DrinniK í Alþýðuhúsinu á Siglufirði

12973214_982240585185880_6162650183490181450_o

Laugardaginn 16. apríl kl. 20.00 verður hljómsveitin DrinniK frá Akureyri með tónleika í Alþýðuhúsinu á Siglufirði. DrinniK er glænýtt tríó sem spilar frumsamda tónlist undir sígaunaáhrifum.
Hljómsveitina skipa
Andri Kristinsson: söngur, gítar, banjó
Wolfgang Lobo Sahr Saxófónn, harmónikka
Alan Mackkay: bassi

Enginn aðgangseyrir en tekið er á móti frjálsum framlögum.

Menningarrár Eyþings, Fjallabyggð, Fiskbúð Siglufjarðar og Egilssíld styðja við menningarstarf í Alþýðuhúsinu á Siglufirði.

https://www.facebook.com/events/1733571863551657


Jónborg Sigurðardóttir, Jonna sýnir Mjólkurbúðinni

12998708_10209611936602189_2692016481260529123_n

Velkominn á opnun á JÓNBORG-SVANBORG laugardaginn 16. apríl kl. 15.00 í Mjólkurbúðinni. Málverk og innsetning úr endurvinnsluplasti og postulínssvönum. Á opnun verður Jónborg með sögugjörning á slaginu 15.15 og að sjálfsögðu verður hatturinn á sínum stað. Tvær sýningarhelgar 16.-17. og 23.-24. apríl.

https://www.facebook.com/events/960276670728126


Helgi Þórsson sýnir í Kaktus

12916859_10155112448553532_5866236172176268909_o

Helgi Þórsson í Kristnesi öðru nafni GAMLI ELGUR sýnir nokkrar nýjar myndir á svörtum grunni í Kaktus.

 
Kaupvangstræti 10, 600 Akureyri

https://www.facebook.com/events/1709618042646926


Rósa Njálsdóttir sýnir í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju

Rósa Njálsdóttir sýnir í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju

Sýningin Kyrrð opnaði sunnudaginn 6.mars í tengslum við Kirkjuviku.  Rósa sýnir þar landslagsverk og portrett sem flest eru unnin 2015-2016.  

Sýningin stendur yfir  fram til 10. apríl og er opin á opnunartíma Safnaðarheimilisins, virka daga kl 8 - 16. 

Síðustu sýningarhelgi, 9. og 10. apríl verður opið frá kl 12 – 14.

Allir hjartanlega velkomnir

https://www.facebook.com/RosArt.Malverk

http://rosart.blog.is/blog

Trölladyngja - Copy (1280x355)

 

 

 


Sunnudagskaffi með skapandi fólki í Alþýðuhúsinu á Siglufirði

12891732_974620715947867_3458549747045989458_o


Sunnudagskaffi með skapandi fólki
Alþýðuhúsið á Siglufirði.
03.04.2016

Næstkomandi sunnudag 3. apríl kl. 15.30 – 16.30 fjalla
Ari Marteinsson og Sophie Haack um fjölbreyttan feril sinn og ýmis skapandi verkefni sem þau hafa unnið að.
Þau eru bæði með Mastersgráðu í samskiptahönnun frá Kolding School of Design í Danmörku.


Haack_Marteinsson er hönnunarstofa í Árósum sem vinnur með grafíska hönnun, sýningarhönnun, samskiptahönnun og arkitektúr. Haack_Marteinsson samanstendur af þeim Sophie Haack og Ara Marteinssyni, sem stödd eru á Siglufirði til að vinna bók um þverfaglegu samstarfssmiðjuna REITI.

Sophie og Ari hafa unnið margþætt starf, í mörgum löndum, í gegnum árin og má þar helst nefna náttúrulífssýninguna Natur® í Árósum, götusmiðjuna Hands Up! í Hong Kong, skúlptúrinn Heerups Have í Herning og bókina THIS IS X um menningarsvæðið Institut for (X) í Árósum.


https://www.facebook.com/events/464114420457689


Klængur Gunnarsson sýnir í Kaktus

12885833_830983443691247_8384194594536069774_o

Sýningin Eftirá opnar laugardaginn 26. mars klukkan 15:00 í hinu margslungna listrými Kaktus í Listagilinu á Akureyri. Klængur Gunnarsson sýnir þar hugleiðingar um bláið, hversdagsleikann, hið almáttuga gul og tilraun til að vingast við eftirleifar vetrarins.

Verið velkomin á opnun, léttar veitingar í boði.

Athugið að sýningin er aðeins opin þessa einu helgi - opið er frá 14 - 17, sunnudaginn 27. mars.

www.klaengur.org


Ragnheiður Harpa Leifsdóttir og Sigrún Hlín Sigurðardóttir sýna í Sal Myndlistarfélagsins

12888673_1026231797449823_3413942529123413227_o

Verið velkomin á opnun sýningarinnar Lítil II, laugardaginn 26. mars klukkan 15:00, léttar veitingar í boði. 

Listamennirnir Ragnheiður Harpa Leifsdóttir og Sigrún Hlín Sigurðardóttir sýna innsetningu sem samanstendur af dansandi silki, bráðnandi jökli, litlum manneskjum og stórum áhyggjum. Maðurinn er miðpunktur og tilfinningin fyrir því að vera bæði risastór og agnarsmá finnst á milli silkiþráða.

Innsetningin er sjálfstætt framhald af sýningunni Lítil sem var sett upp í Þjóðminjasafninu síðastliðið haust og styrkt af Reykjavíkurborg.

Þakkir fyrir aðstoð
Birkir Brynjarsson
Klængur Gunnarsson

Sýningin stendur til 10. apríl en opið er um helgar frá 14:00 - 17:00.

Boxið- Salur Myndlistafélagsins

Kaupvangstræti 10, 600 Akureyri
 

Föstudagurinn langi í Alþýðuhúsinu á Siglufirði 2016

10309644_10205966638341837_8691972446218489836_n

Föstudagurinn langi í Alþýðuhúsinu á Siglufirði 2016

25. Mars. Föstudagurinn langi.

Hulda Vilhjálmsdóttir opnar sýningu í Kompunni kl. 15.00
Hulda býr og starfar í Reykjavík, hún útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands og hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum. Hulda hefur getið sér gott orð fyrir ljóðræn og oft á tíðum dularfull málverk þar sem hún fjallar um hugarástand manneskju á næman máta.
Kompan er opin kl. 14.00 – 17.00 laugardaginn 26. mars, mánudaginn 28. mars og svo daglega þegar skilti er úti til 24. apríl.


Gjörningadagskrá á Föstudaginn langa kl. 15.30 – 17.00 þar sem fram koma Freyja Reynisdóttir , Brák Jónsdóttir, Magnús Pálsson og Aðalheiður S. Eysteinsdóttir.

Freyja Reynisdóttir og Brák Jónsdóttir
hófu gjörningasamstarf á síðasta ári og tóku meðal annars þátt í gjörningahátíðinni A! á Akureyri síðastliðið haust með gjörningi sem fjallaði um sameiginlega reynslu og hvernig samskipti þeirra hafa mótað og haft áhrif á samskipti og vináttu. Saman, í líkama gjörnings, munu þær nú halda áfram að starfa sem einstaka líffæri og halda líkama gangandi inn í önnur rými og eiga við áhorfendur.

Magnús Pálsson er einn af virtustu listamönnum þjóðarinnar.
Magnús vinnur með hugmyndir um neikvæð og jákvæð rými sem umlykja manninn og notar til þess hljóð, lykt, stemningu, tilfinningu o.s.frv. Síðan 1982 hefur Magnús aðallega lagt áherslu á samhljóm talaðs máls og tónlistar og sett upp stórar hljóðinnsetningar í samstarfi við Nýlókórinn. Gjörningar Magnúsar eru oft í samstarfi við fjölda manns og dansa á mörkum Leikhúss og gjörninga.

Magnús verður með nýjan gjörning sem hann semur sérstaklega af þessu tilefni.
Aðalheiður S. Eysteinsdóttir hefur fengist við gjörningaformið af og til í gegnum tíðina, oftast tengt skúlptúrsýningum sem hún heldur.  Þar hefur hún blandað saman dansi og annarskonar tjáningu til að skapa umgjörð um konu.  Að þessu sinni grípur hún til sagnahefðar íslendinga í bland við dans.

Undanfarin tvö ár hefur Aðalheiður staðið fyrir gjörningadagskrá á föstudaginn langa í Alþýðuhúsinu á Siglufirði. Fjöldi listamanna hafa komið fram með veigamikla gjörninga  og metnaður lagður í alla umgjörð og upplifun gesta.  Gjörningaformið er löngu þekkt innan myndlistar og má segja að það tengi hreyfilistir, leikhús, tónlist og myndlist.  Gjörningar fjalla um að fanga augnablikið og ná tengslum við áhorfandann sem oft á tíðum verður þátttakandi í verkinu.  Aðsókn á gjörningadagskrána á föstudaginn langa hefur verið með ólíkindum og færri hafa komist að en vildu.  Er því full ástæða til að efla þessa hátíð og gera árlega.

https://www.facebook.com/events/2003901859836038


James Birchall & Sarah Faraday í Kaktus

1279047_827380954051496_8531061683387324054_o

Laugardag 19. mars 2016

Opening: 15:00 - 19:00
Evening performance starting at 21:00 !

Kaktus, Kaupvangstræti 10, 600 Akureyri


Sarah Faraday and James Birchall have been collaborating for several years as photographer and sound artist, creating projects examining natural environments, works documenting urban developments and their impact on ecosystems, and sound pieces layering field recordings to create musical structures. They are currently artists in residence at Fjuk Arts Centre in Husavik, exploring the concepts of silence and stillness in the landscape, and the ability to capture and express these qualities through sound and film. The challenge is to express this meditative stasis in film, introducing a sense of passing time for the viewer. Although it may seem like a contradictory task - the expression of stillness in moving image, and silence in sound - it’s the virtual impossibility of finding absolute results which gives value to the end product. The meditative viewer is rewarded with the gradual revelation of time passing within the apparently still landscape.

Rough Fields is the solo project of UK-based producer James Birchall. Began in 2011 with a series of epic lo-fi cassettes on the Bomb Shop label, the Rough Fields project progressed through expansive song forms on debut album Edge of the Firelight, and surreal, dreamy pop on the High Time EP. Constructed from a wide array of stringed instruments, found objects and home-made soundmaking devices, his early work brings together influences from drone, UK techno and minimalism to form unique works. In 2013, Birchall collaborated with Steve Reich to release the first ever solo version of “Music For 18 Musicians”. Along with Sarah Faraday, the pair also form drone/noise/electronica Ambrosia(@).

Work from Birchall & Faraday's residency will be shown in the daytime at Kaktus, followed by an evening performance at 21:00. The evening show will be divided into two parts - the first is pure field recording with minimal manipulation, placing sound recorded on the north and west coasts of Iceland into concrete performative structures, accompanied by meditative films created at each location by photographer, filmmaker and visual artist Sarah Faraday. The second part stems from the 2013 album “Wessenden Suite” - a long-form drone piece constructed from layered field recordings. The performance involves recording environmental sound in the region, and then manipulating those recordings live using Max, Ableton and a series of custom built resonant filters to achieve densely layered textures of blissful, harmonic sound.

http://www.roughfields.org/
http://www.sarahfaraday.co.uk/
http://www.bombshop.org/

https://www.facebook.com/events/950786078307938


Ljósmyndasýningin Fólk / People opnuð á Listasafninu á Akureyri

large_rich_at_window_vefur

Laugardaginn 19. mars kl. 15 verður ljósmyndasýningin Fólk / People opnuð á Listasafninu á Akureyri. Á sýningunni má sjá verk sjö listamanna sem eiga það sameiginlegt að vinna með ljósmyndir þó að viðfangsefnið „fólk“ sé ef til vill ekki það fyrsta sem kemur í hugann þegar sum verk þeirra eru skoðuð. Listamennirnir eru Barbara Probst, Hallgerður Hallgrímsdóttir, Hrafnkell Sigurðsson, Hrefna Harðardóttir, Hörður Geirsson, Ine Lamers og Wolfgang Tillmans. Sýningarstjóri er Hlynur Hallsson. Sýningin stendur til 29. maí.

Hvernig birtumst við á myndum? Hvaða mynd fær fólk af okkur? Hver erum við? Sýningin Fólk / People segir áhorfandanum sögur af fólki og gefur innsýn í verk sjö listamanna sem allir vinna með ljósmyndir á ólíkan. Á dögum sjálfsmyndanna (e. selfie) hafa portrettmyndir öðlast nýja merkingu og hér gefur að líta fólk í ólíkum aðstæðum séð með augum ólíkra listamanna í gegnum linsur fjölbreyttra myndavéla.

