Joris Rademaker í Listasafninu á Akureyri

_mg_3353_951996.jpg

Laugardaginn 16. janúar klukkan 15 opnar Listasafnið á Akureyri yfirlitssýningu á verkum hollenska myndlistarmannsins Jorisar Rademaker. 

Joris er fæddur í smábænum Eersel í Hollandi árið 1958 en hefur búið á Íslandi í hartnær tvo áratugi. Hann hefur fengist við myndlist síðan árið 1983 og einnig starfað sem myndlistarkennari á Akureyri um árabil. Undanfarin ár hefur hann starfrækt Gallerí+ á Akureyri ásamt Pálínu Guðmundsdóttur eiginkonu sinni. Joris var útnefndur bæjarlistamaður Akureyrar árið 2006. 

Myndlist Jorisar spannar ólíkar stefnur og rífur skörð í þá múra sem eitt sinn stóðu fyrir kynslóðabil andstæðra fylkinga. Hann vinnur með hugsanaflæði, bæði tvívítt og þrívítt, og styðst við fundna hluti og látlausan efnivið. Í byrjun var pallettan sterk en smám saman hefur hún orðið nær litlaus. Ákveðin stef eru könnuð í mörgum mismunandi útfærslum og byggja á formrænni einföldun sem á meira skylt við geómetríska abstraktsjón, eða De Stijl-skólann, og skynvilluleiki op-listarinnar en kaldrifjaða smættarhyggju. Ákveðin stef eru könnuð í mörgum mismunandi útfærslum og byggaja á formrænni einföldun þar sem möguleikar skynjunar og alls konar skynvilluleikir ráða ferðinni.

Við fyrstu kynni virðist þessi myndheimur Jorisar frekar óaðgengilegur þótt reglulega bregði fyrir bernskum fígúrum og malerískum, expressjónískum hvellum. Inn í hann fléttast einnig tvö vinsæl viðfangsefni sem heltóku myndlistina á níunda og tíunda áratugnum, nefnilega líkamslist (e. body-art) og auðkennispólitík (e. identity politics). Verkin virka stundum eins og litlir, viðkvæmir púðluhundar sem allt í einu sýna í sér vígtennurnar og eru ótrúlega ógnandi. Sársaukinn tekur við þar sem votti af væmni sleppir, pipraður með áhrifum afrískrar ættbálkalistar í staðinn þess að saltað sé í sárið að norrænum fantasið (þessi skírskotun í afríska skúlptúra byggir þó á meiri innlifun en tíðkaðist hjá Cobra-mönnum).* List Jorisar hefur samt engar beinharðar pólitískar blammeringar að geyma eða samfélagsgreinandi gegnumlýsingu. Hún margsnýst í leit sinni að staðsetningu sjálfsins sem reif sig upp með rótum og endurkastast nú milli tveggja heima, Hollands og Íslands, þar sem Joris hefur búið. Stráhattur van Goghs og skólufsur flækingsins, sem dúkka stundum upp, minna okkur á að hann er aðkomumaður. 

Í tilefni af sýningunni hefur Listasafnið á Akureyri gefið út 90 blaðsíðna bók með ítarlegri umfjöllun um feril og list Jorisar eftir Úlfhildi Dagsdóttur bókmenntafræðing og Hannes Sigurðsson forstöðumann Listasafnsins á Akureyri.

Sýningin stendur til 7. mars 2010 og er opin alla daga nema mánudaga frá 12-17.

Frekari upplýsingar gefur Hannes Sigurðsson forstöðumaður Listasafnsins á Akureyri í síma 899-3386

Anna Gunnarsdóttir sýnir í bæjarstjórnarsalnum í Ráðhúsi Akureyrar

Mynd_0547331

Opnun sýningarinnar MIKADO í Gallerí Ráðhús.

Föstudaginn 15. janúar klukkan 12 opnar listakonan Anna Gunnarsdóttir
sýningu í Gallerí Ráðhús sem er staðsett í bæjarstjórnarsal ráðhússins.
Sýninguna nefnir hún MIKADO.  Verkin á sýningunni eru unnin út frá japanska
spilinu mikado þar sem leikmenn spila með prik.
Öll verkin á sýningunni eru unnin með shibori tækni og indigo lituð.
Shibori er gömul japönsk tækni sem notuð er við það að búa til munstur á
efni sem síðan eru lituð.
Efnin eru sett á pappa hólka sem lokið hafa sínu starfi að halda textíl
efnum og fá nýtt hlutverk í leik sem listaverk á vegg.
"Þetta er leikur minn  með mikado spil" segir Anna.

Anna Gunnarsdóttir lærði textílhönnun á Íslandi og Danmörk auk þess að hafa
sótt fjölda námskeiða um textíl.
Hún hefur síðari ár aðallega fengist við vinnslu á þæfðri ull og textíl. Hún
blandar saman nytjavöru, myndlist og fatahönnun með þessum miðlum
Anna á að baki fjölda sýninga víðs vegar um heim og hefur hlotið verðlauna
og viðurkenningar fyrir verk sín.
Hún er annar eigandi gallerý Svartfugl og Hvítspóa í miðbæ Akureyrar og er
félagi í Textílfélaginu, Myndlistarfélaginu og Sambandi íslenskra
myndlistarmanna.
Anna var valin bæjarlistamaður Akureyrar árið 2008.

Nánari upplýsingar veitir Anna í síma 897 6064 eða tölvupósti :  anna.design@nett.is


Bloggfærslur 14. janúar 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband