Bloggfærslur mánaðarins, mars 2015
31.3.2015 | 10:19
Ragnar Hólm sýnir í Mjólkurbúðinni
Á skírdag kl. 14 opnar Ragnar Hólm sýningu á nýjum vatnslitamynd og málverkum í Mjólkurbúðinni í Listagilinu á Akureyri.
Þetta er níunda einkasýning Ragnars sem hefur stigið fjörugan dans við listagyðjuna á síðustu árum en fyrstu sýningu sína hélt hann vorið 2010. Við opnunina á skírdag í Mjólkurbúðinni ætla Pálmi Gunnarsson og Kristján Edelstein að leika létta tónlist af fingrum fram.
Á sýningunni er að finna röð vatnslitamynda af þekktum húsum í bænum en einnig landslagsmyndir, myndir tengdar fluguveiði og myndir af fólki. Titill sýningarinnar vísar annars vegar til þess að vetur breytist í vor en hins vegar til þess að á þessum árstíma er allra veðra von, stundum nái vetur konungur aftur tímabundið yfirhöndinni á vorin.
Ragnar Hólm hefur sótt námskeið í myndlist en mest munar um einkakennslu hjá Guðmundi Ármann Sigurjónssyni myndlistarmanni sem staðið hefur nær óslitið síðustu sex árin. Ragnar hefur lengst af aðallega sýnt vatnslitamyndir en á síðustu tveimur sýningum hafa stór og smá olíumálverk skotið upp kollinum og að þessu sinni verða akrýlmálverk einnig til sýnis.
Dagsdaglega starfar Ragnar Hólm Ragnarsson á Akureyrarstofu sem verkefnastjóri upplýsinga og kynningarmála fyrir Akureyrarbæ. Hann hefur verið virkur í félagsmálum fluguveiðimanna, verið formaður fluguveiðifélagsins Ármanna, Landssambands stangaveiðifélaga og Stangaveiðifélags Akureyrar. Ragnar skrifar reglulega um veiðiskap í blöð og tímarit og er annar ritstjóra veftímaritsins Flugufrétta. Í tómstundum skrifar hann, veiðir og málar.
Sýningin í Mjólkurbúðinni verður opin yfir páskana. Opnun verður á skírdag og sýningunni lýkur annan í páskum. Opið verður alla dagana frá kl. 1417. Allir velkomnir.
Nánari upplýsingar veitir Ragnar Hólm í síma 867 1000.
30.3.2015 | 12:03
Þórarinn Blöndal sýnir í Kompunni, Alþýðuhúsinu á Siglufirði
Föstudaginn 3. apríl klukkan 15:00 opnar Þórarinn Blöndal myndlistarmaður sýninguna Ferðbúinn í Kompunni, Alþýðuhúsinu á Siglufirði. Sýningin verður opin laugardag og mánudag um páskahelgina kl. 14.00 17.00 en stendur til 10. maí.
Fyrir réttu ári sýndi Þórarinn í 002 gallerí í Hafnarfirði og má segja að sú sýning hafi verið einskonar vegvísir að þeim leiðangri sem er nú hafinn. Í fyrsta áfanga er haldið að Alþýðuhúsinu á Siglufirði og þar verður tilgangur ferðarinnar endurmetinn.
Ferðin er undirbúin í þaula og eru þó furðu lítil drög að leiðum. Kveikjan er gamalkunn árátta og þrá eftir hinu óvænta. Er farangur er um margt kunnuglegur, mikill að umfangi og margþvældur.
Áningarstaðir eru ekki allir kunnir en munu varða leiðina. Hver staður fæðir af sér nýja ferð og gamlar maníur ágerast, gaumgæfi eftir frummyndum, leita eftir slóðum og myndvísum sem breyta för minni.
Staðir setjast að í skúmaskoti Pallalangurs og bíða færis.
Þórarinn Blöndal er fæddur á Akureyri 1966. Hann stundaði myndlistarnám á Akureyri, í Reykjavík og Rotterdam, Hollandi. Hann hefur tekið þátt í fjölmörgum sýningum bæði heima og erlendis.
Hann var meðal stofnenda Verksmiðjunnar á Hjalteyri en þar er rekin listamiðstöð í gömlu síldarverksmiðjunni. Þar eru skipulagðar myndlistarsýningar og ásamt fjölbreyttri dagskrá viðburða.
Nánari upplýsingar um Þórarinn og verk hans er að finna á heimasíðunni thorarinnblondal.com
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 16:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.3.2015 | 12:01
Hiroko Shitate opnar sýningu í Mjólkurbúðinni
Japanska listakonan Hiroko Shitate opnar myndlistasýninguna "Shadowing - work in progress" í Mjólkurbúðinni í Listagilinu á Akureyri á laugardaginn 28.mars kl. 14.
Sýningin stendur 28.-29.mars - opið 14-17 og allir velkomnir.
Hiroko Shitate er myndlistakona frá Kyoto í Japan. Hiroko er lærð í hefðbundinni japanskri málun þar sem farið er eftir hinum ströngustu reglum þessarar ævafornu listsköpunar. Hiroko kynnist síðar japanskri avant-garde hreyfingu Gutaï (1954-1972) sem enn er mikil áhrifavaldur list í Japan. Hiroko hrífst af því frelsi að skapa óháð stöðlum hefðbundinnar japanskrar listar.
Á sýningunni notar listakonan garn og snýr það með japönskum pappír og fréttablöðum sem hún setur upp í rýminu og hugar að skugga þeirra. Hún segir snúningur garnsins gefa verkunum dularfulla hreyfingu eins og verum sem elta hver aðra um rýmið í skuggaspili sköpunar.
Hiroko Shitate hefur áður dvalist á Íslandi. Fyrir tveimur árum dvaldist hún á Listamiðstöðinni Nesi á Skagaströnd og heillaðist þá af landi og þjóð. Nú í mars hefur hún dvalið í Gestavinnustofu Gilfélagsins í listagilinu á Akureyri og varð sýningin Shadowing - Work in Progress til í þeirri dvöl.
Hioko hefur sýnt víða í Japan. Hún hefur einnig sýnt í Suður Kóreu, í Þýskalandi, Svíþjóð og á Íslandi.
Sýning Hiroko Shitate í Mjólkurbúðinni stendur aðeins þessa helgi 28.-29.mars og er opið 14-17 báða daga.
http://hiroko-shitate.sakura.ne.jp/hp/
Mjólkurbúðin Listagili s.8957173
https://www.facebook.com/groups/289504904444621/
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 14:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.3.2015 | 20:41
Föstudagurinn langi í Alþýðuhúsinu á Siglufirði
Föstudaginn langa kl. 15.00 - 18.00 verður árleg gjörningadagskrá í Alþýðuhúsinu á Siglufirði. Að þessu sinni er áhersla lögð á fatahönnun og eru það ungir norðlenskir fatahönnuðir sem sýna verkin sín. Fjöldi annarra listamanna taka þátt með gjörningum, myndlistasýningu í Kompunni, ljóðum og tónlist.
Úr verður samsuða listgreina sem áhugavert verður að fylgjast með. Einnig mun fjöldi manns koma að viðburðinum með einum eða öðrum hætti.