Barbara Probst (f. 1964) tekur myndir af aðstæðum á nákvæmlega sama sekúndubroti. Smáatriði og heildarmynd gefur áhorfandanum heillandi yfirsýn í aðstæður á götuhorni á Manhattan. Hallgerður Hallgrímsdóttir (f. 1984) myndar ungt fólk í dagrenningu á björtum sumarmorgnum í Reykjavík. Ungt fólk sem ef til vill er að ljúka deginum eða að hefja nýjan. Í verkum Hrafnkels Sigurðssonar (f. 1963) skynjum við nærveru fólks án þess að sjá það. Blautir sjóstakkar í skærum litum gefa til kynna erfiðisvinnu við misjöfn skilyrði. Í myndum Hrefnu Harðardóttur (f. 1954) má sjá athafnakonur á sínum eftirlætisstað. Konur sem eiga margt sameiginlegt en hafa þó ólíkan bakgrunn bæði bókstaflega og huglægt. Hörður Geirsson (f. 1960) notar votplötutækni frá lokum 19. aldar til að taka myndir af fólki á miðaldardögum á Gásum við Eyjafjörð og skapar þannig stemningu liðins tíma. Ine Lamers (f. 1954) myndar konu í kvikmyndaveri og fjallar um mörkin á milli veruleika og kvikmyndar. Wolfgang Tillmans (f. 1968) tekur myndir af fólki eða líkamshlutum í neðanjarðalestum í London. Fólk sem er á ferðinni á annatíma og tekur jafnvel ekki eftir því að það sé ljósmyndað.

Listasafnið á Akureyri er opið þriðjudaga til sunnudaga kl. 12-17. Leiðsögn um sýningar er alla fimmtudaga kl. 12.15-12.45. Aðgangur er ókeypis.

https://www.facebook.com/events/1060972613964351

http://www.listak.is


Jónína Björg Helgadóttir sýnir í Mjólkurbúðinni

12748136_10208543843615632_6067182515150649704_o

Hoppa. Núna!

Laugardaginn 19. mars kl. 14 opnar Jónína Björg Helgadóttir sýninguna Hoppa. Núna! í Mjólkurbúðinni á Akureyri. Til sýnis verða grafík- og vídeóverk, öll unnin á þessu ári, þar sem Jónína veltir fyrir sér barnalegheitum og fullorðinsstælum. Í gegnum líkamlegar, einrænar vangaveltur skoðar hún skilin þar á milli og reynir að komast að því hvort og hvenær þau fara að skipta máli.

Þetta er önnur einkasýning Jónínu Bjargar sem útskrifaðist úr Fagurlistadeild Myndlistaskólans á Akureyri vorið 2015. Hún er með vinnustofu í Kaktus í Listagilinu og er einn umsjónarmanna rýmisins.

Opnun er milli kl. 14 & 17 laugardaginn 19. mars. Sýningin er opin 19. -22. mars, milli kl. 14 & 17 alla dagana.
Mjólkurbúðin er til húsa í Kaupvangsstræti 12, Akureyri.
Frekari upplýsingar veitir Jónína Björg Helgadóttir í síma 663-2443 eða á joninabh [hjá] gmail.com

https://www.facebook.com/events/1114647761889541


Mille Guldbeck sýnir í Deiglunni

Mille Guldbeck er listamaður mánaðarins í Gestavinnustofu Gilfélagsins. Hún sýnir í Deiglunni um næstu helgi, 12.-13. mars 2016.
Allir velkomnir!

Mille Guldbeck is a painter, printmaker and photographer whose work is concerned with the intersections of craft and perception. She uses painting and the ready-made to talk about varying levels of reality through the presentation of various physical planes. With abiding interests in natural phenomenon and the mark of the hand, she investigates the logic inherent in misdirection and interpretation. Guldbeck’s practice navigates a variety of processes and color palettes to create both flat and airy spaces, conveying a sense of immediate and ever-present time. She will present works and ideas conceived and created as an artist in residence at GIL Artist Society in March 2016.

Deiglan, Kaupvangsstræti 23, 600 Akureyri

https://www.facebook.com/events/226457374367410


FYRIRLESTRARÖÐ OG ÚTGÁFUTEITI Í LISTASAFNINU Á AKUREYRI

large_jlax-vefur

Í tengslum við síðustu viku sýningar Jóns Laxdal Halldórssonar, ...úr rústum og rusli tímans, og útgáfu samnefndrar viðtalsbókar Guðbrands Siglaugssonar verður stutt fyrirlestraröð í Listasafninu á Akureyri og útgáfuteiti laugardaginn 12. mars kl. 15. Sýningunni lýkur sunnudaginn 13. mars.

Fyrirlestrar:

Miðvikudaginn 9. mars kl. 17.15
Svipmyndir úr svepparíkinu
Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir
sveppafræðingur á Náttúrufræðistofnun
Íslands

Fimmtudaginn 10. mars kl. 17.15
Frá týndum myndlistarkonum til Guerrilla Girls
Gerla – Guðrún Erla Geirsdóttir
myndhöfundur og listfræðingur

Föstudaginn 11. mars kl. 17.15
Fáguð hreyfikerfi
Reynir Axelsson
stærðfræðingur

Aðgangur er ókeypis.

Útgáfuteiti: laugardaginn 12. mars kl. 15.

https://www.facebook.com/events/1057786870929550

http://www.listak.is


KLÆNGUR GUNNARSSON MEÐ ÞRIÐJUDAGSFYRIRLESTUR

large_klaengur_gunnarsson

Þriðjudaginn 8. mars kl. 17-17.40 heldur Klængur Gunnarsson myndlistarmaður Þriðjudagsfyrirlestur í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi, undir yfirskriftinni Byrjunarreitur - Frábært en ókeypis? Í fyrirlestrinum fjallar Klængur um hvað bíður listnema eftir útskrift út frá sinni eigin reynslu. Auk þess mun hann tala um listamannarekin rými, samstarf við gallerí og liststofnanir, stöðu og umhverfi styrkja og fleira.

Klængur Gunnarsson hefur unnið að ýmsum verkefnum eftir útskrift frá myndlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2011. Undanfarin tvö ár hefur hann verið virkur þátttakandi í listasamfélaginu á Norðurlandi og tekið þátt í sýningum t.d. á Listasafninu á Akureyri, Alþýðuhúsinu á Siglufirði og Verksmiðjunni á Hjalteyri. Klængur er formaður Myndlistarfélagsins.

Þetta er átjándi og jafnframt næstsíðasti Þriðjudagsfyrirlestur vetrarins en fyrirlestraröðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Verkmenntaskólans á Akureyri, Háskólans á Akureyri, Myndlistaskólans á Akureyri, Gilfélagsins og Myndlistarfélagsins. Síðasta fyrirlesturinn flytur Mille Guldbeck myndlistakona, þriðjudaginn 15. mars næstkomandi.

https://www.facebook.com/events/1240861719277245

http://www.listak.is


Sköpun bernskunnar 2016 opnar Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi

large_les-bateaux

Laugardaginn 5. mars kl. 15 verður opnuð í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi samsýningin Sköpun bernskunnar 2016. Þátttakendur eru Hríseyjarskóli, Leikskólarnir Hólmasól, Sunnuból og Pálmholt, grunnskólarnir Naustaskóli og Síðuskóli, Leikfangasýningin í Friðbjarnarhúsi og listamennirnir Áki Sebastian Frostason, Anne Balanant, Björg Eiríksdóttir, Elsa Dóra Gísladóttir, Egill Logi Jónsson og James Earl Ero Cisneros Tamidles. Sýningarstjóri: Guðrún Pálína Guðmundsdóttir.

Þetta er þriðja sýningin undir heitinu Sköpun bernskunnar. Hún er sett upp til þess að örva skapandi starf og hugsun allra skólabarna, á aldrinum tveggja til sextán ára. Þátttakendur hverju sinni eru börn, starfandi listamenn og Leikfangasýningin í Friðbjarnarhúsi. Sköpun bernskunnar er því samvinnuverkefni í stöðugri þróun og er hver sýning sjálfstæð og sérstök. Sýningin hefur vakið verðskuldaða athygli og er einstök hvað varðar samvinnu myndlistarmanna og barna. Einnig verða sýnd myndverk frá námskeiði sem haldið var í tengslum við Sköpun bernskunnar 2015 þar sem leiðbeinendur voru Erwin van der Werve og Þóra Sólveig Bergsteinsdóttir.

Sköpun bernskunnar 2016 stendur til 24. apríl. Listasafnið er opið þriðjudaga-sunnudaga kl. 12-17. Leiðsögn um sýningar er alla fimmtudaga kl. 12.15-12.45. Aðgangur er ókeypis.

Mynd: Les bateaux eftir Anne Balanant.

http://www.listak.is


Brynhildur Kristinsdóttir sýnir í Kompunni, Alþýðuhúsinu á Siglufirði

12805985_953568598053079_3156696506672691438_n

Laugardaginn 5. mars kl. 15.00 opnar Brynhildur Kristinsdóttir sýninguna ÉG LÆT TIL LEIÐAST í Kompunni Alþýðuhúsinu á Siglufirði. Sýningin stendur til 20. mars.

Brynhildur Kristinsdóttir (f.1965) nam myndlist í Myndlistaskólanum á Akureyri og í Myndlista- og handíðaskóla Íslands. Eftir útskrift úr myndmótunardeild 1989 fór Brynhildur til Ítalíu þar sem hún vann með myndhöggvurum en síðan lá leið hennar í Iðnskólann í Reykjavik þar sem hún lærði húsgagnasmíði en árið 2011 lauk hún kennaranámi frá Háskólanum á Akureyri. Auk þess að starfa við eigin myndsköpun hefur hún kennt myndlist og átt í samstarfi við ýmsa listamenn, gert leikmynd og búninga fyrir gjörninga og dans. Brynhildur hefur haldið nokkrar einkasýningar og tekið þátt í fjölmörgum samsýningum. Hún starfar nú á Akureyri sem athafnasamur kennari og myndlistarmaður.

ÉG LÆT TIL LEIÐAST

"Ég læt til leiðast" er yfirskrift sýningar Brynhildar Kristinsdóttur í Alþýðuhúsinu á Siglufirði þar sýnir hún skúlptúra og myndverk. Verkin eru flest mótuð úr pappamassa og álpappír og fjalla um tjáningu mannsins, hvernig hugmyndir hlutgerast og orð falla í stafi.

https://www.facebook.com/events/928906803890222


Sunnudagskaffi með skapandi fólki í Alþýðuhúsinu á Siglufirði

12799297_953559618053977_7182411865970509645_n

Nú eru að hefja göngu sína viðburður í Alþýðuhúsinu á Siglufirði sem nefnist sunnudagskaffi með skapandi fólki. Fyrsta sunnudag í hverjum mánuði verður fólk frá ýmsum stöðum í samfélaginu með klukkutíma erindi. Öll eiga þau það sameiginlegt að vera skapandi í sínu starfi eða áhugamáli. Um er að ræða fyrirlestra, gjörninga, kynningar og spjall yfir kaffibolla. 

Sigríður María Róbertsdóttir ríður á vaðið sunnudaginn 6. mars með kynningu á uppbyggingu Rauðku í ferðaþjónustu.

Frá árinu 2010 hefur Rauðka verið áberandi í uppbyggingu ferðaþjónustu í Fjallabyggð. Margar nýjungar hafa litið dagsins ljóss síðan þá með tilkomu Hannes Boy, Kaffi Rauðku, iðnaðareldhúss og nú síðast Sigló Hótels. Í dag starfa 25 manns hjá Rauðku/Sigló Hótel á heilsársgrunni. Frá árinu 2011 hefur Sigríður María gegnt stöðu framkvæmdastjóra Rauðku í viðamikilli uppbyggingu félagsins í ferðaþjónustu á Siglufirði.

https://www.facebook.com/events/1333100096717173


Viðburðarík helgi í Alþýðuhúsinu á Siglufirði

12514063_10205800386385642_1249048081272743163_o

Laugardagskvöldið 27. feb. kl. 20.00 2016 mun ljóðahópurinn Hási Kisi og gestur, vera með ljóðaupplestur í Alþýðuhúsinu á Siglufirði.

Hási Kisi er ljóðaklúbbur sem starfað hefur á Fljótsdalshéraði frá árinu 2008. Meðlimir Hása Kisa eru Ásgrímur Ingi Arngrímsson, Hrafnkell Lárusson, Ingunn Snædal og Stefán Bogi Sveinsson. Þau telja sig allt í senn aðdáendur, aðstoðarmenn og harðir og miskunnarlausir gagnrýnendur ljóðsins. Hópurinn hefur staðið fyrir viðburðum og vinnur að útgáfumálum en er fyrst og fremst sjálfshjálparhópur taugaveiklaðra ljóðskálda sem með góðu eða illu ætla sér að láta fólk hlusta á ljóðin sín.
Sérstakur gestur á upplestrinum í Alþýðuhúsinu á Siglufirði verður Urður Snædal sem tengist hópnum sterkum böndum.

Sunnudaginn 28. feb. kl. 14.00 verður síðasti sýningardagur sýningarinnar "Dæld" í Kompunni, Alþýðuhúsinu á Siglufirði.  Þá mun listamaðurinn sjálfur, Klængur Gunnarsson vera með kynningu og spjall um verkin sín.
Heitt á könnunni og allir velkomnir.


Menningarráð Eyþings/uppbyggingarsjóður, Fjallabyggð, Fiskbúð Siglufjarðar og Egilssíld styðja menningarstarf í Alþýðuhúsinu á Siglufirði.


Noemi Niederhauser sýnir í Vestursal Listasafnsins á Akureyri

12745447_1076430692378772_3153016707053167143_n

Laugardaginn 27. febrúar kl. 15 verður opnuð í Listasafninu á Akureyri, Vestursal sýning svissnesku listakonunnar Noemi Niederhauser, Ráfandi skrúðganga. Sýningin er sviðsetning á látbragði, hreyfingum, gjörðum og hrynjandi þar sem merking og áhersla er sífellt fjarlægð.

Ráfandi skrúðganga felur í sér að meðtaka tilveruna á Ólafsfirði, þar sem listakonan hefur dvalið við undirbúning sýningarinnar. Þar byggir efnahagurinn aðallega á fiski og margvíslegum breytingaferlum fisksins yfir í afurðir. Verkefnið fólst í því að safna, aðgreina og festa hulin sjónarhorn án möguleika á endanlegri frásögn og þess í stað endurgera og breyta endalaust.

Noemi Niederhauser er fædd í Bern í Sviss árið 1984 og útskrifaðist með diplóma í keramik frá Applied Art School í Vevey í Sviss 2010 og með MFA gráðu í myndlist frá Central Saint Martins College of Art and Design í London 2014. Sýningin Ráfandi skrúðganga er hennar þriðja einkasýning en auk þess hefur hún tekið þátt í samsýningum víða um heim. Verk hennar má finna á söfnum í Sviss, Ítalíu og Belgíu.

Sýningin stendur til 13. mars og er opin þriðjudaga til sunnudaga kl. 12-17. Leiðsögn um sýningar Listasafnsins á Akureyri er alla fimmtudaga kl. 12.15-12.45. Aðgangur er ókeypis.

http://www.listak.is


Claudia Mollzahn sýnir í Deiglunni

8209_1112027138807840_5114456927317494719_n

Claudia er gestalistamaður mánaðarins í gestavinnustofu Gilfélagsins. Hún sýnir þau verk sem hún hefur verið að vinna að á tímabilinu. Hún vinnur m.a. með textíl innsetningar og gjörninga. Claudia er búsett í Wales í Englandi.
Allir velkomnir!

Sýningin verður opin á laugardag 27. febrúar og sunnudag 28. febrúar  kl. 14:00-17:00


Claudia Mollzahn was brought up in Germany and now lives in Wales, UK. She works mainly with wool and uses traditional craft techniques such as knit, crochet and felt. She is interested in the physical qualities of the materials she uses, and creates work that can be experienced with all the senses. Visitors are encouraged to handle, wear and move with the pieces. The aim is to create a sense of playfulness while at the same time universal concepts relating to place, home and identity can be explored. For the first time a story will accompany each piece, with the invitation to create alternative narratives.
Work shown in this exhibition has been created during her one- month residency in February 2016 at the Gil Society, Akureyri, Iceland.

https://www.facebook.com/events/1044075125649911


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband