19.11.2014 | 14:05
70% ULL - 30% PLAST í Mjólkurbúðinni
Laugardaginn 22. nóvember kl. 14 opnar tvíeykið björgþorbjörg textíl sýninguna 70% ULL - 30% PLAST, 1. hluti í Mjólkurbúðinni í Listagilinu
Sýningin lítur til þess tíma þegar að flosa og smyrna var í tísku og á henni gefur að líta verk þar sem ull og bóluplast blandast saman á sérstæðan máta. Handavinna kvenna á síðkvöldum er tvíeykinu hugleikin þar sem ákveðin ró myndast við gerð hvers verks, vandamál leyst og ákvarðanir teknar. Hugarró eða hugarflug gæti því verið yfirskrift sýningarinnar eða einfaldlega: Er einhver að FLOSA? Áhorfandans er valið
.
Björg Marta Gunnarsdóttir útskrifaðist sem fatahönnuður frá IED hönnunarskólanum í Barcelona og hóf störf sem hönnuður hjá tískufyrirtæki John Rocha í Dublin á Írlandi strax eftir útskrift þar sem hún starfaði í tvö ár.
Þorbjörg Halldórsdóttir hefur á síðustu tíu árum bæði haldið einkasýningar og tekið þátt í samsýningum í formi innsetninga og gjörninga. Samstarf þeirra hófst fyrir nokkrum árum þegar Björg hannaði vörur fyrir búðina Frúin í Hamborg sem Þorbjörg rak á sínum tíma ásamt Guðrúnu Jónsdóttur.
Sýningin stendur yfir helgarnar 22.-23. og 29. 30. nóvember kl. 14-17.
2. hluti 70% ULL - 30% PLAST verður settur upp í Alþýðuhúsinu á Siglufirði á föstudaginn langa 2015.
19.11.2014 | 14:02
WOOD YOU SEE WOOD YOU LISTEN í Populus tremula
Laugardaginn 22.11. kl. 14.00 munu Þorsteinn Gíslason og Kristján Pétur Sigurðsson frumsýna margra miðla verkið Wood you see Wood you listen í Populus tremula.
Verkið, sem unnið er fyrir tilstilli styrks frá Menningarráði Eyþings, er blanda skúlptús, vídeós og tónlistar.
Sýningin er einnig opin á sunnudag 23. nóvember frá kl 14.00-17.00. Aðeins þessi eina helgi.
16.11.2014 | 22:49
Rósa Kristín Júlíusdóttir flytur Þriðjudagsfyrirlestur í Ketilhúsinu
Þriðjudaginn 18. nóvember kl. 17 heldur myndlistarkonan- og kennarinn Rósa Kristín Júlíusdóttir fyrirlestur í Ketilhúsinu undir yfirskriftinni Himintjöld og dansandi línur: Samvinna í listum og innsetning sem listræn menntunarrannsókn. Þar ætlar Rósa að tala um rannsókn sem hún gerði í samnorrænu og baltnesku verkefni og fjallar um listræna samvinnu hennar og Karls Guðmundssonar, mál- og hreyfihamlaðs listamanns, og annað tengt samtímalistum og menningu fatlaðra.
Enginn aðgangseyrir er á fyrirlesturinn sem er sá áttundi í röð fyrirlestra sem haldnir eru í Ketilhúsinu á hverjum þriðjudegi kl. 17 undir yfirskriftinni Þriðjudagsfyrirlestrar.
Fyrirlestraröðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Verkmenntaskólans á Akureyri, Háskólans á Akureyri og Myndlistaskólans á Akureyri. Á meðal annarra fyrirlesara vetrarins eru Stefán Boulter, Giorgio Baruchello og Kazuko Kizawa.
Hér eru allir fyrirlestrarnir í tímaröð:
30. sept. Angela Rawlings, skáld
7.okt. Arna Valsdóttir, myndlistarkona
14. okt. Hlynur Helgason, listfræðingur
21. okt. Íris Ólöf Sigurjónsdóttir, sýningarstjóri
28. okt. Jón Gunnar Þórðarson, leikstóri
4. nóv. Aðalsteinn Þórsson, myndlistarmaður
11. nóv. Guðmundur Ármann Sigurjónsson, myndlistarmaður
18. nóv. Rósa Júlíusdóttir, myndlistarkona og dósent við HA
25. nóv. Stefán Boulter, myndlistarmaður
2. des. Giorgio Baruchello, heimspekiprófessor
9. des. Kazuko Kizawa, myndlistakona
https://www.facebook.com/events/1612473045646551
13.11.2014 | 11:05
Menningarsúpa í Grasrót

12.11.2014 | 13:48
Hústaka í Alþýðuhúsinu á Siglufirði
Hústaka
Á undanförnum árum hafa ungir og skapandi einstaklingar nálgast hvern annan á listrænum forsendum, og alið með sér löngun til að láta að sér kveða í samfélaginu. Vitundarvakning ungs fólks gerir það að verkum að uppgangur er grasrótinni og þess vegna ætlar unglýðurinn með sinni einstölu elju efna til listahátíðar.
Hústaka er þverfagleg listahátíð ungs fólks sem haldin verður í Alþýðuhúsinu á Siglufirði 14. 16. nóvember. Hugmyndin af hátíðinni spratt af þörf fyrir sýnileika sjálfstæðrar listsköpunar ungs fólks á svæðinu. Þátttakendur hafa fengist við listir af einhverjum toga í lengri eða skemmri tíma. Hústakan verður suðupottur þar sem listin blómstrar og ungu fólki gefst tækifæri á að koma hugmyndum sínum á farmfæri og hafa skapandi áhrif hvort á annað. Alþýðuhúsið verður lagt undir á frumlegan hátt og settar verða upp sýningar í hverjum krók og kima.
Hústakan verður opnuð almenningi laugardaginn 15. nóvember frá kl. 14:00-20:00. Dagskráin saman stendur af myndlistarsýningum, lifandi tónlist, ljóðaupplestrum, gjörningum, vídjósýningum og skapaður verður vettvangur fyrir óvæntar uppákomur. Allir eru hjartanlega velkomnir!
Þátttakendur eru:
Úlfur Logason (myndlist, Akureyri)
Sólveig Matthildur (tónlist, Reykjavík)
Jón Arnar Kristjánsson (tónlist/myndlist, Dalvík)
Aldís Dagmar Erlingsdóttir (myndlist, Akureyri)
Áki Sebastian Frostason (tónlist, Akureyri)
Anne Balanant (vídjólist, Akureyri)
Hekla Björt Helgadóttir (ljóðlist, Akureyri)
Hreggviður Harðar og Hulduson (myndlist, Akureyri)
Diljá Björt Bjarmadóttir (vídjólist, Akureyri)
Axel Flóvent Daðason (tónlist, Akureyri)
Margrét Guðbrandsdóttir (myndlist, Akureyri)
Viðar Logi Kristinsson (ljósmyndun, Dalvík)
Lena Birgisdóttir (myndlist/ljóðlist, Akureyri)
Karólína Rós Ólafsdóttir (gjörningalist, Akureyri)
Borgný Finnsdóttir (myndlist/ljóðlist, Akureyri)
Halla Lilja Ármannsdóttir (myndlist, Akureyri)
Ástþór Árnason (myndlist, Siglufjörður)
Megan Auður Grímsdóttir (ljóðlist, Reykjavík)
Magnús Skúlason (tónlist, Reykjavík)
Ólöf Rún Benediktsdóttir (myndlist, Reykjavík)
Berglind Erna Tryggvadóttir (myndlist, Reykjavík)
Sólveig Salmon Gautadóttir (myndlist, Reykjavík)
Ólafur Sverrir Traustason (ljóðlist, Reykjavík)
Brák Jónsdóttir (myndlist, Akureyri)
Verkefnið er styrkt af;
Alþýðuhúsinu á Siglufirði
Menningaráði Eyþings
Fiskbúð Siglufjarðar
Fjallabyggð
https://www.facebook.com/events/312542975606421/
12.11.2014 | 13:33
Bræðrafundur og 179 tillögur í Mjólkurbúðinni
"Bræðrafundur" og "179 tillögur" nefnist sýning á verkum Gunnars Þorsteinssonar og Þorvaldar Þorsteinssonar í Mjólkurbúðinni í Listagilinu á Akureyri um næstu helgi 15.og 16.nóvember kl. 14-17.
Gunnar Þorsteinsson er um þessar mundir gestur í íbúð lista og fræðimanna í Davíðshúsi, húsi skáldsins Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi. Meðan á dvöl hans stendur setur Gunnar einnig upp myndlistasýningu í Mjólkurbúðinni í listagilinu, í gamla heimabæ sínum Akureyri. Á sýningunni vinnur hann með minningarbrotin og samstarf sitt og Þorvaldar bróður síns sem hann kallar "bræðrafund" og "179 tillögur".
Minningarbrotin
Ég vil að við gerum listaverk saman, sagði Þorvaldur bróðir minn þegar við kvöld eitt sátum saman í litla húsinu okkar Mjallar á Laugaveginum.
Ég leit með spurnarsvip á hann en sá við nánari athugun að honum var full alvara.
Eftir að hafa farið í huganum yfir helstu möguleika til að komast undan þessu, spurði ég:
Og hvernig hafðir þú hugsað þér framkvæmdina á því?
Hann hafði greinilega velt þessu fyrir sér, því hann svaraði að bragði:
Við skrifum niður fyrstu minningar okkar og gerum síðan litlar myndir við minningar hvors annars.
Ég gleymdi að andmæla eins og ég hafði ætlað mér því ég var þegar farinn að rifja upp mínar fyrstu minningar.
Eftir að hafa rætt fyrirkomulagið á þessu varð niðurstaðan sú að þetta yrðu örstuttar sögur sagðar af barninu eins og við mundum þessi minningarbrot. Nokkra daga gáfum við okkur til sögugerðar og ákváðum síðan að setjast niður næsta laugardag heima hjá honum og myndskreyta minningarbrot hvors annars.
Ég var 33 ára hann 10 árum yngri.
Kórinn
Hvernig lýsi ég upp lok vetrar í Mið-Svíþjóð árið 2000?
Jú ég hringi í Þorvald bróðir og býð honum heim til okkar í Söderhamn.
Svo heppilega vildi til að hann átti að vera með Installation í Stokkhólmi um miðjan mars og ákvað ég að gera honum tilboð sem erfitt væri að hafna.
Ég læt fyrirtækið mitt bjóða þér hingað til að auðga listalífið í bænum. Þú gerir einhverja Installation og heldur jafnvel fyrirlestur líka. Þetta gengur upp bókhaldslega séð ef ég ég læt Ventura borga þér líka.!
Svona þar fyrir utan, ég sakna þín.
Í byrjun mars lýstist heimilið okkar upp af komu Þorvaldar.
Mikið var gaman og við fórum í spinn og um víðari völl en við höfðum gert lengi.
Hugmyndin um kórinn kom fullmótuð eitt kvöldið þegar við sátum og spjölluðum um heima og geima.
Daginn eftir hafði ég fengið 23 kórfélaga kórsins í bænum til að mæta upp degi síðar á ljósmyndastofu í bænum til myndatöku. Kjartan Einarsson ljósmyndari sem var nýfluttur í bæinn var meir en tilbúinn til að aðstoða.
Þetta varð einn af þessum dögum sem gengur ekki að gleyma.
Eins og Þorvaldi var svo lagið fékk hann alla til að vera með og skapa stemmingu þar sem sameiginlega markmiðið var að gera þetta að mögnuðu verki.
Kórstjórinn varð að vísu súr smá stund þegar bara var tekin mynd af hnakkanum á honum. Því var kippt í liðinn með myndatöku framanfrá við einbeitta stjórnun hans.
Ég hafði útvegað sal í gamalli myllu og fjöldi fólks naut þess tveim dögum síðar þegar Þorvaldur fór á kostum í fyrirlestri um þróun eigin sköpunar.
Kórinn söng á veggnum.
Blaðamenn heyrðu bara það sem þeir vildu heyra og ákváðu að hér væri á ferðinni heimsfrægur ljósmyndari sem væri ótrúlegt að fá í Lilla Söderhamn.
Kvöldið áður en Þorvaldur fór til Stokkhólms spurði ég hann hvað hann ætlaði að gera á listasafninu.
Ekki hugmynd, kannski eins gott að fara að hugsa um það.
Hann sagði mér að þegar mikið lægi við færi hann í bernskuna eða veturinn í Barnaskóla Íslands þar sem hann kenndi einn vetur efir stúdentinn og sækti sér efni.
Eftir smá vangaveltur leystist þetta þegar mundi hann eftir leik sem hann, Pési Ring og fleiri höfðu oft leikið.
Hver deyr flottast!
Þetta varð stef sem hann síðar notaði og þróaði í mörgum verkum.
