13.1.2015 | 22:44
Rósa Sigrún Jónsdóttir og Brenton Alexander Smith opna sýningar í Listasafninu á Akureyri
Laugardaginn 17. janúar kl. 15 verða opnaðar tvær sýningar í Listasafninu á Akureyri; annars vegar sýning Rósu Sigrúnar Jónsdóttur, Svelgir, í Ketilhúsinu og hins vegar opnar ástralski listamaðurinn Brenton Alexander Smith undir yfirskriftinni Með vélum / Together With Machines í vestursal Listasafnsins. Síðarnefnda sýningin er hluti af sýningaröð sem mun standa til 8. mars og inniheldur 8 vikulangar sýningar. Habby Osk sýndi í síðustu viku en aðrir sýnendur eru í tímaröð: Jóna Hlíf Halldórsdóttir, Kristján Pétur Sigurðsson, Þóra Karlsdóttir, Joris Rademaker, Lárus H. List og Arnar Ómarsson.
Rósa Sigrún Jónsdóttir útskrifaðist frá Kennaraháskóla Íslands 1987 og Listaháskóla Íslands 2001. Hún hefur haldið fjölda einkasýninga á Íslandi og erlendis og tekið þátt í fjölmörgum samsýningum. Rósa var formaður Myndhöggvarafélagsins í Reykjavík í fjögur ár auk þess að vera fulltrúi SÍM í Listskreytingasjóði og sitja sem varamaður í stjórn félagsins.
Það er eitthvað við handavinnu sem nær tökum á mér, hendurnar verða háðar henni og höfuðið finnur ekki frið nema eitthvað sé í gangi milli handanna, segir Rósa. Frá útskrift úr Listaháskólanum hef ég öðru hvoru sett upp nokkuð stórar textílinnsetningar byggðar upp af hekli og prjóni sem strekkist út í rýminu. Mér finnst áhugavert að skoða þennan efnivið sem á sér svo djúpar rætur í menningarheimi kvenna og láta reyna á þanþolið í þræðinum.
Að þessu sinni fékk Rósa til liðs við sig hóp kvenna sem hefur heklað og prjónað samkvæmt nokkrum fyrirfram gefnum reglum um form og liti frá því í ágúst 2014. Sýningin stendur til 1. mars.
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.