Færsluflokkur: Menning og listir
13.9.2012 | 14:28
Ásmundur Ásmundsson les upp í Flóru
Ásmundur Ásmundsson les upp í Flóru
14. september 2012, kl. 17.00
Flóra, Hafnarstræti 90, 600 Akureyri, s. 6610168
http://floraflora.is
https://www.facebook.com/flora.akureyri
Myndlistarmaðurinn Ásmundur Ásmundsson mun lesa upp úr bók sinni Kæru vinir / Dear friends föstudaginn 14. september kl. 17.
Ásmundur er einn þriggja myndlistarmanna sem tilnefndur er til Sjónlistaverðlaunanna 2012. Árið 2011 kom út bókin Kæru vinir / Dear friends hjá Útúrdúr og hún inniheldur fjörbreyttar tækifærisræður sem Ásmundur hefur flutt við hin ýmsu tilefni. Ásmundur hefur gefið út nokkrar bækur og skrifað greinar í blöð og tímarit.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir og upplesturinn stendur frá kl. 17-17:30 eða þar um bil.
Flóra er verslun, vinnustofa og viðburðastaður Kristínar Þóru Kjartansdóttur félagsfræðings og garðyrkjukonu. Áherslan er á nýtingu, endurnýtingu, náttúrutengsl og verkmenningu. Listrænn ráðunautur staðarins er Hlynur Hallsson, myndlistarmaður.
13.9.2012 | 10:53
Aðalheiður Valgeirsdóttir sýnir í Mjólkurbúðinni í Listagilinu
Laugardaginn 15. september 2011 verður opnuð sýning á málverkum Aðalheiðar Valgeirsdóttur í Mjólkurbúðinni, Listagilinu á Akureyri. Sýningin ber yfirskriftina Jarðsamband sem vísar til tengsla mannsins við náttúruna.
Málverkin vann Aðalheiður á vinnustofu sinni í Biskupstungum. Í nálægð við náttúruna og síbreytilega ásýnd hennar allan ársins hring vakna upp spurningar um tengsl manns og náttúru. Maður og jörð eru samofin og mynda þannig jarðsamband sem miðlar verkinu. Maðurinn sem áhorfandi og hluti af heild er upphafspunktur upplifunar sem hverfist um hann.
Verkin eru unnin í framhaldi af sýningu sem Aðalheiður hélt í sal Íslenskrar grafíkur í Reykjavík síðastliðið vor og nefndist Leitin að óskasteininum. Þar var hugmyndin um óskasteininn tilefni til samtals við náttúruna. Samkvæmt gamalli þjóðtrú hafði óskasteinninn töframátt og gat uppfyllt óskir manna og þrár. Enn er leitað að óskasteininum um leið og nánasta umhverfi er skoðað. Aðalheiður leitar eftir litum formum og efniskennd í moldinni, gróðrinum og steinunum. Þannig verða málverkin til vegna beinna hughrifa frá umhverfinu í sveitinni þar sem jörðin og allt umhverfið kallar á athygli svo úr verða birtingarmyndir samtals manns og máttúru.
Aðalheiður Valgeirsdóttir lauk námi frá Myndlista-og handíðaskóla Íslands 1978 og BA prófi í listfræði frá Háskóla Íslands 2011. Stundar nú MA nám í listfræði við Háskóla Íslands. Aðalheiður hefur haldið fjölda sýninga hér á landi og erlendis. Hún er félagi í Sambandi íslenskra myndlistamanna og félaginu Íslensk grafík.
12.9.2012 | 13:01
Unnar Örn opnar sýningu í Flóru
Unnar Örn
Brotabrot úr afrekssögu óeirðar á Íslandi: Fyrsti hluti
Fragments From the Deeds of Unrest in Iceland: Part One
15. september - 20. október 2012
Opnun laugardaginn 15. september kl. 14
Flóra, Hafnarstræti 90, 600 Akureyri, s. 6610168
http://floraflora.is
https://www.facebook.com/flora.akureyri
Laugardaginn 15. september kl. 14 opnar Unnar Örn J. Auðarson myndlistarsýningu sem nefnist Brotabrot úr afrekssögu óeirðar á Íslandi: Fyrsti hluti í Flóru í Hafnarstræti 90 á Akureyri.
Á sýningunni í Flóru beinir Unnar Örn sjónum sínum að geymd upplýsinga tengdum viðspyrnu almennings og hvernig átök í sögu þjóðar er eytt úr sameiginlegu minni af ríkjandi valdhöfum.
Unnar Örn J. Auðarson stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og framhaldsnám við Listaakademíuna í Malmö. Unnar Örn vinnur í ólíka miðla en verk hans eru yfirleitt hlutar úr stærri innsetningum þar sem hann vinnur á gagnrýninn hátt með umhverfi sitt, samfélagið og hlutverk listamannnsins innan þess. Unnar hélt sýna fyrstu einkasýningu í verslunarmiðstöðinni Kringlunni sem hluti af Gallerí Gúlp árið 1996 og síðan þá hefur hann tekið þátt í yfir 50 einka- og samsýningum hérlendis og erlendis.
Sýningin er öllum opin á opnunartíma Flóru mánudaga til föstudaga kl. 12-18 og laugardaga kl. 12-16 og stendur til laugardagsins 20. október 2012.
Heimasíða Unnars Arnar: http://unnarorn.net
Nánari upplýsingar veitir Unnar í síma 699 5621.
Flóra er verslun, vinnustofa og viðburðastaður Kristínar Þóru Kjartansdóttur félagsfræðings og garðyrkjukonu. Áherslan er á nýtingu, endurnýtingu, náttúrutengsl og verkmenningu. Listrænn ráðunautur staðarins er Hlynur Hallsson, myndlistarmaður.
12.9.2012 | 12:54
Sjónlist 2012 í Hofi
ENDURREISN ÍSLENSKU SJÓNLISTAVERÐLAUNANNA
verðlaunaafhending í Hofi 13. september kl. 20
Þrír einstaklingar hafa verið tilnefndir til Sjónlistaverðlaunanna af sérstakri dómnefnd sem skipuð er þremur fulltrúum frá Listaháskóla Íslands, Sambandi íslenskra myndlistarmanna og Listfræðifélagi Íslands. Einnig verður heiðurslistamaður útnefndur sem og Spíran veitt ungum og upprennandi listamanni. Hátíðin var haldin árlega á árunum 2006-2008 en hefur legið niðri vegna fjárskorts þar til nú. Áður voru verðlaunin veitt bæði hönnuði og myndlistarmanni en í ár verður sjónum einungis beint að myndlistarmönnum og eru þrír tilnefndir til Sjónlistaverðlauna.
Hátíðardagskráin hefst í Hamraborg í Hofi kl. 20 fimmtudagskvöldið 13. september. Allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir og aðgangur ókeypis en nauðsynlegt er að tryggja sér miða í miðasölu Hofs eftir kl. 13 fimmtudaginn 13. september. Sýning á verkum ofangreindra listamanna verður opnuð í Listasafninu á Akureyri laugardaginn 15. september kl. 15.
10.9.2012 | 13:29
Sýningu Jónu Hlífar í Flóru að ljúka
Jóna Hlíf Halldórsdóttir
Info
25. ágúst - 11. september 2012
Flóra, Hafnarstræti 90, 600 Akureyri, s. 6610168
http://floraflora.is
https://www.facebook.com/flora.akureyri
Þriðjudaginn 11. september lýkur sýningu Jónu Hlífar Halldórsdóttur sem nefnist Info í Flóru í Hafnarstræti 90 á Akureyri.
Verkin sem Jóna Hlíf sýnir í Flóru eru textaverk römmuð inn í gömul auglýsingaskilti sem fylgdu húsinu Hafnarstræti 90 þegar Frúin í Hamborg fékk húsið á sínum tíma.
Jóna Hlíf Halldórsdóttir er fædd í Reykjavík 1978 og hún býr og starfar þar. Hún stundaði nám við Myndlistarskólann á Akureyri á árunum 2002-2004. Hún útskrifaðist með MFA gráðu frá Glasgow School of Art 2007.
Verk Jónu Hlífar Halldórsdóttur hafa verið sýnd nokkuð víða, Kuckei+Kuckei í Berlín (2011), Listasafn Así (2010), Listasafn Reykjavíkur (2008), Listasafnið á Akureyri (2007), Kunstvlaai í Amsterdam(2006), í Tramway, Glasgow (2007, útskriftarsýning) og A Cabine do Amador í Lissabon (2007).
Sýningin er öllum opin á opnunartíma Flóru mánudaga til föstudaga kl. 12-18 og laugardaga kl. 12-16.
Heimasíða Jónu Hlífar: www.jonahlif.com
Nánari upplýsingar veitir Jóna Hlíf í síma 663 0545.
Flóra er verslun, vinnustofa og viðburðastaður Kristínar Þóru Kjartansdóttur félagsfræðings og garðyrkjukonu. Áherslan er á nýtingu, endurnýtingu, náttúrutengsl og verkmenningu. Listrænn ráðunautur staðarins er Hlynur Hallsson, myndlistarmaður.
8.9.2012 | 10:06
Umfjöllun umsýninguna Glóbal - lókal í Listasafninu á Akureyri
Pálína Guðmundsdóttir fræðslufulltrúi Sjónlistamiðstöðvarinnar á Akureyri
Listumfjöllun
Glóbal - lókal í Listasafninu á Akureyri (Sjónlistamiðstöðin).
Í listasafninu stendur nú yfir samsýningin Glóbal-lókal í tilefni af 150 ára afmæli Akureyrarbæjar. Sýningarstjóri er Dr. Hlynur Helgason. Sex listamenn sem á einn eða annan hátt tengjast Akureyri deila með sér rými safnsins. Listamennirnir hafa allir einhver tengsl við erlendan listheim gegnum búsetu, nám eða sýningahald erlendis.
Hér er fjallað um sýninguna með augum fræðslufulltrúa Sjónlistamiðstöðvarinnar á Akureyri sem er í nánast daglegum tengslum við sýninguna og marga af gestum hennar. Fellur þessi umfjöllun frekar undir listfræðslu fyrir almenning frekar en að um hefðbundna listgagnrýni sé að ræða. Hér verður hvorki vitnað í ítarlegan texta Dr. Hlyns Helgasonar, sem finna má á heimasíðu Sjónlistamiðstöðarinnar, né í listgagnrýni Þóroddar Bjarnasonar, sem birtist í Fréttablaðinu. Hvorutveggja á að vera sýnilegt á www.sjonlistamidstodin.is auk Sjónpípunnar sem er miðill stofnunarinnar sjálfrar.
Samruni - jafnvægi
Eftir að hafa unnið í safninu í fleiri vikur með sýningunni Glóbal-lókal eru þau hugtök sem fyrst koma upp í hugann samruni og jafnvægi. Jafnvægi er helst fólgið í valinu á listamönnunum og samruni í því hvernig verkin falla saman og á stundum verða að einu verki. Þar ber helst að nefna tónverk Baldvins Ringsted og söngvídíóverk Örnu Valsdóttur sem verður sem eitt verk við innganginn í miðsalinn. Þess ber að geta að það er vægast sagt þreytandi að hlusta á hávaða frá listaverkum á sýningum fyrir þá sem sitja yfir í fjóra tíma samfellt á dag en í þessu tilviki sleppur það nokkuð vel vegna þess hve verkin eru vönduð og falla vel saman.
Blámi norðursins
Sjálf sýningin hefst raunar með tvíræðum texta Hlyns Hallssonar utan á safninu við brunastigann en þar hefur hann krotað NEYÐARINNGANGUR. Mjög skilja menn þetta misjafnlega eins og sennilega er ætlun listamannsins.
Við safnaleiðsögn er best að byrja við þennan umrædda inngang að innanverðu og horfa yfir Austursalinn og yfir í Miðsalinn. Blái liturinn er yfirgnæfandi í verkunum sem sýnileg eru frá þessu sjónarhorni og tengir hann þau saman í þétta heild og vísar kannski ómeðvitað í norðrið, áttina til Norðurpólsins.
Flugferð Örnu í videoverki hennar þar sem fingur hennar reyna að snerta skýin og himininn og blár veggur Hlyns með hvítu blöðunum sem öll vísa til staða í bænum sem áhorfandinn getur myndgert á sérstökum blöðum, tóna vel saman. Bláa litinn er einnig að finna í textaverki Jónu Hlífar Halldórsdóttur þar sem bláir stafir (texti þar sem stendur Þú siglir aldrei til sama lands) eru á svörtum fleti sem og bláu málverki Baldvins af kirkju bæjarins og einhverri paradísarströnd með pálmum. Öll þessi fjögur verk, ýta ennfremur undir tilfinningu fyrir útkjálka norðursins og þess sem er lokal eða staðbundið.
Í sama sal er textaverk Hlyns með þremur textum á mismunandi tungumálum og er enski hlutinn skrifaður með bláum lit neðst á veggnum. Hinir textarnir eru í grænu og rauðu (sjá nánari útskýringu á verkunum í texta Dr. Hlyns Helgasonar á heimasíðu). Málverk Baldvins er áhugavert, bæði formið; að saga Akureyrarkirkju út og bæta ofan á verkið og einnig innihaldslega; tregi og rómantísk sýn á heimabæinn og táknmynd hans. Þetta ætti að vera kunnuglegt flestum þeim er dvalið hafa langdvölum erlendis. Baldvin gefur þessu líka skoplegan blæ. Verkið virkaði í fyrstu sem nokkurskonar kitchmynd eða söluvarningur á túristastöðum en eftir margra vikna áhorf hefur styrkur hennar og fegurð magnast og má hún teljast góð táknmynd fyrir 150 ára afmæli Akureyrar.
Snautleg listaverkaeign bæjarins
Hér er ekki hægt annað en taka fram hve sorglegt það er að Akureyrarbær fjárfesti ekki í listaverkum og að ekkert sé keypt til minningar um þessi merku tímamót. Listaverkaeign bæjarins er ekki einungis tímaskekkja heldur til skammar. Ekki er hægt að gefa bænum listaverk ef einhver hefur áhuga á því, því hann tekur ekki við slíkum gjöfum þar sem þeim fylgja kvaðir. Það er alveg með ólíkindum að vilji sé ekki fyrir hendi á því að safna verkum eftir þá góðu listamenn sem tengjast bænum og líka yfir höfuð að safna nútímalist eftir fremstu listamenn þjóðarinnar. Þessi verk verða bara dýrari í innkaupum með tímanum og bestu verkin verða ekki einu sinni föl, þegar frammí sækir.
Verk Hlyns Hallssonar kallast vel á yfir salinn á stærstu veggjum þess og halda þau góðu jafnvægi hvert við annað eins og samstilltar vogarskálar. Krafturinn og fegurðin í verkum Hlyns nýtur sín vel hér auk þess sem hann ögrar áhorfandanum. Pappírsskúlptúr Jónu Hlífar nýtur sín líka einkar vel við gluggana sem kasta skuggum sínum inn í salinn í sólskini og hafa þeir sjónræn áhrif á listaverkið og umhverfi þess. Þessi skúlptúr er fagur og áhrifaríkur, þar sem lítið tré vex uppúr blaðabunka og leitar í birtuna frá gluggunum en ekki upp í loftið. Þetta litla tré krefst þess að starfsmennirnir hlúi vel að því með vatnsgjöfum og umhyggju. Á efsta blaðinu í pappírsbunkanum stendur Öll tré á Íslandi eru gróðursett. Verkið vísar á ljóðrænan hátt í hringrás náttúrunnar og iðnaðarins/menningarinnar. Pappír er gerður úr trjám og hér lætur hún pappírinn gera eða halda utanum tré í vexti. Hlutföll plöntunnar og pappírsins ýta undir styrk verksins og fagurfræði.
Nonni sem tákngervingur sýningarinnar
Annað verk eftir Jónu Hlíf er í litlu rými við Vestursal en þar sést vídeómynd af henni mála á sér nefið og í kringum munninn eins og trúðar gera en einnig koma upp í hugann myndir af pandabjörnum. Undir vídeóinu er lesin texti eftir Hjálmar Brynjólfsson af Garðari Thor Cortes en hann lék Nonna í kvikmynd um þá bræðurna Nonna og Manna, fyrir all löngu. Á kynningarplakati sýningarinnar kemur þessi tenging við Nonna aftur fram en þar spjallar hann sem gamall rithöfundur við japönsk börn. Akureyringurinn orðinn heimsmaður og víðförull að fræða ungviði heimsins um æsku sína á norðurhjara veraldar. Þetta verk, ekki síður en málverk Baldvins, vex við hvert áhorf. Ástæða er til þess að nefna mikilvægi þess að skoða sýningar oft og hve blekkjandi það er oft að dæma verk eftir fyrsta áhorf.
Verk Níelsar Hafstein eru öll í Vestursalnum auk textaverks Hlyns og vídeóverks af næturhimni vorsins á Akureyri eftir Örnu sem fellur snilldarlega inn í verk Níelsar af byggingargrind húss. Annað verk Níelsar á sýningunni er af mörgum sögum sem saga í stólpa úr tré og er hreyfing verksins slík að auðvelt er að hugsa sér sagarhljóðin og hreyfingu þeirra. Þetta verk magnast við hvert áhorf og verður í huganum að einhverskonar hreyfimynd. Lítið líkan af Effelturninum í París er þarna líka og mynd af því hvernig hægt er að gera líkan af Empire State byggingunni í New York. Gaman er því að labba frá táknmynd Parísar í gegnum húsgrindina sem táknar Akureyri og yfir til New York. Meira global og lokal getur það ekki verið en Akureyri er sem kunnugt einmitt staðsett mitt á milli þessara borga. Verk Níelsar mynda sterka heild í rýminu og tjá bæði gott skopskyn hans og næmi fyrir efninu.
Minningar uppvaxtarins
Í miðsalnum eru fleiri verk eftir Baldvin. Áhugaverðast er spegill sem sagaður hefur verið niður á kerfisbundinn hátt í tengslum við rytma í discolagi úr fortíð hans. Hlutarnir eru svo límdir saman aftur og ræmur af veggfóðri komið fyrir á veggnum neðan við spegilinn en þær vísa einnig í tísku uppvaxtarára hans. Verkið er hrífandi og langaði gesti safnsins frá Kaliforníu að eignast það en þar sem það rúmaðist ekki í handfarangri þeirra eins og þau sögðu keyptu þau minna verk á annarri sýningu og stungu í handfarangur sinn. Þau lofsömuðu þá list sem þau sáu á Akureyri og fannst snautlegt að geta flutt svo lítið magn með sér heim.
Verk Jóní Jónsdóttur af hinni sögufrægu ævintýrapersónu Gosa og vinkonu hans hér Gosastelpunni, að plata fólk er áhrifaríkt og formsterkt. Verkið er pínulítið á stórum vegg en styrkur þess er þannig að það virðist mun stærra. Gestir safnsins þurfa margir skýringu á því, hvað það þýði að Gosastelpan segist vera Akureyringur og nefið lengist. Skýringuna má lesa í texta Dr. Hlyns á heimasíðunni. Allir þeir aðkomumenn sem ekki aðlagast bænum auðveldlega geta samsamað sig þessu verki, einkum börn nærsveitanna sem flytja og byrja í nýjum skóla á Akureyri. Plakat af verkinu er til sölu í safninu. Verk Jóní er sterkt, eftirminnilegt og fallegt. Þetta verk er nokkuð eitt á báti og eins og örlítið aðskilið frá öllum hinum verkunum sem fléttast svo auðveldlega saman og mynda eins og eina heild. Þetta er þó á engan hátt truflandi, þvert á móti endurspeglar verkið að ekki allir eru Akureyringar þó svo það sé gefið í skyn. Hvað er það annars að vera Akureyringur?
Hve lengi á að búa hér til að verða Akureyringur? Eru menn það eftir einhvern vissan árafjölda af búsetu hér í æsku, jafnvel þó að þeir flytji í burtu? Margir hafa eitt uppvaxtarárunum á mörgum mismunandi stöðum, kannski er tímaskekkja að kenna sig einungis við einn stað.
Sami himinninn heima sem heiman
Það verk sem flestir gestir safnsins tjá sig um að hrífi þá og lýsa hrifningu sinni yfir er videóverk Örnu Valsdóttur en titill þess er eftir samnefndri kvikmynd Der himmel über Berlin eftir Wim Wenders og vill Arna vísa til þess að allt er þetta sami himininn hvort heldur hann er yfir Akureyri eða Berlin, lokal eða global. Verkið snertir augljóslega áhorfandann djúpt og hrífur söngurinn á eftirminnilegan hátt.
Sýningin hefur verið mjög vel sótt og stærsti hluti gestanna verið útlendingar.
Þetta er áhugaverð sýning í tilefni afmæli bæjarins og vekur upp margar spurningar og vangaveltur á viðfangsefninu sem erfitt er að gera skil í svo stuttum texta. Safngestirnir hafa margir ekki getað orða bundist af hrifningu yfir því að það skuli vera ókeypis inn á safnið og á allar sýningarnar í Listagilinu. Einhverjir verða fyrir vonbrigðum með að á safninu skuli ekki vera safneign til sýnis ásamt tilfallandi sýningum. Það er kannski tímabært að fara að safna myndlist og endurbyggja húsnæðið fyrir 200 ára afmæli bæjarins.
6.9.2012 | 12:43
Fræðsludagskrá í Sal Myndlistarfélagsins
4.9.2012 | 21:22
KEA auglýsir eftir umsóknum í Menningar- og viðurkenningasjóð
Menningar- og viðurkenningasjóður KEA auglýsir eftir styrkumsóknum og er umsóknarfrestur til 30. september 2012. Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér nánari útlistun á úthlutunarflokkum og reglugerð sjóðsins á heimasíðu KEA, www.kea.is. Nauðsynlegt er að fylla út umsóknareyðublað sem nálgast má á heimasíðunni eða á skrifstofu KEA, Glerárgötu 36.
Styrkúthlutun tekur til eftirfarandi flokka:
Til einstaklinga, félaga eða hópa sem vinna að mikilvægum menningarmálum á félagssvæðinu. Um getur verið að ræða málefni á sviði félagsmála, minja, lista og almennt þeirra málefna sem flokkast sem menning í víðtækri merkingu.
Til þátttökuverkefna á sviði menningarmála. Í þessum flokki er horft til stærri verkefna á sviði menningarmála á félagssvæði KEA.
Til ungra afreksmanna á sviði mennta, lista og íþrótta eða til viðurkenninga fyrir sérstök afrek s.s. á sviði björgunarmála. Í þessum flokki skulu umsækjendur vera yngri en 25 ára og búsettir á félagssvæði KEA.
Styrkir til íþróttamála. Markmiðið er að stuðla að því að sem flest börn og unglingar eigi kost á íþróttaiðkun og að íþróttamenn eða lið sem skara fram úr geti stundað markvissar æfingar og sótt mót við sitt hæfi. Einnig falla hér undir verkefni sem eru til þess fallin að stuðla að heilbrigðum lífstíl almennings eða snúa að uppbyggingu á aðstöðu til íþróttaiðkunar.
Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér reglugerð sjóðsins.
Nauðsynlegt er að fylla út umsóknareyðublöð sem nálgast má á heimasíðunni umsóknareyðublöð eða á skrifstofunni og skal þeim skilað rafrænt eða á skrifstofu KEA, Glerárgötu 36, á Akureyri fyrir 30. september 2012.
29.8.2012 | 17:27
TENGJA - myndverk eftir Hrefnu Harðardóttur í Uglunni
Myndverkið TENGJA er ljósmyndaverk af 12 flottum og virkum konum sem allar eru búsettar við Eyjafjörð. Myndirnar eru svart-hvítar og rammaðar inn með efnisvafningum sem tengjast litatilveru viðkomandi konu.
Konurnar völdu sér hlut sem tengist henni á einhvern hátt og fylgir þeirra útskýring á tengingunni. Myndirnar voru teknar sumarið 2010. Hægt er að kaupa bók með verkunum á sýningunni. Allir velkomnir.
Uglan café er rétt innan við þjóðveg eitt, og er rauða húsið sem stendur við gamla Vaðlaheiðarveginn Fnjóskadalsmegin.
31. ágúst - 9. september 2012.
Menning og listir | Breytt 31.8.2012 kl. 00:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.8.2012 | 16:07
Inga Björk sýnir á bókasafni Háskólans á Akureyri
Sýning Ingu Bjarkar Harðardóttur Draumeindir opnar á bókasafni Háskólans á Akureyri, sunnudaginn 2. september kl. 13.00. Sýning Ingu Bjarkar er opin mánudaga, miðvikudaga og föstudaga frá kl. 8.00 16.00, þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 8.00 18.00 og stendur til 28. september. Allir eru velkomnir.
Innblástur sinn sækir Inga Björk vanalega í íslenska náttúru og umhverfi en nú kveðjur við annan tón. Inga Björk tekst á við abstrakt í olíumálverkum þar sem listakonan leitar inn á við og er efniviður sýningarinnar tilfinningar. Barátta hamingju og gleði við depurð og angist flæðir um myndflötinn. Í tengslum við sýninguna setur listakonan fram ljóð móður sinnar, Önnu Maríu, í rýmið og endurspegla þau flæði tilfinninganna og kallast þau á við málverkin í túlkun og lit.
Inga Björk Harðardóttir er menntuð sem myndlistarmaður, gullsmiður og kennari auk þess að vera móðir þriggja barna og fjögurra stjúpsona.
Draumeindir er sjötta einkasýning Ingu Bjarkar.