Sýningin stendur aðeins þessa einu helgi og eru allir velkomnir
12.11.2014 | 13:06
Heimildarmynd um kínverska listamanninn Ai Wei Wei
Mjög áhugaverð heimildarmynd um kínverska listamanninn Ai Wei Wei og hans verk sýnd í Grasrót sunnudaginn 16. nóvember kl. 20.30.
Allir velkomnir.
Grasrót, Hjalteyrargötu 20, 600 Akureyri
https://www.facebook.com/events/312169982322211
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 13:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.11.2014 | 22:02
Sólarbögglar: Opnun í Deiglunni laugardaginn 15. nóvember
Laugardaginn 15. nóvember kl. 15 verður opnuð í Deiglunni á Akureyri ljósmyndasýningin Sólarbögglar. Sýningin er samstarfsverkefni Listhúss í Fjallabyggð og Listasafnsins á Akureyri og á henni gefur að líta 30 ljósmyndir sem nemendur Verkmenntaskólans á Akureyri og Menntaskólans á Tröllaskaga tóku með nálarauga ljósmyndun (solargraphy). Listamennirnir Stanley Ng og Ceci Liu komu frá Hong Kong til Íslands í febrúar síðastliðnum með yfir 50 pinhole myndavélar sem notaðar voru fyrir sýninguna. Slíkar myndavélar hafa örlítið ljósop, enga linsu og samanstanda vanalega af boxi með gati á einni hlið sem safnar ljósi frá umhverfinu og snýr því á hvolf. Af þeim sökum þarf langan lýsingartíma en allar myndirnar á sýningunni eru með lýsingartíma allt að tveimur mánuðum.
Listhús í Fjallabyggð er sjálfseignarstofnun sem rekur m.a. gestavinnustofur á Ólafsfirði og skipuleggur skiptinám í samvinnu við listamenn. Sýningin, sem er haldin með stuðningi Fotologue Culture í Hong Kong og Menningarráðs Eyþings, stendur til 7. desember og er opin þriðjudaga-sunnudaga kl. 12-17. Aðgangur er ókeypis.
10.11.2014 | 11:05
Rögnvaldur Bragi Rögnvaldsson sýnir í Populus tremula
BARA KASSAR
Rögnvaldur Bragi Rögnvaldsson
Laugardaginn 15. nóvember kl. 14.00 opnar Rögnvaldur Bragi Rögnvaldsson málverkasýninguna Bara kassar í Populus tremula. Sýnd verða akrýlmálverk á striga sem öll hafa verið máluð á þessu ári.
Sýningin er einnig opin sunnudaginn 16. nóvember kl. 14.00-17.00. Aðeins þessi eina helgi.
https://www.facebook.com/events/293251284198349
9.11.2014 | 11:07
Þriðjudagsfyrirlestur í Ketilhúsinu: Guðmundur Ármann Sigurjónsson - Að tína upp og miðla
Þriðjudaginn 11. nóvember kl. 17 heldur myndlistarmaðurinn og myndlistarkennarinn Guðmundur Ármann Sigurjónsson fyrirlestur í Ketilhúsinu undir yfirskriftinni Að tína upp og miðla þar sem hann fjallar um 42 ára feril sinn í myndlist.
Guðmundur Ármann hefur starfað sem myndlistarmaður síðan hann lauk háskólanámi frá listaháskólanum Valand í Gautaborg í Svíþjóð árið 1972. Hann hefur haldið yfir 20 einkasýningar og tekið þátt í fjölda alþjóðlegra samsýninga. Hann hóf kennsluferil sinn sem aðstoðarkennari í grafíkdeild Valand listaháskólans en lauk honum í vor eftir að hafa kennt við listnámsbraut Verkmenntaskólans á Akureyri í 14 ár. Árið 2012 lauk hann meistaranámi við Háskólann á Akureyri í kennslugreinum myndlistar og fjallaði lokaritgerðin um sjónmenningu og listnámskennslu við framhaldsskóla í Svíþjóð og á Íslandi.
Enginn aðgangseyrir er á fyrirlesturinn sem er sá sjöundi í röð fyrirlestra sem haldnir eru í Ketilhúsinu á hverjum þriðjudegi kl. 17 undir yfirskriftinni Þriðjudagsfyrirlestrar.
Fyrirlestraröðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Verkmenntaskólans á Akureyri, Háskólans á Akureyri og Myndlistaskólans á Akureyri. Á meðal annarra fyrirlesara vetrarins eru Stefán Boulter, Rósa Júlíusdóttir, Giorgio Baruchello og Kazuko Kizawa.
https://www.facebook.com/events/1612473045646551
7.11.2014 | 09:50
Sýningu Rakelar Sölvadóttur #1 í Deiglunni að ljúka
Síðustu dagar sýningar Rakelar Sölvadóttur #1 eru framundan en sýningin hefur staðið í Deiglunni síðan í september og lýkur næstkomandi sunnudag. Á sýningunni skoðar Rakel listrænt og samfélagslegt hlutverk fatahönnunar og snertir á yfirséðum flötum tísku og fatnaðar.
Rakel Sölvadóttir útskrifaðist með BA gráðu frá fatahönnunardeild Listaháskóla Íslands vorið 2013. Auk þess að starfa sem fatahönnuður hefur hún hannað sviðsmyndir fyrir tískusýningar og unnið að ýmiskonar innsetningum og samvinnulistaverkefnum. Rakel vinnur á skúlptúrískan hátt og með líkamann sem útgangspunkt notar hún form til að ýkja, brjóta upp eða afbyggja silhúettuna.
Sýningin stendur til 9. nóvember og er opin þriðjudaga sunnudaga kl. 12-17. Aðgangur er ókeypis.
5.11.2014 | 22:46
Joris Rademaker sýnir í Sal Myndlistarfélagsins
Joris Rademaker opnar sýningu í Sal Myndlistarfélagsins í Listagilinu á Akureyri á laugardaginn, 8. nóvember. Til sýnis eru aðallega ný þrívíð verk þar sem Joris notast við lífræn efni og hluti sem finna má úti í náttúrunni, til dæmis fjaðrir, rekavið og margskonar járnbúta. Verkin hans fjalla um samtal mannsins og umhverfisins, oft með tilvistarlegum spurningum.
Hann hefur mikið notað lífræn efni, kartöflur, spaghettí og hnetur í verkum sínum og einnig tré, rekavið, trjágreinar og hluti sem unnir eru úr tré, tannstöngla, sleifar o.fl.
Joris flutti til Akureyrar frá Hollandi árið 1991 og var bæjarlistamaður Akureyrar 2006. Hann hefur haldið fjölda sýninga hér á landi og sýndi síðast í sal SÍM (Sambandi íslenskra myndlistarmanna) í Reykjavík í ágúst s.l. Árið 2010 hélt hann stóra yfirlitssýningu á verkum sínum í Listasafninu á Akureyri og var þá gefin út vegleg bók um verk hans. Einnig gerði Örlygur Hnefill myndbandið Dansandi kartöflur sem hægt er að sjá á YouTube um vinnuferli Jorisar við kartöflumálverkin. Heimasíðan hans er joris.blog.is
Sýningin stendur til og með sunnudagsins 23. nóvember og er opin föstudaga, laugardaga og sunnudaga frá kl. 14-17 eða eftir samkomulagi við listamanninn.
5.11.2014 | 22:26
Sólarbögglar / Solargraphy Ljósmyndasýning í Deiglunni
Sólarbögglar / Solargraphy Ljósmyndasýning
Í Deiglunni Kaupvangsstræti 23, Akureyri
Sýningardagar og opnunartími:
15. nóvember til 7.desember 2014
Opið 12:00 til 17:00 (Lokað mánudaga)
Opnunar móttaka 15. nóv. Kl 15:00
Nú á tímum stafrænnar tækni er hægt að fanga það sem maður sér með einum smelli. Gang sólar er hins vegar ekki hægt að mynda á venjulegan máta með nútíma myndavélum. Allar myndir á sýningunni eru teknar með frumstæðri ljósmyndatækni sem kallast pinhole camera
Daglegur sólargangur merkir (skrifar á) ljósmyndapappír þar sem «pinhole» gatið á boxinu er mjög lítið og pappírinn lítið ljósnæmur, getur lýsingartíminn verið nokkrir mánuðir upp í heilt ár. Allar myndir á sýningunni eru með lýsingartíma allt að 2 mánuðum.
Solar Parc el er einnig menningar samskipta prógramm milli Hong Kong og Íslands. Í febrúar 2014 komu 2 listamenn frá Hong Kong þau Stanley Ng og Ceci Liu til Íslands með yfir 50 stk af pinhole myndavélum sem gerðar höfðu verið af nemendum í Hong Kong. Þau héldu einnig námskeið í gerð pinhole myndavéla þar sem tóku þátt 59 manns. Samtals yfir 100 pinhole myndavélar voru útbúnar og sendar til Hong Kong í lok febrúar s.l.
Á sýningunni núna verða 30 íslenskar myndir teknar með pinhole myndavélum og verða myndavélarnar til sýnis jafnframt.
Listhús ses er sjálfseignarstofnun í Fjallabyggð. Fyrir utan að gestavinnustofuna
(artist residency program), nýlega, skólamálum og skiptinám skipulagt eru kynnt í samvinnu við listamenn. Solar Parcel er skiptinám skipulagt af Listhúsið Í samvinnu við Sjónlistamiðstöðina og Fotologue Culture í Hong Kong. Það er með stuðningi af Menningarið Eyþings.
Upplýsingar: Alice Liu 8449538 | listhus@listhus.com | www.listhus.com
Skipulag sýningar: Listhús ses
Í samvinnu við Sjónlistamiðstöðina og Fotologue Culture í Hong Kong
Með stuðning frá Menningarráð Eyþings
Þátttakandi menntastofnun: Verkmenntaskólinn (Akureyri) og Menntaskólinn á Tröllaskaga (Ólafsfjörður)
https://www.facebook.com/events/527431804026141/
5.11.2014 | 14:49
Aðalheiður S. Eysteinsdóttir með opna vinnustofu í Alþýðuhúsinu
Laugardaginn 8. nóv. kl. 14.00 - 17.00 verður Aðalheiður S. Eysteinsdóttir með opna vinnustofu í Alþýðuhúsinu á Siglufirði.
Nú eru að verða þrjú ár frá því Aðalheiður keypti húsið og gerði upp sem vinnustofu og heimili með menningarlegu ívafi. Fyrir utan vinnu Aðalheiðar að eigin verkum fer starfssemin sívaxandi. Skipulagðar sýningar eru allt árið í Kompunni galleríi í miðju hússins. Fjölþjóðleg árleg smiðja skapandi fólks " Reitir " hefur fest sig í sessi, og nú bætist við " Hústaka " sem er listahátíð ungs fólks og fer fram 15. nóv. Aðrir menningarviðburðir sem settir hafa verið upp eru t.d. Sirkussýning, ljóðakvöld, fyrirlestrar, tónleikar, nútímadans og gjörningahátíð.
Fólki gefst kostur á að spjalla við Aðalheiði um verkin hennar, njóta kaffiveitinga, skoða sýningu Guðrúnar Pálínu í Kompunni sem nú fer að ljúka og hugsanlega kaupa sér smáskúlptúra til jólagjafa.
Verið velkomin að eiga notalega stund í Alþýðuhúsinu.
4.11.2014 | 13:22
Bryndís Kondrup opnar sýningu í Ketilhúsinu
Laugardaginn 8. nóvember kl. 15 opnar í Ketilhúsinu á Akureyri sýning Bryndísar Kondrup Af jörðu De Terrae.
Á sýningunni, sem fjallar um holdgervingu og hverfulleika mannsins, fléttar Bryndís saman verkum unnum í mismunandi miðla; málverkum, hlutum, vídeóverkum og röntgenmyndum úr eigin líkama.
Undanfarin ár hefur Bryndís sökkt sér ofan í pælingar um lífið og tilveruna gegnum málverkið. Hið táknræna mál landakorta fléttast oft inn í verk hennar og vísar þannig bæði til efnislegra og huglægra staðsetninga. Á sýningunni Af jörðu De Terrae heldur Bryndís áfram vegferð sinni um lendur tilverunnar og bætir hljóðum og fyrirbærum inn í viðfangsefnið.
Bryndís Kondrup lauk námi frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands og framhaldsnámi í Kaupmannahöfn þar sem hún bjó hátt í áratug. Einnig stundaði hún nám í listfræði við HÍ og LHÍ. Bryndís hefur haldið á annan tug einkasýninga og tekið þátt í fjölda samsýninga hér á landi og erlendis.
Sýningin er opin þriðjudaga til sunnudaga kl. 12-17 og stendur til 7. desember. Leiðsagnir verða fimmtudagana 13. og 27. nóvember kl. 12.15-12.35. Aðgangur er ókeypis.
https://www.facebook.com/events/742085762552223
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 14:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.11.2014 | 13:41
Guðrún Pálína sýnir í Populus tremula
Laugardaginn 8. nóvember kl. 14.00 opnar Guðrún Pálína Guðmundsdóttir myndlistarsýninguna Nóvember í Populus tremula í Listagilinu á Akureyri.
Sýningin er einnig opin sunnudaginn 9. nóvember kl. 14.00-17.00. Aðeins þessi eina helgi.
Guðrún Pálína sýnir þar hluta vinnu sinnar frá því hún var bæjarlistamaður Akureyrar 2013 og dvaldi hálft ár í Berlín. Í málverkum sínum reynir hún að hafa alla teikningu sem einfaldasta og láta litina og kraft þeirra njóta sín sem best. Hún vann að tvenns konar myndum í Berlín, annars vegar portrettmyndum með olíulitum og í vatnslit og hinsvegar einhvers konar landslagsmyndum í akryl og með vatnslitum. Í myndum sínum reynir hún að láta litinn sem mest flæða óhindrað um myndflötinn og láta hann blanda þannig að mestu litatónana og laða fram tilfinningaþrungið andrúmsloft og stemmingu. Það má segja að það sé lýsing á einhverskonar sammannlegu ástandi frekar en tengt ákveðnum einstaklingi.
Titill sýningarinnar er Nóvember, en vatnslitamyndirnar á sýningunni vann hún í nóvember 2013. Hún hefur ekki sýnt þær áður. En þarna eru líka til sýnis þrjú lítil olíumálverk. Guðrún Pálína hefur verið starfandi myndlistarmaður að loknu grunn- og framhaldsnámi í Hollandi 1989. Hún hefur verið að mestu búsett og starfandi á Akureyri síðan 1991. Sýningin er líka opin sunnudaginn 9. nóvember 14-17 en lýkur svo.
https://www.facebook.com/events/1504578756495146/
Menning og listir | Breytt 6.11.2014 kl. 09:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.11.2014 | 11:58
Aðalsteinn Þórsson með Þriðjudagsfyrirlestur í Ketilhúsinu
Þriðjudaginn 4. nóvember kl. 17 heldur myndlistarmaðurinn Aðalsteinn Þórsson fyrirlestur í Ketilhúsinu á Akureyri undir yfirskriftinni Hugleiðing um eigið starf þar sem hann fjallar um eigin feril og verk.
Aðalsteinn Þórsson lauk meistaragráðu í frjálsri myndlist frá AKI2 í Enschede í Hollandi árið 1998 og hefur síðan búið og starfað lengst af í Rotterdam. Aðalsteinn kennir um þessar mundir við fagurlistadeild Myndlistaskólanns á Akureyri og á kvöldnámskeiði í teikningu við sama skóla.
Enginn aðgangseyrir er á fyrirlesturinn sem er sá sjötti í röð fyrirlestra sem haldnir eru í Ketilhúsinu á hverjum þriðjudegi kl. 17 undir yfirskriftinni Þriðjudagsfyrirlestrar.
Fyrirlestraröðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Verkmenntaskólans á Akureyri, Háskólans á Akureyri og Myndlistaskólans á Akureyri. Á meðal annarra fyrirlesara vetrarins eru Stefán Boulter, Rósa Júlíusdóttir, Giorgio Baruchello og Guðmundur Ármann Sigurjónsson.
https://www.facebook.com/events/1612473045646551
3.11.2014 | 10:46
Aðalfundur Myndlistarfélagsins
Aðalfundur
Myndlistarfélagið boðar til aðalfundar í sal félagsins miðvikudaginn 19. nóvember kl. 20
Félagar hvattir til að mæta.
Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Reikningar.
3. Stjórnarkosning.
4. Kosning félagslegs skoðunarmanns og endurskoðanda til eins árs.
5. Lagabreytingar.
6. Ákvörðun félagsgjalda.
7. Önnur mál.
Stjórnin.
1.11.2014 | 23:46
Síðasta sýningarhelgi í sal Myndlistarfélagsins
Hrefna Harðardóttir myndlistarkona sýnir ATHAFNA-KONUR í sal Myndlistarfélagsins í Listagilinu á Akureyri milli kl. 14 og 17 yfir helgina, fram á sunnudag 2. nóvember. Hrefna sýnir myndverk sem hún vann með þrettán konum þar sem hún leitast við að láta litmyndir af þeim spegla svarthvítar myndir af formæðrum þeirra.
(Ljósmynd Daníel Starrason)
Menning og listir | Breytt 2.11.2014 kl. 21:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.10.2014 | 20:51
Dagur myndlistar í Listasafninu á Akureyri

Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.