31.7.2013 | 23:16
Sýningu Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur í Flóru að ljúka
Aðalheiður S. Eysteinsdóttir
Réttardagur 50 sýninga röð
Bændur í bæjarferð, sýningarlok
22. júní - 4. ágúst 2013
Flóra, Hafnarstræti 90, 600 Akureyri, s. 6610168
https://www.facebook.com/flora.akureyri
https://www.facebook.com/events/544483278947891
Sunnudaginn 4. ágúst lýkur sýningu Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur Bændur í bæjarferð í Flóru í Hafnarstræti 90 á Akureyri.
Um er að ræða lokin á verkefninu Réttardagur 50 sýninga röð, sem staðið hefur yfir síðan júní 2008. Um helgina lýkur einnig sýningum í Deiglunni og Ketilhúsinu en sýningin í Listasafninu stendur í viku enn.
Sýningin í Flóru er öllum opin á opnunartíma Flóru, mánudaga til föstudaga kl. 11-18 og laugardaga og sunnudaga kl. 13-16.
Nánari upplýsingar veitir Aðalheiður í síma 865 5091, Kristín í síma 661 0168 og Hlynur í síma 659 4744.
Nánari upplýsingar um Aðalheiði á www.freyjulundur.is
Flóra er verslun, vinnustofur og viðburðastaður sem Kristín Þóra Kjartansdóttir félagsfræðingur rekur. Áherslan er á nýtingu, endurnýtingu, náttúrutengsl og verkmenningu. Listrænn ráðunautur staðarins er Hlynur Hallsson, myndlistarmaður. Menningardagskrá Flóru hlaut styrk úr Menningarsjóði Akureyrar.
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.