10.6.2008 | 16:36
Verksmiðjan - Menningarmiðstöð á Hjalteyri opnar í ágúst 2008
Verksmiðjan
Menningarmiðstöð á Hjalteyri
Neðst á Hjalteyri // 601 Akureyri // 4611450 // www.verksmidjan.blogspot.com
Hópur listamanna, þar af 9 búsettir í Arnarneshreppi, hafa gert með sér samkomulag um rekstur menningarviðburða og vinnuaðstöðu í gömlu Verksmiðjunni á Hjalteyri.
Undirbúningur hófst í október 2007 með hugmyndavinnu og nú hefur verið gert samkomulag við Arnarneshrepp um afnot af gömlu Verksmiðjunni.
Markmiðið er að efla menningarviðburði og ferðaþjónustu á svæðinu, samstarf við sveitarfélagið og skóla, og skapa vettvang fyrir listamenn á staðnum og vinna að nýsköpun í atvinnumálum á svæðinu. Stuðla þannig að jákvæðum búsetuskilyrðum á svæðinu.
Hafinn er undirbúningur fyrir fyrstu viðburðina í Verksmiðjunni og styrkir hafa fengist frá einkaaðilum, Menningarráði Eyþings og Impru, Nýsköpunarmiðstöð.
Aðstandendur hafa fjölbreytta þekkingu og reynslu við skipulagningu menningarviðburða, uppsetningu sýninga, námskeiða, bókaútgáfu og heimildamyndagerð.
Menningarhátíð á Hjalteyri í ágústmánuði
Sérstaða menningarhátíðarinnar á Hjalteyri í ágústmánuði verður að teljast umtalsverð einkum með tilliti til staðsetningar, aðstæðna og dagsskrár - óskildar því sem er almennt í boði úti um land á þessum tíma. Lögð er sérstök áhersla á að velja einstaka listamenn sem geta tekið mið af aðstæðum og nýtt þær sem möguleika. Staðarval og tímasetning ásamt vali á kunnum listamönnum ólíkra kynslóða og mismunandi listhreyfinga, munu hjálpast að og draga að hina áhugasömu og hugsanlega kaupendur slíkrar þjónustu í framtíðinni. Hátíðin - sem jafnframt er tilraun og undirbúningur til frekara framhalds - hæfist á mestu ferðamannahelgi þjóðarinnar og umhverfið og óvanalegar ytri aðstæður myndu spila inn í, hafa mótandi áhrif á skipulag og uppsetningu viðburða og vekja um leið forvitni. Ytri skilyrði og ástand húsakynna eru frumstæð en spilað verður inn á það og fegurð þeirra undirstrikuð. Aukreitis en öllu þessu samofið verður boðið upp á listasmiðju fyrir börn og unglinga sem einnig telst afar mikilvægur forsmekkur að því sem koma skal.
Ef svo fer að uppákoma þessi leiði til þess að Hjalteyrarverksmiðjan og umhverfi hennar verði framtíðarstaður listamanna þá væri sérstaða hennar í listheiminum veruleg. Hún yrði nokkurs konar frumbýli - listin nemur land - og brúaði með því bil á milli þéttbýlis og landsbyggðar en einnig lands-byggðar og umheims. Hún yrði hvortveggja í senn ; svæðisbundin og næði jafnframt til stærri heildar, þar sem hún myndi bæði taka mið af þörfum og áhuga íbúa næsta nágrennis en um leið opna gáttir til umheimsins fyrir tengsl sín og samstarf við erlenda aðila. Sjálft mun umhverfið og húsakynni Hjalteyrar-verksmiðjunnar vekja athygli, hafa áhrif á sköpun og móta starfsemina og framleiðsluþætti (atriði sem kann, skiljanlega, að vekja undrun þeirra sem hafa haft hana of lengi fyrir augunum). Strax frá og með menningarhátíð yrði unnið að endurbótum með tilliti til þess hvernig húsakynni eru í raun, samspil náttúruafla og mannvirkja höfð í huga og að leiðarljósi. Verksmiðjan yrði eitt listaverk út af fyrir sig.
Framleiðslan og þekkingin
Væntingar fólks til þessarar hátíðar og starfsemi á upphafsreit, mun fyrst og fremst verða mæld með tilliti til aðsóknar og viðbragða, ekki síst í formi umfjallana og fjölmiðlaathygli. Aðstandendur munu einnig standa fyrir öflugri kynningu.
