LISTMUNAMARKAÐUR KALLA Í DESEMBER

kalli_gudm_myndlfel.jpg


Laugardaginn 3. desember kl. 15.00 opnar Karl Guðmundsson jólamarkað í sal Myndlistarfélagsins í Gilinu á Akureyri. Á markaðnum verða til sýnis og sölu handgerðar bækur, kort, töskur og myndverk.

www.kalli25.net

Laugardaginn 10. des. kl. 14.00, opnar gestalistamaðurinn Rósa Eggertsdóttir, sýninguna “Nokkur spor”

Allir velkomnir

Myndlistarfélagið


Aðventa í Freyjulundi

4711_adalheidur_adventa.jpg

Sigrún Guðmundsdóttir sýnir í Populus tremula

sigr_c3_ban-gudmundsd_c3_b3ttir-web.jpg

Laugardaginn 26. nóvember kl. 14.00 opnar Sigrún Guðmundsdóttir sýninguna Ókyrrð í Populus tremula.

Sigrún útskrifaðist úr myndlist frá Aki Enschede í Hollandi vorið 2008 og er búsett og starfar í Rotterdam. Hún dvelur í gestavinnustofu Gilfélagsins í nóvember og desember.

Sýn­ingin samanstendur af innsetningum þar sem innblástur er meðal annars sóttur í íslenska þjóð­sögu þar sem kaldhæðnislegur söguheimurinn endurspeglar oft á tíðum raunveruleikann.
www.sigrungudmundsdottir.com

Einnig opið sunnudaginn 27. nóvember kl. 14.00-17.00.
Aðeins þessi eina helgi.

Aðventa í Freyjulundi

4611_adalheidur.jpg

Aðalheiður S. Eysteinsdóttir, Jón Laxdal og Arnar Ómarsson opna vinnustofur sínar og heimili í Freyjulundi, 601 Akureyri.

 Opið:

Aðventuhelgar kl. 14:00 - 17:00

Á Þorláksmessu kl. 16:00 - 22:00

Allar nánari upplýsingar gefur Aðalheiður í síma 865 5091 www.freyjulundur.is


Anna Gunnarsdóttir opnar sýninguna "Breytingar" í Mjólkurbúðinni

img_0003.jpg

Anna Gunnarsdóttir opnar sýninguna Breytingar í Mjólkurbúðinni í Listagili á Akureyri laugardaginn 26. nóv kl. 14.    

Þar sýnir hún veggskúlptúra úr silki og ull, unnin með japanskri sibori tækni. Í verkum sínum fjallar Anna um breytingar með tilvísun í bæði náttúruna og lífið sjálft.
 
Anna Gunnarsdóttir hefur starfað í textíllistinni um 25 ár og hefur tekið þátt í fjölda sýninga um allan heim og er orðin þekkt fyrir ullarskúlptúra sína um víða veröld. Nú í sumar tók hún þátt í samsýningunni Skulpture by the Sea í Danmörku. Sú sýning á uppruna sinn í Ástralíuog hefur anna tvisvar áður verið valin til þátttöku í Ástralíu á vegum sama verkefnis árið 2007 og einnig árið 2008.  Enn aftur hefur verk eftir Önnu verið valið á sýninguna Sculpture by the Sea 2012 í Ástralíu.
 
Anna tók nýverið þátt í Cheongju International Craft Biennale 2011 – í Suður Kóreu. Anna sendi ullarskúpptúr sinn Glowing sea-shell sem er þæfður ullarskúlptúr, bróderaður og formaður með djúpalónsperlum og lýsingu. Verkið hennar Glowing Sea-shell vann fyrsta sæti í sínum flokki - Fiber category-.
Í þeirri samkeppni voru valin verk þátttakenda frá 24 þjóðum, 177 listamenn og samtals 187 verk sem kepptu til verðlauna í 5 flokkum. 
 
Sýning Önnu Gunnarsdóttur ,,Breytingar“ stendur til 11. desember og eru allir velkomnir.
 
Mjólkurbúðin
Listagili Kaupvangsstræti
Akureyri
Opið Lau-sun kl.14-17 og eftir samkomulagi
Dagrún Matthíasdóttir s.8957173


Point d´ébullition - Suðupunktur: Opnun sýningar útskriftarnema VMA

auglysing-lokaverkweb-1.jpg

Opnun sýningar útskriftarnema listnámsbrautar Verkmenntaskólans á Akureyri
verður í Ketilhúsinu föstudagskvöldið 25. nóv. frá kl 20 - 22
Sýningin er aðeins opin þessa helgi, laugardag og sunnudag frá 14 - 17.
Á sýningunni eru fjölbreytt verk nemenda af hönnunar og textíl- og myndlistarkjörsviði.


Listasjóður Dungal auglýsir eftir umsóknum um styrki

Auglysing-i-A4-2011

Árið 1992 stofnaði Gunnar B. Dungal þáverandi eigandi Pennans hf. Listasjóð Pennans.

Sjóðurinn var stofnaður til minningar um foreldra hans, Margréti og Baldvin P. Dungal.

Sjóðnum er einkum ætlað að styrkja unga myndlistamenn sem eru að feta sín fyrstu skref á myndlistarbrautinni og einnig að eignast verk eftir þá.
Við sölu Pennans árið 2005 ákvað Gunnar að halda áfram starfsemi sjóðsins og var nafninu því breytt og heitir hann núna Listasjóður Dungal.

Safn verka fyrri styrkþega eru því í eigu Listasjóðs Dungal.

Umsóknarfrestur er til 3. desember 2011 og hér eru eyðublöð og nánari upplýsingar.


Málþing um framtíðarhorfur í Listagilinu

 

images_1119400

Um áramótin verða þáttaskil í sögu Listagilsins á Akureyri þegar ný menningarmiðstöð á sviði sjónlista tekur til starfa. Ákveðið hefur verið að sameina Listasafnið á Akureyri og Menningarmiðstöðina í Grófargili, sem m.a. hefur haft umsjón með Ketilhúsi og Deiglunni, í eina stofnun sem fengið hefur nafnið Sjónlistamiðstöðin. Framvegis verður vísað til Listasafnsins eða Ketilhúss í Sjónlistamiðstöðinni eftir því hvar viðburðirnir eiga sér stað og mun miðstöðin heyra undir Akureyrarbæ.  