Enginn aðgangseyrir og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
LISTAMENN
Arna Guðný Valsdóttir
Arnar Ómarsson
Arnljótur Sigurðsson
Björg Marta Gunnarsdóttir
Hekla Björt Helgadóttir
Helga Mjöll Oddsdóttir
Kolbrún Erna Valgeirsdóttir
Rakel Sölvadóttir
Þorbjörg Halldórsdóttir
Þórarinn Blöndal
AÐSTOÐARFÓLK
Aðalheiður Sigríður Eysteinsdóttir
Anna Gréta Oddsdóttir
Anne Balanant
Auður Helena Hinriksdóttir
Áki Sebastian Frostason
Brák Jónsdóttir
Freyja Reynisdóttir
Guðrún Hulda Ólafsdóttir
Hrafnhildur Jóna Hjartardóttir
Hrafnhildur Ýr Denke Vilbertsdóttir
Jóna Guðný Jónsdóttir
Margrét Guðbrandsdóttir
Marteinn Örn Aðalsteinsson
Nefeli Pavlidou
Salka Heimisdóttir
Sandra Finnsdóttir
Steinunn Marteinsdóttir
Úlfur Logason
Þórey Ómarsdóttir
https://www.facebook.com/events/1423646691264948/
23.3.2015 | 08:45
Jón Páll Eyjólfsson, leikhússtjóri með Þriðjudagsfyrirlestur í Listasafninu á Akureyri
Þriðjudaginn 24. mars kl. 17 mun Jón Páll Eyjólfsson, leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar, halda fyrirlestur í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi undir yfirskriftinni Leikhúsvélar, tæki og lögmál Donald Rumsfelds um stig þekkingar.
Þar mun Jón Páll fjalla um almenna kenningu sína um samyrkju í sviðslistum; Leikhúsvélina. Kenning þessi hefur bæði vakið alþjóðlega athygli og verið kennd í Listaháskóla Íslands, en hún er afurð níu ára tilraunavinnu sem miðar að samvinnu í sviðslistum og ber heitið Mindgroup. Vefir: jonpalle.com og mindgroup.me.
Jón Páll útskrifaðist úr East 15 Acting School í London árið 2000 og hefur síðan starfað sem leikari og leikstjóri, bæði hér heima og erlendis.
Enginn aðgangseyrir er á fyrirlesturinn sem er sá tíundi og næstsíðasti í röð fyrirlestra sem haldnir eru í Ketilhúsinu á hverjum þriðjudegi kl. 17 undir yfirskriftinni Þriðjudagsfyrirlestrar.
Fyrirlestraröðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Verkmenntaskólans á Akureyri, Háskólans á Akureyri og Myndlistaskólans á Akureyri. Hildur Friðriksdóttir heldur síðasta fyrirlestur vetrarins þriðjudaginn 31. mars undir yfirskriftinni Hin fullkomna kvenímynd.
https://www.facebook.com/events/414270212068620
17.3.2015 | 15:31
LUNGA skólinn með lokasýningu í KAKTUS
Listasýning LungA Skólans í KAKTUS, Akureyri.
LungA Skólinn á Seyðisfirði er á farandsfæti og heimsækir nágranna sína hérna á norðurlandinu, Akureyri, í tilefni af lokasýningu vor-annar skólans. Nemenda hópurinn hefur undanfarnar 11 vikur verið á ferðalagi um hina ótal mörgu kima sköpunarinnar, listarinnar og sjálfsins. Sýningin samanstendur af verkum sem meðal annars endurspegla þetta ferðalag hvers og eins á persónulegan hátt. Búast má við fjölbreyttri sýningu!
Sýningin verður í lista-og menningarrýminu KAKTUS sem er staðett í miðju Listagilinu þar sem Populus Tremula starfaði áður. KAKTUS býður upprennandi lista-og hugsjónarfólki að nýta rýmið á margskonar máta og hafa strjórnendur KAKTUS boðist til að hýsa útskriftarsýningu LungA skólans.
Sýningin hefst klukkan 20:00 föstudagskvöldið 27. mars 2015, í KAKTUS á Akureyri og verður einnig opin laugardaginn 28. mars frá 14:00 - 16:00.
Vonumst til að sjá sem flesta!
KAKTUS & LungA Skólinn
Heimasíða KAKTUS: www.kaktusdidsomeart.com
Heimasíða LungA Skólans: http://lunga.is/school
event á facebook: https://www.facebook.com/events/581233998679230/
>>>>>>> PEOPLE OF THE WORLD <<<<<<<
You are invited to the great Final Exhibition of the LungA School Spring 2015 Program 'Here comes the sun'!
In collaboration with the newly opened KAKTUS gallery in Akureyri we welcome you to an evening full of art, inspiration, excitement and delicious snacks!
We will keep you updated here in Facebook with more details, pictures from the process and other interesting facts so stay tuned!
LOTS OF LOVE FROM THE LUNGA SCHOOL
https://www.facebook.com/events/581233998679230
https://www.facebook.com/kaktusdidsomeart
Menning og listir | Breytt 24.3.2015 kl. 20:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.3.2015 | 09:28
María Rut Dýrfjörð með Þriðjudagsfyrirlesturinn: Ferilskrá hönnuðar í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi
Þriðjudaginn 17. mars kl. 17 mun grafíski hönnuðurinn María Rut Dýrfjörð halda fyrirlestur í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi undir yfirskriftinni Ferilskrá hönnuðar. Í fyrirlestrinum mun hún fjalla um þá ákvörðun að gerast grafískur hönnuður og það nám sem hún á að baki. Einnig mun María Rut stikla á stóru um þau verkefni sem hún hefur unnið og fjalla sérstaklega um útskriftaverkefnið frá Myndlistaskólanum á Akureyri. Að auki mun hún segja frá reynslu sinni úr atvinnulífinu og rekstri eigin vinnustofu.
María Rut Dýrfjörð útskrifaðist sem grafískur hönnuður frá Myndlistaskólanum á Akureyri vorið 2013. Auk þess er hún með diplómapróf í alþjóðlegri markaðsfræði með áherslu á hönnun frá TEKO í Danmörku, stúdentspróf af félagsfræðibraut Menntaskólans á Akureyri og af listhönnunarbraut Fjölbrautarskólans í Garðabæ. María rekur vinnustofu í Flóru á Akureyri þar sem hún starfar sem grafískur hönnuður ásamt því að sinna ýmsum persónulegum verkefnum en er sem stendur í fæðingarorlofi.
Þetta er níundi Þriðjudagsfyrirlestur ársins og sem fyrr fara þeir fram í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi á hverjum þriðjudegi kl. 17. Aðgangur er ókeypis.
Fyrirlestraröðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Verkmenntaskólans á Akureyri, Háskólans á Akureyri og Myndlistaskólans á Akureyri. Tveir síðustu fyrirlesarar vetrarins eru Jón Páll Eyjólfsson og Hildur Friðriksdóttir.
https://www.facebook.com/events/414270212068620
13.3.2015 | 10:28
Silkisalur, pappírsborð í Salt Vatn Skæri
Laugardaginn 14. mars fer fjórða opnun samstarfsins Salt Vatn Skæri, í loftið.
Að þessu sinni kynna Freyja og Hekla rými og leiksvið gjörningsins: Silkisalur, pappírsborð, fyrir gestum og gangandi.
Gjörningurinn hefst formlega mánudaginn 16. mars og lýkur föstudaginn þann 20.
Alla dagana gefst áhugasömum kostur á að heimsækja Silkisal, pappírsborð og fylgjast með þróun og sköpun gjörningsins og persóna hans: Sivonigaba og Tokkólu Mírus en þær eru söguhetjur nóvellunnar Salt Vatn Skæri.
Laugardagurinn 14. mars er einnig Gildagur með tilheyrandi pompi víðsvegar í Kaupvangsstrætinu. Auk opnunar Silkisalur, pappírsborð, opnar Aðalheiður S. Eysteinsdóttir innsetningu sína: Blái flygillinn, í verkefnarými Salt Vatn Skæri.
https://www.facebook.com/events/1574414956130730/
Við bjóðum því með stolti, hvern þann sem koma vill og upplifa listheima þriggja kvenna í Listagilinu á Akureyri frá klukkan 16:00 til 18:00.
Kaupvangstæti 23, 600 Akureyri
https://www.facebook.com/events/288988741225461
11.3.2015 | 21:31
ÁLFkonur sýna á LangaGangi í Listagilinu
Félagar úr hópnum ÁLFkonur verða með myndasýninguna - Það er komin vetrartíð - vetrarmyndir sem verða varpaðar á vegg, á LangaGangi í Listagilinu, á Gildegi laugardaginn 14. mars milli kl. 14 og 17.
Sýningin er einnig opin sunnudaginn 15. mars kl. 14-17.
ÁLFkonur er félagsskapur kvenna á Akureyri og í Eyjafirði
sem eiga ljósmyndun að áhugamáli og hafa starfað saman frá sumrinu 2010.
Þetta er fjórtánda samsýning hópsins og sýna myndirnar fjölbreytt tilbrigði við veturinn.
Sýningin stendur aðeins helgina 14.-15. mars milli kl. 14 og 17. Allir velkomnir.
LangiGangur er í Kaupvangsstræti 12, 2. hæð til vinstri, í Listagilinu Akureyri.
Nánari upplýsingar veita : Linda Ólafsdóttir sími 867-8000 og Hrefna Harðardóttir sími 862-5640
ÁLFkonur á facebook : www.facebook.com/alfkonur
https://www.facebook.com/events/1620226861539043
10.3.2015 | 22:35
Freyja Reynisdóttir opnar sýningu í Flóru
Freyja Reynisdóttir
EF ÉG VÆRI FUGL SEM HEITIR SÚRMJÓLK
14. mars - 4. apríl 2015
Opnun laugardaginn 14. mars kl. 14
Flóra, Hafnarstræti 90, 600 Akureyri, s. 6610168
http://floraflora.is
https://www.facebook.com/flora.akureyri
https://www.facebook.com/events/451207511704001
Laugardaginn 14. mars kl. 14 opnar Freyja Reynisdóttir sýninguna EF ÉG VÆRI FUGL SEM HEITIR SÚRMJÓLK í Flóru á Akureyri.
Til sýnis verða sex akrílmálverk unnin út frá spurningunni, hvernig lít ég út ef ég væri fugl sem heitir Súrmjólk. Hvert málverk er svar við þeirri spurningu, en hana spurði Freyja sig sex sinnum. Freyja hefur ákveðið að svara þeirri spurningu aldrei aftur.
Freyja Reynisdóttir, f.1989 í Reykjavík, býr og starfar á Akureyri. Undanfarið ár hefur Freyja starfað sem myndlistarmaður hér á Íslandi, í Þýskalandi, Danmörku og í Bandaríkjunum ásamt því að hafa stofnað og rekið sýningarrými, séð um sýningar- og verkefnastjórnun og unnið að fjölbreyttum samstarfsverkefnum og einkasýningum. Freyja vinnur innsetningar, málverk, skúlptúra, hljóðverk og gjörninga en einnig skrifar hún texta. Nú síðast hefur hún unnið mikið í samstarfi við aðra listamenn í listsköpun og þróun hugmynda í rannsókn sinni á samfélaginu.
Verk hennar lýsa oft óvenjulegum fantasíum og súrrealískum aðstæðum sem fjalla um tilfinningalegu hliðar okkar sameiginlega veruleika sem við deilum í gegn um reynslu, minningar og samskipti. Hún hefur óbilandi áhuga á hugmyndum mannkyns um himingeiminn og stöðu okkar innan hans þar sem við sameinumst og tvístrumst í tilraunum til að svara spurningum sem hvergi eiga rétt svör.
Nánari upplýsingar um verk Freyju: http://www.freyjareynisdottir.com
Sýningin er öllum opin á opnunartíma Flóru fimmtudaga kl. 11-18, föstudaga kl. 11-16 og laugardaga kl. 11-14. Sýningin stendur til laugardagsins 4. apríl 2015.
Nánari upplýsingar veitir Kristín Þóra Kjartansdóttir í flora.akureyri@gmail.com og síma 661 0168 og Freyja Reynisdóttir í sivonigaba@gmail.com og í síma 663 7710.
Flóra er verslun og viðburðastaður með vinnustofum sem Kristín Þóra Kjartansdóttur félagsfræðingur rekur. Áherslan er á nýtingu, endurnýtingu, náttúrutengsl og verkmenningu. Menningardagskrá Flóru hlaut styrk úr Menningarsjóði Akureyrar.