2.4.2008 | 08:40
Guðmundur R Lúðvíksson opnar sýninguna "Hreppsómagi og vindhanar" á Café Karólínu á Akureyri, laugardaginn 5. Apríl 2008,
Guðmundur R Lúðvíksson hefur sett upp fjölmargar sýningar á síðustu árum og er nýkominn frá Rotterdam þar sem hann tók þátt í samsýningu. Hann segir um verkin sem hann sýnir á Café Karólínu:
"Verkið Hreppsómagi og vindhanar er unnið þannig að ég mun leggja af stað kl. 05.00 föstudags nótt frá Njarðvíkum til Akureyrar. Kílómetra mælir bílsins verður stilltur á núll við upphaf ferðar. Við hver hreppamörk alla leið til Akureyrar verður lofti blásið í poka, og lokað þétt fyrir þá. Hver poki er merktur með km sem eftir eru á áfangastað. Ljósmynd er tekin af gjörningnum og tilheyrir hverjum poka. Núll pokinn verður stærri en allir hinir pokarnir.
Einnig verða þrjú verk sem unnin eru með girni og eru þrívíð."
Guðmundur R Lúðvíksson
Hreppsómagi og vindhanar
05.04.08 - 02.05.08
Café Karólína // www.karolina.is
Kaupvangsstræti 23 // IS 600 Akureyri // 4612755
Laugardaginn 5. Apríl 2008, opnar Guðmundur R Lúðvíksson sýninguna "Hreppsómagi og vindhanar", á Café Karólínu á Akureyri.
Nánari upplýsingar um Guðmund R Lúðvíksson era ð finna á www.1og8.com og netfangið er 5775750(hjá)isl.is Sýningin á Café Karólínu stendur til 2. maí, 2008.
Meðfylgjandi er ferilskrá Guðmundar R Lúðvíkssonar og tvær myndir, önnur af verkinu "Sumarið í Reykjavík 1999" sem hann sýndi einmitt á Café Karólínu árið 1999.
Sýning Jóns Laxdal Úr formsmiðju á Karólínu Restaurant stendur yfir til 5. september 2008.
Næstu sýningar á Café Karólínu:
03.05.08-13.06.08 Kjartan Sigtryggsson
14.06.08-04.07.08 Arnar Ómarsson
05.07.08-01.08.08 Vilhelm Jónsson
02.08.08-05.09.08 Margeir Sigurðsson
06.09.08-03.10.08 Sigurlín M. Grétarsdóttir
04.10.08-31.10.08 Ingunn St. Svavarsdóttir Yst
01.11.08-05.12.08 Þorsteinn Gíslason
Umsjónarmaður sýninganna er Hlynur Hallsson
Meginflokkur: Menning og listir | Aukaflokkar: Ferðalög, Matur og drykkur, Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.