20.11.2012 | 22:12
Opið persónulegt rými í Myndlistaskólanum á Akureyri
Fimmtudaginn 22. nóvember verður opið hús í Myndlistaskólanum á Akureyri frá 15:00 til 19:00. Opnunin er í boði nemenda af 1. 2. og 3. ári við fagurlistardeild skólans, en undanfarnar þrjár vikur hafa nemarnir unnið undir leiðsögn listamannsins Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur. Meginmarkmið áfangans var sjálfsskoðun og í kjölfarið unnu þau sitt eigið persónulega rými. Útkoman er í formi skúlptúra, innsetninga, ljósmynda og gjörninga, sem nemendur bjóða gestum og gangandi að virða fyrir sér og upplifa með þeim. Allir eru hjartanlega velkomnir. 

Nemendur:
Ásmundur Jón Jónsson
James Earl Ero Cisneros Tamidles
Jónína Björg Helgadóttir
Elísabet Inga Ásgrímsdóttir
Hekla Björt Helgadóttir
Margrét Kristín Karlsdóttir
Sigrún Birna Sigtryggsdóttir
Anna Elionora Olsen Rosing
Kolbrún Vídalín
Karólína Baldvinsdóttir
Sunna Björk Hreiðarsdóttir
Sandra Rebekka Dudziak
Freyja Reynisdóttir
Egill Logi Jónasson
Hildur Björnsdóttir
Ragnheiður Mekkín Ragnarsdóttir
Sigríður Jónsdóttir
Unnur Rósa Eyfjörð Ásgeirsdóttir
Gunnhildur Helgadóttir
20.11.2012 | 11:40
Íris Ólöf opnar sýningu í Flóru
Íris Ólöf Sigurjónsdóttir
Drósir og draumar
24. nóvember 2012 - 13. janúar 2013
Opnun laugardaginn 24. nóvember kl. 14
Flóra, Hafnarstræti 90, 600 Akureyri, s. 6610168
http://floraflora.is
https://www.facebook.com/flora.akureyri
Laugardaginn 24. nóvember kl. 14 opnar Íris Ólöf Sigurjónsdóttir sýningu sem nefnist Drósir og draumar í Flóru í Hafnarstræti 90 á Akureyri. Þar sýnir hún textílverk og skart úr hráefni úr ýmsum áttum sem lifað hefur tímana tvenna og þrenna. Gamlir efnisbútar, perlur og prjál eru efniviður nýrra drauma og drósir koma við sögu.
Íris Ólöf Sigurjónsdóttir er textílhönnuður og textílforvörður að mennt. Menntuð í Osló og London. Hún er safnstjóri Byggðasafnsins á Dalvík og samfara safnastarfinu vinnur hún að textílhönnun á vinnustofu sinni í Svarfaðardal þar sem hún hefur búið sl. 10 ár. Íris Ólöf hefur tekið þátt í fjölmörgum samsýningum s.s hjá Handverki og Hönnun en sýningin í Flóru er þriðja einkasýning Írisar.
Sýningin er öllum opin á opnunartíma Flóru mánudaga til föstudaga kl. 11-13 og 16-18 og laugardaga kl. 13-16 og stendur til laugardagsins 13. janúar 2013.
Nánari upplýsingar veitir Íris Ólöf í síma 892 1497 og Kristín í síma 661 0168.
Flóra er verslun, vinnustofa og viðburðastaður Kristínar Þóru Kjartansdóttur félagsfræðings og garðyrkjukonu. Áherslan er á nýtingu, endurnýtingu, náttúrutengsl og verkmenningu. Listrænn ráðunautur staðarins er Hlynur Hallsson, myndlistarmaður.