Styrktarsjóður Guðmundu Andrésdóttur auglýsir eftir umsóknum

730-180x500Styrktarsjóður Guðmundu Andrésdóttur auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum á árinu 2008

Samkvæmt skipulagsskrá sjóðsins nr. 9321 er markmið hans ,,að styrkja og hvetja unga og efnilega myndlistarmenn til náms” en stofnfé sjóðsins er arfur samkvæmt erfðaskrá Guðmundu Andrésdóttur listmálara sem lést árið 2001. Ráðstöfunarfé sjóðsins eru raunvextir af höfuðstól og verður í ár ráðstafað 7.5 milljónum króna. Stjórn sjóðsins ákveður hversu margir styrkir verða veittir.
Sjóðurinn styrkir myndlistarmenn til framhaldsmenntunar og er æskilegt að umsækjendur hafi lokið BA prófi í myndlist eða sambærilegu námi. Hægt er að sækja um styrk til lengri eða skemmri námsdvalar erlendis, þó aldrei skemur en til sex mánaða. Umsókn skal fylgja ítarleg greinargerð um fyrirhugað nám ásamt meðmælabréfi og upplýsingum um fyrra nám og starfsferil.
Stefnt er að úthlutun eigi síðar en 13. júní næstkomandi.


Umsóknarfrestur er til og með 9. maí 2008. Umsóknir merktar styrktarsjóðnum skulu sendar:

Listasafni Íslands, Laufásvegi 12, 101 Reykjavík.
Nánari upplýsingar eru veittar í síma Listasafnsins 515 9600.
Stjórn Styrktarsjóðs Guðmundu Andrésdóttur


Jón Laxdal sýnir í Jónas Viðar Gallery

DSCN1782_001

Laugardaginn 19da apríl kl.14.00 verður opnuð sýning á verkum Jóns Laxdal Halldórssonar í Jónas Viðar Gallery Listagilinu á Akureyri.

Sýndir verða hlutir (objektar) gerðir úr bókum, pappa, gleri og þaksaumi, allir nýir af nálinni undir heitinu fáeinir fortitlar og bók eftir Mann.

Jónas Viðar Gallery er opið nú um helgina 14.00-18.00 laugardag og 13.00-18.00 sunnudag.

Annars  föstudaga og laugardaga 13.00 til 18.00.

Sýningin stendur til 11. maí.

Allir velkomnir

Jónas Viðar Gallery: http://www.jvs.is/jvgallery.htm
sími: 8665021


Bloggfærslur 18. apríl 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband