26.8.2010 | 10:48
Styrktarsjóður Guðmundu Andrésdóttur óskar eftir umsóknum
Styrktarsjóður Guðmundu Andrésdóttur
auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum á árinu 2010
Samkvæmt skipulagsskrá sjóðsins nr. 9321 er markmið hans ,,að styrkja og hvetja unga og efnilega myndlistarmenn til náms en stofnfé sjóðsins er arfur samkvæmt erfðaskrá Guðmundu Andrésdóttur listmálara sem lést árið 2002. Ráðstöfunarfé sjóðsins eru raunvextir af höfuðstól og verður í ár ráðstafað 8.0 milljónum króna. Stjórn sjóðsins ákveður hversu margir styrkir verða veittir.
Sjóðurinn styrkir myndlistarmenn til framhaldsmenntunar og er æskilegt að umsækjendur hafi lokið BA prófi í myndlist eða sambærilegu námi. Hægt er að sækja um styrk til lengri eða skemmri námsdvalar erlendis, þó aldrei skemur en til sex mánaða. Umsókn skal fylgja ítarleg greinargerð um fyrirhugað nám ásamt meðmælabréfi og upplýsingum um fyrra nám og starfsferil.
Stefnt er að úthlutun eigi síðar en 22. október næstkomandi.
Umsóknarfrestur er til og með 21. september 2010.
Umsóknir merktar styrktarsjóðnum skulu sendar Listasafni Íslands, Laufásvegi 12, 101 Reykjavík.
Nánari upplýsingar eru veittar í síma Listasafnsins 515 9600.
Stjórn Styrktarsjóðs Guðmundu Andrésdóttur
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.