7.10.2009 | 22:05
Möguleg fjármögnun til menningarstarfs
Möguleg fjármögnun til menningarstarfs
Kynning á Akureyri
Skipuleggjandi: Norræna upplýsingaskrifstofan á Akureyri
Flestir þeir sem vinna með menningartengd verkefni þurfa að sækja um styrki til fjármögnunar þeirra. Til hvaða verkefna, frá hverjum og hvernig er hægt að fá styrki?
Á kynningunni verður lögð sérstök áhersla á Norræna menningarsjóðinn. Markmið sjóðsins er að efla norrænt menningarsamstarf og er starfssviðið breitt, nær til lista- og menningarsviðsins, jafnt fagfólks sem leikmanna.
Einnig verður farið verður farið yfir aðra sjóði tengda norrænu menningarsamstarfi
Dagskrá
13.00 16:00
Kynntar verða nýjar áherslur Norræna menningarsjóðsins sem taka gildi
1. janúar 2010
Kynnt verða sérstök verkefni Norræna menningarsjóðsins
Umsóknareyðublað sjóðsins verður skoðað og við förum yfir mikilvæg atriði varðandi umsóknir til sjóðsins.
Umsækjandi segir frá reynslu sinni af umsóknarferlinu.
Aðrir norrænir sjóðir kynntir.
Kaffi, spurningar og umræður
Um kynningu sjá: Stefán Baldursson óperustjóri og stjórnarmeðlimur Norræna menningarsjóðsins, María Jónsdóttir forstöðumaður Norrænu upplýsingaskrifstofunnar og George Hollanders listamaður.
Tími og staður
Kynningin verður haldin í Ketilhúsinu á Akureyri föstud. 16. okt. 2009 kl. 13:00 16:00 og er þátttakendum að kostnaðarlausu.
Skráningar í síðasta lagi 13. okt. 2009, kl. 12:00 hjá Maríu Jónsdóttur Norrænu upplýsingaskrifstofunni. Tölvupóstfang mariajons@akureyri.is. Heimasíða skrifstofunnar er www.akmennt.is/nu
María Jónsdóttir

Forstöðumaður Norrænu upplýsingaskrifstofunnar

Leder Nordisk informationkontor 

Netfang/e-post: mariajons@akureyri.is

hjemmeside: www.akmennt.is/nu


Norræna upplýsingaskrifstofan/Nordisk informationkontor

Kaupvangsstræti 23

600 Akureyri

Island.

Sími: 462 7000
Fax: 462 7007
Meginflokkur: Menning og listir | Aukaflokkar: Fjármál, Menntun og skóli, Stjórnmál og samfélag | Breytt 8.10.2009 kl. 21:20 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.