ÁLFkonur - Á eigin vegum

elfa 1

Laugardaginn 3. október kl. 14:00 opna ÁLFkonur ljósmyndasýninguna „Á eigin vegum“ í Sal Myndlistarfélagsins, Kaupvangsstræti 10.

ÁLFkonur er áhugaljósmyndarafélag fyrir konur. Þær hafa starfað saman frá sumrinu 2010 og er þessi 16. sýning hópsins jafnframt 5 ára afmælissýning.

Að þessu sinni er ekki sameiginlegt þema heldur er hver og ein á eigin vegum við val á myndefni og uppsetningu. Hér kemur saman ólík sýn þeirra á umhverfið skráð með aðstoð linsu og vélar.

Sýningin verður opin föstudaga, laugardaga og sunnudaga kl. 14:00-17:00 til og með 18. október.

Í hópnum ÁLFkonur eru:

Agnes Heiða Skúladóttir
Berglind H. Helgadóttir
Díana Bryndís
Ester Guðbjörnsdóttir
Freydís Heiðarsdóttir
Guðný Pálína Sæmundsdóttir
Guðrún Kristín Valgeirsdóttir
Gunnlaug E. Friðriksdóttir
Halla S. Gunnlaugsdóttir
Helga H. Gunnlaugsdóttir
Helga Haraldsdóttir
Helga Heimisdóttir
Hrefna Harðardóttir
Kristjana Agnarsdóttir
Lilja Guðmundsdóttir
Linda Ólafsdóttir
Margrét Elfa Jónsdóttir

 


Réttir - Roundup í Listhúsinu Ólafsfirði

12017424_949648345106549_2082309101991811409_o

The exhibition in September
participant artists:
Anna Wagner (Arizona, USA) | visual artist
Abigail Blueher (Chicago, USA) | multi-media artist
Jenny McCarthy (Ohio, USA) | painter
Sara Matthews (Toronto, Canada) | scholar in research-creation
Zoe Polach (Maryland, USA) | poet

In this show, the artists will show you their painting, drawings, collage artworks and photographers. And Zoe will read her poems.

Come to have coffee and chat. All Welcome.

https://www.facebook.com/events/495094997331772


Oaxaca í Mjólkurbúðinni á Akureyri

11051788_10153076387302231_2791660134026950013_n

Ásdís Ásgeirsdóttir ljósmyndari opnar sýninguna Oaxaca í Mjólkurbúðinni á Akureyri, laugardaginn 26. september kl. 14.

Sýning Ásdísar ber yfirskriftina Oaxaca /wa'ha'ka/ eftir borg í Mexíkó þar sem Ásdís tók myndirnar á sýningunni en hún sótti þar tíu daga námskeið í febrúar á þessu ári hjá hinum heimskunna ljósmyndara Mary Ellen Mark.

Ásdís er blaðaljósmyndari að mennt og starfaði sem slíkur á Morgunblaðinu frá 1995 til 2007. Þá settist hún aftur á skólabekk og lauk BA-námi í listfræði. Þaðan lá leiðin í meistaranám í blaða- og fréttamennsku og lauk Ásdís því í vor.

Ljósmyndasýningin Oaxaca stendur til 4. október og eru allir velkomnir

 


Sara Björg Bjarnadóttir sýnir í Kaktus

12002082_750253555097570_8845789761572540520_n

GEGN SÆR

það er tært
það er skært
en sjáðu í gegn


Sara Björg Bjarnadóttir útskrifaðist úr myndlistardeild frá Listaháskóla Íslands vorið 2015.
GEGN SÆR er hennar þriðja einkasýning en áður hefur hún tekið þátt í hinum ýmsu samsýningum og samstarfsverkefnum. Sara Björg á rætur að rekja til Akureyrar og hefur eytt mörgum stundum í rými Kaktus og því spennt að sýna nýja nálgun sína á rýminu.

Allir eru hjartanleg velkomnir

Opnun laugardaginn 26. september 2015 kl. 15

https://www.facebook.com/events/760916007352521

Kaktus, Kaupvangstræti 10-12, 600 Akureyri

"Art Fair" í Deiglunni á laugardag

12019784_1028556957154859_7360763251221452896_n

Gilfélagið stendur fyrir "Art Fair" í Deiglunni laugardaginn 19. september milli 14-17. Þetta er sölusýning listamanna á Akureyrarsvæðinu.
Allir velkomnir!

https://www.facebook.com/events/635904286552827


Opnun MYNDASÖGUBÓKASAFNS í Kaktus

12030242_746856258770633_2609439011989166269_o

Næstkomandi laugardag verður opnað MYNDASÖGUBÓKASAFN í Kaktus. 
Safnið er eins og stendur hluti af myndasögusafni Anne Balanant og verður að opnun lokinni öllum opið. Þá munu nýjar bækur bætast í safnið mánaðarlega.
Bækurnar eiga það sameiginlegt að vera óhefðbundnar myndasögur sem koma flestar frá sjálfstæðum smáútgáfum.

Kaffi og kakó í boði !

Tónlist á kassettum !!

Og JÁ, það er alvöru þrívíddarbók á staðnum !!!

Húsið opnar kl. 15:00.

https://www.facebook.com/events/1492346847752135
...........................................................................

Next saturday, Kaktus will open its COMIC BOOK LIBRARY.
For now the library consists of Anne Balanant's private collection and will be available for everybody after the opening. Every month there will be a new addition to the library.
The biggest part of the collection is made up of non-traditional comics released by small independent publishing houses.

Coffee and hot chocolate offered !

Audio tapes playing !!

And YES, the library has a real 3D book !!!

Opening at 15:00.


Kaktus er styrktur af Akureyrarstofu og Menningarráði Eyþings


Haraldur Ingi Haraldsson með vinnustofusýningu í Sal Myndlistarfélagsins

12011175_10203469080006832_1419523005811143031_n

Laugardaginn 19. september kl.14 opnar Haraldur Ingi Haraldsson vinnustofusýningu í Sal Myndlistarfélagsins í Listagilinu á Akureyri undir nafninu Codhead Xl. Sýningin stendur til 27. september. 

"Ég hef verið að vinna að Codhead hugmyndinni síðan um 2000 og mest í skúlptúr og innsetningum. Á síðunni codhead.net má sjá dæmi um þá vinnu. Þessi sýning er hinsvegar málverkasýning þar sem ég sýni fjölda stór og smá málverka sem eru unnin á árunum 2014 og 15.

Ég kalla sýninguna vinnustofusýningu vegna þess að ég mun vera að vinna að ýmsum verkefnum sem eru í farvatninu í sýningarrýminu á sýningartímanum. Opnunartíminn miðast við það. Þegar skiltið er úti og ljós í gluggunum þá er opið. Frá því snemma á morgnanna og fram á kvöld."

Um sýninguna. 

Codhed er heimur þar sem jakkafataklætt fólk með bindi og þorskhaus sinnir margvíslegum viðfangsefnum í umhverfi sem skilgreinir heiminn. Codhead er samstofna orðinu Godhead og á einhvern hátt nánast sama orðið. Þorskdómur og guðdómur.  

Þetta er pólitísk list, og fjallar að hluta til um heimspeki rándýrsins, græðgi, eigingirni og miskunnarleysi sem er kjarni nýfrjálshyggjustjórnhátta vesturlanda. Hrunið afhjúpaði inngróna spillingu íslensks samfélags og meðvirkni á ævintýralega háu stigi. Allt þetta dregur kraft úr samfélögum og ógnar framtíð almennings. Þetta er mér ofarlega í huga.

En svo er ég einnig mjög upptekinn af hefðbundnum úrlausnum myndlistar á sviði framsetningar, litameðferðar, myndbyggingar og annarrar tækni. Ég er mjög meðvitaður um að myndlist er að miklum hluta til sjónræn og tilfinningaleg upplifun sem gefur ekki rými til predikunar eða framsetningu algildra sanninda.

Engin borðskort eru send út en allir hjartanlega velkomnir.

https://www.facebook.com/events/1654633784781547


Bergþór Morthens sýnir í Alþýðuhúsinu á Siglufirði

12001005_10153475046333796_1173332377584978122_o

Föstudaginn 11. September kl. 17.00 opnar listamaðurinn Bergþór Morthens sýningu í Kompunni, Alþýðuhúsinu á Siglufirði.

Alþýðuhúsið á Siglufirði

Kompan 11.09. – 4.10.

Bergþór Morthens - Við aftökustaðinn

Bergþór Morthens er fæddur árið 1979. Hann stundaði nám í Myndlistaskólanum á Akureyri á árunum 2001-2004 og mastersnám við Valand listaakademíuna í Gautaborg 2013-2015. Bergþór hefur unnið ötullega að list sinni og haldið bæði einka- og samsýningar, jafnt hér á landi sem erlendis. Verk Bergþórs ögra viðmiðum portrett-hefðarinnar og daðra við hið gróteska. Viðfangsefnin eru í mörgum tilfellum, stjórnmálamenn og fólk í valdastöðum, máluð á „hefðbundinn“ máta en í stað þess að upphefja viðfangsefnið er samhenginu breytt með miðlun listamannsins. Sýningin Við aftökustaðinn vísar til verks eftir Kjarval af einum alræmdasta aftökustað landsins, Drekkingarhyl í Öxará. Verkin eru fullunnin í ákveðnum stíl en svo kemur til sögunnar annar stíll, meira abstrakt og expressjónískur. Hann hylur eða eyðileggur upphaflega verkið og skírskotar til Chromophobiu (ótti við liti), þess að grýta tertu í andlit einhvers í pólitískum mótmælum en vísar einnig til athafnamálverksins (e. action painting).

Heitt á könnunni og allir velkomnir.

Menningarráð Eyþings, Fjallabyggð og Fiskbúð Siglufjarðar styðja við menningarstarfið í Alþýðuhúsinu.

https://www.facebook.com/events/438923872959415


Ragnheiður Björk Þórsdóttir opnar sýningu í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi

11218206_997298173625358_6689400358784454333_n

Laugardaginn 12. september kl. 15 verður opnuð sýning textíl listakonunnar Ragnheiðar Bjarkar Þórsdóttur, Rýmisþræðir, í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi.

Þræðir tengja Ragnheiði Björk Þórsdóttur við lífið, upprunann og uppsprettuna. Þeir eru í senn efniviðurinn og viðfangsefnið í listsköpun hennar og mynda uppistöðu, ívaf og þannig verkin sjálf. Þráðurinn er eins og blýantur og vefnaður eins og teikning úr þráðum. Það er einhver galdur í vefnaðinum, hann er svo óendanlega tengdur lífinu, örlögum og sögu mannsins á jörðinni. Vefnaður er í senn erfiður andstæðingur og góður vinur sem felur bæði í sér einfaldleika og fjölbreytileika og reynir þannig bæði á líkama og sál.

Eftir brautskráningu frá textíldeild Myndlista- og handíðaskóli Íslands 1984 stundaði Ragnheiður meistaranám í textíl við John F. Kennedy University frá 1984-1985. Hún lauk uppeldis- og kennslufræði frá KHÍ 1990 og lauk M.ed. námi frá Háskólanum á Akureyri 2009. Samhliða því að starfa sem textíllistamaður hefur Ragnheiður verið kennari í Verkmenntaskólanum á Akureyri í 27 ár og kennt vefnað, listasögu og hönnunar- og textílsögu. Hún er formaður Félags íslenskra vefnaðarkennara og félagi í Textílfélagi Íslands og SÍM. Ragnheiður var bæjarlistamaður á Akureyri 2014 - 2015.

Sýningin Rýmisþræðir stendur til sunnudagsins 25. október og er opin þriðjudaga til sunnudaga kl. 12-17.

http://www.listak.is

https://www.facebook.com/events/461753620698589


Beint streymi frá félagsfundi SÍM

greenlogo


Við viljum benda á að hægt verður að fygjast beint með félagsfundi SÍM, sem haldinn verður í SÍM salnum núna á laugardaginn 5. sept. 2015. Tengill á beint streymi er hér.

Dagskrá fundar:
 
13:00
/// Kynning á nýrri heimsíðu SÍM
Elisabet Brynhildardóttir, hönnuður síðunnar kynnir.
 
13:03
/// Kynning á BHM - Bandalagi Háskólamanna
Ingibjörg Gunnlaugsdóttir, framkvædastjóri SÍM fer yfir það helsta sem felst í því að vera innan vébanda BHM.
 

14:00
/// STARA
4. tölublað STARA kemur út og er þema blaðsins Feneyjatvíæringurinn.
Björg Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri KÍM fjallar um ferlið við val á framlagi Íslands til Feneyjatvíæringsins.
Hlynur Helgasson skrifar áhugaverða og ýtarlega grein um Listina, samfélagið og tjáningarfrelsið.
Jón Proppé fjallar um samsýninguna Listería sem var sett upp í ókláruðu safnhúsi á Nesi.
Vinnustofuviðtal við Eygló Harðardóttur, en hún er í vinnustofu SÍM í Súðarvogi.


14:20
/// MANELE DAM sýningarstjóri verður með kynningu.
SÍM fékk styrk frá KKNORD 2015 til þess að bjóða myndlistarmönnum frá Norðurlöndunum og Eystrasaltsríkjunum til dvalar í Gestavinnustofum SÍM.
Árið 2015 hefur SÍM ákveðið að vinna með Nýlistasafninu og Birtu Guðjónsdóttur sýningarstjóra við val á listamönnum og sýningarstjórum.

Malene Dam, sýningarstjóri frá Danmörku sem dvelur hjá okkur í september, ætlar að halda stutta kynningu um sín störf.
Félagsmönnum gefst tækifæri að heilsa upp á Malene og skrá sig á vinnustofuheimsóknar lista.


14:45
/// VIÐ BORGUM MYNDLISTARMÖNNUM
Jóna Hlíf Halldórsdóttir, formaður SÍM  segir frá herferðinni “Við borgum myndlistarmönnum” sem er í undirbúningi hjá SÍM


/// Önnur mál
Félagsmönnum gefst tækifæri til að koma hugmyndum sínum á framfæri til stjórnar SÍM, ræða hagsmunamál sín og spyrja spurninga.



loop á videolistahátíðinni heim

11988694_10207451764670747_8888995968623831098_n
 
Á Akureyrarvöku 2015 föstudaginn 28. ágúst opnaði videolistahátíðin heim að Vanabyggð 3, efri hæð, Akureyri. Fyrirhugað er að heim videolistahátíð verði að árlegum viðburði og hugsunin er að virkja sem flesta skjái í bænum í eina viku á ári og standa fyrir einskonar heimsendingu á videolist inn á heimili Akureyringa.  Á opnunarkvöldi bauð Arna Valsdóttir heim og sýndi vídeó/söng innsetningu á heimili sínu. Í framhaldi af því, mánudaginn 31.ágúst fluttu listamennirnir Arnar Ómarsson og Freyja Reynisdóttir inn á heimilið og opna sýningu þar föstudaginn 4. september sem stendur til sunnudagsins 06. september.
 
loop
Arnar Ómarsson, Freyja Reynisdóttir
 
Föstudaginn 4. september kl. 23.00 opnar sýning þeirra loop og mun hún standa til sunnudagsins 6. September. Opið frá 21:00 – 01:00 Laugardag og Sunnudag. loop er samansafn videoverka unnin á staðnum með heimilið sem viðfangsefni þar sem listamennirnir unnu útfrá rýminu sjálfu og reynslu þeirra sem gestir en einnig meðlimir heimilisins. Ferlið og útkoman er tilraunkennd og fyrirvaralaus.
 
 
A! Gjörningahátíð fer fram sömu daga og hvetjum við alla til að kynna sér þeirra dagskrá
 
Uppbyggingasjóður Norðurlands eystra, Höldur bílaleiga Akureyrar og Bakaríið við brúna styrkja verkefnið.

Ólöf Rún Benediktsdóttir með gjörning í Kaktus

11947470_10153584837631873_2332799872651832662_n

Velkomin á gjörning Ólafar Rúnar Benediktsdóttur: Sjálfvarp, í Kaktus föstudaginn 4. september. Umfjöllurnarefni gjörningsins er innri togstreytan sem mótar persónuleika fólks. Í görningnum leitast listamaðurinn við að varpa fram erkitýpum síns innra sjálfs, skoða þær, ræða við þær og jafnvel sætta ólíka póla í sjálfinu.

Ólöf Rún Benediktsdóttir er myndlistamaður og skáld sem vinnur og starfar í Reykjavík. Ólöf útskrifaðst úr Listaháskóla Íslands árið 2013 en hefur síðan sýnt á fjöldamörgum einka og samsýningum, meðal annars á LungA, í Anarkía gallerí og í Ekkisens. Hún gekk til liðs við Fríyrkjuna snemma árs 2014 og hefur gefið út ljóð og örsögur með félaginu.

https://www.facebook.com/olofrbenediktsdottir?__mref=message_bubble

https://www.facebook.com/events/1643199072624297


Hekla Björt Helgadóttir sýnir í Verksmiðjunni á Hjalteyri

10521328_10153537380337829_3743814710272699067_n

Salt Vatn Skæri: Hlý Eyja
Hekla Björt Helgadóttir

05.09 – 27.09 2015. Opið um helgar frá 14:00 – 17:00 og samkvæmt samkomulagi.

Opnun í Verksmiðjunni á Hjalteyri, 5. september 2015 kl 22:00.

Ókeypis rútuferð frá Hótel Kea kl 21:45 - Ferð tilbaka frá Hjalteyri á miðnætti.

Sýningin byggir á samnefndu ljóðahandriti Heklu sem hún hefur unnið og þróað frá æsku. Á sýningunni sviðsetur hún landslag og ljóðaheim handritsins og skeytir þannig saman myndlist, ljóðlist og leikhúsi.

Með henni starfa listamenn sem allir fengu ljóð úr handritinu til útfærslu á eigin hátt. Má þar nefna raftónlistarfólkið Anne Balanant og Áka Sebastian Frostason, klassíska tónskáldið Guðnýju Valborgu Guðmundsdóttur ásamt básúnuleikaranum Ara Hróðmarssyni, tónlistarmanninn Þorstein Kára Guðmundsson og myndlistarmannin Söru Björg Bjarnadóttur, en allir ofangreindir eiga tónverk á sýningunni.

Einnig gefur að líta brúður sem listamaðurinn Lilý Erla Adamsdóttir vann eftir persónum handritsins og myndbandsverk sem Freyja Reynisdóttir listamaður og Hekla Björt unnu í samstarfi fyrr á árinu.

Síðar um kvöldið leika plötusnúðarnir Sexítæm (Lovísa Arnardóttir og Óli Hjörtur Ólafsson) og Vélarnar (Arnar Ari Lúðvíksson) fyrir leik og dansi.

Allir eru innilega velkomnir á Hlýja Eyju á Hjalteyri.

https://www.facebook.com/events/750317581744718


Dagskrá A! Gjörningahátíðar

11143659_1646778675579862_4056346373127741964_o

A! Gjörningahátíð verður haldin í fyrsta sinn dagana 3. - 6. september og er stefnt að því að hún verði að árlegum viðburði. Á dagskrá eru 14 fjölbreyttir gjörningar auk „off venue“ viðburða og vídeólistahátíðarinnar heim. A! Gjörningahátíð er lokahnykkurinn á Listasumri á Akureyri sem var endurvakið í byrjun júní, eftir nokkurra ára hlé, með yfir 200 viðburðum á dagskránni.

Fjölbreyttir gjörningar myndlistarmanna og sviðslistafólks er á dagskrá A!  Meðal þeirra sem fram koma eru Magnús Pálsson, Anna Richardsdóttir, Katrín Gunnarsdóttir, Snorri Ásmundsson, Þóra Sólveig Bergsteinsdóttir, Freyja Reynisdóttir & Brák Jónsdóttir, Örn Ingi Gíslason, Hekla Björt Helgadóttir, Choreography Rvk og Kriðpleir.

A! fer fram víðsvegar um Akureyri og teygir anga sína til Hjalteyrar. Meðal annars verða settir upp gjörningar í kirkjutröppunum, endurvinnsluskemmu Gúmmívinnslunnar, Verksmiðjunni á Hjalteyri og nokkrir gjörningar verða í Menningarhúsinu Hofi og í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi. Ókeypis verður á alla viðburði A!

Dagskráin hefst með pompi og prakt kl. 17 á morgun, fimmtudaginn 3. september, í Hamragili í Hofi með framlagi Leikfélags Akureyrar og Hofs, Drengurinn með tárið, en sá gjörningur verður fluttur í þremur hlutum og fara seinni tveir fram föstudag og laugardag. Hvern gjörninginn mun reka annan og lokahnykkurinn verður á laugardagskvöldið í Réttarhvammi og á Hjalteyri þar sem Anna Richardsdóttir fremur meðal annars gjörninginn Hjartað slær, endurvinnsla á konu og Hekla Björt Helgadóttir opnar sýninguna Salt Vatn Skæri. Boðið verður upp á rútuferð frá Hótel Kea kl. 21.45 sem kemur við í Réttarhvammi og ekur síðan til Hjalteyrar. Haldið verður aftur til Akureyrar á miðnætti.

Opið hús verður í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi kl. 11 sunnudaginn 6. september þar sem boðið verður til umræðna og morgunverðar. Þar munu allir listamennirnir koma saman og ræða gjörningana. Allir boðnir velkomnir.

Að hátíðinni standa Listasafnið á Akureyri, Leiklistarhátíðin LÓKAL, Reykjavík Dance Festival, Menningarfélag Akureyrar og Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar með stuðningi frá Myndlistarsjóði.

Allar nánari upplýsingar má sjá á heimasíðu Listasafnsins á Akureyri, listak.is, og á Facebooksíðu A!

Dagskrá A!


Fimmtudagur 3. september

17.00 Hof, Hamragil
Leikfélag Akureyrar / Hof
Drengurinn með tárið  (35 mín)

18.00 Listasafnið á Akureyri, Ketilhús
Þóra Sólveig Bergsteinsdóttir
Embodiment, a drawing in space (30 min)

21.00 Listasafnið á Akureyri, Ketilhús
Freyja Reynisdóttir / Brák Jónsdóttir
Hvað var ég að hugsa? (30 mín)

 
Föstudagur 4. september

17.00 Hof, Hamragil
Leikfélag Akureyrar / Hof
Drengurinn með tárið (35 mín)

18.00 Hof, Hamrar
Katrín Gunnarsdóttir
Saving History (40 mín)

20.30 Listasafnið á Akureyri, Ketilhús
Snorri Ásmundsson
Stórtónleikar (45 mín)

21.30 Kirkjutröppurnar
Örn Ingi Gíslason
Dynjandi (9 min)

22.00 Listasafnið á Akureyri, Ketilhús
Choreography Rvk 
Dansioki (60 mín) 


Laugardagur 5. september

15.00 Listasafnið á Akureyri, Ketilhús
Kriðpleir
Tiny guy (80 mín)

17.00 Hof, Hamragil
Leikfélag Akureyrar / Hof
Drengurinn með tárið (35 mín)

18.00 Listasafnið á Akureyri, Ketilhús
Magnús Pálsson
Vakning (15 min)

21.00 Blá Endurvinnsluskemma hjá Gúmmívinnslunni
Anna Richardsdóttir
Hjartað slær, endurvinnsla á konu (60 mín)

22.00 Verksmiðjan á Hjalteyri
Hekla Björt Helgadóttir
Salt vatn skæri (60 min)


Sunnudagur 6.9

11.00 Listasafnið á Akureyri, Ketilhús
Sameiginlegt
Morgunverður (60 mín)


Ljósmyndasýning Dagbjartar Brynju Harðardóttur Tveiten í Eymundsson

11900088_10152939611241829_3203410390709363474_n

"Í Heimsókn hjá Helgu" er ljósmyndasýning myndlistarkonunnar Dagbjartar Brynju Harðardóttur Tveiten. Sýningin er sett upp í tilefni af Akureyrarvöku í Eymundsson og stendur til 6. september.

Sýningin fjallar um líf og tilveru Helgu Jónsdóttur 94 ára frá Syðstabæ í Hrísey. Helga er ömmusystir Brynju sem heimsótti hana á 100 ára kosningaafmæli kvenna 19. júní síðastliðinn. Heimsóknin var skrásett í máli og myndum og veitir okkur innsýn í daglegt líf Helgu og fortíð sem er svo nálæg okkur í tíma og hjálpar okkur að skilja undirstöður dagsins í dag með auðmýkt. Eins minnir hún okkur á að að þakka fyrir áfangana sem hafa áunnist í samfélagi okkar, að gleðjast og halda áfram að ryðja brautina í átt að jafnrétti, systra- og bræðralagi

Ljósmyndasýningin "í heimsókn hjá Helgu" er fyrsta ljósmyndasýning Brynju sem hefur haldið myndlistarsýningar og samsýningar á Íslandi og Svíþjóð.

https://www.facebook.com/events/465841130256927


Gunnar Kr. Jónasson sýnir í Kartöflugeymslunni

11880658_10206630299229896_7214501796802021080_n
 
Gunnar Kr. Jónasson sýnir teikningar frá Mývatnssveit í Kartöflugeymslunni á Akureyrarvöku.
Opnun laugardaginn 29. ágúst kl. 14.

Á bökkum þessa víðfræga vatns
sem laðar linsulanga farfugla
fyllast vitin iðandi lífi.

Þó koma hér vart flugnaskoðarar
nema þessi eini sem mundar
hvassyddan blýant.

Skráir hvernig tíminn flýgur
meðan hann stingur oddinum
í örkina og gefur henni blóð.

- Aðalsteinn Svanur Sigfússon.

https://www.facebook.com/events/1684982441737322


Dagrún Matthíasdóttir og Brynhildur Kristinsdóttir sýna í Mjólkurbúðinni

11953019_10153020441302231_6189992253304991711_n

Dagrún Matthíasdóttir og Brynhildur Kristinsdóttir opna sýninguna RAUTT BLÁTT í Mjólkurbúðinni í Listagilinu á Akureyrarvöku og Jóhann Árelíuz flytur ljóð kl. 14:30. Opið Laugardag kl. 14-18 og 20-23 og sunnudag kl.14-17. Allir Velkomnir

https://www.facebook.com/events/1684370271795094/1684513465114108/


Klængur Gunnarsson sýnir í Útibúinu

11138675_651987888268990_7196345805082946859_n

Verið velkomin á sýningu Klængs Gunnarssonar í Útibúinu laugardaginn 29. ágúst kl. 13:00 - 17:00. Útibúið verður staðsett á þriðju hæð í Rósenborg, aðeins þennan eina dag! Sýningin er hluti af Listasumri á Akureyri.

Um verkið:
Helvítis veðurfréttir.

Klængur Gunnarsson útskrifaðist frá Myndlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2011. Frá útskrift hefur Klængur sýnt víða, bæði hér heima sem og erlendis. Í verkum sínum veltir Klængur fyrir sér breytiþáttum hversdagsleikans og reynir að finna ljóðrænan punkt yfir Ð-ið.

www.klaengur.org

https://www.facebook.com/events/1632850506982588


"Salon des Refusés" í Deiglunni

11063914_1016273951716493_1189425696350064605_n

Gilfélagið opnar myndlistasýninguna "Salon des Refusés" í Deiglunni þann 29. ágúst 2015.
Á þriðja tug myndlistamanna frá Akureyri og nærsveitum sýna.

Þema sýningarinnar er, "þeim sem var hafnað" eins og titillin gefur til kynna. Allir listamenn standa frammi fyrir því að vera samþykktir og hafnað á víxl á ferlinum.
Í gegnum aldirnar hafa listamennirnir sjálfir oft tekið sig saman og staðið fyrir samsýningum á við þessa.
Sýnt samstöðu og sameiningu í listum og menningu.
Og er vel við hæfi að Gilfélagið, félag grasrótar í Listagilinu sameini listamenn á þessu hausti og setji upp þessa sýningu.


Hér má finna upphaf af sögu Salon des Refusés:
https://en.wikipedia.org/wiki/Salon_des_Refusés


Bjóðum bæjarbúum og öðrum gestum að sjá fjölbreytta og skemmtilega sýningu í Deiglunni í Listagilinu.


Sýningin stendur yfir til 20.september og er opin: Laugardaga og sunnudaga. 14:00 - 17:00

Allir velkomnir!

https://www.facebook.com/events/825639160883549


Þórgunnur Oddsdóttir sýnir í Flóru

11875050_1020459324651829_9214087517310769862_o

Þórgunnur Oddsdóttir        
Grasafræði
28. ágúst - 24. september 2015
Opnun föstudaginn 28. ágúst kl. 17
Flóra, Hafnarstræti 90, 600 Akureyri, s. 6610168

http://floraflora.is
https://www.facebook.com/flora.akureyri
https://www.facebook.com/events/1619336121677582

Föstudaginn 28. ágúst kl. 17:00 á Akureyrarvöku opnar Þórgunnur Oddsdóttir sýninguna Grasafræði í Flóru á Akureyri.

Hverfulleikinn og tilraunir okkar til að skrásetja veruleikann, varðveita og greina eru leiðarstef í verkum Þórgunnar sem hefur til að mynda unnið með tengsl ljósmynda og minnis og mörk skáldskapar og fræða í verkum sínum. Nú sýnir hún verk sem unnin eru út frá flóru Íslands. Efniviðurinn eru þurrkaðar jurtir sem hún safnaði í sumar og texti úr gamalli og lúinni kennslubók í grasafræði eftir Stefán Stefánsson skólameistara. Í stað þess að greina og skrá jurtasýnin tekur Þórgunnur þau í sundur og raðar saman á nýjan leik svo úr verða plöntur sem finnast hvergi í raunveruleikanum. Á sama hátt brýtur hún texta Stefáns niður orð fyrir orð og yrkir úr honum glænýja grasafræði.

Þórgunnur Oddsdóttir er fædd á Akureyri árið 1981. Hún lauk B.A. námi í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2010 og hafði áður lokið B.A. prófi í íslensku og fjölmiðlafræði frá Háskóla Íslands. Þórgunnur hefur sýnt bæði hérlendis og erlendis og meðal annars unnið með Kling & Bang gallerí í Reykjavík. Hún starfar sem dagskrárgerðarmaður hjá RÚV á Akureyri.

Nánari upplýsingar um Þórgunni og verk hennar má nálgast á heimasíðu hennar: www.thorgunnur.info

Sýningin er öllum opin á opnunartíma Flóru: Akureyrvökuhelgina laugardag kl. 10-18 og sunnudag kl. 12-18 og frá 1. september  mánudaga til föstudaga kl. 15-18. Sýningin stendur til fimmtudagsins 24. september 2015.

Flóra er verslun og viðburðastaður með vinnustofum sem Kristín Þóra Kjartansdóttur félagsfræðingur rekur. Áherslan er á nýtingu, endurnýtingu, náttúrutengsl og verkmenningu.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband