2.11.2018 | 10:01
Gildagur 3. nóvemeber 2018
Annar Gildagur vetrarins í Listagilinu er laugardaginn 3. nóvember. Opnanir sýninga, vinnustofur, tilboð í verslunum, lifandi tónlist og margt fleira. Kaupvangsstræti/Listagilið verður opið fyrir gangandi en lokað fyrir bílaumferð að hluta milli kl. 14-17.
Dagskrá dagsins (með fyrirvara um breytingar)
kl. 9 - 23 Gildagur 3. nóvember - Gil kaffihús
Gil kaffihús verður með tilboð á tertum og kaffidrykkjum, tesmakk og langan happy hour,16-21 þennan skemmtilega dag! DJ Kveldúlfur verður svo að spila kl.21- ekki láta ykkur vanta!
Kl. 8:30 - 15 Verslun opin - Flóra - verslun, vinnustofur, viðburðir
Til sölu og sýnis verk og vörur eftir nefnda jafnt sem ónefnda listamenn, hönnuði, heimaframleiðendur, bændur og aðra frumskapendur.
kl. 13 - 17 Gildagur í Sjoppunni 3.11 - Sjoppan vöruhús
Í tilefni Gildagsins í Listagilinu verður Jón í lit á sérstöku Gildagsverði. Einnig verða tilboð á völdum vörum, smakk á jólalakkrís frá Johan Bulow og blöðrur fyrir börnin á meðan birgðir endast. Gestir geta skráð sig í Gildagsleik Sjoppunnar. Dregið verður í lok dags og hlýtur einn heppinn viðskiptavinur lakkrísdagatal frá Lakrids.
kl. 14 - 17 Opin verslun á Gildeginum - Vörur eftir hönnuði hússins - Gilið vinnustofur
Grafíkverk, Textíl vörur, kort, furðudýr og fleira. Kíkið við í litlu verslunina okkar og gerið góð kaup.
kl. 14 - 17 Hauströkkur - Ragnar Hólm - Ragnar Hólm
(Sýningin stendur til og með 4. nóv)
Ragnar Hólm sýnir nýjar vatnslitamyndir og nokkur olíumálverk. Hann hélt fyrstu sýningu sína í Populus tremula vorið 2010 en síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar. Tónlistarmennirnir Pálmi Gunnarsson og Kristján Edelstein leika af fingrum fram við opnun á laugardag.
kl. 14 - 17 Flóamarkaður í RÖSK RÝMI! - Rösk
Flóamarkaður að hætti RÖSK! Spennandi allskonar til sölu!
kl. 14 - 17 Myndir-Sölusýning! - Thora Karlsdottir
Thora Karlsdottir myndlistamaður opnar sýninguna "Myndir-Sölusýning" í RÖSK RÝMI, forstofu gallerí.
kl. 14 - 17 Hand- og sjónverk - Björg Eiríksdóttir/ Mjólkurbúðin - Salur Myndlistarfélagsins (Sýningin stendur til og með 11. nóv)
Á sýningunni verða útsaumsverk og málverk sem unnin eru á þessu ári og því síðasta. Munstur, lagskipting og samskiptin við verkin í vinnuferlinu eru í fyrirrúmi. Munstrin eru unnin út frá teikningum, hekluðum dúkum og gróðri og eru þrykkt, saumuð út og máluð í mörgum lögum. Verkin fela í sér langan tíma.
kl. 14 - 18 Triin Kukk - Merry Melancholy - Kaktus
Myndlistasýningin MERRY MELANCHOLY eftir Triin Kukk.
(Opnun er 2. nóv kl. 20. Sýningin stendur til og með 4. nóv)
kl. 15 -17 Örn Ingi Gíslason: Lífið er LEIK-fimi / Life´s PLAY-fullness - Listasafnið á Akureyri / Akureyri Art Museum (Sýningin stendur til og með 27. janúar 2019)
Opnun yfirlitssýningar á verkum Arnar Inga Gíslasonar. Sýningin er í raun skipulagður gjörningur sem stendur yfir í 3 mánuði, þar sem nýir fletir á verkum listamannsins verða sýndir á hverjum degi. Gjörningnum lýkur með kynningu á bókinni Lífið er LEIK-fimi. Léttar veitingar á opnunardegi.
- Taktu daginn frá og fylgstu vel með.
#gildagur #akureyri #hallóakureyri
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.