 
Af þessu tilefni verður efnt til málþings um stöðu og framtíðarhorfur í Listagilinu sem fram fer í Ketilhúsi laugardaginn 19. nóvember og hefst það kl. 12. Reykvíski myndistarmaðurinn og heimspekingurinn dr. Hlynur Helgason mun í byrjun fjalla um hvernig sýningarhald Listasafnsins kemur honum fyrir sjónir, sérstöðu þess og áhrif í víðara samhengi safnaflórunnar og velta fyrir sér hvernig málin gætu þróast með tilkomu Sjónlistamiðstöðvarinnar. Að því loknu hefjast almennar umræður. Ekki verður um nein önnur framsöguerindi að ræða heldur boðið upp í hringborðsumræður til að hvetja sem flesta að láta í sér heyra. Fundarstjóri verður Hulda Sif Hermannsdóttir, verkefnastjóri Akureyrarstofu.
 
Nú er í gangi á Listasafninu á Akureyri sýning um sýningarnar sem haldnar hafa verið á árabilinu 1999-2011. Þar er litið yfir farinn veg á viðburðaríkum áratug 21. aldar til að draga upp heildstæða mynd af starfseminni á umræddu tímabili. Þessi upprifjun samanstendur af plakötum, upplýsingum um sýningarnar, marvíslegum viðbrögðum við þeim úr fjölmiðlum og útgefnu efni safnsins, en alls eru (sjálfstæðar) sýningar orðnar 95 talsins. Þá gefst gestum kostur á að eignast ókeypis margar bækur og sýningarskrár frá liðinni tíð meðan birgðir endast. Þessi sýning stendur út mánuðinn, eða til sunnudagsins 4. desember. Aðgangur í Listasafnið á Akureyri er ókeypis eins og verið hefur frá haustinu 2008.
 
 
Listasafnið er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 12-17.
Nánari upplýsingar veitir Hannes Sigurðsson forstöðumaður í síma 899-3386, netfang: hannes@art.is

Snorri Ásmundsson opnar sýninguna 549 26 777777 131166 4199 í Flóru á Akureyri

snorri.jpg

Snorri Ásmundsson
549 26 777777 131166 4199
19. nóvember 2011 - 7. janúar 2012
Flóra, Listagilinu á Akureyri, Kaupvangsstræti 23, 600 Akureyri, s. 6610168

http://floraflora.is

https://www.facebook.com/flora.akureyri

Laugardaginn 19. nóvember kl. 14 á opnar Snorri Ásmundsson myndlistarsýningu sem hann nefnir "549 26 777777 131166 4199" í Flóru í Listagilinu á Akureyri.

Sýningin saman stendur af teikningum og setningum. Þar á meðal facebook statusum og quotum listamannsins.

Snorri Ásmundsson er listamaður sem hóf listamannaferil sinn einmitt Listagilinu á Akureyri og árið 1997 rak hann gallerí í Kaupvangstræti 23 í Gilinu, nákvæmlega í því rými sem hann sýnir nú í. Galleríið nefndist International gallery of Snorri Asmundsson og voru þar nokkrar mjög athygglisverðar sýningar og má þá nefna ævintýri listakattarins Loka. Snorri hefur síðan oft leitast við að hafa bein áhrif á samfélagið með opinberum uppákomum. Hann hefur fengist við að skoða viðbrögð umhverfisins, þ.e. viðbrögð fólks við því þegar viðurkenndum gildum er snúið á hvolf og þegar, annars valdalaus, einstaklingur tekur sér vald sem alla jafna er úthlutað eftir fyrirfram gefnum reglum. Hvernig svo sem fólk bregst við þessum uppátækjum listamannsins þá er hann fyrst og fremst að ögra samfélaginu og gildum þess. Hann leitar á mið sem kalla á snörp viðbrögð og kannar um leið mörk náungans og væntanlega sín eigin.

Snorri er einn af stofnendum Kling og bang gallerís og leikhúss listamanna.

Hann hefur undanfarin ár truflað tilveru fólks með umfangsmiklum og eftirtektarverðum gjörningum sínum sem hafa oftar en ekki beinst að helstu feimnismálum almennings eins og pólitík, kynlífi og trúmálum.
Borgarstjórnarframboð, forsetaframboð, tilnefningar til heiðursborgara og sala aflátsbréfa svo dæmi séu tekin. Bókin Beauty Swift Generation Revolution kom út árið 2009 og þá bók kallar hann opinberunarbókina. Snorri er búsettur núna í Antwerpen í Belgíu en verður viðstaddur opnunina í Flóru. Hann veitir nánari upplýsingar í síma 692 9526.

Sýning Snorra stendur til laugardagsins 7. janúar 2012.

Flóra er verslun, vinnustofa og viðburðastaður Kristínar Þóru Kjartansdóttur félagsfræðings og garðyrkjukonu. Listrænn ráðunautur og kaffibarþjónn staðarins er Hlynur Hallsson, myndlistarmaður. Áður hafa Arna Vals og Þórarinn Blöndal sett upp sýningar í Flóru.


ÆVINTÝRAHEIMUR JONNU í BOXINU

avint_dag.jpg

Innsetning Jonnu í Boxi, sal myndlistarfélagsins í Gilinu á Akureyri
Opnun laugardaginn 12. nóv. kl. 14:00 – 17:00, allir velkomnir.
Sýningin stendur til 20. nóv. 2011.
Opið: lau. – sun. frá kl.14:00 – 17:00 þri. – fös. frá kl. 14:00 – 16:00.


Tilkynning um ósóttar höfundagreiðslur til Myndstefs

image_1120626.jpg

 

Vakin er athygli myndhöfunda á því að í vörslu Myndstefs eru greiðslur sem ekki hefur reynst unnt að koma til viðkomandi höfunda. Á heimasíðu samtakanna: www.myndstef.is er listi yfir þessa höfunda. Því er beint til hlutaðeigandi myndhöfunda eða erfingja þeirra að þeir hafi samband við skrifstofu Myndstefs sem fyrst og eigi síðar en 5. desember n.k.

 

Stjórn Myndstefs


Opið hús í Freyjulundi á degi myndlistar

4311_dagur_myndlistar.jpg


Listamennirnir Aðalheiður S. Eysteinsdóttir og Jón Laxdal Halldórsson opna heimili sitt og vinnustofur við Freyjulund í Hörgárbyggð næstkomandi laugardag. Þau festu kaup á Freyjulundi í byrjun árs 2004. Fram að þeim tíma átti húsið sér langa sögu sem þinghús, skóli og félagsheimili Arnarneshrepps.

5. nóvember býðst áhugasömum að líta inn á milli 13:00 og 16:00 og kynna sér ný verk og ágætt kaffi.

Allir velkomnir í Freyjulund

http://www.freyjulundur.is
https://www.facebook.com/pages/Freyjulundur/55637991275


Listasafnið á Akureyri: Sýning um sýningarnar 1999-2011

images_1119400.jpg

Um áramótin verða þáttaskil í sögu Listagilsins á Akureyri þegar ný menningarmiðstöð á sviði sjónlista tekur til starfa. Ákveðið hefur verið að sameina Listasafnið á Akureyri og Menningarmiðstöðina í Grófargili, sem m.a. hefur haft umsjón með Ketilhúsi og Deiglunni, í eina stofnun sem fengið hefur nafnið Sjónlistamiðstöðin. Framvegis verður vísað til Listasafnsins eða Ketilhúss í Sjónlistamiðstöðinni eftir því hvar viðburðirnir eiga sér stað og mun miðstöðin heyra undir Akureyrarbæ.  Af þessu tilefni verður litið yfir farinn veg hjá Listasafninu á viðburðaríkum áratug 21. aldar til að draga upp heildstæða mynd af starfseminni á umræddu tímabili. Þessi upprifjun samanstendur af plakötum,
upplýsingum um sýningarnar, marvíslegum viðbrögðum við þeim úr fjölmiðlum og útgefnu efni safnsins, en alls eru (sjálfstæðar) sýningar orðnar 95 talsins. Þá gefst gestum kostur á að eignast ókeypis margar bækur og sýningarskrár frá liðinni tíð meðan birgðir endast. Þessi sýning um sýningarnar verður opnuð laugardaginn 5. nóvember kl. 12 og stendur út mánuðinn, eða til sunnudagsins 4. desember. Aðgangur í Listasafnið á Akureyri er ókeypis eins og verið hefur frá haustinu 2008.

Í framhaldinu verður efnt til málþings um stöðu og framtíðarhorfur í Listagilinu sem fram fer í Ketilhúsi laugardaginn 19. nóvember og hefst það kl. 12. Reykvíski myndistarmaðurinn og heimspekingurinn dr. Hlynur Helgason mun í byrjun fjalla um hvernig sýningarhald Listasafnsins kemur honum fyrir sjónir, sérstöðu þess og áhrif í víðara samhengi safnaflórunnar og velta fyrir sér hvernig málin gætu þróast með tilkomu Sjónlistamiðstöðvarinnar. Að því loknu hefjast almennar umræður. Ekki verður um nein önnur framsöguerindi að ræða heldur boðið upp í hringborðsumræður til að hvetja sem flesta að láta í sér heyra. Fundarstjóri verður Hulda Sif Hermannsdóttir, verkefnastjóri Akureyrarstofu.


Ágrip af sögu safnsins síðastliðinn áratug
Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan Listasafnið á Akureyri opnaði fyrst dyr sínar á afmælisdegi bæjarins þann 28. ágúst 1993, en safnið er það eina sinnar tegundar sem með sanni má segja að tilheyri landsbyggðinni. Strax í upphafi var sá póll tekinn í hæðina að safnið skyldi að mestu helga sig samtímalist með hag íslenskrar myndlistar að leiðarjósi og leitast við að koma til móts við þá listamenn sem í bænum starfa ekki síður en gesti og gangandi. Áherslan hefur verið á sýningarhald, útgáfu og kynningu fremur en söfnun listaverka og hefur safnið átt stóran þátt í þeirri gríðarlegu grósku sem átt hefur sér stað í íslenskri myndlist undanfarinn áratug.

Í byrjun aldarinnar fór safnið að láta verulega til sín taka með afar fjölbreyttum sýningum sem ætlað var að höfða jafnt til „innvígðra“ og „almennings“ jafnframt því að taka öðrum þræði á brýnum samfélagslegum málefnum. Safnið markaði sér sérstöðu fyrir að vera oft djarft og fara ótroðnar slóðir um leið að það skapaði sér virðingarsess með öflugri útgáfustarfsemi og vandaðri framsetningu. Samhliða framsæknum þemasýningum og ýmis konar tilraunastarfsemi hefur verið fjallað um þróun íslenskrar myndlistar, meistara fyrri alda og fjarlæga menningarheima í því skyni að skoða samtímann með gagnrýnum augum og hliðsjón af sögunni, brjóta á bak fordóma og opna glugga til allra átta. Á þessum tíma hefur Listasafnið á Akureyri breyst úr litlu landsbyggðarsafni í landsþekkta stofnun sem í dag skipar sér á bekk með helstu listasöfnum þjóðarinnar. Þetta flaggskip Listagilsins hefur haft ómæld áhrif á aðra starfsemi í Gilinu svokölluðu og átt stóran þátt í því að treysta þá ímynd sem Akureyri hefur sem menningarbær.

Fyrir utan að gera íslenskri listasögu og samtímalist góð skil og varpa kastljósinu á marga framúrskarandi norðlenska listamenn hafa ýmsar af skærustu stjörnum hins alþjóðlega myndlistarheims haldið sýningar í safninu eins og t.d. Matthew Barney, Spencer Tunick, Boyle-fjölskyldan, Per Kirkeby, Zhang Xiaogang og Bill Viola, ásamt eldri meisturum á borð við Henri Cartier-Bresson, Goya og Rembrandt. Þá hefur Listasafnið átt í samstarfi við söfn, stofnanir, skóla, fyrirtæki og gallerí um víða veröld, meðal annars í Noregi, Finnlandi, Færeyjum, Grænlandi, Lettlandi, Rússlandi, Þýskalandi, Englandi, Skotlandi, Frakklandi, Spáni, Jórdaníu, Indlandi, Japan, Kína og Bandaríkjunum. Þrátt fyrir þessi umsvif hafa einungis tveir fastir starfsmenn haft umsjón með Listasafninu, forstöðumaður og aðstoðarmaður hans.

Listsafnið hóf nýja öld með trukki og dýfu þegar 30 manna samsýning undir heitinu Losti 2000 var sett upp, en í vestursal gaf að líta einkasýningu Snorra Ásmundssonar, XXXReyri, sem setti verkefnið í áþreifanlegt samhengi. Losti 2000 gerði „allt vitlaust“ í bænum og kannski engin furða með þrjár strippbúllur á nærliggjandi svæði á þessum tíma. Í kjölfarið kom tísku- og fatahönnunarsýningin Úr og í, 23 ungir íslenskir og finnskir hönnuðir og ljósmyndarar, og var í tengslum verkefnið haldin stærsta tískusýning sem sést hafði á Akureyri (2001). Skömmu síðar var boðið upp á þriggja tonna margmiðlunarsýninguna Detox í samvinnu við opinberu norsku myndlistarveituna Riksutstillinger í Osló, en þessi rosalega græjusýning vakti mikla kátínu skólabarna (2001).

Einnig er vert að nefna Við Signubakka, sýningar á verkum hins heimskunna franska ljósmyndara Henri Cartier-Bresson, í samvinnu við Magnum Photos í París (2001); danska samtímalistamanninn Per Kirkeby í samvinnu við Gallerie Michael Werner í Köln (fyrsta skiptið sem Kirkeby sýndi á Íslandi, 2001); Skipulagða hamingju: Rússnesk myndlist frá 1914-'56 í samvinnu við Fagurlistasafnið í Arkhangelsk (af því tilefni var reist eldrauð fánaborg fyrir ofan innganginn og ýmis „slagorð öreiganna“ máluð með kýrillísku letri á veggi safnsins að innan, 2002) og Milli goðsagnar og veruleika; nútímalist frá arabaheiminum (verk frá 16 arabalöndum) í samvinnu við Konunglega listasafnið í Jórdaníu (2002). Hennar konunglega hátign Widjan Ali af Jórdaníu heimsótti Akureyri og voru þjónar á opnuninni klæddir í arabíska búninga. Frægust er þó „arabasýningin“ kannski fyrir það, að hátalakerfi var komið fyrir ofan á turni safnsins og bærinn „blastaður“ með íslömsku bænaákalli sex sinnum á dag. Fannst mörgum þetta súrrealísk upplifun og ríma verulega furðulega við klukknahringingar Akureyrarkirkju skáhalt á móti Listasafninu.

Mesta lukku allra sýninga í safninu fyrr og síðar vakti Rembrandt og samtíðarmenn hans í samvinnu við Heimslistasafnið í Ríga, Lettlandi, árið 2002. Næstum allur bærinn, um 12 þúsund manns, fór að skoða „Rembrandt-sýninguna“. Litu yfirmenn Heimlistasafnsins á þessa sýningu sem þakklætisvott Letta til Íslendinga fyrir hafa verið fyrstir þjóða að viðurkenna sjálfstæði þeirra eins og forseti landsins, Vaira Vike-Freiberga, undirstrikaði í þakklætisbréfi til safnsins. Aftökur og útrýmingar (2003) var aftur á móti í drungalegum dúr og skiptist í þrjá meginhluta: Hinstu máltíðir eftir Svisslendinginn Barböru Caveng (endurgerð á síðustu málsverðum dauðafanga í Bandaríkjunum frá 1992-2001); Aftökuherbergi eftir Bandaríkjamanninn Lucindu Devlin (hún var fulltrúi BNA á Feneyjartvíæringnum árið 2001) og Hitler og hommarnir eftir írskættaða myndlistarparið Peter McGoch og David McDermott (endurgerð á ímyndarórum þýska nasismans). Af því tilefni voru prentaðir bolir með nasistafánanum, nema í stað hakakrossins var lógó Listasafnsins sýnt á hlið og þar fyrir ofan og neðan stóð með gotnesku letri „Listasafnið á Akureyri über alles“ til að árétta langvarandi baráttu safnsins fyrir því að fá efstu hæð hússins til umráða .

Ekki skyldi heldur gleyma Undir fíkjutré sem snerist um hindúisma og indverskar alþýðulistir (2003) og gerð var í samvinnu við Syracuse-háskóla, mannfræðideild Berkeley-háskóla, Sepia-galleríð á Manhattan og ýmsa staði í London, Delhi og Bombay. Sama ár var haldin sýning á Meisturum  formsins í samvinnu við Ríkislistasafnið í Berlín (Nationalgalerie Berlin, 2003), en þetta var bókstaflega og listfræðilega algjör þungavigtarsýning — 43 af „mikilvægustu“ íslensku og alþjóðlegu skúlptúristum 20. aldar — sett saman „að hætti hússins“. Rétt er einnig að minnast á Þjóð í mótun (2003) í samvinnu við Þjóðminjasafn Íslands. Á þeim tíma var Þjóðminjasafnið lokað vegna breytinga og flestar af dýrmætustustu perlum íslensku þjóðarinnar, sem sumar hverjar höfðu aldrei áður farið úr þess húsi, voru til sýnis í Listasafninu á Akureyri.

