4.6.2016 | 16:08
Ásta Guðmundsdóttir opnar sýninguna Náttúru afl í Flóru
Ásta Guðmundsdóttir
Náttúru afl
10. júní - 7. ágúst 2016
Opnun föstudaginn 10. júni kl. 17-19
Flóra, Hafnarstræti 90, 600 Akureyri, s. 6610168
http://floraflora.is
https://www.facebook.com/flora.akureyri
https://www.facebook.com/events/1726808330925272
Föstudaginn 10. júní kl. 17-19 opnar Ásta Guðmundsdóttir sýninguna Náttúru afl í Flóru á Akureyri.Ásta nam fatahönnun í Þýskalandi og útskrifaðist þaðan frá Fachhochschule fur Gestaltung Pforzheim 1990. Jafnframt því að framleiða föt undir eigin fatamerki ásta créative clothes hefur áhugi Ástu lengi beinst að listsköpun s.s. innsetningum og skúlptúrum. Hún notar gjarnan textíl í verkum sínum. Verkin eru oft undir áhrifum frá náttúru og veðurfari. Verklagið byggist á arfleið forfeðra Ástu sem störfuðu við netagerð og sjómennsku.
Ásta hefur sýnt verk sín víða um heim og tekið þátt í vinnustofum og listahátíðum m.a. á Íslandi, í Japan, Suður Kóreu og Evrópu.
Nánari upplýsingar um Ástu og verk hennar má nálgast á heimasíðunni: www.astaclothes.is
Sýningin er öllum opin á opnunartíma Flóru: mán. - lau. kl. 9-19 og sunnudaga kl. 13-19.
Sýningin stendur til sunnudagsins 7. ágúst 2016.
Nánari upplýsingar veitir Kristín Þóra Kjartansdóttir í flora.akureyri@gmail.com og síma 661 0168 og Ásta Guðmundsdóttir í asta@astaclothes.is.
Flóra er verslun og viðburðastaður með vinnustofum sem Kristín Þóra Kjartansdóttur félagsfræðingur rekur. Áherslan er á nýtingu, endurnýtingu, náttúrutengsl og verkmenningu.

Ljósmynd: Samantha Claire Zaccarie
Flokkur: Menning og listir | Breytt s.d. kl. 16:15 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.