Bloggfærslur mánaðarins, október 2012
26.10.2012 | 21:40
Stefán Boulter sýnir Teikningar í Populus Tremula
19.10.2012 | 10:35
Viltu sýna í Deiglunni 2013?
Sjónlistamiðstöðin á Akureyri hefur nú auglýst sýningarými í Deiglunni laust til umsókna fyrir sýningarhald 2013.
Áhugasamir skulu senda umsóknir fyrir 29. október n.k. til Sjónlistamiðstöðvarinnar, Kaupvangsstræti 12-24, 600 Akureyri, merktar Deiglan 2013 eða á neftangið haraldur@sjonlist.is


Umsókninni skulu fylgja eftirfarandi gögn:


Persónulegar upplýsingar


Ferilskrá (ath. ef feillinn er stuttur eða um 1. sýningu að ræða þarf einungis að greina frá því)


Lýsing á fyrirhugaðri sýningu


Verk eftir viðkomanda. (myndir af 5-10 verkum)


Ath. Sjónlistamiðstöðin áskilur sér rétt til að velja eða hafna öllum umsóknum.
18.10.2012 | 21:11
Síðustu forvöð að sjá sýningu GÓMS í Sal Myndlistarfélagsins
Seinasta helgi til að sjá sýningu GÓMS í sal myndlistarfélagsins er helgin 19.-21. október,
GÓMS er samstarf Georg Óskar & Margeir Dire Sigurðssonar, verða þeir félagar á staðnum,
laugardaginn og sunnudaginn milli 14-17, og geta svarað spurningum ef þær eru einhverjar, sem
snúa að sýningunni og samtarfi þeirra tveggja.
opnunartími er 14-17 föstudaginn- sunnudags. 19.-21. október.
og verður opnað laugadagshvöldið 20. okt. aftur kl 20-22:00.
salur myndlistarfélagsins, kaupvangstræti 10, 600 Akureyri.
18.10.2012 | 13:56
Opnar vinnustofur í Flóru á laugardag
Viðburðarstaðnum, versluninni og vinnustofu Flóru hefur undanfarnar vikur verið komið fyrir í Gamla Kaupfélagshúsinu í Hafnarstræti 90 á Akureyri, en í því húsi var verslunin Frúin í Hamborg starfrækt síðustu ár. Í tilefni af þessum umbreytingum opnar Flóra vinnustofur hússins laugardaginn 20. október kl. 15-17.
Gamla Kaupfélagshúsið á Akureyri hefur því enn á ný fengið nýtt hlutverk, en margvísleg starfsemi hefur verið í húsinu frá því að það var reist af Pöntunarfélagi Eyfirðinga (síðar Kaupfélag Eyfirðinga) í upphaflegri mynd árið 1898, en þar á meðal er prentsmiðja, ljósmyndastofa, ferðaskrifstofa, ræðisskrifstofa, tannlæknastofa, verslanir, steinasafnarar og stjórnmálastarfsemi.
Og nú er Flóra starfrækt á tveimur neðri hæðum hússins, en eins og kunnugt er þá var Flóra áður rekin í suðurhluta Listagilsins á Akureyri.
Með flutningum var starfsemi Flóru einnig víkkuð út að hluta. Jafnframt því að vera verslun sem leggur áherslu á endurunnar vörur, endurnýtingu og náttúruvörur, ásamt myndlist, tónlist og bókmenntum, hefur Flóra staðið fyrir ýmsum viðburðum svo sem myndlistasýningum, upplestrum, gjörningum og kvikmyndasýningum. Í gamla húsnæðinu í Listagili var einn aðili með vinnustofu í Flóru en nú hefur þeim fjölgað í sex, fólk sem sinnir fjölbreytilegu skapandi starfi eins og ljósmyndun, saumum, skrifum, fræðistörfum, textílþrykki og myndlist og þá er nú ekki allt upp talið. Áherslan í starfinu er enn sem fyrr á endurvinnslu og endurnýtingu.
Á opnum vinnustofum Flóru á laugardag býðst fólki að rölta um staðinn með kökubita og kaffi, kynnast þessu sögufræga húsi betur og sjá það sem verið er að vinna að. Allir velkomnir.
(Á meðfylgjandi mynd má sjá þau sem eru með vinnustofur í Flóru en það eru: Hlynur Hallsson, Sigurjón Már Svanbergsson, Kristín Þóra Kjartansdóttir, Elín Hulda Einarsdóttir, Marta Kusinska og María Franksdóttir Ellmer.)
flóra - hafnarstræti 90 - 600 akureyri - s.6810168 - http://floraflora.is
15.10.2012 | 11:20
Síðustu forvöð að sjá sýningu Unnars Arnar í Flóru
Unnar Örn
Brotabrot úr afrekssögu óeirðar á Íslandi: Fyrsti hluti
Fragments From the Deeds of Unrest in Iceland: Part One
15. september - 20. október 2012
Sýningarlok laugardaginn 20. október
Flóra, Hafnarstræti 90, 600 Akureyri, s. 6610168
http://floraflora.is
https://www.facebook.com/flora.akureyri
Nú eru síðustu forvöð að sjá sýningu Unnars Arnar J. Auðarsonar sem nefnist Brotabrot úr afrekssögu óeirðar á Íslandi: Fyrsti hluti í Flóru í Hafnarstræti 90 á Akureyri. Sýning er opin alla virka daga kl. 12-18 og lýkur laugardaginn 20. október og þá er opið kl. 12-16.
Á sýningunni í Flóru beinir Unnar Örn sjónum sínum að geymd upplýsinga tengdum viðspyrnu almennings og hvernig átök í sögu þjóðar er eytt úr sameiginlegu minni af ríkjandi valdhöfum.
Unnar Örn J. Auðarson stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og framhaldsnám við Listaakademíuna í Malmö. Unnar Örn vinnur í ólíka miðla en verk hans eru yfirleitt hlutar úr stærri innsetningum þar sem hann vinnur á gagnrýninn hátt með umhverfi sitt, samfélagið og hlutverk listamannsins innan þess. Unnar hélt sýna fyrstu einkasýningu í verslunarmiðstöðinni Kringlunni sem hluti af Gallerí Gúlp árið 1996 og síðan þá hefur hann tekið þátt í yfir 50 einka- og samsýningum hérlendis og erlendis.
Heimasíða Unnars Arnar: http://unnarorn.net
Flóra er verslun, vinnustofa og viðburðastaður Kristínar Þóru Kjartansdóttur félagsfræðings og garðyrkjukonu. Áherslan er á nýtingu, endurnýtingu, náttúrutengsl og verkmenningu. Listrænn ráðunautur staðarins er Hlynur Hallsson, myndlistarmaður.
13.10.2012 | 09:56
WATER/VATN dagskrá í Myndlistaskólanum á Akureyri með þátttöku fimm erlendra myndlistarskóla
Í liðinni viku komu 10 kennarar og nemendur frá fimm erlendum myndlistarskólum og tóku þátt í sjö daga námskeiði ásamt nemendum og kennurum í Myndlistaskólanum á Akureyri þar sem umfjöllunarefnið var VATN. Skólarnir sem tóku þátt í þessu verkefni eru Aarhus Art Academy, Turku University of Applied Sciences/Arts Academy, Novia University of Applied Sciences, Fine Arts department, Tartu Art College, Estonia og Myndlistaskólinn á Akureyri.
Hilda Jana hjá N4 kom og tók viðtöl og myndir sem sjá má hér: http://www.n4.is/tube/file/view/2871
11.10.2012 | 23:54
Matthildur Ásta sýnir í Populus tremula
SPEGILL, SPEGILL, HERM ÞÚ MÉR ...
Laugardaginn 13. október kl. 14.00 mun Matthildur Ásta opna sýninguna Spegill, spegill, herm þú mér ... í Populus tremula. Þar sýnir hún dömulega mósaíkspegla.
Matthildur Ásta lauk námi frá Myndlistaskólanum á Akureyri síðastliðið vor og er þetta hennar fyrsta einkasýning. Verkin, sem eru unnin úr speglum og lituðu gleri, eru af ýmsum stærðum og gerðum.
Einnig opið sunnudaginn 14. október kl. 14.00-17.00 Aðeins flessi eina helgi.
11.10.2012 | 14:52
Einar Helgason 80 ára með sýningu í Festarkletti
8.10.2012 | 20:22
Heimildarmyndin STEYPA sýnd í Flóru
Heimildarmyndin STEYPA eftir þau Markús Andrésson og Ragnheiði Gestsdóttur verður sýnd í Flóru fimmtudagskvöldið 11. október 2012 kl. 20
Heimildamyndin STEYPA er mynd um íslenska samtímamyndlist. Í myndinni er fylgst með sjö listamönnum um tveggja ára skeið. Þeir eru að koma undir sig fótunum heima og erlendis og tengjast hvor öðrum á ýmsan hátt. Steypa gefur innsýn í vinnuferli og viðhorf þessarar kynslóðar, sýnir hvernig hugmyndir fæðast og eru útfærðar í listaverk.
Myndin er sýnd í tilefni sýningar Unnars Arnar Auðarsonar í Flóru sem nefnist "Brotabrot úr afrekssögu óeirðar á Íslandi: Fyrsti hluti / Fragments From the Deeds of Unrest in Iceland: Part One". Ásamt Unnari fjallar STEYPA um Ásmund Ásmundsson og Katrínu Sigurðardóttur en þau sýna einmitt um þessar mundir í Listasafninu á Akureyri enda tilnefnd til Sjónlistaverðlaunanna 2012. Auk þeirra þriggja er fjallað um Gjörningaklúbbinn, Margréti H. Blöndal, Huginn Þór Arason og Gabríelu Friðriskdóttur í STEYPU.
Ásmundur hellir Pepsí í Fanta-flöskur og spyr sig Hvað er list? Hann stingur upp á að það sé það sem listamaður geri. Með það til hliðsjónar er áhersla heimildamyndarinnar á það ferli sem listamennirnir ganga í gegnum áður en verk þeirra verða að veruleika. Gabríela hendir í deig og smellir á andlitið á sér, Margrét heillast af hulsum og pakkningum í Mosfellsbæ, Huginn klippir af sér hárið og lætur búa til hárkollu, Unnar stelur afleggjurum á elliheimili, Gjörningaklúbburinn endurskapar stjörnuhiminn Van Goghs úr lakkrísafgöngum, Katrín smíðar lítið hús til þess eins að henda því fram af stærra húsi. Hvað liggur að baki? Á þetta erindi við okkur hin?
STEYPA kom upphaflega út árið 2007 þegar hún ferðaðist á milli kvikmyndahátíða víða um heim, en hún var tekin á árunum 2003-06.
Myndin er með íslensku tali og enskum texta og tekur um klukkutíma í sýningu en á eftir verða umræður um myndina og um íslenska samtímalist.
STEYPA er sýnd í Flóru í samvinnu við Kvikmyndaklúbbinn KvikYndi og Lofi Productions sem framleiðir myndina. Það er ókeypis aðgangur.
Flóra, Hafnarstræti 90, 600 Akureyri, s. 6610168
http://floraflora.is
https://www.facebook.com/flora.akureyri
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 22:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.10.2012 | 12:57
Umsókn um sýningarrými í Deiglunni og samkeppni um forsíðumynd
Viltu sýna í Deiglunni 2013?
Sjónlistamiðstöðin á Akureyri hefur nú auglýst sýningarými í Deiglunni laust til umsókna fyrir sýningarhald 2013. Áhugasamir skulu senda umsóknir fyrir 29. október n.k. til Sjónlistamiðstöðvarinnar, Kaupvangsstræti 12-24, 600 Akureyri, merktar Deiglan 2013 eða á neftangið haraldur@sjonlist.is
Umsókninni skulu fylgja eftirfarandi gögn:
Persónulegar upplýsingar
Ferilskrá ( ath. ef feillinn er stuttur eða um 1. sýningu að ræða þarf einungis að greina frá því)
Lýsing á fyrirhugaðri sýningu
Verk eftir viðkomanda. ( myndir af 5-10 verkum)
Ath. Sjónlistamiðstöðin áskilur sér rétt til að velja eða hafna öllum umsóknum.
Einnig hefur Sjónlistamiðstöðin auglýst samkeppni um forsíðumynd á sumarbækling sinn fyrir 2013. Í verðlaun eru kr. 100.000 og verða bestu myndirnar sýndar opinberlega. Frestur til að senda inn myndir er til 15. desember n.k.
Forsíðumynd:
Brot bæklings. 14,5 x 24. Hægt er að nálgast bækling ársins í ár í Ketilhúsi
Engin takmörkun er á efni, aðferð, viðfangsefni myndar nema að hún verður að vera prenttæk.
Nánari upplýsingar á sjonlist.is og hjá Haraldi í síma 461-2609.