Bloggfćrslur mánađarins, janúar 2010
27.1.2010 | 19:16
Fréttabréf Myndlistarfélagsins
Fréttabréf Myndlistarfélagsins
Stjórn í upphafi árs 2010
Ţorsteinn Gíslason, formađur
Brynhildur Kristinsdóttir, ritari
Yst, gjaldkeri
Ţórarinn Blöndal, varaformađur
Guđmundur Ármann, međstjórnandi
Síđast liđiđ ár hefur Myndlistarfélagiđ, sem nú er skráđ ađ Kaupvangsstrćti 12,
Boxinu, pósthólf 235, 600 Akureyri:
1. Breytt um stefnu í Sýningarhaldi félagsins í Boxinu og Sal Myndlistarfélagsins
og unniđ ađ 6 Gildögum á ári í samvinnu viđ ađra.
Sýningarnefndina skipa nú; Arnţrúđur Dagsdóttir, Bryndís Kondrup, Guđrún
Hadda Bjarnadóttir, Guđrún Lóa Leonardsdóttir, Hjördís Frímann og Sigríđur
Ágústdóttir, sem sér um samskipti viđ sýnendur.
Sýningarnefndin sér alfariđ um val á sýningarađilum, sem ţurfa ađ hafa greitt sitt félagsgjald, nema um gesti sé ađ rćđa.
Nýtt bankanr. Myndlistarfélagsins fyrir félagsgjöld er hjá Sparisjóđnum og er:
bnr. 1129-05-406050 kt. 690408-1390
Sýningarnefndin skiptir međ sér verkum og sér um allt utanumhald sýninga.
Sýningarađilar sjá alfariđ sjálfir um auglýsingar, uppsetningu, veitingar, yfirsetu og ađ taka niđur sína sýningu og ţrífa eftir sig. 10 ţúsund króna tryggingargjalds er krafist viđ upphaf sýningar, sem endurgreiđist af sýningarnefnd, sé lyklum og Sal skilađ í sama ástandi og tekiđ var viđ honum. Ekkert gjald er tekiđ fyrir ađ fá ađ sýna. Ţví miđur hefur félagiđ ekki enn náđ svo langt ađ geta greitt sýningarađilum fyrir ađ koma og sýna, ţó ţannig ćtti ţađ ađ sjálfsögđu ađ vera og er ţađ eitt af ađal-baráttumálum myndlistarmanna hvar sem er á landinu, ađ fá greitt fyrir sína vinnu!
Stjórn Myndlistarfélagsins hefur talađ viđ svćđisútvarpiđ, Vikudag o.fl.ađila um mikilvćgi ţess ađ sagt sé frá listviđburđum í Sal Myndlistarfélagsins og Boxinu, einnig mun SÍM verđa međ málţing um myndlist og fjölmiđla nú á vordögum í sama skyni.
2. Komiđ á fleiri nýtingarmöguleikum á Sal Myndlistarfélagsins og í Boxinu í ţágu myndlistarinnar.
Međ tilkomu Gildaga og breytingunni á árlegum sýningarfjölda hefur skapast möguleiki á ađ nýta Sal Myndlistarfélagsins og Boxiđ á fjölbreyttari hátt, en hingađ til og nú ţegar hefur veriđ fariđ af stađ međ vinnu ađ hugmynd um málţing á vordögum um Myndlistaruppeldi. Sótt verđur um styrk/i til verkefnisins og talađ viđ verkefnisstjóra.
Einnig hefur komiđ til tals ađ koma á Módelteikni-tímum í Sal Myndlistarfélagsins utan sýningatíma.
Ţá eru ađalfundurinn og fleiri fundir á vegum félagsins haldnir í Sal Myndlistarfélagsins.
3. Átt viđtöl viđ Akureyrarstofu um ýmis mál er varđa myndlist.
Málin eru međal annars: Stefnumál í listaverkakaupum og listaverkaeign. Hof í tengslum viđ myndlist. B.A.-nám í myndlist frá H.A. og samstarf Akureyrarbćjar viđ önnur sveitarfélög á Norđurlandi eystra um greiđslu listamannalauna út fyrir bćjarmörkin.
4. Unniđ ađ samstarfi viđ Austfirđinga og Sláturhúsiđ á Egilsstöđum.
Stefnt er ađ sameiginlegum fundi um samstarf og samvinnu okkar og Austanmanna á sviđi myndlistar á Mývatni upp úr mánađarmótum. eftir formlega beiđni ţeirra um samstarf.
5. Komiđ međ stjórnartillögu til ađalfundar um félagsgjöld fyrir 2010 og lagt til ađ vinna í ţágu félagsins sé áfram ólaunuđ.
Félagsgjöld verđi áfram 2000 en ţau verđi framvegis innheimt í gegnum banka
(bnr. 1129-05-406050 kt. 690408-1390) og borgist fyrir ađalfund í febrúar.
Engin laun eru greidd fyrir vinnu stjórnar og nefndarmanna í ţágu félagsins,
nema fargjald á samţykkta fundi utan Akureyrar.
Stjórnin.
Tilkynning frá Steina:
Smíđaverkstćđi Punktsins er nú opiđ fyrir alla á miđvikudagskvöldum frá kl. 19 22.
Endilega notfćriđ ykkur ţetta, ţví ef engin notkun er á ţessum tíma, ţá verđur ţetta fljótt aflagt!
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 19:25 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
24.1.2010 | 22:49
Ögrandi list og tilraunir til ritskođunar, fyrirlestur í Ketilhúsinu
Myndir sem fanga: Ögrandi list og tilraunir til ritskođunar
Ţriđjudaginn 26. janúar klukkan 17:15 stendur Listasafniđ á Akureyri fyrir fyrirlestri bandaríska frćđimannsins dr. Steven C. Dubin í Ketilhúsinu á Akureyri. Yfirskrift fyrirlestrarins er Myndir sem fanga: Ögrandi list og tilraunir til ritskođunar ( e. Arresting Images: Controversial Art and Attempts to Censor It) og fer hann fram á ensku. Fyrirlesturinn er öllum opinn og ađgangur er ókeypis.
Dr. Dubin er mannfrćđingur sem hefur sérhćft sig í rannsóknum á sviđi menningar, lista og safnafrćđa. Hann hefur beint sjónum sínum ađ ritskođun og tjáningarfrelsi og bók hans um pólitíska list, Arresting Images: Impolitic Art and Uncivil Actions, vakti mikla athygli ţegar hún kom út áriđ 1992. Dubin hefur haldiđ fjölda fyrirlestra og ritađ um umdeilda list, átök innan listheimsins og stuđning hins opinbera viđ listir. Dubin skrifar reglulega greinar fyrir Art in America auk ţess ađ hafa rannsakađ og fjallađ sérstaklega um áhrif lýđrćđisumbóta á menningarlíf í Suđur-Afríku viđ fráhvarf ađskilnađarstefnunnar.
Steven C. Dubin var prófessor í mannfrćđi viđ Fylkisháskólann í New York í 19 ár en hefur starfađ sem prófessor í menningarstjórnun viđ Columbia Háskóla í New York frá 2005, auk ţess ađ gegna rannsóknarstöđu viđ skólann á sviđi afrískrar menningar. Hann er staddur hér á landi á vegum Fulbright stofnunar og námsbrautar í safnafrćđum viđ félagsvísindadeild Háskóla Íslands.
Nánar á: http://www.listasafn.akureyri.is/uppakomur
Stađur: Ketilhúsiđ, Listagilinu á Akureyri
Stund: Ţriđjudaginn 26. janúar klukkan 17:15
15.1.2010 | 09:06
Kristinn G. Jóhannsson sýnir í Jónas Viđar Gallery
Laugardaginn 16 janúar kl. 15.00 opnar
Kristinn G. Jóhannsson málverkasýningu í
Jónas Viđar Gallery í listagilinu á Akureyri.
Ţér og ţínum er bođiđ.
Kristinn G. Jóhannsson (1936) nam myndlist á Akureyri, í Reykjavík og í
Edinburgh College of Art, Skotlandi.
Hann efndi til fyrstu sýningar sinnar á Akureyri 1954 en sýndi fyrst í
Reykjavík í Bogasal Ţjóđminjasafnsins 1962 og sama ár tók hann í fyrsta
sinn ţátt í Haustsýningu Fím í Listamannaskálanum. Hefur síđan veriđ
virkur á sýningavettvangi.
Kristinn varđ stúdent frá MA fyrir rúmri hálfri öld og lauk kennaraprófi
1962 og starfađi síđan viđ kennslu og skólastjórn á Patreksfirđi,
Ólafsfirđi og Akureyri í tćpa fjóra áratugi.
Hann hefur nú velt af sér opinberum reiđingi fyrir nokkru og hefur
vinnustofur á Akureyri ţar sem hann starfar ađ list sinni , eđa eins og
hann segir sjálfur: "Ţar er ég ađ etja saman litum, einkum litbrigđum
jarđarinnar, og lćt á reyna hvort nćgi til málverks."
Kristinn hefur gert vatnslitamyndir í nýjar útgáfur af sögum Jóns
Sveinssonar, Nonna, og einnig í ţjóđsögur s.s. Búkollu og Gilitrutt auk
teikninga í fjölda annarra bóka.
Kristinn fylgir sýningunni svona úr hlađi:
"Ég er enn genginn í brekkur. Sýndi ykkur áriđ 2006, í Ketilhúsinu, sumriđ
í brekkunum upp af Fjörunni og hét "Málverk um Búđargil og brekkurnar".
Hér, hjá Jónasi Viđari, sýndi ég ykkur fyrir ári "Haustbrekkur", höfgan
gróđur ađ syngja sitt síđasta međ trega , flúri og fagurgala.
Nú hefur snjóađ yfir allt ţađ litskrúđ en brekkurnar eru ţarna enn og
húsin undir rótum ţeirra og enn er ég ađ fást viđ litbrigđin , sem verđa
af samspili ţess sem er og uppspunans sem ţarf viđ gerđ málverks.
Ţiđ eruđ ađ fylgjast međ hvernig fram vindur bragnum um brekkurnar í
Innbćnum og ţessa sýningu , sem er í beinu framhaldi af hinum fyrrnefndu,
ćtla ég ađ kalla "Vetrarbrekkur" til ađgreiningar. Held hér áfram samtali
viđ nánasta umhverfi mitt og nálgast ţađ í endurtekinni leit ađ einhverju
sem nefna mćtti persónulega túlkun, hvort á einstaka stađ auđnist mér ađ
hitta á einhverskonar klaufaskap eđa tiktúrur sem nćgi til ađ úr verđi
sjálfstćđ sýn og dugi til málverks. Ţađ kann ađ vera borin von.
En hvađ sem ţví líđur eru hér "Vetrarbrekkur" eins og ég sá ţćr ekki og ef
ţiđ ţekkiđ ţćr í sjón er ţađ til merkis um ađ mér hafi mistekist međ
öllu."
Jónas Viđar
sími: 8665021
Heimasíđa: http://www.jvs.is
Jónas Viđar Gallery: http://www.jvs.is/jvgallery.htm
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 09:23 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
14.1.2010 | 22:34
Joris Rademaker í Listasafninu á Akureyri
14.1.2010 | 12:34
Anna Gunnarsdóttir sýnir í bćjarstjórnarsalnum í Ráđhúsi Akureyrar
Opnun sýningarinnar MIKADO í Gallerí Ráđhús.
Föstudaginn 15. janúar klukkan 12 opnar listakonan Anna Gunnarsdóttir
sýningu í Gallerí Ráđhús sem er stađsett í bćjarstjórnarsal ráđhússins.
Sýninguna nefnir hún MIKADO. Verkin á sýningunni eru unnin út frá japanska
spilinu mikado ţar sem leikmenn spila međ prik.
Öll verkin á sýningunni eru unnin međ shibori tćkni og indigo lituđ.
Shibori er gömul japönsk tćkni sem notuđ er viđ ţađ ađ búa til munstur á
efni sem síđan eru lituđ.
Efnin eru sett á pappa hólka sem lokiđ hafa sínu starfi ađ halda textíl
efnum og fá nýtt hlutverk í leik sem listaverk á vegg.
"Ţetta er leikur minn međ mikado spil" segir Anna.
Anna Gunnarsdóttir lćrđi textílhönnun á Íslandi og Danmörk auk ţess ađ hafa
sótt fjölda námskeiđa um textíl.
Hún hefur síđari ár ađallega fengist viđ vinnslu á ţćfđri ull og textíl. Hún
blandar saman nytjavöru, myndlist og fatahönnun međ ţessum miđlum
Anna á ađ baki fjölda sýninga víđs vegar um heim og hefur hlotiđ verđlauna
og viđurkenningar fyrir verk sín.
Hún er annar eigandi gallerý Svartfugl og Hvítspóa í miđbć Akureyrar og er
félagi í Textílfélaginu, Myndlistarfélaginu og Sambandi íslenskra
myndlistarmanna.
Anna var valin bćjarlistamađur Akureyrar áriđ 2008.
Nánari upplýsingar veitir Anna í síma 897 6064 eđa tölvupósti : anna.design@nett.is
13.1.2010 | 00:57
Sjálfsmyndir í Boxinu, sal Myndlistarfélagsins
Sjálfsmyndir
Súpan
sýnir afrakstur samstarfs síns viđ unga sem aldna allt frá nyrstu ströndum
til nafla alheimsins ...
á 4x farandsýningum í:
Bragganum Öxarfirđi í nóvember
SÍM salnum og Kaffistofunni á Hverfisgötu í desember og nú í
Boxinu, sal Myndlistarfélagsins í Listagilinu á Akureyri 16. janúar 7. febrúar.
Opnun laugardaginn 16. janúar kl. 14
Allir hjartanlega velkomnir
Björg Eiríksdóttir umm.is
Edda Ţórey Kristfinnsdóttir eddathorey.com
Jóna Bergdal Jakobsdóttir umm.is
Unnur G. Óttarsdóttir umm.is
Yst Ingunn St. Svavarsdóttir yst.is
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 00:59 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
12.1.2010 | 09:28
Ţórgnýr Dýrfjörđ sýnir ljósmyndir í Populus Tremula
ŢÓRGNÝR DÝRFJÖRĐ ŢREIFANDI 16.-17. jan.
Laugardaginn 16. janúar kl. 14.00 opnar Ţórgnýr Dýrfjörđ áhugaljósmyndari sýninguna Ţreifandi í Populus Tremula. Ţar sýnir hann ljósmyndir teknar á síđustu tveimur árum og eru viđfangsefnin af ýmsum toga, portrett, bćjarmyndir og landslag. Sýningin er einnig opin sunnudaginn 17. janúar kl. 14-17.
Ţórgnýr hefur veriđ hugfanginn af ljósmyndun allt frá barnćsku og lagđi sig sérstaklega eftir henni á unglingsárum, eignađist góđa myndavél og fékkst viđ allan ferilinn frá myndatöku til framköllunar og stćkkunar í myrkraherbergi. Ljósmyndadellan rénađi svo nokkuđ um árabil ţó vélin vćri aldrei langt undan. Á síđustu árum hefur hann nýtt sér stafrćna ljósmyndatćkni og í gegnum hana endurnýjađ kynnin viđ sitt gamla áhugamál. Ţórgnýr beinir linsunni ađ fjölbreytilegum viđfangsefnum, gerir tilraunir međ tćkni, sjónarhorn, myndbyggingu og myndvinnslu. Sýningin í Populus Tremula er sú fyrsta sem Ţórgnýr heldur um ćvina ţó nokkrar ljósmyndir eftir hann hafi birst á opinberum vettvangi á vefsíđum og í dagblöđum.
Populus Tremula, Listagili, Akureyri
Tvćr sýningar opna í DaLí Gallery laugardaginn 9. Janúar 2010 kl.14-17.
Ţađ eru fyrstu sýningar ársins í DaLí Gallery, og eru ţar á ferđ
listakonurnar Margrét Buhl og Jana María Guđmundsdóttir.
Myndlistakonan Margrét Buhl opnar í DaLí Gallery og vinnur Margrét
innsetningu í salinn sem fjallar um minningar, tímabil og tónlistatengsl
međ persónulegri nálgun. Margrét er útskrifuđ frá Myndlistaskólanum á
Akureyri og er ţetta fyrsta einkasýning listakonunnar.
Jana María Guđmundsdóttir, söng og leikkona opnar sýningu í litla rýminu
KOM INN sem stađsett er á vinnustofu DaLí, einu af minnstu sýningarrýmum
landsins. Jana María verđur einnig međ innsetningu og í verki sínu leikur
hún sér međ upplifun skynfćranna og andlega nćringu. Jana María lauk
fornámi í Myndlistaskólanum í Reykjavík, burtfararprófi í einsöng í
Söngskóla Reykjavíkur og BA í leiklist viđ Konunglega Listaháskólann í
Skotlandi, Royal Schottish Academy of Music and Drama.
DaLí Gallery er opiđ laugardaga og sunnudaga kl. 14-17 međan á sýningunum
stendur - til 24.janúar.
Allir Velkomnir
DaLí Gallery Brekkugata 9, 600 Akureyri
www.daligallery.blogspot.com
dagrunm@snerpa.is / lina@nett.is
8957171 / 8697872
7.1.2010 | 06:56
ĆVI Í ULL: fyrirlestur og sýning
ĆVI Í ULL
Einstakt tćkifćri til ađ kynnast ullarvinnslu og -framleiđslu á öldinni sem leiđ.
Kristinn Arnţórsson, ullarfrćđingur, flytur fyrirlestur um ull og ullarframleiđslu á öldinni sem leiđ á Amtsbókasafninu á Akureyri, laugardaginn 9. janúar klukkan 14:00.
Um leiđ verđur opnuđ á Amtsbókasafninu sýning Iđnađarsafnsins um ull og ullarframleiđslu á síđustu öld. Sýningin verđur opin til 31. janúar.
Ćvi Kristins er ofin í ull allt frá ţví hann lék sér viđ verksmiđjulćkinn sem barn ţar til hann lét af störfum sem ullarfrćđingur. Eftir nám í Englandi hóf Kristinn störf viđ Gefjun ţar sem hann hafđi m.a. međ höndum ađ blanda saman ullarhárum sauđkindanna til ađ búa til sauđalitina í ullargarni sem enn er notađ í dag. Ennfremur hönnun á mynstri vćrđarvođa og margt fleira sem lítur ađ vinnslu og hönnun á ullarvörum. M.a. á Kristinn stóran ţátt í hönnun á ţeim varningi sem seldur var í vöruskiptum viđ Rússland og taldi milljónir af ullarvörum.
Fyrirlesturinn og sýningin eru á vegum Iđnađarsafnsins á Akureyri međ dyggum stuđningi Menningarráđs Eyţings.
6.1.2010 | 09:41
Anna Gunnarsdóttir opnar sýninguna “Chakra“ á Café Karólínu
Anna Gunnarsdóttir
Chakra
09.01.10 - 05.02.10
Café Karólína // Kaupvangsstrćti 23 // IS 600 Akureyri // 4612755
---
Anna Gunnarsdóttir opnar sýninguna Chakra á Café Karólínu laugardaginn 9. janúar klukkan 15.
Chakra er úr Sanskrít og ţýđir hringur eđa hringrás og táknar orkustöđvar líkamans. Verkin eru sjö og eru ţau unnin út frá litum og formum orkustöđvanna. Ţau eru vafin međ ţráđum og formuđ eftir alda gamalli tćkni og sum ţeirra lýsa í myrkri.
Anna stundađi nám viđ Verkmenntaskólann á Akureyri auk ţess hefur hún sótt fjölda námskeiđa í Danmörk, Englandi og fleiri löndum. Hún vinnur verk sín í ull, silki, leđur og fiskiskinn. Anna starfrćkir vinnustofu sína og sýningarađstöđu, Svartfugl og Hvítspóa, í miđbć Akureyrar. Anna er félagi í Textílfélaginu, Myndlistarfélaginu og Sambandi íslenskra myndlistarmanna. Hún á ađ baki fjölda einkasýninga og samsýninga heima og erlendis auk ţess hefur hún fengiđ viđurkenningar fyrir verk sín.
Áriđ 2008 var Anna valin bćjarlistamađur Akureyrar.
Međfylgjandi mynd er af einu verka Önnu.
Nánari upplýsingar veitir Anna í síma 897 6064 eđa tölvupósti : anna.design@nett.is
Sýningin stendur til föstudagsins 5. febrúar og allir eru velkomnir.
Nćstu sýningar á Café Karólínu:
06.02.10 - 05.03.10 Samúel Jóhannsson
06.03.10 - 02.04.10 Guđbjörg Ringsted
03.04.10 - 30.04.10 Kristján Pétur Sigurđsson
01.05.10 - 04.06.10 List án landamćra
05.06.10 - 02.07.10 Hanna Hlíf Bjarnadóttir