List án landamæra: Dagskrá á Akureyri

Verið hjartanlega velkomin á dagskrá Listar án landamæra á Akureyri.
Laugardaginn 3.maí og fimmtudaginn 8.maí.

Við minnum einnig á að nú standa yfir sýningar Huglistar og Ingvars Ellerts Óskarssonar í Safnasafninu á Svalbarðsströnd.
 


Akur-eyri

3. maí, laugardagur
Mynd-list á Akur-eyri
Tími: 15:00
 
Snúist í Hringi, sýning Rósu Júlíusdóttur og Karls Guðmundssonar
 
Sýning stendur til 18. maí
Ketilhúsinu, Kaupvangsstræti 23
600 Akureyri

 
Karl Guðmundsson (Kalli) og Rósa Kristín Júlíusdóttir hafa unnið saman að listsköpun í fjöldamörg ár, bæði sem kennari og nemandi en líka sem félagar/vinir í listinni. Þau hafa haldið sameiginlegar listsýningar og tekið þátt í margskonar samsýningum. Einnig hafa þau haldið fyrirlestra um samvinnu sína í tengslum við sýningarnar og á ráðstefnu um menntamál.
Karl Guðmundsson útskrifaðist af myndlistabraut Verkmenntaskólans á Akureyri vorið 2007 og í mörg ár hefur hann komið á vinnustofu Rósu Kristínar til náms og leiks. Karl býr yfir  næmri listrænni tilfinningu.
Rósa Kristín útskrifaðist úr málunardeild Listaakademíunnar í Bologna á Ítalíu. Hún kenndi við Myndlistaskólann á Akureyri frá 1980 – 2000 og var stundakennari við LHÍ í nokkur ár.
Rósa er lektor í myndlistakennslu við Háskólann á Akureyri.
 


DaLí Gallerý

Brekkugötu 9, 600 Akureyri
daligallery.blogspot.com


Samsýning 13 listamanna af Starfsbraut Verkmenntaskólans á Akureyri í nafni Listar án landamæra opnar laugardaginn 3.maí kl.15-17 í DaLí Gallerý.
Á sýningunni má sjá málverk, teikningar, skúlptúr, myndbandsverk, textíl og skartgripi sem er afrakstur listafólksins á vorönn 2008. 

Listamennirnir eru:

Andri Már Lýðsson
Baldvin Steinn Torfason
Dagrún Finnsdóttir
Bára Ásbjörnsdóttir
Hafþór Ægir Guðmundsson
María Einarsdóttir
Rósa Ösp Traustadóttir
Sigrún Björk Friðriksdóttir
Sigrún Ísleifsdóttir
Sindri Thorlacius

Sýningin stendur til sunnudagsins 11. maí.
Allir hjartanlega velkomnir.
 


Opið hús í Lautinni
 
Tími: 14:00 – 17:00 (2 – 5)
Brekkugata 34, 600 Akureyri
www.redcross.is

 
Ýmis listaverk, handverk og ljóð til sýnis og gómsætar kaffiveitingar til sölu.


8. maí, fimmtudagur

Fjöl-mennt í Amts-bókasafninu
Tími: 17:00 ( 5)
Brekkugötu 17,600 Akureyri

 
Myndlistarsýning Fjölmenntar á Amtsbókasafninu fimmtudaginn 8. maí kl. 17:00. Það eru fornminjar og frumbyggjalist sem meðal annars hafa veitt okkur innblástur. Á sýningunni eru málverk, leikföng og verk unnin í leir og úr pappamassa. Veitingar og lifandi tónlist við opnun. Sýningin stendur til loka júní mánaðar.

--
List án landamæra
www.listanlandamaera.blog.is
Sími: 691-8756


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband