2.11.2009 | 11:26
Bergþór Morthens opnar sýningu á Café Karólínu
Bergþór Morthens
Jón um Jón frá Jóni til Jóns
07.11.09 - 04.12.09
Café Karólína // Kaupvangsstræti 23 // IS 600 Akureyri // 4612755
---
Bergþór Morthens opnar sýninguna Jón um Jón frá Jóni til Jóns á Café Karólínu laugardaginn 7. nóvember klukkan 15.
Sýningin Jón um Jón frá Jóni til Jóns samanstendur af portrett myndum unnum með blandaðri tækni. Verkin eru byggð á prófílmyndum þeirra sem heita Jón Sigurðsson á Facebook og hafa ýmsar skírskotanir til atburða, persóna eða aðstæðna úr samtíma okkar. Þjóðerniskennd, sjálfstæði og hetjudýrkun.
Bergþór Morthens útskrifaðist frá Myndlistaskólanum á Akureyri árið 2004 og hefur notað undanfarin ár eftir útskrift til að byggja upp myndlistarstefnu sína og hefur verið duglegur við að sýna, bæði á einka- og samsýningum.
Meðfylgjandi mynd er af einu verka Bergþórs.
Nánari upplýsingar veitir Bergþór í síma 691 6017 eða tölvupósti: bergthorm(hjá)simnet.is og á http://artnews.org/artist.php?i=4331
Næstu sýningar á Café Karólínu:
05.12.09 - 08.01.10 Sveinbjörg Ásgeirsdóttir
09.01.10 - 05.02.10 Anna Gunnarsdóttir
06.02.10 - 05.03.10 Samúel Jóhannsson
06.03.10 - 02.04.10 Guðbjörg Ringsted
03.04.10 - 30.04.10 Kristján Pétur Sigurðsson
01.05.10 - 04.06.10 List án landamæra
05.06.10 - 02.07.10 Hanna Hlíf Bjarnadóttir
Meginflokkur: Menning og listir | Aukaflokkar: Menntun og skóli, Stjórnmál og samfélag, Vefurinn | Breytt 6.11.2009 kl. 10:08 | Facebook
Athugasemdir
Bergþór er flottur. Hann er sístarfandi og miðlandi af sköpunargleðinni. Hann er gott dæmi um þau margfeldisáhrif sem af listsköpun hefur á samfélagið í kring. Hér á Siglufirði eru fæstir ósnortnir af því sem hann er að gera, þótt ekki séu allir meðvitaðir um það. Það sannaðist fyrst ef hann færi. Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur...eins og sagt er. Ég vona að við fáum að njóta ljósins frá honum sem legnst og mest í byggðarlaginu. Ljúflingur mikill og skapari á heimsmælikvarða.
Jón Steinar Ragnarsson, 2.11.2009 kl. 15:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.