Menningarleg þjónusta sem hér verður til og hátíðinni er ætlað að marka upphafið að mótast fyrir þörf ákveðins hóps listamanna til þess að skapa sér sameiginlegan vettvang og sjá sér hag í því. Slíkt fyrirkomulag á sér fjölmargar hliðstæður þar sem listamennirnir hafa vinnustofur sínar í einni þyrping og jafnframt aðstöðu til sýningahalds. Þar geta þeir komið eigin framleiðslu og annarra á framfæri. Í framtíðinni mun þjónustan meðal annars felast í því að listamennirnir geta opnað vinnustofur sínar og sýnt og haft á boðstólum verk sín, þeir munu bæði í sameiningu og einstaklingsbundið vinna að metnaðarfullri menningardagskrá og fjölbreyttri þar sem að samankomnir mynda þeir nokkurs konar banka tenginga og hugmynda sem allar fá að njóta sín. Þeir munu bjóða fram þjónustu sína til skóla, til barna og unglingastarfs og standa fyrir öflugu upplýsingastreymi og kynningarstarfi.
Allir þeir listamenn sem kallaðir eru til þátttöku á menningarhátíð að þessu sinni hafa vakið verðskuldaða athygli á sínu sviði, skipuleggjendur hafa allir hlotið framhaldsmenntun í listum og teljast hafa sérþekkingu á sviði lista og menningar. Þeir hafa reynslu af skipulagningu menningarviðburða, uppsetningu sýninga og störfum við kennslu og námskeiðahald.
2.-23 ágúst 2008 START
2. ágúst 2008 kl. 14:00
Opnun á myndlistarsýningunni START í Verksmiðjunni
Þátttakendur:
Alexander Steig, Þýskalandi
Arna Valsdóttir, Íslandi
Boekie Woekie, Hollandi
Kristján Guðmundsson, Íslandi
Magnús Pálsson, Íslandi/Bretlandi
Nicolas Moulins, Frakklandi/ Þýskalandi
Sigga Björg Sigurðardóttir, Íslandi/Skotlandi
LISTASMIÐJUR
Listasmiðja barna og foreldra 3.ágúst 2008
Í þessari listasmiðju er lögð áhersla á að kenna þátttakendum að lesa umhverfi sitt og nýta til listsköpunar. Hjalteyrin er kjörlendi uppgötvana og ævintýra, sem þegar grannt er skoðað getur verið frábær útgangspunktur sköpunarferlis. Öll þekkjum við fjársjóðsleitina í fjörum landsins og í yfirgefnum verksmiðjum en í þessari smiðju fá börn og foreldrar innsýn í heim listarinnar með eigin uppgötvanir að leiðarljósi.
Listasmiðja barna 9-10. ágúst 2008
Hér er um að ræða þrjár smiðjur með leiðsögn þriggja ólíkra listamanna.
Áhersla er lögð á að vinna með fjölbreytt efni og með ólíkum aðferðum. Þannig geta þátttakendur valið sér miðil eftir áhugasviði og getu í samráði við leiðbeinendur.
Þema smiðjunnar er framtíð, fegurð, samvinna. Hóparnir vinna með þessi þrjú hugtök í sitt hvoru lagi og koma svo saman í lok listasmiðjunnar sem eitt verk.
GRASRÓT 2008
20. september - 12. október 2008
ferskustu ræturnar í íslenskri myndlist, í samvinnu við Nýlistasafnið
Stefnt er að því að sýningin opni sömu helgi og Sjónlistahátíðin stendur yfir. Grasrót hefur áunnið sér sess sem árleg sýning framsæknustu myndlistarmanna yngstu kynslóðarinnar. Nýlistasafnið hefur haft veg og vanda af þessum sýningum og í fyrsta skipti er stefnt að því að sýningin fari fram utan höfuðborgarsvæðisins, í Verksmiðjunni á Hjalteyri.
Stofnendur:
Gústav Geir Bollason
Aðalheiður S. Eysteinsdóttir
Arna Valsdóttir
Gústav Geir Bollason
Hlynur Hallsson
Jóna Hlíf Halldórsdóttir
Þórarinn Blöndal
Nicolas Moulin
Clémentine Roy
Véronique Legros
Jan Voss
Rúna Þorkelsdóttir
Henriette van Egten
Kristján Guðmundsson
Jón Laxdal Halldórsson
Arnar Ómarsson
Lene Zachariassen
Verksmiðjan
Menningarmiðstöð á Hjalteyri
Neðst á Hjalteyri // 601 Akureyri // 4611450 // http://www.verksmidjan.blogspot.com
Meginflokkur: Menning og listir | Aukaflokkar: Ferðalög, Menntun og skóli, Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.