Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2017
27.2.2017 | 15:36
Rebekka Kühnis með Þriðjudagsfyrirlestur í Listasafninu á Akureyri
Þriðjudaginn 28. febrúar 2017 kl. 17-17.40 heldur svissneska myndlistarkonan Rebekka Kühnis Þriðjudagsfyrirlestur í Listasafninu, Ketilhúsi undir yfirskriftinni Snoring in the Emptiness Swiss Artists in Iceland. Þar mun hún fjalla um áhrif Íslands í verkum svissneskra samtímalistamanna, einna helst Roman Signer. Aðgangur er ókeypis.
Rebekka Kühnis lauk diplómanámi í myndlist og hönnun árið 2002 frá Hochschule der Künste í Bern í Sviss. Undanfarið ár hefur hún kennt myndlist og þýsku við Menntaskólann á Akureyri ásamt því að starfa sem leiðsögumaður hjá SBA Norðurleið. Samhliða kennslustörfum vinnur Rebekka að eigin listsköpun og hefur reglulega tekið þátt í samsýningum og haldið einkasýningar.
Fyrirlestraröðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Myndlistaskólans á Akureyri, Gilfélagsins, Menntaskólans á Akureyri, Myndlistafélagsins og Háskólans á Akureyri. Á meðal annarra fyrirlesara vetrarins eru Aðalsteinn Þórsson, Susan Singer og Ingibjörg Sigurðardóttir.
23.2.2017 | 09:43
Lack of definition, Katinka Theis og Immo Eyser í Deiglunni
Katinka Theis og Immo Eyser
Lack of definition
Laugardaginn 25. janúar 2017 kl. 15 19
Deiglan, Kaupvangsstræti 23, 600 Akureyri
Verið velkomin á opnun sýningarinnar Lack of Definition eftir myndlistarmennina Katinka Theis og Immo Eyser í Deiglunni, Akureyri á laugardaginn kl. 15 19.
Katinka Theis og Immo Eyser eru gestalistamenn Gilfélagsins í febrúar 2017.
Á sýningunni má sjá marglaga myndverk sem takast á við andstæða póla loftkenndra og sniðinna mynda. Immo Eyser sýnir samklippimyndband úr aðstæðum á Íslandi og í Berlín. Myndbandið leggur áherslu á tenginguna á milli náttúrulegra atburða og verkefna á byggingarsvæðum. Katinka Theis mun sýna stór ljósmyndaprent sem hafa teygt sig út með límbandsteikningu.
Katinka Theis og Immo Eyser búa og starfa í Berlín, Þýskalandi. Þau stunduðu listnám við Alanus University for Arts and Social Sciences í Bonn og Katinka Theis útskrifaðist með meistaragráðu við Weissensee listaháskólann í Berlín. Hún vinnur með skúlptúr, innsetningar og list í almannarýmii og hefur kennt í Witten-Herdecke háskólanum síðan 2015. Immo Eyser er vídeolistamaður ásamt því að halda myndlistarnámskeið fyrir einstaklinga og fyrirtæki.
www.katinkatheis.de www.immoeyser.de
Deiglan, Kaupvangsstræti 23, Akureyri.
//
Lack of definition
February 25, 2017
You are invited to attend the opening of Lack of Definition by artists Katinka Theis and Immo Eyser in Deiglan Akureyri..
Open: Saturday 4 - 7 pm
Katinka Theis and Immo Eyser are the artists of the Gil Artist Residency in February 2017.
The exhibition presents works with different image layers which are dealing with the contrast of atmospheric and constructive images. Immo Eyser will show a video collage of filmed situations from several stays in Iceland and Berlin. The video focus the connection between sequences of nature events and situations from construction sites. Katinka Theis will show large printed photographs which have been extended by drawings out of tapes. The prints represents spacious icelandic landscapes with a second layer of geometric constructions. Each drawing follow the shape of a landscape and create an architectural situation.
Katinka Theis was born in Freiburg, Germany (1975) and lives and works in Berlin. She studied fine art / sculpture at Alanus University for Arts and Social Sciences in Bonn and graduated with a master`s degree from Weissensee School of Art in Berlin. Her works are characterized by sculpture, installations and art in public spaces. She exhibits in national and international solo and group shows and realized 2014 an art-in-architecture project. Since 2015, she holds a teaching position at University Witten-Herdecke.
www.katinkatheis.de
Immo Eyser was born in Bremen, (Germany) 1969. He is a video artist based since 2002 in Berlin. He studied fine art / sculpture and cultural education at Alanus University for Arts and Social Sciences in Bonn. In addition to his work with video, he gives art seminars for students and manager in different institutions and companies. Since 2012 he is leading an art workshop with handicapped persons in Berlin.
www.immoeyser.de
www.facebook.com/events/276821762748388
22.2.2017 | 15:12
Fjölskylduleiðsögn um yfirlitssýningu á verkum Nínu Tryggvadóttur
Vegna góðra undirtekta endurtekur Listasafnið á Akureyri leikinn og býður aftur upp á sérstaka fjölskylduleiðsögn í Ketilhúsinu, laugardaginn 25. febrúar kl. 11-12. Heiða Björk Vilhjálmsdóttir, fræðslufulltrúi, segir börnum og fullorðnum frá yfirlitssýningu á verkum Nínu Tryggvadóttur, Litir, form og fólk. Munurinn á hlutbundinni og abstrakt list Nínu verður m.a. skoðaður auk þess sem barnabækur hennar verða sérstaklega til umfjöllunar.
Að lokinni leiðsögn er gestum boðið að búa til sitt eigið listaverk, innblásið af verkum Nínu. Sýningunni lýkur næstkomandi sunnudag, 26. febrúar.
Skráning á heida@listak.is. Aðgangur er ókeypis.
https://www.facebook.com/events/1868719586706928
17.2.2017 | 20:35
Immo Eyser og Katinka Theis með Þriðjudagsfyrirlestur í Listasafninu
Þriðjudaginn 21. febrúar kl. 17-17.40 halda þýsku listamennirnir Immo Eyser og Katinka Theis Þriðjudagsfyrirlestur í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi undir yfirskriftinni Various Forms of Spatial Perception. Aðgangur er ókeypis.
Í fyrirlestrinum munu þau ræða um listsköpun sína sem m.a. rýnir í stórbrotna eiginleika landslags og arkitektúrs í gegnum collage-myndir, innsetningar og vídeóverk.
Katinka Theis (f. 1975) stundaði listnám við Alanus lista- og félagsfræðiháskólann í Bonn og kláraði mastersgráðu frá Weissensee listaskólanum. Immo Eyser (f. 1969) lagði stund á listnám og menningarkennslu við Alanus lista- og félagsfræðiháskólann í Bonn. Auk þess að vera vídeólistamaður kennir hann í listasmiðjum í Berlín. Þau búa bæði og starfa í Berlín.
Fyrirlestraröðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Myndlistaskólans á Akureyri, Gilfélagsins, Menntaskólans á Akureyri, Myndlistafélagsins og Háskólans á Akureyri. Á meðal annarra fyrirlesara vetrarins eru Rebekka Kuhnis, Aðalsteinn Þórsson, Susan Singer og Ingibjörg Sigurðardóttir.
15.2.2017 | 20:33
Michael Coppelov opnar sýninguna Little Fictions í Mjólkurbúðinni
Michael Coppelov opnar sýninguna Little Fictions í Mjólkurbúðinni í listagilinu á Akureyri föstudagskvöldið 24.febrúar kl.18-20.
Michael Coppelov hefur dvalist í Nesi Listamiðstöð á Skagaströnd síðan í janúar síðastliðinn. Sýningin hans Little Fictions er fyrsta einkasýning listamannsins á Íslandi og inniheldur málverk sem hann hefur unnið meðan á dvöl hans stendur. Sýningin markar nýtt upphaf í málverkum hans, þar sem hann hefur orðið fyrir áhrifum af dvöl sinni hér á landi. Ólíkt fyrri verkum Michaels, þá bætast við kennileiti frá stöðum eins og Grettislaug, Bifröst og Skagaströnd inn í málverkin, sem hann vinnur út frá ljósmyndum sínum.
Michael Coppelov er breskur myndlistamaður frá norðvestur Englandi. Hann lærði í Ruskin School of Fine art í Oxford University og lauk mastersgráðu frá Glasgow School of Art í Skotlandi. Michael hefur unnið til fjölda verðlauna og viðurkenninga ásamt því að hljóta tveggja ára skólastyrk Leverhulme Trust, verðlaun frá The Egerton-Coghill fyrir landslagsmálverk og The Sir Alan Bullock Price, tvö ár í röð. Hann hefur sýnt á alþjóðavettvangi og vinnur nú á Íslandi í sitt fyrsta sinn.
Sýning Michael Coppelov Little Fictions stendur aðeins þessa einu helgi í Mjólkurbúðinni og er opin sem hér segir:
Föstudag 24.febrúar kl.18-20
Laugardag 25.febrúar kl. 14-17
Sunnudag 26.febrúar kl. 14-17
Allir velkomnir
11.2.2017 | 19:52
Ingi Bekk, ljósa- og myndbandshönnuður, með Þriðjudagsfyrirlestur
Þriðjudaginn 14. febrúar kl. 17-17.40 heldur Ingi Bekk, ljósa- og myndbandshönnuður, Þriðjudagsfyrirlestur í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi undir yfirskriftinni Ljósa- og myndbandshönnun fyrir sviðslistir. Fyrirlesturinn er í tilefni 100 ára afmælis Leikfélags Akureyrar. Aðgangur er ókeypis.
Í fyrirlestrinum mun Ingi kynna starf ljósa- og myndbandshönnuða, fara yfir ferilinn og fjalla um þau verkefni sem hann hefur unnið við í gegnum tíðina.
Ingi Bekk útskrifaðist með BA próf í ljósahönnun frá Royal Central School of Speech and Drama í London árið 2013. Hann hefur unnið um allan heim sem sjálfstætt starfandi ljósa- og myndbandshönnuður fyrir sviðslistir. Meðal verka sem hann hefur unnið við eru The Tempest fyrir Royal Shakespeare Company, The Empire of Lights fyrir Þjóðleikhús Kóreu, Schatten fyrir Schaubühne í Berlín, Reisende auf eineim Bein fyrir Deutches Schauspielhaus í Hamborg og Píla Pína fyrir MAK. Ingi hefur einnig unnið með hljómsveitum og tónlistarmönnum á borð við Blur, Backstreet Boys, Two Door Cinema Club, Bombay Bicycle Club, Sheila E og Maceo Parker. Hann vinnur nú að uppsetningu Núnó og Júnía fyrir MAK.
Fyrirlestraröðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Myndlistaskólans á Akureyri, Gilfélagsins, Menntaskólans á Akureyri, Myndlistafélagsins og Háskólans á Akureyri. Á meðal annarra fyrirlesara vetrarins eru Katinka Theis og Immo Eyser, Rebekka Kuhnis, Aðalsteinn Þórsson, Susan Singer og Ingibjörg Sigurðardóttir.
Laugardaginn 11. febrúar kl. 15 opnar Alana LaPoint sýninguna Töfruð djúp / Conjured Depths í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi. LaPoint er að mestu leyti sjálfmenntaður listamaður sem hefur haldið fjölmargar einkasýningar og tekið þátt í samsýningum á heimaslóðum sínum í Vermont í Bandaríkjunum á síðustu tíu árum. Alana vann undir leiðsögn abstraktmálarans Galen Cheney 2007-2009.
Þetta landslag sem má sjá á sýningunni varð til vegna löngunar til að tjá þá hrifningu sem ég upplifi þegar ég stend í fjöruborðinu, segir LaPoint. Frá því sjónarhorni er ég ákaflega meðvituð um samtengingu alheimsins. Um ímyndunarafl mitt leika lausum hala sögur af fólki og lífverum sem lifa og deyja í þessu vatni og fylla mig bæði af tilfinningu fyrir smæð minni, og óviðjafnanlegri friðsæld. Ég reyni að miðla skynhrifunum gegnum þessi málverk og gera þau aðgengileg áhorfendum. Efni til listsköpunar, ein og sér, veita mér mikinn innblástur því möguleikarnir eru svo margir. Linnulaust kanna ég eiginleika litarefna og málningar og elti uppi nýjar aðferðir og tækni. Þessi óseðjandi forvitni og fróðleiksfýsn veitir mér innblástur, jafn takmarkalausan og hafið.
Sýningin stendur til 26. febrúar og er opin þriðjudaga til sunnudaga kl. 12-17. Leiðsögn um sýningar Listasafnsins er á fimmtudögum kl. 12.15-12.45. Aðgangur er ókeypis.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 22:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.2.2017 | 15:02
Stofnfundur Vina Listasafnsins á Akureyri
Miðvikudaginn 8. febrúar kl. 17-18 verður stofnfundur Vina Listasafnsins á Akureyri haldinn í Listasafninu, Ketilhúsi. Á fundinum geta áhugasamir velt fyrir sér hlutverki og tilgangi slíkra samtaka og rætt hugmyndir sín á milli. Stefnt er á að meðlimir geti komið með hugmyndir að fyrirlestrum, málþingum og annarri dagskrá auk þess að geta aðstoðað við sérstaka viðburði á vegum safnsins.
Dagskrá fundarins:
Heiða Björk Vilhjálmsdóttir, fræðslufulltrúi, verður með stutta leiðsögn um sýningar á verkum Nínu Tryggvadóttur og Georgs Óskars og segir jafnframt frá fræðslustarfinu.
Rósa Kristín Júlíusdóttir segir frá sambærilegri starfsemi Listasafna á Norðurlöndunum, Ítalíu og í Bandaríkjunum.
Hlynur Hallsson, safnstjóri, segir frá starfsemi Listasafnsins, fyrirhuguðum framkvæmdum og framtíðarmöguleikum.
Umræður og hugmyndavinna.
Aðild að Vinum Listasafnsins mun kosta 2.500 kr. árlega en 2.000 kr. fyrir 18 ára og yngri, 67 ára og eldri og námsmenn. Aðild felur jafnframt í sér:
- Árskort í Listasafnið á Akureyri
- Gjöf frá Listasafninu
- Frían aðgang að Hönnunarsafni Íslands og Gljúfrasteini, húsi Halldórs Laxness
- Afslátt af sýningarskrám og af vörum í fyrirhugaðri safnbúð
- Sérstakar leiðsagnir um sýningar og kynning á dagskrá og viðburðum á vegum safnsins.
Þau sem vilja gerast stofnfélagar í Vinum Listasafnsins en komast ekki á fundinn geta haft samband við Þorbjörgu Ásgeirsdóttur, safnfulltrúa í bobba@listak.is og skráð sig í hópinn.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 15:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.2.2017 | 14:52
Stefán Boulter sýnir í Gallerí Gróttu
Sýningaropnun Stefáns Boulter í Gallerí Gróttu - Fimmtudag 9. febrúar kl. 17:00
Stefán Jóhann Boulter var um nokkurra ára skeið lærlingur og aðstoðarmaður hins virta og umdeilda norska listamanns Odds Nerdrum og bera verk hans þess glöggt vitni. Stefán opnar sýninguna Stjörnuglópar í Gallerí Gróttu fimmtudaginn 9. febrúar kl. 17.
Megin uppistaða sýningarinnar er myndröð eða fjölskylda af verkum, sem hafa verið unnin á síðustu tveimur árum. Grunnstef þeirra eru rauðmáluð andlit kvenna sem virðast vera á hreyfingu og beina sjónum sínum í átt að himinhvolfinu. Rauði liturinn hefur margvíslega táknræna skírskotun, en er einnig þekktur sem litur lífsins, hugrekkis og viljastyrks. Þannig búa verk Stefáns yfir táknmyndum, sem eru frásagnarlegs eðlis og byggja á persónulegri reynslu og þekktum, fornum minnum.
Hugleiðingar um náttúruna eru Stefáni ofarlega í huga og endurspeglast í dýrum, viðveru hluta og áru þeirra. Stefán hefur víða leitað fanga við gerð verkanna en þau eru meðal annars innblásin af verkum listmálarans George Catlin ( 1796-1872 ) sem ferðaðist meðal innfæddra í Norður Ameríku snemma á 19. öld og málaði fólkið sem byggðu álfuna áður en heimsálfan var öll numin Evrópubúum. Þessi horfni heimur hefur löngum vakið forvitni listamannsins allt frá barnæsku, er hann ungur gruflaði í bókum föður síns.
Stefán Jóhann Boulter er fæddur í Reykjavík árið 1970. Hann lærði grafíska hönnun í Tempe, Arizona í Bandaríkjunum, var við listnám í Flórens á Ítalíu og varð síðar aðstoðarmaður Odds Nerdrum í Noregi og á Íslandi. Stefán hefur sýnt í listasöfnum og galleríum bæði hér heima og erlendis, haldið einkasýningar og tekið þátt í samsýningum. Stefán er búsettur á Akureyri og kennir með reglulegu millibili við Myndlistarskólann á Akureyri.
5.2.2017 | 21:59
Súpu- eða sushifundur febrúarmánaðar í Listagilinu
Það er komið að súpu- eða sushifundi febrúarmánaðar í Listagilinu. Við hittumst þriðjudaginn 7. febrúar 2017 kl. 12-13 á RUB 23.
Allir sem hafa áhuga á Listagilinu eru velkomnir.
Það er engin formleg dagskrá en tilvalið að ræða það sem brennur á fólki og það sem er framundan á nýju ári eða það sem er afstaðið. Kristinn J. Reimarsson nýr sviðsstjóri Samfélagssviðs sem meðal annars er með menningarmál á sinni könnu hjá Akureyrarbæ lítur við á fundinum.
Gott er að skrá sig á fundinn hér: https://www.facebook.com/events/1254788931281607
þá veit starfsfólk RUB 23 hvað það er um það bil von á mörgum.
Verið velkomin.