Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2013
31.7.2013 | 23:16
Sýningu Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur í Flóru að ljúka
Aðalheiður S. Eysteinsdóttir
Réttardagur 50 sýninga röð
Bændur í bæjarferð, sýningarlok
22. júní - 4. ágúst 2013
Flóra, Hafnarstræti 90, 600 Akureyri, s. 6610168
https://www.facebook.com/flora.akureyri
https://www.facebook.com/events/544483278947891
Sunnudaginn 4. ágúst lýkur sýningu Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur Bændur í bæjarferð í Flóru í Hafnarstræti 90 á Akureyri.
Um er að ræða lokin á verkefninu Réttardagur 50 sýninga röð, sem staðið hefur yfir síðan júní 2008. Um helgina lýkur einnig sýningum í Deiglunni og Ketilhúsinu en sýningin í Listasafninu stendur í viku enn.
Sýningin í Flóru er öllum opin á opnunartíma Flóru, mánudaga til föstudaga kl. 11-18 og laugardaga og sunnudaga kl. 13-16.
Nánari upplýsingar veitir Aðalheiður í síma 865 5091, Kristín í síma 661 0168 og Hlynur í síma 659 4744.
Nánari upplýsingar um Aðalheiði á www.freyjulundur.is
Flóra er verslun, vinnustofur og viðburðastaður sem Kristín Þóra Kjartansdóttir félagsfræðingur rekur. Áherslan er á nýtingu, endurnýtingu, náttúrutengsl og verkmenningu. Listrænn ráðunautur staðarins er Hlynur Hallsson, myndlistarmaður. Menningardagskrá Flóru hlaut styrk úr Menningarsjóði Akureyrar.
31.7.2013 | 23:03
Síðasta sýningarhelgi í Ketilhúsi og Deiglu
RÉTTARDAGUR
50 sýninga röð
Sýningar Aðaheiðar S. Eysteindóttur í Listagilinu á Akureyri og nágrenni þess, Réttardagur 50 sýninga röð, hafa undanfarnar vikur notið mikilla vinsælda. Aðsóknin hefur verið með eindæmum þar sem þúsundir hafa heimsótt sýningarnar. Ungir sem aldnir eru uppnumdir af hrifningu því verk Aðalheiðar höfða til allra aldurshópa og margir hafa komið oftar en einu sinni. Þannig hefur þetta verkefni einnig fengið marga til að heimsækja Listagilið sem vanalega leggja ekki leið sína þangað.
Viðfangsefni sýninganna er íslensk bændamenning og menning tengd sauðkindinni og var það ætlun Aðalheiðar að sýna breiða mynd af samfélagi sem lætur ekki mikið yfir sér en er engu að síður undirstaða vænlegs lífs. Í sýningarskrá segir hún jafnframt: Hinar ýmsu hliðar menningar sem við tökum sem sjálfssögðum hlut og hugum því ekki dags daglega að mikilvægi hversdagsleikans. Þetta vinnuferli hefur leitt mig á óvæntar slóðir myndlistar og þroskað mig sem einstakling í samfélagi listamanna.
Aðalheiður sjálf, gestalistamenn og fríður flokkur aðstoðarfólks sem vann sem einn maður að uppsetningu sýninganna hefur gert þetta að eftirmynnilegu sumri í Listagilinu á Akureyri.
Sýningum Aðalheiðar í Ketilhúsi og Deiglu lýkur um Verslunarmannahelgina, sunnudaginn 4. ágúst, en sýning hennar í Listasafninu á Akureyri stendur til 11. ágúst. Sjónlistamiðstöðin er opin alla virka daga frá kl. 9-5 og er aðgangur ókeypis.
30.7.2013 | 18:40
The Fixed & The Volatile í Verksmiðjunni á Hjalteyri
Verksmiðjan á Hjalteyri
The Fixed & The Volatile
Richard Ashrowan
Pat Law
3. - 24. ágúst 2013
Sýningin opnar laugardaginn 3. ágúst kl. 15
Lifandi myndvörpunar gjörningur kl. 17.00
Opið alla daga kl. 14-17
Sýning Richard Ashrowan og Pat Law byggir á nýlegum verkum þar sem þau samþætta videoinnsetningar, hjóðmyndir og salt teikningar. Kjarni sýningarinnar er ákveðin rannsókn á mörkum hreyfimyndar og kyrrmyndar eða kyrrðar. Kanadíski gítarleikarinn og hljóðlistamaðurinn Nick Kuepfer hefur unnið hljóðverk fyrir sýninguna.
Richard Ashrowan mun sýna verk sem byggja á röð hreyfimynda, þar á meðal kvikmyndin Speculum og er þetta heims frumsýning. Myndin byggir á rannsókn á sambandi alkemíu, hreyfingar, ljóss og efnis. Á opnunardag mun Richard flytja verkið Catoptrica sem byggir á lifandi myndvörpun. Grunnur verksins/gjörningsins eru myndskeið sem tekin voru á Íslandi og á Svalbarða, og felur í sér ritualistic meðferð ljóss með notkun spegla, glers og myndvörpunar. Einnig verður frumsýnd 16mm kvikmynd í svart/hvítu frá nýlegum leiðangri lista-og vísindamanna til Svalbarða 2012 Artic Circle expedition með hljóðmynd eftir hljóðlistamanninn Nick Kuepfer (Canada).
Richard Ashrowan heimsótti Verksmiðjuna á Hjalteyri í maí árið 2011 en hann dvaldi að Hólum í Öxnadal um tíma. Hann varð fyrir miklum áhrifum af rými Verksmiðjiunnar, kringumstæðum, sögu og andrúmslofti. Hann ferðaðist einnig víða um landið og myndaði, og kynnti sér í leiðinni mennigu og listir þjóðarinnar. Ferð hans til Íslands leiddi af sér hluta af þeim videoverkum sem hann sýnir nú í Verksmiðjunni.
Richard Ashrowan hefur meðal annars verið með einkasýningar á Englandi, í Skotlandi, Póllandi, Rúmeníu og USA, fyrir utan fjölmargar sýningar í galleríum listamanna, á Kvikmyndahátíðum og samsýningum. Hann kennir um þessar mundir við Edinburgh College of Art og er framkvæmdastjóri Alchemy Film and Moving Image Festival í Skotlandi.
http://www.alchemyfilmfestival.org.uk
Pat Law mun sýna ný verk frá Svalbarða leiðangrinum 2012 Artic Circle expedition. Hún vinnur innsetningarverk í Verksmiðjuna sem byggir á hreyfimyndum og salt teikningum. Í verkinu rannsakar hún bæði staðbundna og yfirnáttúrlega frumþætti vannýttra og yfirgefinna bygginga á Svalbarða. steininn sem þær eru byggðar úr og andann sem tengir þær saman. Samhliða sjónrænu verkunum, mun á opnuninni verða fluttur raddgjörningur þar sem hin skoska Kirsty Law söngkona og Arna Valsdóttir meðlimur í Verksmiðjunni flétta saman raddir sínar við hreyfimynd Pat Law.
Pat Law er myndlistarmaður frá Skotlandi sem vinnur með málun og hreyfimyndaform. Verk hennar byggja á rannsóknum á landslagi og hreyfanleika. Hún ferðast víða vegna verka sinna og byggir þau á þessum ferðum oft í samvinnu við listamenn frá hverju stað.
Á opnun flytur skoska söngkonan Kirsti Law www.kirstylaw.com
raddgjörning/ soundscape ásamt Örnu Valsdóttur meðlim í Verksmiðjunni við hreyfimynd Pat Law.
Kirsty Law mun einnig flytja skosk þjóðlög og eigin lög kl. 20:00 við borðhald sveitunga sem halda Sæludag í Sveitinni þennan dag og er opnun sýningarinnar hluti af þeirri hátíð.
Í kjölfar sýningarinnar kl. 22:00 fer fram
Factory Experimental Music MiniFest með hljómsveitunum:
R E P T I L I C U S
R E - P E T E A N D T H E W O L F M A C H I N E
R A F S T E I N N
D I C K V E G A S & T H E D I R T Y P A P A S
F R E N C H G I R A F F E
https://www.facebook.com/events/285800291559829
Menningarráð Eyþings, Hörgársveit, CCPgames, Bústólpi og Ásprent eru stuðningsaðilar Verksmiðjunnar á Hjalteyri.
Verksmiðjan á Hjalteyri
Neðst á Hjalteyri við Eyjafjörð
http://www.verksmidjan.blogspot.com
https://www.facebook.com/verksmidjan.hjalteyri
https://www.facebook.com/events/533119400076124
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 22:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.7.2013 | 17:59
Olga Bergmann sýnir í Alþýðuhúsinu á Siglufirði
Föstudaginn 2. ágúst klukkan 17:00 verður opnuð sýning Olgu Bergmann Staðgenglar í Kompunni í Alþýðuhúsinu á Siglufirði.
Verkin á sýningunni eru sýnishorn úr Plöntu og dýrabók en svo nefnir Olga röð verka sem er í vinnslu og skiptist í nokkra kafla.
Umfjöllunarefnið birtist í hugrenningum sem taka á sig margskonar myndform um áhrif mannsins á náttúruna og umhverfi sitt. Einnig um mögulega framtíðarþróun vistkerfa og útbreidda eftirsjá sem rekja má til vitneskjunnar um hraða hnignun lífríkisins af mannavöldum.
Olga hefur um langt skeið gert samspil manns og náttúru að umfjöllunarefni sínu og meðal annars skoðað samspil vísinda og skáldskapar í verkum sem tengjast hliðarsjálfi hennar, erfðaverkfræðingnum Doktor B.
Hún hefur líka unnið með vísanir í náttúrugripasöfn, vísindaskáldskap og þverfagleg söfn fyrri alda sem nefnd voru Wunderkammer furðusöfn, með það að markmiði að varpa ljósi á skrýtna strauma og hneigðir í hugarfari, lífsháttum og tækni samtímans.
25.7.2013 | 16:04
Kvikmynd eftir Magdalena Blom frumsýnd í Listhúsinu Ólafsfirði
MEET ME IN ICELAND
KVIKMYND EFTIR MAGDALENA BLOM
Laugardag 27. júlí kl. 20
Sunnudag 28. júlí kl. 16
Listhús: Ægisgötu 10, 625 Ólafsfirði, Iceland
Í þessari puttaferðalagssögu (Odyssey) reyna tvær ungar persónur að brúa bilið í fjarlægðarsambandi þeirra.
Due to the normality of their everyday life living in different countries- this time, they try to find a common ground for the summer, here in Iceland. After altogether 1728 km of hitchhiking, going back and forth from Olafsfjördur to Hvitarvatn, Magdalena Blom will have a 45 minutes screening to show the highlights of the full feature followed by an artist talk afterwards.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 16:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.7.2013 | 12:40
Brynja Harðardóttir opnar sýningu sal Myndlistarfélagsins
Laugardaginn 3. ágúst kl. 14.00-19:00 opnar Brynja Harðardóttir myndlistarsýninguna, Píkublóm, í sal Myndlistarfélagsins í Listagilinu á Akureyri. Kl. 17:00 sama dag verður Lilý Erla Adamsdóttir með gjörning tengdan málefninu.
Sýningin Píkublóm er lofgjörð til kvenleikans, lífs og vaxtar og endurspeglar þakklæti mitt til kvenna sem hafa rutt brautina með seiglu sinni að bættri stöðu kvenna dagsins í dag. Um leið er sýningin hvatning til allra að halda baráttunni áfram. Samhliða þakklæti eru verkin ádeila á öfgafull fegurðarviðmið sem m.a. birtast í aukinni tíðni á lýtalækningum á píkum".
Sýningin er styrkt af Menningarsjóði Akureyrarbæjar og stendur til 11. ágúst. Hún er opin laugardaga og sunnudaga kl. 14-17 og virka daga kl. 17-19.
https://www.facebook.com/events/571533206260320
22.7.2013 | 15:25
Carol Bernier sýnir í Populus tremula
Bernier, sem dvelur í Gestavinnustofu Gilfélagsins, er fædd, menntuð og búsett í Montreal í Kanada, en hefur iðka list sína og haldið sýningar víða um lönd. Nú sýnir hún verk sem sækja innblástur til íslenskrar náttúru og umhverfis. Nánar á: www.carolbernier.com
Sýningin verður einnig opin sunnudaginn 28. júlí kl. 14.00-17.00. Aðeins þessi eina helgi.
17.7.2013 | 18:44
Helen Molin opnar sýningu í Mjólkurbúðinni
Helen Molin opnar sýninguna Háfleygt í Mjólkurbúðinni í Listagilinu á Akureyri, laugardaginn 20.júlí kl. 14.
Helen sýnir 300 mynda seríu sem hún vinnur með blandaðri tækni í grafíkprent og vatnsliti. Hún fjallar um stað sem ekki á sér tíma eða rúm og eru myndirnar fantasíur þar sem fólk og fuglar eru í aðalhlutverki.
Helen Molin um sýninguna Háfleygt:
Verkin mín eru sögur eða sagnir án orða. Þau innihalda hvorki fortíð né framtíð heldur eru tímalaus í núinu, tímabilið að innan, að utan og á milli. Veröldin þar sem barnslegt ímyndunarafl og þroskuð reynsla fullorðinna mætast og flýgur hátt og hefur vængi. Þar sem hvorki tíminn né orðin eru og þú flýgur hærra og hærra.
Myndlistakonan Helen Molin er frá Svíþjóð. Hún stundaði nám við Háskólann í Gautaborg 1988-90 og lærði þar hönnun og listir og 1990-96 lærði hún textíl í sama háskóla og master í listum. Hún lærði einnig silfursmíði og fór til Noregs í frekara nám í Grafíkprentun. Helen hefur sýnt víða í sínu heimalandi og einnig í öðrum löndum s.s. í New York í Bandaríkjunum, í Noregi, Danmörku, Hollandi og á Íslandi.
Sýningin stendur til 5.ágúst og eru allir velkomnir.
Mjólkurbúðin er opin laugardaga og sunnudaga kl.14-17 á meðan sýningin stendur.
Helen Molin s. +46 707510517 http://www.helenmolin.se/
Mjólkurbúðin Listagili er á facebook https://www.facebook.com/groups/289504904444621/ s.8957173
14.7.2013 | 19:34
Sumar... Umhleypingar í Listhúsinu Ólafsfirði
Sumar... Umhleypingar
myndbands sýning eftir Shan Shan
16. júli 2013|kl.19-21 (opnun)
17. júli 2013|kl.17-19
"Sumar... Umhleypingar" is a solo exhibition of new work by Shan Shan. The two-channel video installation loop with sound investigates the space between mechanical possibilities and material reality. How do we convey emotions? Human emotions has been replaced, transformed to a digital form of memory. In the virtual world multiplies into infinite possibilities. No feelings of temperature; no feelings of heat; no feelings of sensation. Memories of summer swallowed by digital data...
Meira um Shan Shan: http://shanshanshanshan.com/
Allir velkomnir
Listhús
+354 8449538
14.7.2013 | 08:23