Færsluflokkur: Menning og listir

Kristján Eldjárn opnar sýningu í Mjólkurbúðinni

n1-ke.jpg

Kristján Eldjárn opnar málverkasýningu í Mjólkurbúðinni í listagilinu á Akureyri, laugardaginn 27.apríl kl. 15
 
Kristján sýnir myndröð abstrakt málverka sem hann málaði á þessu ári. Verkin eru unnin með blandaðri tækni sem eru máluð í beinu framhaldi af síðustu sýningum listamannsins.
 
Kristján stundaði verkfræðinám í Noregi og Bandaríkjunum og samhliða því ljósmyndanám.  Í Menntaskólanum á Akureyri stundaði hann myndlistanám hjá Guðmundi Ármann sem einnig hefur veitt Kristjáni leiðsögn síðari ár auk fleiri þekktra myndlistamanna.  
Málverkið hefur með árunum orðið honum æ hugleiknara.
 
Kristján hefur haldið margar sýningar á verkum sínum, bæði hérlendis og erlendis. Meðal annars í Kaupmannahöfn og í Mars Gallery Moskva í Rússlandi á síðasta ári og er nýafstaðin sýning hans í Gallery Fold.
 
Sýningin stendur til 12.maí og eru allir velkomnir
Opið laugardaga og sunnudaga kl.14-17 og eftir frekara samkomulagi.
 
Mjólkurbúðin s.8957173
 
Mjólkurbúðin Listagili er á facebook – Vertu vinur!


Gunnar Andrésson og Þórarinn Blöndal sýna í Populus tremula

To%CC%81ti-og-Gunni-27.4
 
Laugardaginn 27. apríl kl. 14.00 opna myndlistarmennirnir Gunnar Andrésson og Þórarinn Blöndal  sýninguna Hvalóður í Populus tremula.

„Á góðum degi rann á menn ofsi. Eftir að dýrið hafði verið dregið upp úr djúpunum hófst hinn taktvissi og hnitmiðaði dans í kringum það, hnífarnir einsog sprotar töfralækna, söngurinn í rjúkandi vinsunum, galdramöntrur hjálparanda. Og sólin yfir öllu. Rannsakandi auga hins mikla guðs. Maður og dýr urðu eitt. Menn urðu hvalóðir.“

Sýningin verður einnig opin sunnudaginn 28. apríl frá kl. 14.00-17.00. 
Aðeins þessi eina helgi.

List án landamæra í Deiglunni

lis-an-Landamara1-1024x768

Laugardaginn 27. apríl kl. 14.30 opnar sýningin List án landamæra í sýningarsalnum Deiglunni sem staðsett er í Listagilinu á Akureyri. Á sýningunni, sem hópurinn Geðlist stendur fyrir, verður boðið upp á ljóðlist, stólahönnun, útskurð, málverk og margt fleira.

List án landamæra er listahátíð fjölbreytileikans, árlegur viðburður sem miðar að því að kynna verk fólks með fötlun og koma á samstarfi milli fatlaðs og ófatlaðs listafólks. Áhersla hátíðarinnar er á sýnileika ólíkra einstaklinga og frjóa samvinnu. Sýnileiki hefur enda bein áhrif á jafnrétti á öllum sviðum. List án landamæra er hátíð þess mögulega, hátíð margbreytni og tækifæra fyrir alla í því góða samfélagi sem við byggjum.  Fjölmargir hæfileikaríkir listamenn taka þátt í hátíðarhöldunum og á undanförnum árum hefur hún þróast í skemmtilegar áttir. Æ fleiri eru nú meðvitaðir um gildi hennar í listalífinu, bæði þátttakendur og gestir.

Sýningin stendur til 12. maí og er opin alla daga nema mánudaga og þriðjudaga kl. 14-17. Aðgangur er ókeypis.


Sjávarsýn í Listasafninu á Akureyri

li_01538

Í Listasafninu á Akureyri verður laugardaginn 27. apríl kl. 15 opnuð sýning á fjölmörgum perlum íslenskrar myndlistar. Hér gefur að líta úrval verka úr fórum Listasafns Íslands þar sem íslenskir listamenn hafa sótt innblástur sinn til hafsins og veitir sýningin áhugaverða yfirsýn yfir hvernig þeir hafa nálgast þetta viðfangsefni í gegnum tíðina.

Þjóðin var mótuð af hugsunarhætti landbúnaðarsamfélagsins fram undir lok síðari heimsstyrjaldar og fengust listamenn næstum eingöngu við landslagsmyndir fram að þeim tíma. Þegar líða tók á fjórða áratuginn viku rómantískar náttúrulýsingar, sem hjálpuðu til við að sameina þjóðina í sjálfstæðisbaráttunni, fyrir persónulegri og fjölbreyttari hugarefnum um leið og sjávarútvegurinn festi sig í sessi sem aðalatvinnuvegur landsins. Þótt Íslendingar hafi lengi sótt sjóinn og búi flestir við ströndina fer ekki mikið fyrir hafinu í okkar myndlistarsögu. Á því eru þó ýmsar merkilegar undantekningar eins og sjá má á þessari sýningu sem skartar verkum eftir marga af okkar þekktustu myndlistarmönnum á borð við Gunnlaug Scheving, Jón Engilberts, Ásgrím Jónsson og Kristínu Jónsdóttur. Hafið er rauði þráðurinn í verkunum en efnistök þessara gömlu meistara eru af ýmsum toga.

Sýningin stendur til 9. júní og er opið alla daga nema mánudaga og þriðjudaga frá kl. 13-17. Sumaropnunartími Sjónlistamiðstöðvarinnar verður frá og með 1. júní kl. 9-17 alla daga nema mánudaga. Aðgangur er ókeypis.


Sýningin Rat Manicure í Hlöðunni, Litla-Garði

rottamednafninu.jpg

Sýningin Rat Manicure verður opnuð í Hlöðunni, Litla-Garði þann 20. apríl næstkomandi. Sýningin byggir á verkum eftir unga konu á einhverfurófi sem gengur undir listamannsnafninu Sockface en heitir Bjarney Anna Jóhannesdóttir og er fædd 1. desember 1992 á Akureyri. Hún gefur nú einnig út sína fyrstu plötu þar sem hún syngur eigin lög og spilar á öll hljóðfæri en hún hefur samið sögur, lög og texta, teiknað og málað frá unga aldri. Utan um lögin á plötunni er byggt mismunandi rými þar sem myndlistin fær að njóta sín og fá áhorfendur næði til að njóta tónlistarinnar í einrúmi.

Sýningin verður opnuð í Hlöðunni, Litla-Garði þann 20. apríl og verður opið frá kl. 14:00-18:00 auk þess sem hún verður einnig opin dagana 21., 27. og 28. apríl á sama tíma.

Nánar á http://www.akureyrivikublad.is/akvbl/mannlifid/2013/04/19/a-rotta-ad-fa-handsnyrtingu/

og viðtal á N4 hér: http://www.n4.is/tube/file/view/3332/f


Innsetningin MERDE ÉMOTIONNEL í Gallerí Ískáp

iskapur


Að þessu sinni er samsýning stofnenda Ískápsins, þeirra Freyju Reynisdóttur, Gunnhildar Helgadóttur og Karólínu Baldvinsdóttur.
Samlagið opnar 14:00 laugardaginn 20. apríl 2013, allir hjartanlega velkomnir. Sódavatn og saltstangir með dýfu í boði að vanda.

Hvar?
Gallerí Ískápur / Gallery Fridge (Kaupvangsstræti 12. Listasafnshúsið/gengið inn úr portinu fyrir ofan, baka til)

Vefsíða Gallerí Ískáps: http://samlagid.portfoliobox.me/

 


Útskriftarnemendur Listnámsbrautar VMA sýna í Verksmiðjunni á Hjalteyri

vma_verksmidjan.jpg

Útskriftarnemendur Listnámsbrautar í Verkmenntaskóla Akureyrar bjóða þér á sýninguna „Loksins“ sem haldin verður í gömlu verksmiðjunni á Hjalteyri helgina 20. og 21. apríl næstkomandi.
Húsið verður opið frá klukkan 14.00-17.00 báða dagana.
Nemendurnir sem eru 21 talsins munu hver og einn sýna lokaverkin sín sem þeir hafa verið að vinna að síðan í byrjun skólaannar. Verkin eru mjög fjölbreytt og hvetjum við ykkur eindregið til að kíkja til okkar.
Frír aðgangur er á sýninguna og mun verða boðið uppá heitt kakó og bakkelsi.
Þar sem engin kynding er í húsinu ráðleggjum við öllum að koma vel klæddir til að geta notið sýningarinnar til fulls.
Vonumst til að sjá sem flesta.
Útskriftanemar Listnámsbrautar Verkmenntaskólans á Akureyri.

Eftirtaldir nemendur eru að sýna verkin sín :
Snædís Birna Jósepsdóttir
Jón Arnar Kristjánsson
Gunnar Jarl Gunnarsson
Guðmundur Ragnar Frímann Vignisson
Ragnheiður Vilma Ingvarsdóttir
Karen Erludóttir
Guðfinna Gunnur Hafþórsdóttir
Sara Daníelsdóttir
Elfur Sunna
Þórhallur Jóhannsson
Sigurður Heimir Guðjónsson
Lilja Huld Friðjónsdóttir
Íris Björk
Agla Guðbjörg
Heiðbjört Ýrr Guðmundsdóttir
Kristín Jónsdóttir
Sigríður Pálmadóttir
Aðalbjörg Gunnarsdóttir
Anna Karen Eyjólfsdóttir
Erna Hermannsdóttir
Helga Dagný Einarsdóttir

https://www.facebook.com/events/325763527526950


Gunnhildur Helgadóttir sýnir í Gallerí Ískápi

iskapur.jpg

LANDSLAG
Gunnhildur Helgadóttir sýnir í Gallerí Ískápi, laugardaginn 13. apríl. kl: 14:00

Hvar?
Gallerí Ískápur / Gallery Fridge (Kaupvangsstræti 12. Listasafnshúsið/gengið inn úr portinu fyrir ofan, baka til)

Vefsíða Gallerí Ískáps: http://samlagid.portfoliobox.me/
Event á facebook: http://www.facebook.com/events/146933755479653/


Bandaríski ljósmyndarinn Mark Fohl sýningu í Populus tremula

 Mark-Fohl-web

SUITCASE PHOTOS

Mark Fohl

Laugardaginn  13. apríl kl. 14.00 opnar bandaríski ljósmyndarinn Mark Fohl sýninguna Suitcase Photos í Populus tremula.

Listamaðurinn, sem dvelur nú í Gestavinnustofu Gilfélagsins, er búsettur í Ohio í Bandaríkjunum þar sem hann stundar listræna ljósmyndun. Hann sýnir aðeins svarthvítar myndir sem teknar eru á filmu. 


Sýningin verður einnig opin sunnudaginn 14. apríl frá tvö til fimm. Aðeins þessi eina helgi.

 


Agnes Ársælsdóttir, Jón Arnar Kristjánsson og Þórður Indriði Björnsson sýna í Sal Myndlistarfélagsins

 iii.jpg

Talan þrír er skemmtileg að því leyti að hún fylgir í kjölfarið af tölunni tveimur og á undan fjórum, einnig erum við með 10 fingur, missir maður sjö verða einungis þrír eftir. Allt er þá þrennt er segir máltakið, óhöppin koma í þrennum og eru þau aðeins tilviljun, rétt eins og allt sem hrærist á þessari jörðu sem og tildrög þessarar sýningar. Samkvæmt Pýþagorasi var talan þrír hin fullkomna tala því hún átti sér upphaf, miðju og endi líkt og leikverk, kvikmynd, tónverk og lífvera. Talan þrír leikur stórt hlutverk í þjóðsögum og ævintýrum og magnar hún upp spennu líkt og spennan sem myndast á milli þriggja ólíkra einstaklinga sem komið er fyrir saman í tómu rými. Á sýningunni má sjá verk eftir þrjá einstaklinga sem eiga það sameiginlegt að stunda myndlistarnám við Verkmenntaskólann á Akureyri. En það eru þau Agnes Ársælsdóttir, Jón Arnar Kristjánsson og Þórður Indriði Björnsson sem eiga í hlut.

Salur Myndlistarfélagsins,
Kaupvangsstræti 10, Listagili, 600 Akureyri.

Opnunartími:

Laugardagurinn 6.Apríl 14:00 - 21:00
Sunnudagurinn 7. Apríl 13:00 - 16:00

Látið orðið berast.

https://www.facebook.com/events/312485165547316/


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband