Færsluflokkur: Löggæsla
15.10.2012 | 11:20
Síðustu forvöð að sjá sýningu Unnars Arnar í Flóru
Unnar Örn
Brotabrot úr afrekssögu óeirðar á Íslandi: Fyrsti hluti
Fragments From the Deeds of Unrest in Iceland: Part One
15. september - 20. október 2012
Sýningarlok laugardaginn 20. október
Flóra, Hafnarstræti 90, 600 Akureyri, s. 6610168
http://floraflora.is
https://www.facebook.com/flora.akureyri
Nú eru síðustu forvöð að sjá sýningu Unnars Arnar J. Auðarsonar sem nefnist Brotabrot úr afrekssögu óeirðar á Íslandi: Fyrsti hluti í Flóru í Hafnarstræti 90 á Akureyri. Sýning er opin alla virka daga kl. 12-18 og lýkur laugardaginn 20. október og þá er opið kl. 12-16.
Á sýningunni í Flóru beinir Unnar Örn sjónum sínum að geymd upplýsinga tengdum viðspyrnu almennings og hvernig átök í sögu þjóðar er eytt úr sameiginlegu minni af ríkjandi valdhöfum.
Unnar Örn J. Auðarson stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og framhaldsnám við Listaakademíuna í Malmö. Unnar Örn vinnur í ólíka miðla en verk hans eru yfirleitt hlutar úr stærri innsetningum þar sem hann vinnur á gagnrýninn hátt með umhverfi sitt, samfélagið og hlutverk listamannsins innan þess. Unnar hélt sýna fyrstu einkasýningu í verslunarmiðstöðinni Kringlunni sem hluti af Gallerí Gúlp árið 1996 og síðan þá hefur hann tekið þátt í yfir 50 einka- og samsýningum hérlendis og erlendis.
Heimasíða Unnars Arnar: http://unnarorn.net
Flóra er verslun, vinnustofa og viðburðastaður Kristínar Þóru Kjartansdóttur félagsfræðings og garðyrkjukonu. Áherslan er á nýtingu, endurnýtingu, náttúrutengsl og verkmenningu. Listrænn ráðunautur staðarins er Hlynur Hallsson, myndlistarmaður.
Löggæsla | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)