild MHÍ og kennaradeild LHÍ.
Hún hefur sótt mörg námskeið og vinnustofur í grafík, ljósmyndun og leirlist í Frakklandi, Ítalíu, Ungverjalandi, Danmörku og Englandi og haldið einkasýningar og tekið þátt í um 70 samsýningum víða um land og erlendis.
Hún er félagi í Sambandi Íslenskra Myndlistarmanna, Myndlistarfélaginu og Leirlistarfélagi Íslands.
Dísirnar eru : Anna Richardsdóttir, Erika Lind Isaksen, Dagrún Matthíasdóttir, Guðrún Pálína Guðmundsdóttir, Helena Huld Isaksen, Hólmfríður Kristjánsdóttir, Hrafnhildur Vigfúsdóttir, Kristín Þóra Kjartansdóttir, Katrín Jónsdóttir, Linda Ólafsdóttir, Þorbjörg Ásgeirsdóttir, Valgerður Hjördís Bjarnadóttir og Valdís Viðarsdóttir.
Sýningin stendur út október og er opnunartími frá kl. 9-21 alla daga, nema sunnudaga frá kl. 11-21.
Hrefna Harðardóttir
hrefnah@simnet.is
sími 862-5640
http://simnet.is/hrefnah
Café Loki
Lokastíg 28
101 Reykjavík
sími 466-2828
loki@loki.is
http://www.loki.is
25.9.2013 | 14:20
Sýningu Sigrúnar Guðmundsdóttur í Flóru að ljúka
Sigrún Guðmundsdóttir
Nætur(b)rölt
10. ágúst - 28. september 2013
Flóra, Hafnarstræti 90, 600 Akureyri, s. 6610168
http://floraflora.is
https://www.facebook.com/flora.akureyri
https://www.facebook.com/events/1405164826365683
Laugardaginn 28. september lýkur sýningu Sigrúnar Guðmundsdóttur sem nefnist Nætur(b)rölt í Flóru í Hafnarstræti 90 á Akureyri.
Sigrún Guðmundsdóttir býr og starfar í Rooterdam í Hollandi. Hún lauk myndlistarnámi frá AKI í Enschede árið 2008 en var einnig í skiptinámi í School of the Museum of Fine Arts í Boston. Hún hefur tekið þátt í fjölmörgum samsýningum í Hollandi og sýningin í Flóru er hennar sjöunda einkasýning.
Í tengslum við sýninguna gaf Sigrún út bók sem ber sama titil og sýningin, en hugtök verka hennar endurspeglast á ákveðinn hátt í sögunni.
Bókin samanstendur af örsögum og hugrenningum sem saman mynda eina smásögu. Við fylgjum sögupersónunni eftir yfir eina nótt á flakki á milli hugarheima og staða.
Upplýsingar um Sigrúnu og verk hennar má finna á heimasíðunni www.sigrungudmundsdottir.com
Sýningunni lýkur laugardaginn 28. september og er öllum opin á opnunartíma Flóru daglega kl. 12-16.
Flóra er verslun og viðburðastaður með vinnustofum sem Kristín Þóra Kjartansdóttur félagsfræðingur rekur. Áherslan er á nýtingu, endurnýtingu, náttúrutengsl og verkmenningu. Listrænn ráðunautur staðarins er Hlynur Hallsson, myndlistarmaður. Menningardagskrá Flóru hlaut styrk úr Menningarsjóði Akureyrar.
25.9.2013 | 13:05
ÞRÆÐIR/THREADS opnar í Boxinu, Sal Myndlistarfélagsins
Þræðir geta verið margskonar og haft ólíka þýðingu fyrir ólíkt fólk. Þeir eru viðfangsefni samsýningar tveggja mæðgna sem hver um sig túlkar þræði á sinn hátt.
Samsýning myndlistakvenna og vöruhönnuðs í Boxinu, Sal Myndlistarfélagsins í Listagilinu.
Sýningin stendur yfir helgarnar 28.-29. sept. og 5.-7. okt. frá klukkan 15-17.
Aðalbjörg María Ólafsdóttir
Heiða Sigrún Pálsdóttir
Jóna Bergdal Jakobsdóttir
Ásdís Jörundsdóttir
https://www.facebook.com/events/404418879657892
25.9.2013 | 10:49
Simon Rivett sýnir í Populus tremula
Laugardaginn 28. september kl. 14.00 opnar breski landslagsmálarinn Simon Rivett myndlistarsýningu í Populus tremula. Simon, sem kemur frá Newcastle, dvelur í gestavinnustofu Gilfélagsins um þessar mundir. sjá nánar hér: www.simonrivett.co.uk
Sýningin er einnig opin sunnudaginn 29. september kl. 14.00-17.00. Aðeins þessi eina helgi.
24.9.2013 | 15:04
Please Wait to be Seated í Listhúsi, Ólafsfirði
Please Wait to be Seated
flutt af Tilviljunar Systralag
Fimmtudag 26. 09. 2013 | kl.18 til 21
Listhús, Ægisgötu 10, 625 Ólafsfirði
Listamennirnir:
Catriona Meighan (Bretland): http://www.catrionameighan.com
Danijel Damian Nenadić (Króatía)
Eva M. Alysse Bowd (Kanada): http://alyssebowd.wordpress.com
Gina R. Furnari (Bandaríkin): http://www.ginafurnari.com
Lee wansool (Suður Kórea): http://around-uranus.tumblr.com
20.9.2013 | 15:20
Guðrún Pálína Guðmundsdóttir sýnir í SÍM Galleríinu, Berlín
Guðrún Pálína Guðmundsdóttir verður með myndlistarsýningu í SÍM Galleríinu Neue Bahnhofstrasse 27, Friedrichshain í Berlín.
Fimmtudaginn 26. september, kl. 16:00 19:00. Sýningin verður aðeins þennan eina dag.
Guðrún Pálína hefur dvalið í gestavinnustofu SÍM í Berlín 1. 15. september og fékk úthlutað úr sjóði Muggs til dvalarinnar.
Hún vinnur með ættfræðirannsóknir og ýmsar spurningar tengdum því. Sýningin samanstendur af vatnslitaportrettmyndum.
17.9.2013 | 15:44
Opnun í Ketilhúsinu
SEPTEMBER & ELSKA ÉG MIG SAMT?
Bjarni Sigurbjörnsson, Jón Óskar og Ragnheiður Guðmundsdóttir
Laugardaginn 21. september kl. 15 munu þrír listamenn opna sýningu í Ketilhúsinu á Akureyri. Þetta eru þau Bjarni Sigurbjörnsson, Jón Óskar og Ragnheiður Guðmundsdóttir.
Þeir Bjarni og Jón Óskar taka hér aftur upp þráðinn með því að vinna saman stór og voldug málverk fyrir sýninguna September, en hún er að mestu leyti unnin á staðnum vikuna fyrir opnun og vísar titillinn til þess. Ólíkir hugarheimar og efnistök mætast í myndrænum áflogum og leiftrandi sköpunargleði sem einkennir verk þeirra beggja annars vegar fígúratífur gauragangur Jóns Óskars og hins vegar abstrakt beljandi Bjarna svo úr læðingi leysast þverstæðukenndir kraftar.
Á efri hæð Ketilhúss sýnir Ragnheiður Guðmundsdóttir undir yfirskriftinni
Elska ég mig samt? þar sem konur, sár þeirra og saga eru viðfangsefnið. Líta má á verkin sem heilunarferli líkamssára sem tilkomin eru vegna tilfinningalegs sársauka og höfnunar á eigin löngunum. Líkaminn verður sjúkur og líkamskvillar ágerast við ófullnægt og bælt tilfinningalíf. Við því er ,,aðeins ein leið til heilunar, [en] það er fyrirgefning og ást... allt annað er blekking. (Guðni Gunnarsson)
Sýningin stendur til 27. október og er opin kl. 13-17 alla daga nema mánudaga og þriðjudaga. Aðgangur er ókeypis.
12.9.2013 | 17:30
Síðasta sýningarhelgi í Ketilhúsinu
STOLNAR FJAÐRIR
Þórdís Alda Sigurðardóttir
Nú er komið að síðustu sýningarhelgi á hinni glæsilegu og áhugaverðu sýningu Þórdísar Öldu Stolnar fjaðrir í Ketilhúsinu á Akureyri. Þórdís sækir efnivið sinn og hugmyndir í ,,dótakassa samtímans með öllum þeim efnum, hlutum, tækjum, tólum og klæðum sem er hið raunverulega, daglega sjónarspil stórs hluta mannkyns.
Við hvetjum alla til að leggja leið sína í Ketilhúsið um helgina og sjá þessa stórbrotnu sýningu.
Sjónlistamiðstöðin er opin ALLA DAGA NEMA MÁNUDAGA OG ÞRIÐJUDAGA frá kl. 13-17 og er aðgangur ókeypis.
Meira á www.sjonlist.is
12.9.2013 | 11:25
Starfslaun listamanna 2014
Auglýst eru til umsóknar starfslaun listamanna sem úthlutað verður árið 2014 í samræmi við ákvæði laga nr. 57/2009.
Umsóknarfrestur rennur út miðvikudaginn 25. september 2013, kl. 17.00.
Sækja skal um listamannalaun á vef Rannís, vefslóðin er: rannis.is
Starfslaun eru veitt úr sex sjóðum, þeir eru:
1. launasjóður hönnuða
2. launasjóður myndlistarmanna
3. launasjóður rithöfunda
4. launasjóður sviðslistafólks
5. launasjóður tónlistarflytjenda
6. launasjóður tónskálda
Hægt er að sækja um starfslaun fyrir listamann í einn launasjóð eða fleiri, sé verkefni þess eðlis að það falli undir fleiri sjóði en einn. Ennfremur er unnt að sækja um starfslaun fyrir skilgreint samstarfsverkefni listamanna/hópa í einn launasjóð eða fleiri, falli verkefnið undir fleiri sjóði en einn.
Auk starfslauna er sjóðunum heimilt að veita ferðastyrki.
Sjá nánari upplýsingar um ferli og fylgigögn á: www.listamannalaun.is og www.rannis.is