Settar voru upp stórsýningar eins og Kenjarnar (2004) eftir Francisco de Goya (d. 1828) í samvinnu við Calcografía National í Madrid. Þá sýndi safnið Allar heimsins konur (176 verk eftir 176 konur frá jafnmörgum löndum) og magnaða skúlptúra Boyle-fjölskyldunnar, Ferð að yfirborði jarðar (2004), sem opnuð var af eiginkonu þáverandi forsætisráðherra Bretlands Cherie Blair. Þótt þetta hafi verið einn af hápunktunum — ekki aðeins vegna þess að fjölskyldan hóf að gera fullkomnar eftirlíkingar af „blettum“ út um víða veröld fyrir sextíu árum og allt byrjaði það með blindu pílukasti á heimskortið sem lenti fyrst allra staða á Íslandi — er ekki síður eftirminnilegt hvernig safnið var vaktað af bresku leyniþjónustunni og starfsmenn þess „hundeltir“ af breskum papparössum frá Fleet Street sem vildu veiðu upp úr þeim „fréttir“ af forsætisráðherrafrúnni.

Óvanalegasta sýningin verður að teljast Stríðsmenn hjartans; 100 milljónir í reiðu fé og tíbetskur munkasöngur (2005). Einsdæmi er að svo miklir fjármunir hafi verið sýndir í listasafni, enda var ekki hlaupið að því að lána svimandi upphæðir af notuðum peningaseðlum og láta tryggja alla dýrðina. Monningunum var komið fyrir á spottlýstum stöplum líkt og um fágæta mínimalíska skúlptúra væri að ræða, en á veggjunum voru ellefu ljósmyndir í fullri líkamsstærð eftir Íranann Ashkan Sahihi af „venjulegu fólki“ í vímu á öllum helstu eiturlyfjum sem á markaðnum finnast í dag — LSD, krakk, kókaín, alsæla, spítt, meskalín o.s.frv. — þannig að skilaboðin fóru vart á milli mála.

Haustið 2005 lagði safnið fram hugmynd að stofnun Íslensku sjónlistaverðlaunanna, glæsilegustu uppskeruhátíð á þessu sviði sem haldin hefur verið á Íslandi. Að hátíðinni stóðu — auk Akureyrarbæjar, Menntamálaráðuneytis og Iðnaðarráðuneytis — Samband íslenskra myndlistarmanna, Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar, Listaháskólinn og Form Íslands (samtök íslenskra hönnuða) og voru dómnefndir skipaðar af þessum lista- og kennslustofnunum. Sjónlistaverðlaunin samanstóðu af sýningu í Listasafninu, útgáfu vandaðrar sýningarskrár, alþjóðlegu málþingi og afhendingu Sjónlistaorðunnar fyrir besta árangur í annars vegar myndlist og hins vegar hönnun. Fram að þessu höfðu engin verðlaun verið veitt á Íslandi á sviði sjónlista sambærileg verðlaunaveitingum í bókmenntum, tónlist, leiklist og kvikmyndum. Með Íslensku sjónlistaverðlaununum var þess freistað að gera hlut sjónlistanna hærra undir höfði, en markmiðið með þeim var einkum þríþætt: 1) að beina sjónum að framúrskarandi framlagi íslenskra myndlistarmanna og hönnuða sem starfa hér heima og erlendis, 2) stuðla að aukinni þekkingu, áhuga og aðgengi almennings að sjónlistum og 3) hvetja til faglegrar þekkingarsköpunar og bættra starfsmöguleika sjónlistafólks á Íslandi. Þetta er jafnframt í fyrsta sinn sem myndlist og hönnun var sameinuð með þessum hætti í heiminum. Fyrsta hátíðin var haldin haustið 2006, en alls voru Sjónlistarverðlauninn veitt þrisvar sinnum uns þau voru lögð niður í kjölfar efnahagshrunsins.

Á sýningunni Bersvæði (2006) eftir bandaríska ljósmyndarann Spencer Tunick, sem frægur er af endemum fyrir að fylla götur og torg út um allan heim með þúsundum „strípalinga“, má segja að safnið hafi berháttað sig. Í kjölfarið komu tvær gjörólíkar sýningar, önnur leitaði inn á við meðan hin blés í lúður Heimdalls til að vara við valdatöku fjármálaflanna, múgsturlun og yfirvofandi vistfræðilegu hruni. Fyrst kom Búdda er á Akureyri: Oft var zen en nú er nauðzen, sem skartaði m.a. einum merkasta videó-listamanni samtímans, Bill Viola, og snerist um búddisma og áhrif hans á viðkomandi listamenn. Og síðan kom Bæ-bæ Ísland; uppgjör við gamalt konsept sem var opnuð „mánudaginn svarta“, eða helgina fyrir skyndilegt 15 prósent fall krónunnar, þann 15. mars árið 2008. Fullyrða má að sýningin hafi stungið á fjármálabólunni sjö mánuðum áður en hún sprakk framan í andlit þjóðarinnar. Tuttugu og þrír af „róttækustu“ samtímalistamönnum landsins lögðu flestir fram ný verk á sýninguna og var henni var fylgt úr hlaði með langri ádrepu sem birt er á heimasíðu Listasafnsins. Ætlunin var að gefa út stóra bók sem væri eitt allsherjar uppgjör við sögu lands og þjóðar, en þegar til kastanna kom var enginn reiðubúinn að baka brauðið. Ritgerðin lýsir ástandinu í þjóðfélaginu og því sem framundan bíður á heimsvísu með vægast sagt skuggalegum hætti og ber heitið „Varúð vitundarmengun framundan: Svört skýrsla frá greiningardeild Listasafnsins á Akureyri“.

Ennfremur skal minnast Orðs Guðs árið 2008, sem vakti upp áleitnar spurningar um ýmsa þætti kristinnar trúar, og Facing China (2008). Það segir sína sögu að verkin á Facing China voru send í 40 feta raka- og hitastilltum gámi (aðeins opnanlegur frá Hollandi með fjarlæsingu á innanverðum gámnum) og tryggð fyrir 1,7 milljarða króna. Þetta eru hæstu tryggingaverðmæti á sýningu sem safnið hefur haldið, en þau hafa oft skipt tugum og hundruðum milljóna króna.
Þannig kallast sýningarnar á milli ára og innan dagskrártímabila með margvíslegum hætti — listsögulega, fagurfræðilega, guðfræðilega, kynjafræðilega, þematískt og pólitískt. Það er heldur engin tilviljun að síðasta sýning Listasafnsins í núverandi mynd, yfirlit á verkum Norðlendingsins Gústavs Geirs Bollasonar, bar titillinn Hýslar umbreytingarinnar.

Af mörgu öðru mætti taka, en þrátt fyrir að safnið hafi farið um víðan völl í gegnum tíðina hefur það aldrei misst sjónar á nærumhverfinu. Flestir af helstu myndlistarmönnum á eða frá Akureyri hafa sýnt í safninu, annað hvort á samsýningum — t.d. Akureyri í myndlist I, samsýning 16 listamanna á Akureyri og Akureyri í myndlist II, samsýning 23 listamanna frá Akureyri —  eða einkasýningum, sem oftar en ekki hafa verið í öllu safninu: Hlynur Hallsson, Stefán Jónsson, Kristinn G. Jóhannsson, Jónas Viðar, Óli G. Jóhannsson, Jón Laxdal, Dröfn Friðfinnsdóttir, Guðmundur Ármann, Margrét Jónsdóttir, Joris Rademaker, Sigtryggur Baldvinsson, Kristín Gunnlaugsdóttir og Gústav Geir Bollason.

Öllum þessum einkasýningum hefur verið fylgt úr hlaði með vönduðum sýningarskrám og bókum. Eru þá ótaldar einkasýningar á verkum (annarra) landþekktra listamanna eins og Kristjáns Davíðssonar, Svavars Guðnasonar, Sigurjóns Ólafssonar, Eggert Péturssonar, Georgs Guðna Haukssonar, Helga Þorgils Friðjónssonar, Jóns Óskars, Huldu Hákon og Svövu Björnsdóttur, auk fjölmargra yfirlits- og samsýninga sem spanna alla íslenska listasögu 20. aldar og fyrsta áratug þeirra nýju.

Listasafnið er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 12-17. Eins og áður segir lýkur sýningunni sunnudaginn 4. desember og er aðgangur ókeypis. Nánari upplýsingar veitir Hannes Sigurðsson forstöðumaður í síma 899-3386, netfang: hannes@art.is



Gústav Geir Bollason: Síðasta sýningarhelgi í Listasafninu á Akureyri

20110607__ICELAND-volundur-_MG_6728_vef


Núna um helgina er að renna upp síðasta sýningarhelgi yfirlitssýningar á verkum Gústavs Geirs Bollasonar – Hýslar umbreytingarinnar – í Listasafninu á Akureyri. Sýningin hefur vakið mikla athygli og þá ekki síst hjá listafólki og listnemum. Sýningunni lýkur sunnudaginn 30. október kl. 17.

Þetta er í fyrsta sinn sem yfirlitssýning á verkum Gústavs er haldinn og gefst því gott tækifæri til að fá innsýn í feril þessa einstaka listamanns. Gústav hefur tekið þátt í fjölmörgum samsýningum hér heima og erlendis og haldið tíu einkasýningar.

Glundroði og hrörnun eru hugðarefni Gústavs Geirs. Verk hans hverfast um tækifærin sem felast í framrás tímans. Hann vinnur með hluti sem fundnir eru á víðavangi, leikur sér með rekavið náttúrunnar og reköld mannanna. Landslagið læðist inn í ljósmyndasamsetningar, abstrakt grafísk verk og jafnvel verk búin til úr jörðinni sjálfri. Bútar úr jörðinni hafa verið sviptir samhengi sínu og hrifnir inn í safnið og bíða þess þar að áhorfandinn púsli þeim saman í verkunum og á milli verka.

Gústav Geir er fæddur á Akureyri árið 1966. Hann stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1987-’89, nam við Magyar Képzömüveszeti Egyetem í Búdapest 1989-’90 og lauk DNSEP gráðu við Ecole Nationale d’Art í Frakklandi árið 1995. Gústav er einn af stofnendum Verksmiðjunnar á Hjalteyri og situr í stjórn hennar.

Myndir frá sýningunni er hægt að skoða á vef safnsins
Listasafnið er opið alla daga nema mánudaga frá kl 12-17.

Nánari upplýsingar:

Safnfulltrúi:
Sóley Björk Stefánsdóttir
s: 844-1555

Forstöðumaður og sýningarstjóri:
Hannes Sigurðsson
s: 899-3386


www.listasafn.akureyri.is


email: art@art.is

Sími: 461-2610


Þórarinn Blöndal með listamannsspjall og sýningarlok í Flóru

toti_bondal_1117576.jpg

Þórarinn Blöndal - listamannsspjall
fimmtudaginn 27. október klukkan 20
- í Flóru - Listagili á Akureyri


Sýningu Þórarins Blöndals myndlistamanns Guli skúr 8 lýkur laugardaginn 29. október, en tveim dögum áður eða fimmtudaginn 27. október verður boðið upp á spjall við listamanninn í Flóru. Sýning Þórarins þar hefur verið opin gestum og gangandi síðan á Akureyrarvöku í sumar og hefur fjöldi fólks komið að sjá og upplifa verkið. Þau sem ekki hafa enn komið geta nýtt þetta tækifæri sem listamannsspjallið er til að missa ekki af sýningunni. Um leið segir Þórarinn frá vinnu sinni, en viðmælandi hans verður Hlynur Hallsson myndlistamaður og listrænn ráðunautur í Flóru. Spjallið hefst klukkan 20.

Um verkið Guli skúr segir Þórarinn:
“Í geymslum má finna allt það sem maður leggur til hliðar og hugsar sér að nota síðar. Við flutning minn á vinnustofu minni fór ég í gegnum allt mitt dót og sorteraði. Setti allt í kassa og merkti og lagði af stað með mitt hafurtask. Í nýjum híbýlum mínum syðra fylgdi bílskúr og nefndi ég hann Gula skúr og þar er mín vinnustofa. Rýmið er sirka tíu sinnum rúmir þrír metrar. Gengið inn að austanverðu og einnig eru stórar dyr að norðan. Hillur eru allan vesturvegginn og gott vinnuborð við suðurvegg.

Fyrirferðarmiklir á gömlu vinnustofunni voru vísar að óljósum hugmyndum, grunur um lausnir en óklárað. Sumu snyrtilega raðað í kassa og sorterað en á stundum mikil óreiða. Nokkrar hugmyndir höfðu dagað uppi og gleymst en dúkkuðu nú upp og vöktu upp gamla maníu. En sumt átti aldrei að lifa nema í kössum og geymslum og ekki hugsað til annars brúks. Einkennilega mikið af dóti sem hafði safnast upp og er nú í Gula skúr. Þessar óljósu hugmyndir og vísar að verkum eru til sýnis í Flóru.

Þórarinn Blöndal er fæddur á Akureyri 25. október 1966. Hann stundaði nám við Myndlistaskólann á Akureyri, Myndlista- og handíðaskóla Íslands og fór svo til Academiie van Beeldende Kunst í Rotterdam, Hollandi. Ásamt því að halda sýningar sjálfur hefur Þórarinn staðið fyrir ýmsum listviðburðum og tekið virkan þátt í menningarstarfi á Akureyri. Þá er hann einn af stofnfélögum Verksmiðjunnar á Hjalteyri og er í stjórn hennar. Þórarinn hefur komið að ýmsum verkefnum tengdum söfnum víða um land, bæði sem hönnuður og sýningastjóri. Undanfarna vetur hefur hann kennt myndlist við Myndlistaskólann á Akureyri. Þórarinn er meðlimur í Dieter Roth Academy.

Flóra er verslun, vinnustofa og viðburðarstaður Kristínar Þóru Kjartansdóttur félagsfræðings og garðyrkjukonu. Listrænn ráðunautur og kaffibarþjónn staðarins er Hlynur Hallsson myndlistamaður. Áhersla staðarins er á nýtingu, endurnýtingu, verkmenningu og sköpun. Sýningarrýmið í Flóru á sér merkilega forsögu því þar rak Snorri Ásmundsson International Gallery of Snorri Ásmundsson með góðum árangri í lok síðustu aldar.

Sjá meira um Flóru á
http://floraflora.is
http://www.facebook.com/flora.akureyri
Viðburður á Facebook

Heimasíða Þórarins


Lárus H. List og Huldufólk í Mjólkurbúðinni

lalli.jpg

Listamaðurinn Lárus H. List opnar málverkasýningu í Mjólkurbúðinni
Listagilinu Akureyri laugardaginn 22 október Kl. 14.

Lárus H. List sýnir ný málverk af Huldufólki en hann hefur áður bæði
skrifað um Huldufólk og haldið málverkssýningar um Huldufólk. Má þar nefna
skálssögu Lárusar Gátuhjólið sem kom út 1994 og sýninguna List í álögum árið
1997 en þar segir meistari Bragi Ásgeirsson Listmálari um sýninguna :

"Af dúknum má ljóslega ráða að Lárus List máli af fingrum fram og láti
tilfallandi innblástur ráða för pensilstúfsins um grunnmál myndflatarins
hverju sinni. Svona líkt og nýbylgjumálarar níunda árartugarins gerðu er
þeir voru hvað upp TENDRAÐASTIR. List í álögum er myndefnið heimur álfa og
huldufólks og óljósra skila á vettvangi hvunndagsins og má af dúknum ráða
að Lárus List hefur eitt og annað numið af þeim listamönnum sem sýnt hafa
á Listasafni Akureyrar. AÐ BAKI ÓSTÝRILÁTRI LEIKGLEÐINNI SKYNJAR MAÐUR HIÐ
LITGLAÐA NÁTTÚRUBARN SEM FER SÝNU FRAM Í NEISTA UPPRUNALEGRA HÆFILEIKA."

Eins segir Jón Proppé Listheimspekingur um sýningun  NÁTTÚRAN Í BLÓÐINU 1998:
"Lárus H. List málar abstrakt myndir, náttúrustemmingar með olíulitum .
Hann hefur áður málað myndir þar sem heimur álfa og huldufólks hefur verið
viðfangsefnið, nú sleppir hann alveg hluttengingunni - jafnvel þótt deila
megi um hversu hlutbundnar myndir úr álfheimum kunni að vera - og lætur
hann litina og formin tala sjálf. Viðfangsefnið þessara mynda er BIRTAN
sjálf, einkum VETRARBIRTAN. Málverkinn eru frjálslega unnin,
litaandstæðurnar oft skarpar og formið gróft. En hvíti liturinn er alltaf
sterkur og Lárus List málar gjarnan yfir aðra fleti svo allt virðist séð
gegnum hríðarkófið. ÞANNIG FANGA MYNDIRNAR VEL VETRARSÝN Á NORÐUR SLÓÐUM."

Lárus H List hefur haldið fjölda einkasýninga og samsýninga bæði á Íslandi og
erlendis.
Sýninginn er opinn laugardaga og sunnudaga kl.14-17 eða eftir frekara
samkomulagi og eru allir velkomnir.

Sýningarlok eru sunnudaginn 30.október


Miðlar og gjörningar: Myndlistarnámskeið

na_769_mskei_edited-1.jpg

Habbý Ósk með myndlistarnámskeið, skráning og upplýsingar: habbyosk@gmail.com


Málverkasýning í minningu Óla G.

tveir_heimar.jpg

Menningarhúsið Hof býður þér/ykkur að vera við opnun málverkasýningar í minningu Óla G. Jóhannssonar listmálara sem lést þann 20. janúar síðastliðinn.
Opnunin verður í Hofi laugardaginn 22. október kl. 15.


Ný stjórn Myndlistarfélagsin, kosin á aðalfundi þann 24. maí 2012

P1010163

Formaður:
Harpa Örvarsdóttir 

Meðstjórnendur:
Helgi Vilberg Hermannsson, Inga Björk Harðardóttir,  Lárus H List (kosinn til tveggja ára) og Helga Sigríður Valdemarsdóttir (kosin til tveggja ára)

Varamenn:
Stefán Boulter (kosinn til tveggja ára) og Telma Brymdís Þorleifsdóttir (kosin til tveggja ára).


Myndlistarfélagið ályktar vegna ráðningar forstöðumanns Listasafnsins

images.jpg
 
Aðalfundur Myndlistarfélagsins, haldinn í Sal Myndlistarfélagsins 
17. október 2011, samþykkti svohljóðandi ályktun.

Í byrjun nóvember 2010 átti stjórn Myndlistarfélagsins fund með stjórn Akureyrarstofu. Þar var m.a. fjallað um þá óvissu sem ríkt hefur í Listagilinu með tilkomu Hofs og niðurskurðar á fjárframlögum til skapandi lista. Stjórn Myndlistarfélagsins taldi að skilgreina þyrfti hlutverk Listagilsins upp á nýtt sem og hlutverk Menningarmiðstöðvarinnar í Listagili. Á þessum fundi lagði Myndlistarfélagið fram þá tillögu að mótuð yrði skýr stefna um framtíð og hlutverk Listagilsins. Var því vel tekið af stjórn Akureyrarstofu og óskaði stjórnin eftir framtíðarsýn þeirra sem störfuðu í Gilinu. Í kjölfarið var stofnaður samstarfshópur sem fékk það hlutverk að safna upplýsingum um þá starfsemi sem fyrir er í Gilinu og móta framtíðarsýn. 

Það var niðurstaða samstarfshópsins að hlúa þyrfti að þeirri einstöku starfsemi sem fram fer í Listagilinu með því að efla samvinnu og samstarf einstaklinga og stofnana. Með samþættingu og hagræðingu mætti bæta skilvirkni hinna opinberu stofnana og með hærri fjárframlögum til grasrótarstarf mætti auðga listalífið á markvissan hátt.

Samstarfshópurinn skilaði skýrslu til Akureyrarstofu síðastliðið vor. Niðustöður vinnunnar endurspegla þá umræðu sem átti sér stað innan þessa hóps frá því að verkefninu var ýtt úr vör. Eftirfarandi tillögur um Listasafnið á Akureyri eru meðal áhersluatriða:

Endurskoða þarf rekstur Listasafnsins m.a. með það að markmiði að Akureyri verði miðstöð myndlistar á landsbyggðinni. Setja þarf saman hóp sem samanstendur af myndlistarmönnum, kjörnum fulltrúum Akureyrarbæjar og völdum aðilum sem koma að menningarlífi í bænum til að móta hugmyndir um stefnu Listasafnsins. Í stefnunni þarf m.a. að koma fram hvernig safnið hyggst standa að kaupum og varðveislu listaverka, hvernig það hyggst sinna rannsóknarskyldu sinni sem og fræðsluskyldu. Tryggja þarf að safnið starfi í samræmi við núgildandi lög og reglur um listasöfn svo sem safnalög nr. 106/2001 en þar stendur m.a. „ En safn hefur það hlutverk að safna heimildum um manninn, sögu hans, umhverfi og náttúru landsins, standa vörð um þær, rannsaka, miðla upplýsingum og hafa þær til sýnis svo að þær megi nýtast til rannsókna, fræðslu og skemmtunar“.

Til að tryggja frjótt starf og fjölbreytni innan safnsins þarf forstöðumaður að verða búsettur á Akureyri og ráðningartími hans verði ekki lengri en fimm ár en þó með möguleika á tveggja til þriggja ára framlengingu.

Tryggja þarf aðgengi að listaverkaeign bæjarins t.d. gegnum heimasíðu sem einnig væri hægt að nota til safnakennslu og kennslu í grunnskólum bæjarins.

Skrá skal sögu myndlistar markvisst með áherslu á landsbyggðina og gæti það verið hluti af rannsóknarskyldu safnsins.

Efri hæð Listasafnsins er skilgreind sem stækkunarmöguleiki fyrir safnið. Setja þarf fram áætlun um áframahaldandi vinnu við uppbyggingu safnsins og tímasetja opnun efri hæðarinnar. Þar yrði rými fyrir fasta sýningu, bókasafn, aðstaða fyrir fræðslustarf og safnabúð.

Marka þarf safninu sérstöðu. Sérstaða safnsins gæti falist í sérstakri áherslu á barnamenningu og að safnið yrði gert að móðursafni myndlistar á landsbyggðinni í samstarfi við Listasafn Íslands.

Sjónlistarhátíðin verði fastur liður í starfsemi safnsins, sem tví- eða þríæringur.

Akureyrarstofa hefur nú endurráðið forstöðumann Listasafnsins, sem búsettur er í Reykjavík og hefur verið forstöðumaður Listasafnsins á Akureyri í næstum tólf ár. Ráðningartíminn er fimm ár með mögulegri framlengingu. Það bendir ekki til þess að vilji sé fyrir hendi til að endurnýja og breyta, þvert á móti er þetta ávísun á óbreytta stöðu - ráðamenn eru væntanlega sáttir við ástandið eins og það er og ekki ginkeyptir fyrir breytingum. Samningsferlið hefur staðið lengi yfir og er nú loks til lykta leitt. Ekki með framtíðahagsmuni myndlistar - listagils að leiðarljósi heldur eigin hagsmuni og samtryggingu. Auglýsingaferlið var augljóslega sýndarleikur Akureyrarstofu. Myndlistarfélagið harmar metnaðarleysi Akureyrarstofu og átelur harðlega ófagleg vinnubrögð við ráðningu forstöðumannsins.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband