27.8.2008 | 10:57
Tvær sýningar opna í GalleríBOXi laugardaginn 30. ágúst klukkan 14:30
Siggi Eggertsson: Bíttar ekki máli
Raquel Mendes: Generosa
30.08. - 14.09.2008
Opnun laugardaginn 30. ágúst klukkan 14:30
GalleríBox
Kaupvangsstræti 10
600 Akureyri
Raquel Mendes og Siggi Eggertsson opna sýningarnar "Generosa" og "Bíttar ekki máli" í GalleríBOXi laugardaginn 30. ágúst kl.14:30. GalleríBox sem er við Kaupvangsstræti 10 á Akureyri er opið föstudaga, laugardaga og sunnudaga frá 14:00 til 17:00. Sýningarnar standa til og með 14. september 2008.
Siggi Eggertsson stundaði nám í grafískri hönnun við Listaháskóla Íslands árin 2003 til 2006 og útskrifaðist þaðan með B.A gráðu, árið 2005 stundaði hann einnig nám við Kunsthochschule Berlin Weissensee. Hann hlaut viðurkenningu Print's New Visual Artists 2006, hlaut tilnefningu til menningarverðlauna DV 2008 og er nú tilnefndur til Íslensku Sjónlistarverðlaunanna í flokki hönnunar.
Sýningin Bíttar ekki máli" er að jöfnu hlutfalli listsýning og safnarasýning. Nýtt verk sem Siggi hefur framkvæmt á staðnum er nokkuð óhefðbundin mósaík, búin til úr safni körfuboltamynda frá æskuárunum.
Raquel Mendes útskrifaðist úr skúlptúrdeild listaháskólans í Lissabon árið 2002 og lauk Mastersgráðu frá listaháskólanum í Glasgow 2007.
Athuganir á aðlögunarhæfni manneskjunnar og getu hennar til þess að bregðast við óvæntum aðstæðum eru megin uppspretta verka Raquel Mendes. Raquel fæst við skúlptúr, innsetningar og nú upp á síðkastið ljósmyndun og videoverk.
Verkefnið "Generosa" var grundvallað á athugunum og skráningu (ljósmyndir/video) ástands og hátternis, sem leiddu í ljós merki um andlega og líkamlega hnignun ömmu hennar. Andspænis slíkum aðstæðum var nauðsyn á köldu auga myndavélarinnar til þess að aðskilja sorgarferlið, einnig þörf á fegrandi lýsingu sem gerir áorkanina yfirskilvitlegri og þar af leiðandi bærilegri en líka, án efa, þrungna merkingu.
Nánari upplýsingar: http://www.galleribox.blogspot.com
Siggi Eggertsson: http://www.vanillusaft.com
Raquel Mendes: http://artnews.org/artist.php?i=3044
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.