Fćrsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
29.5.2008 | 00:04
Stađfugl - Farfugl: opnar í Eyjarfjarđarsveit á laugardag
Víđavangssýningin Stađfugl Farfugl verđur opnuđ viđ hátíđlega athöfn ţann 31. maí kl. 14:00 viđ Hrafnagilsskóla.
Á sýningunni verđa um 40 verk eftir innlenda og erlenda listamenn og eru verkin stađsett víđsvegar viđ Eyjafjarđarbraut eystri og vestri. Sýningin stendur til 15. september 2008 og er gert ráđ fyrir ţví ađ á sýningartímabilinu verđi fjölbreytt dagskrá međ opnun nýrra verka eftir framandi fugla, námskeiđahald, gjörningar og ađrir viđburđir sem verđa auglýstir sérstaklega.
Dagskrá 31. maí
Ávarp krúnk krúnk
Anna Richards, furđufugl
Kvćđamannafélagiđ Gefjun bí bí bí
200 friđardúfum sleppt
Léttar veitingar í bođi gagalagú
Nánar á www.fugl.blog.is
Sýningin Stađfugl Farfugl er stađsett úti á víđavangi í Eyjafjarđarsveit og stendur frá 31. maí til 15. september 2008. Hugmyndin ađ sýningunni er hugleiđing um ţćr breytingar sem verđa međfram ţjóđveginum ţegar vorar. Fuglar birtast frá fjarlćgum löndum eftir langa vetrardvöl. Bílar ţeysa eftir malbikinu til ţess eins ađ ţví er stundum virđist ađ bćta upp tímann sem tapast hefur í vetrarfćrđinni. Mest ber á tengslum milli farţega og náttúru ţegar vorfugl skýst yfir veginn og rétt sleppur undan bílnum...eđa ekki. Í nokkur ár hefur mig langađ ađ vekja athygli á ţessum hugleiđingum međ ţví ađ búa til úrval af fugla-innsetningum sem yrđu stađsettar víđsvegar međfram veginum í Eyjafjarđarsveit.
Er farfugl ferđamađur, erlent vinnuafl eđa innflytjandi? Er heimamađur ţá stađfugl? Hvađ eru heimalönd, útlönd og landmćri? Ertu nćturgali, heiđlóa, monthani, mörgćs eđa bara furđufugl? Til ađ sýningin gćti orđiđ ađ veruleika og um leiđ til ţess ađ auka fjölbreytni hennar bađ ég nokkra vini ađ taka ţátt í henni međ mér. Áđur en ég vissi af var kominn fjöldi ţátttakenda og leitađi ţá eftir samstarfi viđ Steina & Dísu í Gallerí Viđ8tta601. Ţetta egg byrjađi ađ klekjast út um áramótin 2007 og er nú orđiđ ađ fugli sem hefur sig til flugs... Njóttu vel.
George, Steini & Dísa
Sérstakir ţakkir:
Hestamannafélagiđ Funi, Landflutningar, Hulda í Stíl, Kvćđamannafélagiđ Gefjun, Vegagerđin, Ívar, Viktor & Hugi, Skógrćkt Ríkisins, Fallorka, Hrafnagilsskóli, Bjartur Baltazar, Gunna í Smámunasafninu, Skrifstofa Eyjafjarđarsveitar, Vegagerđin, ábúendur í Hvammi, Torfum, Rifkelsstöđum, Klauf, Sandhólum, Leifsstöđum, Möđruvöllum, Eyrarlandi, Öngulsstöđum og allir hinir sem viđ gleymdum.
Ţađ eru vinsamleg tilmćli til gesta og gangandi ađ ganga vel um svćđin, sýna tillitssemi viđ ţau mannvirki sem viđ höfum til afnota og virđa verkin sem eru til sýnis.
Sýningarstjórnin.
Viđburđir:
Sýningar sem opna á nćsta leyti eru eftir Gunn Morstoel (Noregur) og Helen
Molin (Svíţjóđ).
Ţátttakendur:
Ađalsteinn Ţórsson
Anna Sigríđur Sigurjóns
Arna Vals
Art group Grálist:
Dagrún Matthíasdóttir
Ása Ólafsdóttir
Inga Björk Harđardóttir
Karen Dúa Kristjánsdóttir
Kristín Guđmundsdóttir
Linda Björk Óladóttir
Steinunn Ásta Eiríksdóttir
Steinn Kristjánsson
Lína
Gvaka
Sveinbjörg Ásgeirsdóttir
Áslaug Thorlacius
Beate Stormo
Claudia Losi
Franz P.V. Knudsen
George Hollanders
Guđrún Vaka
Guđrún Hadda Bjarnadóttir
Gunn Morstoel
Helen Molin
Helgi Ţórsson
Hlynur Hallsson
Hrafnagilsskóli
Hrefna Harđardóttir
Joris Rademaker
Katja Hennig
Kees Verbeek
Kristján Pétur Sigurđsson
Margret Schopka
Pálína Guđmundsdóttir
Iđavöllur
Krummakot
Roel Knappstein
Lína
Ţorsteinn Steini Gíslason
Sćunn Ţorsteinsdóttir
Kristján Ingimarsson
Anna Richards
Buzby Birchall
Daniele Signaroldi
George Hollanders
Hilma Stefánsdóttir
Jacqueline Fitz Gibbon
Ragnheiđur Ólafsdóttir
Tonny Hollanders
Sćunn Ţorsteinsdóttir
Valgerđur H. Bjarnadóttir
Valdís Viđarsdóttir
Katrín Jónsdóttir
Hrefna Harđardóttir
Guđfinna Nývarđsdóttir
Anna Richards
Sveinbjörg Ásgeirsdottir
Charlotta Ţorgils
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:48 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (2)
15.5.2008 | 08:26
Facing China í Listasafninu á Akureyri
Laugardaginn 17. maí kl. 13 verđur sýningin Facing China ( Augliti til auglitis viđ Kína ) opnuđ í Listasafninu á Akureyri. Heiti sýningarinnar endurspeglar meginstef hennar, manninn og andlitiđ, sem sjá má í málverkum og skúlptúrum eftir níu kínverska samtímalistamenn sem vakiđ hafa alţjóđlega athygli og sett hvert sölumetiđ á fćtur öđru í uppbođshúsum heimsins. Listamennirnir sem verk eiga á sýningunni eru Chen Qing Qing, Fang Lijun, Liu Ye, Tang Zhigang, Wei Dong, Yang Shaobin, Yue Minjun, Zhang Xiaogang og Zhao Nengzhi.
Öll verkin á sýningunni koma úr fórum hollenska listaverkasafnarans Fu Ruide. Hann hefur reynst Listasafninu á Akureyri mikill haukur í horni viđ mótun og undirbúning sýningarinnar og bćtti viđ mörgum nýjum verkum í safn sitt til ađ gera hana sem best úr garđi. Af ţessu tilefni hefur veriđ gefin út glćsileg 270 síđna bók í hörđu bandi á ensku og kínversku sem í rita, auk forstöđumanns Listasafnsins og eiganda verkanna, Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti Íslands, hinn ţekkti bandaríski listfrćđingur Robert C. Morgan og virtasti gagnrýnandi kínverskrar myndlistar, Li Xianting, sem stundum er kallađur guđfađir samtímalistarinnar ţar í landi. Ţá hefur Listasafniđ gefiđ út dagblađ sem hefur ađ geyma valda texta á íslensku og myndir í áđurnefndri bók. Sýningin er sett upp í tengslum viđ Listahátíđ í Reykjavík, sem áriđ 2008 er ađ miklu leyti helguđ alţjóđlegri myndlist. Frá Akureyri ferđast sýningin víđa um lönd og verđur hún međal annars sett upp í söfnum í Austurríki, Ţýskalandi, Noregi, Finnlandi og Svíţjóđ. Skandinavíuför hennar lýkur áriđ 2010, en ţetta er í fyrsta sinn sem íslenskt listasafn á frumkvćđiđ ađ skipulagningu alţjóđlegrar farandsýningar af ţessari stćrđargráđu. Sýningarstjóri er Hannes Sigurđsson forstöđumađur Listasafnsins á Akureyri.
Verkin úr safni Fu Ruide voru ekki einvörđungu valin vegna verđleika sinna, heldur einnig til ađ ţau vćru í samrćmi viđ stef sýningarinnar, sem er manneskjan, fas hennar og fés, og ţar af sprettur heitiđ, Facing China . En ţótt líta megi á sýninguna harla bókstaflega í ţessu tilliti, er heitiđ einnig margrćtt međ ráđnum hug, jafnvel eilítiđ ógnvćnlegt, ţar eđ ţađ ađ standa augliti til auglitis viđ eitthvađ ţýđir ađ takast á viđ veruleikann. Sýningin býđur ţví birginn ađ mögulega kvikni einhverjar vćntingar til kínverskrar listar um ađ hún sé annađhvort sprottin af eintómri pólitík eđa seiđandi exótísk og öđrum hefđbundnum grillum. Málverkin og skúlptúrarnir á sýningunni eru ekki til marks um Kínverjaskap ţessara listamanna. Ţess í stađ afhjúpa ţau stereótýpur, beina sjónum okkar frá hinu dálítiđ kunnuglega ađ djúpri sjálfshygli ţegar viđ leiđum augun um andlitin og líkamana sem bregđur fyrir í verkunum. Ţau afhjúpa persónulegar og andlegar sneiđmyndir af fólkinu sem ţau sýna, og mannlega eiginleika sem eru almennari en áhorfandinn kann ađ gera sér í hugarlund viđ fyrstu sýn.
Nánari upplýsingar sýninguna er ađ finna á vefsíđu Listasafnsins: www.listasafn.akureyri.is. Einnig er hćgt ađ hafa samband viđ Hannes Sigurđsson í síma 899-3386 (netfang: hannes@art.is). Ađalstyrktarađili sýningarinnar er Samskip sem veitti ađstođ viđ flutning á verkunum til landsins. Sýningunni lýkur 29. júní og er safniđ opiđ alla daga nema mánudaga frá kl. 12 17.
![]() |
Tilraunastofa lista og vísinda |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
14.5.2008 | 22:46
Guđrún Pálína opnar sýninguna Arna-litrík-Arna í galleriBOXi
galleriBOX
Laugardaginn 17. mai 2008
klukkan 13:00
opnar Guđrún Pálína sýninguna Arna litrík Arna
Guđrún Pálína Guđmundsdóttir er fćdd og búsett á Akureyri. Hún nam myndlist fyrst í Gautaborg og svo í Enschede og Maastricht í Hollandi. Hún hefur einnig BA og Diplómugráđu í almennum málvísindum og hljóđfrćđi frá Háskólanum í Gautaborg. Ţar nam hún einnig siđfrćđi, sćnsku fyrir útlendinga og skipulagningu og stjórnun menningarviđburđa. Frá Háskólanum á Akureyri hefur hún einnig numiđ uppeldis- og kennslufrćđi og hefur ţví kennsluréttindi.
Pálína rekur listagalleríiđ Gallerí+, í Brekkugötu 35 ásamt eiginmanni sínum Joris Rademaker. Hún starfar sem kennari.
Ţetta er fjórđa einkasýningin ţar sem Pálína vinnur međ stjörnukort ákveđins listamanns á Akureyri, fyrsta sýningin var í Kompunni 2004 og hét ALLA känner ALLA og var út frá stjörnukorti Ađalheiđar S. Eysteinsdóttur, 2005 á Listasumri á Akureyri var sýningin Anna bara Anna í Ketilhúsinu og var unnin útfrá stjörnukorti Önnu Richards fjöllistakonu, á Listasumri 2006 var sýningin Hlynur sterkur Hlynur á Café Karólínu og núna er ţađ stjörnukort Örnu Valsdóttur sem sýningin Arna litrík Arna byggir á, og er í Boxinu á Akureyri frá 17.maí til 7.júní . Stjörnukort Jónasar Hallgrímssonar ţjóđarskálds ( vantađi ţó nákvćman fćđingartíma ) var notađ síđasta ár á Listasumri á stórri samsýningu í Ketilhúsinu. Um myndlist sína segir Pálína:
Í listsköpun minni hef ég fyrst og fremst unniđ međ liti og málađ. Einnig bregđur fyrir texta viđ og viđ í verkum mínum. Ég hef alltaf veriđ upptekin af tungumálinu og ađ ţví ađ skrifa og hef alveg sérstakt dálćti á handskrifuđum texta. Frá árinu 1993 hef ég eingöngu málađ andlitsmyndir međ áherslu á tjáningu tilfinninga gegnum litaval og pensilskrift en ekki á ađ gera eftirlíkingu af einhverri vissri manneskju. Stjörnuspeki hefur heillađ mig sem ein leiđ til ađ skilja tilveruna svipađ og málfrćđi er ein nálgunarleiđ til skilnings á tungumálinu. Ţegar ég reyni ađ draga upp mynd af einhverjum sérstökum einstaklingi eins og Örnu Vals núna ţá passar ágćtlega ađ blanda ţessu öllu saman, litunum, myndlistinni, textabrotunum og orđum og stjörnukorti viđkomandi byggt á mínútunni sem fyrsti andardrátturinn átti sér stađ.
--
galleriBOX
Kaupvangstrćti 10
600 Akureyri
www.galleribox.blogspot.com
Jóna Hlíf Halldórsdóttir 6630545
14.5.2008 | 22:20
Anna Líndal, Bjarki Bragason og Hildigunnur Birgisdóttir í Safnasafninu
Laugardaginn 17. maí kl. 14.00 verđur opnuđ sýningin Greinasafn í Safnasafninu á Svalbarđsströnd, samstarfsverkefni Önnu Líndal, Bjarka Bragasonar og Hildigunnar Birgisdóttur, byggt á heimildum,
umhverfisskođun, ljósmyndum og rannsóknum í nágrenni safnsins og innan veggja ţess. Sýningin er í Norđursölum og stendur yfir til 8. júlí 2008.
9.5.2008 | 09:12
Ţorsteinn Gíslason sýnir „Andans flug“ í Gallerí Víđ8ttu601
Gallerí Víđ8tta601 opnar sýninguna Andans flug í Leirutjörn á Akureyri laugardaginn 10.maí kl.14:00.
Ţorsteinn Gíslason (Steini) sýnir ţar skúlptúr/innsetningu í nyrđri hólmanum í tjörninni. Verkiđ samanstendur af bókum sem ţátttakendur skrifuđu hugsanir sínar í á 14 daga tímabili, listamađurinn mótar bćkurnar og festir á misháar stangir í hólmanum ţannig ađ frá landi séđ verđa bćkurnar eins og fuglahópur sem er ađ hefja sig til flugs. Hugmyndin ađ baki verkinu er sú ađ fá ađ láni hugsanir ólíkra einstaklinga á fjórtán daga skeiđi í ćvi ţeirra, fanga ţćr á einn stađ í ákveđinn tíma og láta ţćr endurtaka sig aftur og aftur.
Ţátttakendur í sýningunni eru:
Jón Ásgeir Kalmansson siđfrćđingur
Ingibjörg María Gísladóttir guđfrćđingur
Hólmfríđur María Ţorsteinsdóttir grunnskólanemi
Guđný Ketilsdóttir verslunarstjóri
George Hollanders leikfangasmiđur
Silja Ađalsteinsdóttir rithöfundur
Olov Tällström myndlistamađur
Helgi Ţórsson hljómlistamađur
Dagrún Matthíasdóttir myndlistamađur
Aníta Jónsdóttir námsráđgjafi
Bjartur Hollanders leikskólanemi
Baldvin Ringsted myndlistamađur
Hlynur Hallsson myndlistamađur
Ţórhildur Ţorsteinsdóttir bóndi
Andans flug er styrkt af Menningarráđi Eyţings og RARIK.
8.5.2008 | 08:58
Steingrímur Eyfjörđ, Ragnar Kjartansson og Margrét H. Blöndal tilnefnd til Sjónlistarverđlaunanna 2008
Tilnefningar til Sjónlistaverđlaunanna 2008 voru kynntar í Reykjavík í gćr. Fyrir hönnun eru tilnefnd Guđbjörg Kristín Ingvarsdóttir fyrir fimm skartgripalínur sem kynntar voru á síđasta ári, Hjalti Geir Kristjánsson fyrir sýningu sína Stólar og Sigurđur Eggertsson fyrir verk sín í grafískri hönnun frá árinu 2007 en ţar var umfangsmest verkiđ Sequences.
Í myndlist eru tilnefnd Steingrímur Eyfjörđ fyrir sýninguna Lóan er komin á Feneyjartvíćringnum 2007, Ragnar Kjartansson fyrir innsetninguna Guđ á samnefndri sýningu í Nýlistasafninu og Margrét H. Blöndal fyrir sýninguna Ţreifađ á himnunni í Hafnarhúsi Listasafns Reykjavíkur.
Sjónlist er samstarfsverkefni Akureyrarbćjar, Forms Ísland samtaka hönnuđa og Sambands íslenskra myndlistarmanna.
Sex listamenn eđa hópar listamanna sem starfa ađ jafnađi saman, hljóta tilnefningu á tveimur sviđum, myndlist og hönnun, fyrir framlag sitt til greinarinnar á tólf mánađa tímabili áđur en tilkynnt er um tilnefningar. Allir hönnuđir og myndlistarmenn sem sýna verk sín á tímabilinu, eđa kynna ţau međ öđrum hćtti, koma til greina viđ tilnefninguna.
Tveir úr ţeirra hópi hljóta Sjónlistaorđuna, auk peningaverđlauna ađ upphćđ 2.000.000 kr. hvor. Heiđursorđu Sjónlistar hlýtur myndlistarmađur eđa hönnuđur ár hvert fyrir einstakt ćviframlag til sjónlistanna. Sjónlistaverđlaunin verđa afhent í Flugsafni Íslands á Akureyri 19. september.
(Myndin er frá tilnefningunni í fyrra.)
![]() |
Tilnefningar til Sjónlistaverđlaunanna 2008 |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
7.5.2008 | 23:04
Sigurlín M. Grétarsdóttir - Lína opnar sýninguna "HVERFUL NÁTTÚRA" á Veggverk á Akureyri laugardaginn 10. maí
VeggVerk
Sigurlín M Grétarsdóttir - Lína opnar sýninguna "HVERFUL NÁTTÚRA" á Veggverk á Akureyri laugardaginn 10. maí.
Á Veggverk ćtlar Lína ađ mála röndótt ţrívíddarverk sem mađur getur ímyndađ sér ađ sé einskonar landslag. Ţar er hún ađ fjalla um hvađ viđ mannfólkiđ erum ađ fjarlćgast náttúruna ţar sem má túlka ţjóđfélagiđ í dag sem hálfgerđan sýndarveruleika.
,,Ég er ađ fjalla um hve hverful náttúra okkar er og hver birtingarmynd hennar er í mannskepnunni og hvađ hún er síbreytileg. Hvernig sýndarveruleiki mannsins endurspeglar náttúru okkar og ađ mađurinn hverfur meira á vit sýndarveruleikans.
Náttúran sjálf er hverful og kröftug. Viđ höfum reynt ađ beisla hana um leiđ og viđ lifum í sátt og samlyndi viđ hana. Er sýn okkar á stórkostlega náttúruna ađ hverfa á vit sýndarveruleikans? Erum viđ ennţá náttúrubörn eđa börn sýndarveruleika og eigin hverfulleika? Getum viđ virkjađ okkar innri náttúru í stađ ţess ađ fórna náttúru landsins?"
Lína útskrifađist af fagurlistadeild Myndlistarskólans á Akureyri 2007. Ţar á undan hafđi hún stundađ nám viđ Iđnskólann í Hafnarfirđi í 3 ár á hönnunarbraut og útskrifađist ţađan sem tćkniteiknari.
Lína er annar eigenda DaLí Gallery á Akureyri ásamt listakonunni Dagrúnu Matthíasdóttur.
Lína tekur á móti gestum í tilefni opnunar Veggverks á DaLí Gallery, Brekkugötu 9 kl. 17:00-20:00
www.veggverk.org
Sýningarstjóri: Jóna Hlíf Halldórsdóttir
sími. 6630545
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:05 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
7.5.2008 | 12:53
Velkomin á sýningu Fjölmenntar
Velkomin á opnun sýningar Fjölmenntar "Fornminjar og frumbyggjalist" sem opnuđ verđur á morgun, fimmtudaginn 8. maí klukkan 17:00 í Amtsbókasafninu á Akureyri. Eyţór Ingi syngur nokkur lög viđ opnun.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:42 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
7.5.2008 | 09:20
Steinn Kristjánsson međ Innilega útilegu í Populus tremula
Populus Kynnir:
INNILEGA-ÚTILEGA
STEINN KRISTJÁNSSON
Laugardaginn 10. maí kl. 14:00 opnar sjónlistamađurinn Steinn Kristjánsson sjónlistasýninguna Innilega útilegu í Populus tremula. Ţar verđur sumarfríinu ţjófstartađ og hver veit nema tekin verđi nokkur gömul og góđ útilegulög og jafnframt frumflutt ný innilegulög. Ţarna er um ađ rćđa tilraun um mörk innra og ytra rýmis í formi hinnar einu sönnu íslensku útilegustemmingar.
Einnig opiđ sunnudaginn 11. maí kl. 14:00-17:00.
http://poptrem.blogspot.com
6.5.2008 | 10:27
Sigurlín M. Grétarsdóttir - Lína opnar sýninguna "HVERFUL NÁTTÚRA" á Veggverk á Akureyri laugardaginn 10 maí

Á Veggverk ćtlar Lína ađ mála röndótt ţrívíddarverk sem mađur getur ímyndađ sér ađ sé einskonar landslag. Ţar er hún ađ fjalla um hvađ viđ mannfólkiđ erum ađ fjarlćgast náttúruna ţar sem má túlka ţjóđfélagiđ í dag sem hálfgerđan sýndarveruleika.
,,Ég er ađ fjalla um hve hverful náttúra okkar er og hver birtingarmynd hennar er í mannskepnunni og hvađ hún er síbreytileg. Hvernig sýndarveruleiki mannsins endurspeglar náttúru okkar og ađ mađurinn hverfur meira á vit sýndarveruleikans.
Náttúran sjálf er hverful og kröftug. Viđ höfum reynt ađ beisla hana um leiđ og viđ lifum í sátt og samlyndi viđ hana. Er sýn okkar á stórkostlega náttúruna ađ hverfa á vit sýndarveruleikans? Erum viđ ennţá náttúrubörn eđa börn sýndarveruleika og eigin hverfulleika? Getum viđ virkjađ okkar innri náttúru í stađ ţess ađ fórna náttúru landsins?"
Lína útskrifađist af fagurlistadeild Myndlistarskólans á Akureyri 2007. Ţar á undan hafđi hún stundađ nám viđ Iđnskólann í Hafnarfirđi í 3 ár á hönnunarbraut og útskrifađist ţađan sem tćkniteiknari.
Lína er annar eigenda DaLí Gallery á Akureyri ásamt listakonunni Dagrúnu Matthíasdóttur. Lína tekur á móti gestum í tilefni opnunar Veggverks á DaLí Gallery, Brekkugötu 9 kl. 17-20